Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNB LAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
A
Ibúar afhenda bæjaryfírvöldum í Kópavogi tæplega 11 þúsund undirskriftir
„Nú er boltinn hjá
bæjaryfirvöldum“
Kópavogur
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Áhugahópur um sveit í borg afhenti Ármanni Kr. Ólafssyni, formanni skipulagsnefndai- í
Kópavogi, undirskriftir tæplega 11 þúsund íbúa sem mótmæla fyrirhugaðri byggð.
ÁHUGAHÓPUR um „Sveit í
borg“ afhenti í gær Ármanni
Kr. Ólafssyni, bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og for-
manni skipulagsnefndar
Kópavogs, undirskriftalista
með tæplega 11 þúsund und-
irskriftum, þar sem þess er
farið á leit við bæjaryfirvöld
að þau falli frá fyrirhuguðum
skipulagstillögum um byggð
í landi Vatnsenda.
„Það eru fordæmi fyrir því
að svona undirskriftalistar
skili árangri og við hefðum
aldrei lagt út í þessa söfnun
ef við hefðum haldið að bæj-
aryfii-völd myndu taka þetta
og stinga þessu ofan í
skúffu," sagði Rut Kristins-
dóttir, íbúi á Vatnsenda,
þegar hún afhendi Ármanni
Kr. listana. „Nú er boltinn
hjá bæjaryfirvöldum en við
erum ekkert sofnuð á verðin-
um.“
Viðkvæmt samspil
umhverfís og lífríkis
Rut sagði að Elliðavatn og
umhverfi þess væri náttúru-
perla við höfuðborgarsvæðið,
tengt Elliðaárdal og Heið-
mörkinni. Hún sagði að þús-
undir manna legðu leið sína
um Elliðavatnssvæðið árlega
til þess að njóta þar fjöl-
breyttrar útivistar og að
vatnið væri eitt lífríkasta
vatn landsins.
„Mikilvægt er að tekið sé
tillit til viðkvæms samspils
umhverfis og lífríkis áður en
ráðist er út í óafturkræfar
framkvæmdir. Jafnframt
leggjum við til að framtíðar-
skipulag svæðisins taki mið
af einu meginmarkmiði núg-
ildandi aðalskipulags Kópa-
vogs, en þar stendur: Ný
byggð skal falla vel að um-
hverfinu og þess gætt að
náttúruverðmætum sé ekki
spillt.“
Fáum ekki umflúið dóm
komandi kynslóða
Rut vitnaði síðan í erindi,
sem Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur flutti á fundi
Hins íslenska náttúru-
fræðifélags árið 1949, en þar
sagði hann: „En til eru þau
verðmæti sem ekki verða
metin til fjár og það þó þau,
sem gefa mannlegu lífi inni-
hald og meiningu og er ekki
vafasamt raunsæi að van-
meta þau? Seðlarnir fúna og
við sem þeim söfnum, fúnum
líka, en við fáum ekki um-
flúið þann dóm komandi
kynslóða um það, hvernig við
skiluðum landinu okkar í
þeirra hendur. Þáð er stund-
um hægt að bæta tjón af
fjármálalegum eða pólitísk-
um afglöpum, en fordjarfan-
ir á náttúrumenjum eru í
flokki þeirra afglapa sem
ekki verða bætt. Állt gull
jarðar getur ekki gefið okk-
ur aftur einn einasta geir-
fugl, og engin nýsköpunar-
tækni getur byggt upp
Rauðhólana að nýju.“
Of snemmt að segja
til um framvindu mála
Ármann Kr. sagði of
snemmt aðsegja til um það
hvaða áhrif undirskriftalist-
arnir og þessi mótmæli
íbúanna myndu hafa á fram-
vindu mála.
„Eg mun kynna þetta fyrir
skipulagsnefnd og segja
þeim frá þessu og svo mun
ég afhenda þetta settum
bæjarstjóra og vænti þess að
þessu verði komið á fram-
færi við bæjarfulltrúa," sagði
Ármann Kr. „Hvað skipulag-
snefnd varðar þá förum við
allar þær athugasemdir sem
berast og svörum þeim og
mér sýnist þetta koma inn á
marga þá þætti sem þegar er
búið að koma inn á varðandi
athugasemdirnar."
Eins og kom fram í Morg-
unblaðinu á föstudaginn, þá
hefur borgarstjórn Reykja-
víkur óskað eftir formlegum
viðræðum við bæjaryfirvöld í
Kópavogi um Vatnsenda-
svæðið og farið fram á náið
samstarf bæjarfélaganna um
skipulag þess svæðis sem
liggur að Elliðavatni.
Höfum verið í samstarfi
við Reykjavíkurborg
„Varðandi þetta þá vil ég
bara segja það að við höfum
verið í samstarfí við Reykja-
víkurborg varðandi þetta
mál,“ sagði Armann Kr.
„Þess vegna skil ég ekki
hvað Reykjavíkurborg er að
fara, það hefur aldrei staðið
á okkur að ræða umhverfis-
málin, en eins og málið er
framsett af Reykjavíkurborg
þá er eins og við höfum ekki
viljað tala við þá. Hinsvegar
munum við ekki spyrja þá út
í skipulagsmálin, eða hvernig
við eigum að skipuleggja. Ef
við setjum okkur ramma og
ákveðin skilyrði varðandi
umhverfismálin þá treystum
við okkur alveg til þess að
skipuleggja byggðina í sam-
ræmi við það.“
Aðstaðan við Breiðholts- og Grafarvogslaug bætt næsta sumar
Næsta sumar mun ný, um 7 metra há, vatnsrennibraut rísa í Grafarvogslaug.
