Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Um Sinfóníuhljóm-
sveit Islands
Sinfóníuhljómsveit íslands
(SI) stendur á tímamótum. Á
síðasta starfsári hélt hún upp
á 50 ára starfsafmæli sitt.
Hljómsveitin hefur tekið gíf-
urlegum framförum á undan-
förnum árum. Meðal há-
punkta má nefna tónleikaferð
til Bandaríkjanna þar sem
hljómsveitin spilaði undir
stjórn Osmo Vánská og hlaut
frábæra dóma. Um svipað
leyti og sú ferð var farin hóf
hljómsveitin upptökur á verk-
um Jóns Leifs fyrir hið þekkta
útgáfufyrirtæki BIS. Hafa
þessar upptökur fengið afar
lofsamlega dóma í erlendum
fjölmiðlum sem og fjölmargar
aðrar upptökur sem hljómsveitin
hefur gert fyrir erlend útgáfufyrir-
tæki. Verði ekki mikil breyting á
kjörum og aðstæðum SÍ á næstunni
má telja öruggt að hljómsveitin hafí
á þessum síðustu misserum náð list-
rænum hápunkti og að leiðin héðan í
frá verði óhjákvæmilega niður á við.
Kjör hljómsveitarmeðlima eru af-
leit. Launin duga vart fyrir föstum
útgjöldum og er þá undanskilinn
matur, klæðnaður og aðrar nauð-
þurftir. Starfsmenn SI þurfa því að
taka að sér margvísleg aukastörf til
þess að endar nái saman. Hér ber að
geta þess að starf í SÍ er talið fullt
starf. Það eiga ekki allir í hljóm-
sveitinni kost á að vinna aukavinnu
á sínu sviði þar sem eftirspurn eftir
hljóðfærum er mismikil. Ekki hafa
allir meðlimir SÍ aðra fyrirvinnu sér
við hlið og þurfa þessir einstakling-
ar því að lifa á smánarlaunum SI í
landi þar sem verðlag er hvað hæst í
Evrópu.
Samkvæmt rannsókn sem gerð
var nýlega í Hollandi eru hljóm-
sveitir þar mjög illa launaðar. Laun
í sambærilegum hljómsveitum í
Þýskalandi eru 20 til 100% hærri.
Laun í SÍ eru lægri en lægstu laun í
hollenskum hljómsveitum, en fram-
færslukostnaður er mun hærri hér
en í Hollandi.
í Bandaríkjunum þykir það bein-
línis neyðarúrræði fyrir tónlistar-
mann að sækja um starf í hljóm:
sveitum innan bandaríska hersins. í
nýlegu tölublaði The International
Musician voru auglýstar nokkrar
stöður í slíkum hljómsveitum.
Lægstu laun sem í boði voru voru á
bilinu sem nemur 136 til 142 þúsund
íslenskra króna í byrjunarlaun á
mánuði. Þetta er svipuð upphæð og
leiðandi hljóðfæraleikarar í SÍ hafa í
laun. í einu tilviki voru í boði 226
þúsund krónur á mánuði. Era þetta
61% hærri laun en flestir í SÍ hafa. í
þessu samhengi má ekki gleyma að
starfsmenn bandarísku herhljóm-
sveitanna fá ókeypis húsnæði, auka-
fjárveitingar fyrir maka og böm,
herinn greiðir upp ógreidd námslán,
auk þess sem starfsævin er stutt og
rífleg eftirlaun í boði.
Nýlega vora auglýst störf
hjá 10-11-verslununum.
Byrjunargrannlaun sem í
boði vora nema 106.767 kr. á
mánuði og hækka þau upp í
114.749 kr. eftir sex mánuði.
Vinni nýr starfsmaður í
tuttugu mánuði eru honum
greiddar 300.000 kr. í bónus
eða um 15 þúsund kr. á mán-
uði þessa tuttugu mánuði.
Meðaltalið er því 127.354 kr.
á mánuði í tuttugu mánuði
auk þess sem afsláttur er
veittur á vörum í viðkomandi
verslun. Era þessi laun því
hærri en byrjunarlaun í SI.
Það er fráleitt að Sinfón-
íuhljómsveit íslands skuli
greiða hljóðfæraleikurum sínum
lægri laun en ófaglært afgreiðslu-
fólk í verslunum hefur. Sinfón-
íuhljómsveit íslands hefur sent frá
sér geisladiska sem standast fylli-
lega samanburð við það besta sem
gert er erlendis, hún hefur fengið
frábæra dóma bæði hérlendis og er-
lendis og hún þjónar íslandi sem
óumdeilanlegur sendiherra tónlist-
armenningar á alþjóðavettvangi.
