Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 6
6 MIÐVTKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra í opinberri heimsókn til Litháen
Reuters
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra heimsótti í gær þjálfunarmiðstöð dómara í Vilnius
ásamt Gintaras Balciunas, dómsmálaráðherra Litháen.
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra skoðaði á mánudag Trakai-kastala skammt frá Viln-
ius. Á myndinni eru einnig þeir Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoðarmaður ráðherra, og Björn
Friðfínnsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu.
Getum liðsinnt
Litháum á marg-
víslegan hátt
Opinber heimsókn Sólveigar Pétursdóttur
dómsmálaráðherra til Litháen hélt áfram í
gær. Sunna Ósk Logadóttir fylgist með
heimsókninni sem lýkur í dag með undirrit-
un samstarfssamnings landanna.
PAÐ var mildur og sólríkur haust-
dagur í Vilnius, höfuðborg Lithá-
ens, þegar Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra hóf annan dag
opinberrar heimsóknar sinnar til
landsins í boði dómsmálaráðherr-
ans Gintaras Balciunas. Heimsókn-
in er í framhaldi af fundi dóms-
málaráðherra Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna sem haldinn
var á íslandi fyrir ári er þar var
ákveðið að ráðherrarnir myndu
hittast reglulega til að skiptast á
hagnýtum upplýsingum.
Heimsókn
í þinghúsið
Dagurinn hófst á heimsókn í
þinghúsið í fylgd gestgjafans en
með Sólveigu í för eru Ingvi Hrafn
Óskarsson, ráðgjafí hennar, og
Björn Friðfinnsson, ráðuneytis-
stjóri dómsmálaráðuneytisins. Eft-
ir að skoða innviði þinghússins
sýndi ráðherrann íslensku gestun-
um minnisvarða fyrir utan húsið
um þá sem féllu í sjálfstæðisbar-
áttu landsins fyrir rúmum tíu ánim
en alls létu þrettán Litháar þá lífíð.
Þar mátti einnig sjá skjöld með
þakklæti til íslensku þjóðarinnar.
„Það var mjög áhrifamikið að
koma í þingið og sjá leifar af vír-
girðingu sem sett var þar upp til
varnar Rússum," segir Sólveig.
„Sjálfstæðisbaráttan er þjóðinni
greinilega enn í fersku minni.“
Eftir heimsóknina í þinghúsið
var farið í héraðsdóm í bænum
Molétai skammt frá Vilnius. Þar er
sérstök þjálfunarmiðstöð dómara
til húsa. A fundi sem dómsmála-
ráðherrarnir tveir áttu með þeim
dómurum sem fá nú þjálfun í mið-
stöðinni kom m.a. fram að dómar-
arnir telja sjálfstæði dómsvaldsins
ekki tryggt. Laun dómara eru
mjög lág og fáir dómstólar eru enn
tölvuvæddir en í miðstöðinni fá
dómarar m.a. þjálfun í tölvunotk-
un. Er fundinum lauk sýndi Björn
Friðfinnsson dómurunum íslenska
Stjórnarráðsvefínn og Alþingisvef-
inn og útskýrði uppbyggingu
þeirra.
Að heimsókninni lokinni snæddu
íslensku gestirnir hádegisverð með
litháenska dómsmálaráðherranum
og forseta héraðsdómsins. Þá var
haldið aftur til Vilnius og var ferð-
inni heitið í KGB-safnið í borginni.
Á þessari öld hafa Litháar tvívegis
verið undir stjórn Rússa og þar á
milli á valdi nasista. Húsið sem
hýsir safnið var á árum áður bæði
miðstöð Gestapo og KGB og á það
sér því átakanlega sögu. í máli og
myndum fengu íslensku gestirnir
að heyra um hroðalega meðferð
fanga í kjallara hússins allt fram
undir lok þessarar aldar.
Samstarfssamningur
undirritaður
Deginum lauk með skoðunarferð
um elsta hluta Vilnius og varð ís-
lensku gestunum ljóst að andi
komandi þingkosninga svífur yfír
vötnum. Hvarvetna um borgina
hanga auglýsingspjöld frambjóð-
endanna sem allir sem einn, óháð
stjórnmálaflokki, lofa að beita sér
fyrir inngöngu í Atlantshafsbanda-
lagið og Evrópusambandið.
„Þessi heimsókn hefur verið
ánægjuleg í alla staði,“ sagði Sól-
veig í gær. „Við höfum fengið hlý-
legar móttökur og það er ljóst að
Litháar eru mjög þakklátir fyrir
það frumkvæði sem íslendingar
sýndu er þeir viðurkenndu sjálf-
stæði þeirra fyrir tíu árum. Við
vorum minnt á söguna í dag er við
skoðuðum KGB-safnið þar sem
pólitiskir fangar sátu, voru pyntað-
ir og teknir af lífi. Það var sérlega
táknrænt að sjá hóp af skólabörn-
um skoða safnið í þeim tilgangi að
minna þau á þessa voveiflegu at-
burði. Sú heimsókn var sérstaklega
áhrifamikil."
I dag er ætlunin að dómsmála-
ráðherrarnir skrifi undir sérstaka
viljayfirlýsingu þar sem lögð er
áhersla á aukið samstarf. „Við vilj-
um gjarnan veita Litháum liðsinni
með því að bjóða þeim að senda
bæði lögfræðinga og dómara til Is-
lands til þjálfunar. Við stöndum vel
að vígi í okkar réttarkerfi og get-
um vafalaust aðstoðað þá á marg-
víslegan hátt.“
Á fundi með dómsmálaráðherr-
anum í dag verður samningurinn
ræddur og undirritaður og í kjölfar
hans haldinn blaðamannafundur
með litháenskum fjölmiðlum.