Morgunblaðið/Þorkell
Um 40 m löng vatns-
rennibraut í Grafarvogi
Grafarvogur/Breiðholt
ÞRJÁR nýjar vatnsrenni-
brautir verða settar upp í
Breiðholtslaug og Grafar-
vogslaug næsta sumar, en
byggingardeild Borgar-
verkfræðings hefur þegar
óskað eftir tilboðum i
rennibrautirnar. Kristinn J.
Gislason, verkefnisstjóri
ÍTR, sagði að rennibraut-
irnar yrðu ólíkar í laginu
en að við val á þeim yrði
stuðst við þarfagreiningu
sem fram hefði farið á
meðal viðskiptavina laug-
anna.
„Rennibrautin í Grafar-
vogslauginni verður nokk-
uð stór, en þó aðeins minni
en rennibrautin í Laugar-
dalslauginni,“ sagði Krist-
inn J.
Kristinn J. sagði að til-
boðsgjafarnir hefðu nokk-
urt svigrúm varðandi stærð
og hönnun rennibrautar-
innar, en að samkvæmt út-
boðsgögnum væri gert ráð
fyrir því að brautin yrði
spírallaga um 40 metra
löng og um 7 metra há.
Hann sagði að við hönnun
brautarinnar þyrfti að gera
ráð fyrir því að hægt verði
að stækka rennibrautina
síðar, væntanlega innan
tveggja til þriggja ára.
Að sögn Kristins J. verð-
ur byggð Iftil laug við
rennibrautina og þá verður
einnig byggð lítil vaðlaug
fyrir sundlaugargesti.
Vatnsrennibrautirnar
tilbúnar næsta sumar
I Breiðholtslaug er ráð-
gert að setja upp tvær sam-
síða brautir sem munu
liggja beint ofan í litla laug
sem nú þegar er við hlið
aðall augarinnar.
„Þessar brautir verða
beinar en með svona ein-
hverjum hryggjum sem
gefa skemmtilega tilfinn-
ingu þegar krakkarnir
rúlla niður.“
Rennibrautirnar í Breið-
holtslaug verða nokkru
minni en sú sem á að reisa
í Grafarvogslaug, en miðað
er við að þær verði um 5 til
6 metra háar. Önnur braut-
in verður um 25 metra löng
og hin um 30 metra löng.
Kristinn J. sagði að allar
rennibrautirnar yrðu
keyptar á þessu ári en að
þær yrðu ekki settar upp
fyrr en á næsta ári. Hann
sagði að rennibrautirnar í
Brciðholtslaug ættu að
geta verið komnar í notkun
upp úr miðju sumri en
rennibrautin í Grafar-
vogslaug eitthvað seinna,
þar sem byggja þyrfti sér-
laug við hana.
Skólastj órnend-
ur og kennarar
fá fartölvur
Garðabær
GARÐABÆR og Einar J.
Skúlason hf. hafa undirritað
samning um að kaupa far-
tölvur fyrir skólastjórnendur
og alla kennara í grunnskól-
um Garðabæjar. Jafnframt
hefur annar tölvubúnaður
verið endurnýjaður og hraði
gagnaflutninga um Netið
verið aukinn.
Starfshópur á vegum
fræðslu- og menningarsviðs
Garðabæjar hefur unnið
skýrslu sem ber nafnið
„Framtíðarskipan tölvu-
mála grunnskóla Garðabæj-
ar“. Þar eru sett fram
markmið, sem miða að því að
gera grunnskólum bæjarins
kleift að mæta aukinni notk-
un tölvu- og upplýsinga-
tækni í skólastarfinu.
Auk þessa samnings um
kaup á fartölvum fyrir skóla-
stjórnendur og kennara
samþykkti bæjarráð að ráð-
inn yrði kennsluráðgjafi í
tölvu- og upplýsingatækni og
tölvuumsjónarmaður í
Morgunblaðið/Jim Smart
Gunnlaugur Sigurðsson,
skólastjóri Garðaskóla,
Jóhannes Breiðfjörð Pét-
ursson, sölumaður hjá
EJS, og Ingimundur Sig-
urpálsson, bæjarstjóri í
Garðabæ.
hvern grunnskóla Garðabæj-
ar. Einnig að skipulagt yrði
20 kennslustunda endur-
menntunarnámskeið fyrir
kennara í notkun tölvu- og
upplýsingatækni í námi og
kennslu.
Hatið í Garðabæ
Garðabær
TILLAGA um að efnt yrði
til hátíðar í Garðabæ, eina
helgi að vori eða hausti, var
lögð fyrir bæjarstjórn ný-
lega og var samþykkt að vísa
henni til bæjarráðs.
I tillögunni segir að
tilgangur hátíðarinnar sé að
efla samkennd og bæjarvit-
und íbúa Garðabæjar og gefa
sem flestum tækifæri til að
taka þátt. Lagt er til að sem
flestir þættir bæjarlífsins
verði tengdir saman, svo sem
skólastarf, íþróttir og félags-
starf og í tillögunni koma
fram hugmyndir að viðburð-
um fyrir hátíð af þessu tagi.
í tillögunni er stungið upp
á því að haldin verði íþrótta-
mót fyrir leikskólabörn og
grunnskólabörn og að haldið
verði markaðstorg og fjöl-
skylduskemmtun á Garða-
torgi svo dæmi séu nefnd og
að hátíðinni myndi ljúka með
grillveislu eða fjölskyldu-
balli.