Eitt af því sem kom fram í áður-
nefndri hollenskri rannsókn var að
þjálfun atvinnuhljóðfæraleikara er
með því lengsta sem gerist í klukku-
stundum talin. Hljóðfæraleikarar í
SI hafa að öllum jafnaði stundað
tónlistarnám með skóla frá sjö eða
átta ára aldri og síðar stundað fram-
haldsnám í tónlistarskólum og tón-
listarháskólum frá fjórum og upp í
sjö ár. Það er því gífurleg sérmennt-
un sem atvinnutónlistarmenn hafa
að baki. Það vita kannski ekki allir
að tónlistarnám atvinnuhljóðfæra-
leika krefst geysilegs sjálfsaga,
linnulausra æfínga og huglægrar og
líkamlegrar þjálfunar.
Kjör
Verði ekki mikil breyt-
ing á kjörum og aðstæð-
-------7-------------------
um SI á næstunni telja
Bryndís Halla Gylfa-
dóttir og David Bobroff
næsta víst að hljóm-
sveitin hafí á þessum
síðustu misserum náð
listrænum hápunkti og
að leiðin héðan í frá
verði óhjákvæmilega
niður á við.
Starf hljóðfæraleikara í sinfón-
íuhljómsveit krefst geysilegrar ein-
beitingar og nákvæmni þar sem
brot úr sekúndu getur skipt sköp-
um. I sinfóníuhljómsveit verður
samhæfing meðlima að vera alger.
Það gefur því augaleið að líkamlegt
og andlegt álag er geysilegt.
Væri eitthvert samræmi á milli
menntunar, þjálfunar og álags
hljóðfæraleikara í SI annars vegar
og launa hins vegar væra þeir vafa-
lítið á meðal hæstlaunuðu rílds-
starfsmanna hér á landi í stað þess
að vera á meðal hinna lægstlaunuðu.
Það er útbreiddur misskilningur að
tónlistannenn stundi listgrein sína
ánægjunnar vegna. Þrátt fyrir að
margir tónlistarmenn séu eflaust
ánægðir í vinnunni er það mjög
krefjandi að vera atvinnumaður á
hljóðfæri. Það er bæði óréttlátt og
óraunhæft að gera þær kröfur til
hijómsveitarinnar sem gerðar era á
meðan hljómsveitarmeðlimir geta
ekki lifað af launum sínum. Eins og
sakir standa byggjast laun SI á
fjöratíu klukkustunda vinnuviku
sem samanstendur af hljómsveitar-
æfingum, tónleikum, upptökum og
heimaæfingum. Sé miðað við með-
allaun sem era 125.000 kr. á mánuði
miðað við 173 vinnustundir er tíma-
kaupið 722,54 kr. Það gefur augaleið
eins og áður er getið að slík smánar-
laun hrökkva hvergi til lífsviðurvær-
is og af þeim sökum neyðast hljóð-
færaleikarar hljómsveitarinnar til
að taka að sér alls kyns aukavinnu.
Fyrr eða siðar mun slíkt aukaálag
koma niður á gæðum hljómsveitar-
innar.
Nú þegar era margir íslenskh’
hljóðfæraleikarar á leið til annarra
landa til að vinna að list sinni. Marg-
ir eru þegar farnir. Hljómsveitar-
meðlimir SÍ eru margir hverjir að
leita að störfum erlendis, en aðrir
munu snúa sér að öðrum störfum en
tónlist. Á þetta við Islendinga sem
og útlendinga í hljómsveitinni. Vert
er að geta þess í þessu samhengi að
frá og með starfsárinu 2000-2001
eru byrjunarlaun í New York Phil-
harmonic 100.000 bandaríkjadalir á
ári eða rúmlega 8 milljónir íslenskra
króna.
Ríkið hefur ákveðið að starfrækja
sinfóníuhljómsveit. Fyrir það þarf
að borga. Breytist ekki núverandi
kjör meðlima SI era allar líkur á að
hljómsveitin leysist upp. Þegar bent
er á óviðunandi kjör SI er borið við
peningaleysi. Því var ekki til að
dreifa þegar alþingismenn skömmt-
uðu sjálfum sér laun. Launahækkun
hvers þingmanns nam heildarlaun-
um starfsmanns í SÍ.
