Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 1 7
Þjónustumiðstöðin í Súðavík
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Byggiug nýrrar þjónustumiðstöðvar í Súðavík gengur vel.
Uppsteypu lokið
innan þriggja vikna
Ísafírði - Framkvæmdir við bygg-
ingu þjónustumiðstöðvar í nýju
byggðinni í Súðavík hafa staðið yfir í
allt sumar. Markmiðið er að steypa
húsið upp og loka því fyrir veturinn
og vonast menn til að uppsteypu ljúki
innan þriggja vikna. Þá verður farið í
að útibyrgja og síðan verður unnið í
húsinu í allan vetur. Stefnt að því að
taka það í notkun eftir rúmt ár.
Verkið er í höndum heimamanna,
Trésmiðju Garðars Sigurgeirssonar
ehf., sem var lægstbjóðandi í allt
verkið ofan botnplötu. Húsið verður
tæplega 800 fermetrar og verður þar
stjórnsýsla Súðavíkurhrepps, aðset-
ur heilsugæslunnar, h'til greiðasala,
pósthús, bankaþjónusta og fleira.
Þessi bygging má heita lokaátakið í
flutningi byggðar í Súðavík.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fjölmenni í stóðrétt-
um í Skrapatungurétt
Blönduósi - Fjölmenni var í stóð-
réttum í Skrapatungurétt A-
Húnavatnssýslu á sunnudag í blíð-
skaparveðri. Réttarstörf gengu vel
fyrir sig og var hraustlega tekið á.
Smölunin í Laxárdalnum gekk vel á
laugardeginum og fjölmargir að-
komumenn tóku þátt en bæði stóð-
réttir og smölun virðast vera vin-
sælir atburðir.
Morgunblaðið/Sigurjón Sigurðsson
Forkólfarnir þrír
Innheimtumál Byggðastofnunar
ísafirði - Meðal gesta á Atvinnu-
vegasýnjngu Vestfjarða sem haldin
var á Isafirði um síðustu helgi
voru þessir þrír heiðursmenn en
málefni þeim viðkomandi hafa ver-
ið nokkuð í fréttum að undanförnu.
Tveir þeirra eru þingmenn Bolvík-
inga/Vestfirðinga og jafnframt
stjórnarmenn í Byggðastofnun,
þeir Einar K. Guðfinnsson og
Kristinn H. Gunnarsson, stjórnar-
formaður Byggðastofnunar.
Á milli þeirra er sparisjóðsstjór-
inn í Bolungarvík, Ásgeir Sól-
bergsson.
Ekki er vitað hvort innheimtu
fyrir Byggðastofnun og samninga
þar að lútandi við Sparisjóð Bol-
ungarvíkur hefur borið á góma við
þetta tækifæri. Ef til vill hafa þeir
verið að biðja Gallup að athuga
nánar viðhorf almennings. En
hvað sem því líður virðast þeir
ókvíðnir á svipinn.
M0T0R0LA V2288
• VIT og WAP simi
• Innbyggt FM steríó iitvarp
• IVlHVili 700 mAii raflilaóa.
Endist allt að 210 klst. í bið
og 3,5 i notkun
• Harðar og mjúkar framhlióar
• Handfrjáls búnaður iyrir saml
oy iitvarpsbiustiiij^r->i^»
» Pyncid: lðO Æft-
Lcttka o r g u n: f
Síminn GSM býður nú tvo magnaða Motorola síma á frábæru
verði. Ef þú vilt WAP og VIT-jafnvel innbyggt útvarp - fyrir
lítinn pening þá eru þessir símar máliði
V{ .'
SÍMINN GSM
Fæst í verslunum Sfmans færir þér framtíoina
aU
v Léttkauptútborgun auk 1.000 kr. á mAnuðl
f 12 mánuðl sem færlst á sfmrelknlnglnn.