Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 20
20 MIBVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Harðorðar yfírlýs-
ingar ganga á milli
stjórna LSE og OM
Ósló. Morgunblaðið.
ÞAÐ andar köldu á milli stjóma
Kauphallarinnar í London og OM
Gmppen í Stokkhólmi og harðorðar
yfirlýsingar ganga á víxl. Stjóm
LSE sendi hluthöfum LSE bréf í
fyrradag þar sem þeir vom varaðir
við hlægilegu tilboði OM í LSE.
Stjóm OM hefur nú svarað og segir
stefnumótun stjórnar LSE lausa í
reipunum og að stjómina skorti
framtíðarsýn. Frá þessu greinir m.a.
á BBC, ft.com og sænska viðskipta-
vefnum E24.
í bréfi LSE til hluthafanna era
þeir hvattir til að hafna óvinveittu til-
boði sænska fyrirtækisins OM
Grappen í LSE. Bréfið er harðort og
segir m.a. að tilboðið sé algjörlega
óviðunandi og hafi í för með sér full-
komið áhrifaleysi LSE.
í yfirlýsingu OM er stjórn LSE
hvött til að taka tilboð OM til endur-
skoðunar. OM muni veita LSE það
sem Kauphöllin þarfnist, styrka
stjórnun og skýra framtíðarsýn.
Stjóm LSE ítrekar þá skoðun sína
í bréfinu að OM vanmeti LSE i til-
boði sínu og sameining fyrirtækj-
anna hafi enga kosti í för með sér. Að
mati stjórnar LSE er það ætlun OM
að kaupa LSE ódýrt með hlutabréf-
um í OM sem hafa sveiflast í verði.
Hluthafar era m.a.s. hvattir til að
hunsa öll gögn sem þeim berast frá
OM. Tilboð OM sem samanstendur
af reiðufé og hlutabréfum, metur
LSE á um 815 milljónir punda eða
tæpa 100 milljarða íslenskra króna
en markaðsverðmæti LSE er talið
yfir 900 milljónir punda.
Framkvsmdastjóri og
ráðgjafafyrirtæki hætta
Fyrir tveimur vikum var iX sam-
rani LSE og Deutsche Börse í
Frankfurt blásinn af og um leið til-
kynnti LSE að í kjölfarið yrði allt
kapp lagt á að verjast óvinveittu til-
boði OM. Bréfið sem sent var út í
gær er liður í þeirri baráttu.
Stjóm LSE hefur fengið á sig
veralega gagnrýni undanfarið. I
kjölfar aðalfundar sagði Gavin Casey
framkvæmdastjóri starfi sínu lausu,
og nú hefur annað aðalráðgjafafyrir-
tæki LSE í iX samrananum, Merrill
Lynch bankinn, hætt samstarfinu.
I bréfinu era hluthafar boðaðir á
hluthafafund hjá LSE 19. október
nk. og þar verður m.a. rædd reglan
um að einstakur hluthafi megi ekki
eiga meira en 4,9% hlutafjár í LSE. í
yfirlýsingu segir stjóm LSE að hún
muni ekki skýla sér bak við reglu-
mar um 4,9% hámarkið til að verjast
tilboði OM. Eigendasamsetning
LSE dragi hins vegar úr áhrifum
hluthafa LSE í hugsanlega samein-
uðu fyrirtæki, þar sem þar séu eig-
endur margir, en fáir að OM.
OM er í 40% eigu framkvæmda-
stjómar OM, a.m.k. 9,5% í eigu
sænska ríkisins og 15,3% í eigu In-
vestor, fjárfestingarfélags í eigu
Wallenbergfjölskyldunnar, að því er
hluthöfum LSE er bent á í bréfinu
frá stjóminni.
Helstu rök OM fyrir samrana fé-
laganna er sú tækni sem OM hefur
yfir að ráða og myndi koma LSE til
góða. Að mati stjómar LSE hefur
hvorki kauphöllin í London né við-
skiptavinir hennar þörf fyrir slíka
tækni.
Sérleyfi - Franchising
Námstefna
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu í samstarfi við PricewaterhouseCoopers
boða til námstefnu um sérleyfi (franchising) þann 28. september á Grand Hótel
kl. 8:30-12:30. Námstefna sem þessi heíur ekki verið haldin áður hér á landi.
Aðalfyrirlesari er Borge Nilssen hjá Effectum Franchise Consulting. Fyrirtækið er leiðandi á sviði
sérleyfa í Skandinavíu. Borge hefur tæplega 30 ára reynslu af sérleyfum (franchising) og hefur unnið
við að koma upp 150 sérleyfum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Fyrirlestrar hans fara fram á ensku.
Dagskrá:
8:30 Inngangur
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ
8:40 Borge Nilssen, Effectum Franchise Consulting
Hvað er sérleyfi og hvernig er það notað?
9:40 Cunnar Sturluson, hrl. - Logos lögmannsþjónusta
Sérleyfi: íslensk lög og lagaumhverfi
10:10 Kaffihlé
10:30 Borge Nilssen, Effectum Franchise Consulting
Veiting og viðtaka sérleyfa
11:30 Umræður/fyrirspurnir
12:00 Cunnar Elvarsson, SAND
Reynsla okkar af sérleyfum
12:30 Námstefnuslit
Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Fríðu Jónsdóttur í síma 550 5300.
Netfang: frida.jonsdottir@is.pwcglobal.com
Verð: 11.500
Boðið verður upp á léttar veitingar.
PricewaTerhouseQopers 0
_____________
Morgunblaöiö/Þorkell
F.v. Nick Axworthy frá Touch Vision, Kristján Danfelsson framkvæmda-
stjóri og Hiimar Guðmundsson, tæknistjóri Bókunarmistöðvarinnar.