KR stefnir Fram
Tólfföld aukning gesta
Söguseturs á Hvolsvelli
Arthúr Björgvin Bollason, forstöðumaður
Sögusetnrsins á Hvolsvelli.
ÞAÐ stefnir í að gestir Sögu-
setursins á Hvolsvelli verði
12.000 í ár sem er tólfíold
aukning frá árinu á undan
þegar 1.000 manns sóttu það
heim. Að sögn Arthúrs
Björgvins Bollasonar, for-
stöðumanns setursins, eru
skýringar fjölgunarinnar
m.a. söguveislur setursins
sem hófust í vor og hafa notið
slíkra vinsælda að enn er
boðið upp á þær þrátt fyrir
að upphaflega hafi eingöngu
staðið til að þær yrðu til loka
ágúst. „Við gátum ekki hætt,
eftirspurnin var það mikil og
munum við bjóða upp á söguveisl-
una fram undir jól.“
Aukin umsvif í
undirbúningi
Arthúr segir það mikið vera
starfsmannafélög sem sækja í sögu-
veisluna sem hefst með ferð á
Njáluslóðir en lýkur í veislu í sögu-
setrinu þar sem m.a. er borið á
borð eldsteikt lamb og fluttur leik-
þáttur. „Fyrir utan söguveisluna
höfum við svo verið að taka við hóp-
um í miðri viku í skoðunarferðir á
Njáluslóðir auk þess sem ferða-
menn koma hingað til að skoða sýn-
inguna í setrinu. Núna fara líka
skólakrakkar að koma.“
Arthúr segir gesti setursins eink-
um vera íslendinga sem bendi til
þess að menningararfur Islendinga
sé ónýtt auðlind. Arthúr segir að
sögusetrið hafi ekki haft bolmagn
til að sinna öllum þeim sem sýnt
hafa áhuga á því að koma í sögu-
veislur og ferðir, en á stefnuskránni
sé að auka umsvif söguset-
ursins. „Undirbúningur að
dagskrá fyrir erlenda ferða-
menn er þegar hafinn og við
höfum sett okkur í samband
við ferðaskrifstofur sem sýnt
hafa þessu mikinn áhuga.“
Arthúr segir að til þess að
hægt verði að færa út kvíarn-
ar þurfi aukið fjármagn en
sögusetrið er nú rekið að
mestu leyti fyrir fjármagn
frá sex hreppum í Rangár-
þingi. „Það eru ýmsar þreif-
ingar í gangi og fjárfestar að
skoða málið. Við vorum á
fjárlögum síðasta árs og fá-
um vonandi áfram framlag úr ríkis-
sjóði.“
Arthúr segir að í kjölfar vel-
gengni sögusetursins hafi fólk á
ýmsum stöðum af landinu haft sam-
band við sig, til að leita ráða,
áhuginn á menningartengdri ferða-
mennsku sé greinilega mikill. „Það
má líka segja að þessi starfsemi
hafi margfeldisáhrif, því fyrir utan
að veita vinnu sækja ferðamenn
sem hingað koma sér þjónustu
hér.“
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
tók í gær fyrir mál Knattspyrnufé-
lags Reykjavíkur gegn Fram-Fót-
boltafélagi Reykjavíkur. KR telur
nafnið Fram-Fótboltafélag
Reykjavíkur vera of líkt nafni KR
sem skapi hættu á nafnaruglingi,
ekki síst þegar nöfn félaganna eru
þýdd yfir á erlend tungumál.
KR fer fram á að Fram-Fót-
boltafélagi Reykjavíkur verði með
dómi gert að afmá nafnið úr hluta-
félagaskrá og bannað að nota
nafnið hvort sem er á íslensku eða
á erlendum tungumálum að öðru
leyti. KR bendir á að ensk þýðing
á heiti KR er „Reykjavík Football
Club“ eða „Football Club of
Reykjavík." í styttri útgáfu yrði
nafnið Reykjavík FC. Þýðing á
heitinu Fram-Fótboltafélag
Reykjavíkur yrði nákvæmlega sú
sama. KR segir að þegar hafi bor-
ið á því að ruglingur hafi skapast á
milli félaganna.
Fram hafnar kröfugerð KR og
segir fráleitt að KR geti eignað
sér nafn Reykjavíkurborgar. Það
sé alþekkt að fleiri en eitt knatt-
spyrnufélag kenni sig við sömu
borgina.
Fyrir um tveimur árum lagði
KR fram kæru til Samkeppnis-
stofnunar þar sem farið var fram á
að Fram gæti ekki notað nafnið
Fótboltafélag Reykjavíkur. Sam-
keppnisráð komst þá að þeirri nið-
urstöðu að auðkenni félaganna
væru það frábrugðin að ekki yrði
villst á þeim. Svo lengi sem Fram-
nafnið kæmi fyrir í heitinu væri
engin hætta á ruglingi. Með vísan
til sömu sjónarmiða var ekki talið
að þýðing heitanna yfir á ensku
skapaði hættu á ruglingi.
Arekstur
við
Selfoss
TVEIR fólksbílar skullu saman
á Suðurlandsvegi skammt
norðan við Ölfusárbrú um há-
degisbil í gær. Öðrum bílnum
var ekið yfir á rangan vegar-
helming með þeim afleiðingum
að hann lenti framan á bifreið
sem kom úr gagnstæðri átt. Að
söp lögreglu á Selfossi kvart-
aði ökumaður annars bílsins
undan bakmeiðslum og var
hann fluttur til læknisskoðun-
ar.