Morgunblaðið - 27.09.2000, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Atvinnuvegasýmng Yestfjarða um síðustu helgi
MorgunblaðiJ/Siguijón J. Sigurðsson
Daði Guðjónsson frá Hólmavík, Guðjón Arnar Krisljánsson alþingismaður, Engilbert
Ingvarsson og Gísli Einarsson alþingismaður höfðu margt að spjalla.
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður, Finnbogi Hermannsson útvarpsmaður, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri voru á meðal gesta.
Fjögur þúsund manns
heimsóttu sýninguna
ísafirði - Gestir á Atvinnuvegasýn-
ingu Vestfjarða, Sól nýrra daga, í
íþróttahúsinu á ísaiirði um síðustu
helgi voru um ijögur þúsund, - „það
er að segja ef bömin, sem voru þar að
heita má alla helgina, eru ekki talin
nema einu sinni,“ sagði Sigríður 0.
Kristjánsdóttir í sýningarstjóminni.
„Þetta gekk allt upp og mér virtust
sýnendur flestir vera ánægðir með
sinn hlut.“ Sýningarbásar vom 45 en
sýnendur alls um 60.
í tengslum við sýninguna opnuðu
nokkur vestfirsk fýrirtæki heimasíð-
ur á Netinu. Það var hin mikla tækni-
væðing og tölvunotkun á sýningar-
básum sem gerði þessa sýningu helst
frábmgðna hinum fyrri. Reyndar
varð tæknivæðingin á básunum með
tilheyrandi rafmagnsnotkun til þess
að rafmagn í íþróttahúsinu sló út um
stundarsakir á laugardaginn.
Sá dagskrárliður á sýningunni, sem
Fjöldi gesta var svipaður og á síðustu sýningu.
mestra vinsælda naut, var kvikmynd Fjöldi sýningargesta var svipaður
frá hátíðahöldum á ísafirði árið 1966 nú og á síðustu atvinnuvegasýningu
þegar fagnað var aldarafmæli ísa- fyrir tveimur ámm. Þá komu fleiri en
fjarðarkaupstaðar. Myndin var sýnd áður höfðu sést á slíkum sýningum á
þrisvar sinnum á bás RQdsútvarpsins. Isafirði.
Önfírðingar vilja hafa lækni sinn áfram
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
Guðjón S. Brjánsson tekur við undirskriftalistunum frá Guðlaugu
Auðunsdóttur og Gróu Haraldsdóttur.
Ottast að
Lýður
læknir sé
á förum
ísafirði - „Okkar ágæti læknir (og
stuðbolti) Lýður Árnason! Við trú-
um því ekki að þú sért að fara frá
okkur vegna þess að ekki sé unnt að
semja við þig um kaup og kjör. Við
þurfum á þér að halda áfram og
þess vegna viljum við skora á þig og
yfirmenn heilbrigðisþjónustunnar á
Flateyri að tryggja veru þína hér.“
Þannig hljóðar áskorun sem 195
manns á Flateyri og annars staðar í
Önundarfirði hafa undirritað. Þær
Gróa Haraldsdóttir og Guðlaug
Auðunsdóttir á Flateyri afhentu
undirskriftalistana þeim Lýð lækni
og Guðjóni Brjánssyni, fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðisstofnun-
arinnar físafjarðarbæ, á mánudag.
Guðjón mun væntanlega koma list-
unum áfram til kjaranefndar í
Reykjavík sem annast málið.
Lýður Árnason hefur verið lækn-
ir á Flateyri í nokkur ár. Nú cru
blikur á Iofti vegna þess að áformað
mun að bjóða honum lægri laun og
verri kjör þegar núgildandi starfs-
samningur rennur út. Fullvíst er
talið að Lýður hyggi til brottferðar
ef hann heldur ekki svipuðum kjör-
um og verið hefur. Fólk í Önundar-
firði vill hafa Lýð áfram, bæði sem
lækni og samborgara.Auk þess að
vera vinsæll læknir hefur Lýður
verið mjög virkur í félagslífi og
skemmtanalífi á Flateyri á undan-
förnum árum, eins og „hausinn“ á
undirskriftalistunum minnir á. Þær
Gróa og Guðlaug segja að fólki
þurfi ekki að hitta lækninn cins oft
á stofu og ella vegna þess að það
hitti hann á mannamótum, þar sem
hann er óþreytandi að létta lund.
1 PioodiWgnipitiaik-hju
Unga fólkið æfir sig í hljóðveri Ríkisútvarpsins.
Guðný Káradóttir frá markaðsdeild Eimskips og Snæbjörn Halldórsson,
nýráðinn svæðissljóri Eimskips á Isafirði, ræða við Pál Harðarson, einn
af eigendum hins framsækna fyrirtækis 3X-Stál á ísafirði.
Þingmennirnir Guðjón Guðmundsson, Kristinn H. Gunnarsson og
Vilhjálmur Egilsson.
Bókaðu í síma 570 3030 og 456 3000
fra 9.930kr. meíflujvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is