Nýr bókunarvef-
ur í ferðaþjón-
ustu á Islandi
BÓKUNARMIÐSTÖÐ íslands hef-
ur opnað íslenskan bókunarvef fyrir
ferðaþjónustu á íslandi en vefurinn
heitir discovericeland.is. Á vefnum
verður í fyrsta sinn hægt að bóka
beint og staðfesta gistingu um land
allt, panta sérferðir ýmissa aðila,
bílaleigubíla, skemmtanir o.fl. hvað-
an sem er úr heiminum. Auk bókun-
armöguleikanna er að finna ítarlegar
upplýsingar um land og þjóð á vefn-
um, sveitarfélög og landsvæði og alla
helstu viðburði hverju sinni.
Viðskiptavinir geta
bókað heima
Kristján Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Bókunarmiðstöðvar-
innar, segir að bókun á vefnum sé
einfold og geta viðskiptavinir bókað
á tölvunni heima hjá sér. Viðskipta-
vinurinn velji gististað eða þjónustu
og bókunarkerfi Bókunarmiðstöðv-
arinnar hringi síðan sjálfkrafa í þjón-
ustuaðilann. Sé pöntun staðfest er
staðfestingargjald fært á greiðslu-
kort notanda og báðir aðilar fá í
hendur staðfestingu. Ferðamaður-
inn framvísi síðan staðfestingunni
við komuna.
Kristján segir það vera nýjung að
allir samstarfsaðilar Bókunarmið-
stöðvarinnar geti uppfært beint á
Netinu allar upplýsingar um þjón-
ustu sína, sveitarfélög, landshluta
eða atburði.
Talið er að veralegur hluti við-
skipta í ferðaþjónustu muni færast
inn á Netið á næstu misseram og
hafa flugfélög um allan heim því lagt
mikla áherslu á sölu farmiða á Net-
inu og hafa þau viðskipti aukist gríð-
arlega.
Hugbúnaðurinn að baki vef Bók-
unarmiðstöðvar Islands gerir sam-
starfsaðiium kleift að færa inn upp-
lýsingar hvaðan sem er. Að sögn
Kristjáns var það fyrirtækið Touch
Vision sem sá um þróun hugbúnað-
arins og kom einn eigenda Touch
Vision, Nick Axworthy, hingað tii
lands í tilefni af opnun vefjarins.
Geta sjátfir fært inn upplýsingar
Öll innsetning gagna er mjög ein-
föld og er öllum samstarfsaðilum op-
in. Með þennan möguleika í boði hef-
ur Bókunarmiðstöð íslands þegar
gert samninga við landshlutasamtök
og bæjarfélög víða um land. Sveitar-
félög og þróunar- og atvinnumálafé-
lög hafa einnig sýnt þessum mögu-
leika mikinn áhuga.
Kristján segir að helsti kostur
vefjarins sé sá að samstarfsaðilar á
hveijum stað geta uppfært upplýs-
ingar um sinn landshluta eða sitt
sveitarfélag sjálfir, kynnt nýjungar
og sent inn fréttir og vakið athygli á
áhugaverðum atburðum. Ekki þurfi
að senda upplýsingar í hendur um-
sjónaraðila með tilheyrandi kostnaði.
Þannig verði til lifandi og skemmti-
legur vefur um allt sem sé að gerast í
landinu hverju sinni og tengist ferða-
þjónustu, listum og menningu.
Á næstunni verður komið fyrir
fjölnota útstöðvum, þ.e. skjámiðlum
eða kiosku, víða um land, þar sem
hægt verður að ganga að sömu bók-
unarmöguleikum og upplýsingum.
Með sérstöku samkomulagi við upp-
lýsingamiðstöðvar ferðamála í öllum
landshlutum hefur skapast tenging
milli landshluta í gegnum kerfið, sem
hægt er að uppfæra hvar sem er.
Ríkisorkufyrir-
tæki verðmetið
mismunandi
Ó8l<í. Morgunblaðið.
STATKRAFT, norska ríkisorku-
fyrirtækið, er metið á 27-50 millj-
arða norskra króna af tveimur ráð-
gjafarfyrirtækjum, sem greinir á i
mati sínu. Þetta samsvarar 243-
450 milljörðum íslenskra króna.
í Dagens næringsliv er greint
frá því að norski olíu- og orkumál-
aráðherrann Olav Akselsen, hafi
fengið fyrirtækin Emst & Young
og Dresdner Kleinwort Benson til
að meta verðmæti Statkraft áður
en að einkavæðingu þess kemur.
Fyrrnefnda fyrirtækið metur Stat-
kraft á 45-50 milljarða norskra
króna, en hið síðamefnda á 27-33
milljarða.
Ástæðan fyrir miklum mun á
verðmætamati ráðgjafarfyrirtækj-
anna er talin að fyrirtækin beita
ólíkum aðferðum, þar sem Dresdn-
er Kleinwort Benson leggur mun
meiri alþjóðlegar áherslur en
E&Y. Bæði fyrirtækin verðleggja
Statkraft þó hærra en bókfært
verð segir til um, en það er sam-
kvæmt olíu- og orkumálaráðu-
neytinu 22 milljarðar norskra
króna um mitt ár.
Ráðherrann áætlar að fram fari
reglulegt mat á Statkraft þangað
til einkavæðing þess hefst en tíma-
setningin hefur ekki verið ákveðin.
Einkavæðingaráform ríkisstjórn-
arinnar eru lengra komin varðandi
Telenor og Kreditkassen, einnig
eru Statoil og Den norske Bank
ofarlega á blaði.