Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 21
ERLENT
Fyrrverandi yfírmaður leyniþjónustu Perú flýr land
Stjórn Panama fliugar
að veita Montesinos hæli
Reuters
Stúlka heldur á mútmælaspjaldi með áletruninni „Panama, ekki veita
morðingjum hæli“ við sendiráð Panama í Lima.
Panamaborg. Reuters, AP, AFP.
STJÓRN Panama kvaðst í gær vera
að íhuga beiðni Vladimiros Montesin-
os, fyrrverandi yfirmanns leyniþjón-
ustu Perú, um að hann fengi hæli í
landinu. Montesinos flúði til Panama
á sunnudag og utanríkisráðherra
landsins sagði að ákveðið hefði verið
að veita honum dvalarleyfi til bráða-
birgða þar sem her Perú hefði ætlað
að taka völdin í sínar hendur ef
njósnaforingjanum yrði vísað frá
Panama.
Montesinos fór með flugvél tál
Panamaborgar á sunnudagsmorgun
þótt stjóm Panama hefði hafnað
beiðni hans um hæli daginn áður.
Stjómin ákvað þó á sunnudag að veita
njósnaforingjanum fyrrverandi dval-
arleyfi sem ferðamanni í alit að tvo
mánuði vegna þrýstings annarra
ríkja í Rómönsku Ameríku.
Samtök Ameríkuríkja hafa lagt
fast að stjóm Panama að verða við
beiðni Montesinos til að auðvelda
Perúmönnum að vinna sig út úr þeirri
pólitísku kreppu sem ríkt hefúr í
landinu eftir að njósnaforinginn fyrr-
verandi var staðinn að því að múta
þingmönnum stjómarandstöðunnar.
Mútumálið varð til þess að Alberto
Fujimori, forseti Perú, tilkynnti fyrr í
mánuðinum að hann hygðist boða til
forsetakosninga og ekki sækjast eftir
endurkjöri. Þar til mútumálið kom
upp var njósnaforinginn hægri hönd
forsetans og leiðtogar stjómarand-
stöðunnar höfðu lengi sakað Montes-
Vladimiro Montesinos, fyrrver-
andi yfirmaður leyniþjónustu
Perú.
inos um að njósna um stjómarand-
stæðinga og þvinga þá til að styðja
forsetann, auk þess sem hann hefur
verið bendlaður við ólöglega vopna-
sölu til Kólumbíu og eiturlyfjasmygl-
ara. Þá hefur hann verið sakaður um
alvarleg mannréttindabrot, m.a.
pyntingar og morð, í baráttunni gegn
skæruliðum í Perú.
Vildu afstýra valdaráni
Montesinos hefur verið mjög
áhrifamikill í her Perú og utanríkis-
ráðherra Panama, José Miguel Alem-
an, sagði að ákveðið hefði verið að
taka beiðni hans um hæli til athugun-
ar að nýju til að afstýra valdaráni.
„Við fengum þær upplýsingar frá
ýmsum forsetum og utanríkisráð-
herrum að herinn myndi fremja vald-
arán á sunnudag ef við gæfum ekki
eftir,“ sagði Aleman. „Við fengum
upplýsingar um að hersveitir, sem
em með bækistöðvar við landamærin,
hefðu haldið í átt að Lima í dögun á
sunnudag."
UtanríkisráðheíTann bætti við að
sú staðreynd að margir teldu að út-
legð Montesinos væri eina leiðin til að
tryggja lýðræði í Perú „benti til þess
að hann hefði í raun verið leiðtogi
landsins".
Margir Panamabúar era þó and-
vígir því að Montesinos fái hæli í land-
inu og segja að litið sé á það sem
griðastað fyrir harðstjóra sem önnur
ríki Rómönsku Ameríku vilji losna
við. Sinecio Jarama, fyrrverandi hers-
höfðingi í Panama, sagði að banda-
menn Montesinos í yfirstjóm Perú-
hers hefðu komið honum til hjálpar
með því að breiða út „skröksögur" um
að valdarán væri yfirvofandi.
Fujimori gagnrýndur
Leiðtogar stjómarandstöðunnar í
Perú gagnrýndu Fujimori harkalega
fyrir að leyfa Montesinos að flýja land
og komast hjá ákæra. Stjómarand-
staðan hafði krafist þess að njósnafor-
inginn fyrrverandi yrði handtekinn
og sóttur til saka. Tveir af þingmönn-
um stjómarandstöðunnar fóra til
Panama í fyrradag til að freista þess
að fá ráðamennina til að hafha beiðni
Montesinos.
Fujimori leysti Montesinos form-
lega frá störfum í fyrradag. Forsetinn
kvaðst hafa fallist á „afsögn" njósna-
foringjans fyrrverandi og fór lofsam-
legum orðum um þátt hans í barátt-
unni gegn eiturlyfjum og
vinstrisinnuðum skæraliðum.
Fjölmiðlar í Panama sögðu að
Montesinos dveldi í fjölbýlishúsi í
Panamaborg undir vemd öryggis-
varða forsetaembættisins. Varafor-
seti þingsins í Panama, Teresa de Ar-
ias, sagði að hætta stafaði af dvöl
Montesinos í landinu þar sem hugsan-
lega yrði reynt að ráða hann af dögum
með sprengjutilræðum.
Stjómvöld í Panama hafa veitt
nokkram erlendum leiðtogum hæli í
landinu frá árinu 1979 þegar fyrrver-
andi keisara írans var leyft að dvelja
þar að beiðni Bandaríkjastjómar eftir
íslömsku byltinguna. Jorge Serrano
Elias, fyrrverandi forseti Guatemala,
fékk einnig hæli í Panama árið 1993
þegar hann var granaður um að hafa
hlaupist á brott með opinbera sjóði.
Ári síðar varð Panama griðastaður
leiðtoga herforingjastjómarinnar á
Haiti, Raoul Cedras og Phillipe
Biamby, sem steyptu Jean-Bertrand
Aristide forseta árið 1991.
mm
j
i
i 1
i '
I
1 I
Haustið
heiUar
JOBIS
JAEGER
BRAX
GISPA
BLUE EAGLE
• • • mkm
viö Óðinstorg
101 Reykjavík
sími 552 5177