Reykjavíkurborg er ein af menn-
ingarborgum Evrópu árið 2000. Sin-
fóníuhljómsveit íslands er einn af
hornsteinum íslenskrar menningar.
Þrátt fyrir það era laun starfs-
manna hennar ríkinu til helberrar
hneisu. Vill ríkið reka sinfón-
íuhljómsveit með þeim skuldbind-
ingum sem það felur í sér eða er
rekstur hennar sýndarmennska ein?
Höfundar eru hljóðfæraleikuvar í
Sinfóniuhljómsveit íslands.
Sannleikur Fiskifélagsins?
FISKIFÉLAG íslands hefur gef-
ið út bók - Hið sanna ástand heims-
ins - eftir Bjpm Lomborg. Höfundur
er lektor í tölfræði við Háskólann í
Árósum. Var bók hans upphaflega
gefin út í Danmörku árið 1998 að
undangenginni mikilli ritdeilu sem
fram fór í dönskum blöðum í kjölfar
skrifa Lomborgs á síðum dagblaðs-
ins Politiken í ársbyrjun 1998.
Yfírlýstur tilgangnr Lomborgs
Lomborg segir tilgang sinn vera
„... að láta ekki umhverfissamtök og
fjölmiðla ein um að miðla sannleikan-
um og forgangsröðinni1 heldur mun
frekar að tryggja að beitt sé lýðræð-
islegum vinnubrögðum við að eygja
meginsamhengið í mikilvægustu
málaflokkunum.'7 Og tilgangurinn
helgar meðalið því Lomborg gerir
andstæðingum sínum upp skoðanir
með því að útlista það sem hann kall-
ar AKÆRU umhverfisverndarsinna,
sem að hans eigin mati er eftirfar-
andi: „... Ástand umhverfisins er
slæmt. Auðlindir jarðar era að ganga
til þurrðar. Jarðarbúum fjölgar sí-
fellt en framboð af matvælum
minnkar stöðugt. ..."3 Að þessu sögðu
tekur Lomborg til óspilltra málanna
við að afsanna þessa ÁKÆRU með
tölfræðilegum upplýsingum. Hann
vill m.ö.o. sýna fram á að ástandið sé
í raun harla gott.
Rökvillur Lomborgs
I þessu felast tvær helstu rökvillur
Bjprns Lomborgs. Á ýmsum sviðum
umhverfismála hefur vissulega náðst
lofsverður árangur. Ekki síst er fyrir
að þakka miklum áhuga almennings
íyrir bættu umhverfi. Lomborg hef-
ur hins vegar endaskipti á stað-
reyndum þegar hann fullyrðir að þar
eð ýmis umhverfis-
vandamál, sem við
blöstu íyrir 15-20 ár-
um, hafi nú verið leyst
sanni það að umhverf-
isverndarfólk hafi gert
sér veður út af litlu til-
efni. Þetta er álíka van-
hugsað og að segja að
umræðan um Eyja-
bakka hafi verið til-
gangslaus því nú ætli
Landsvirkjun að vinna
mat á umhverfisáhrif-
um Kárahnúkavirkjun-
ar í samræmi við gild-
andi lög. Mörg um-
hverfisvandamál á
borð við, til dæmis, súrt regn í
Skandinavíu, Mið-Evrópu og Banda-
ríkjunum, hefur tekist að leysa þökk
sé aðgerðum stjómvalda og fyrir-
tækja. Þessar aðgerðir komu til
vegna ábendinga vísindamanna og/
eða baráttu frjálsra félagasamtaka
fyrir umhverfisvemd. Sömuleiðis
gerir Lomborg sig sekan um rök-
leysu þegar hann heimfærir
svartsýnustu framtíðarspár ein-
stakra manna upp á þá sem nú vinna
að vemdun umhverfis og náttúra.
Ritdeilur í Danmörku
„Sannleikur" Lomborgs vakti
miklar ritdeilur í Danmörku. Þær
deilur snérast annars vegar um rit-
stýringu danskra stórblaða á borð
við Politiken og Jótlandspóstinn og
hins vegar vinnubrögð Lomborgs.
Dagblaðið Politiken hampaði
Lomborg mjög og era ekki dæmi um
aðnokkur maður hafi átt jafn auð-
veldan og/eða tíðan aðgang að um-
ræðusíðu blaðsins á örfáum mánuð-
um. Á hinn bóginn fullyrtu gagn-
rýnendur hans úr
röðum danskra fræði-
manna að greinum
þeirra hefði ítrekað
verið hafnað af ritstjór-
um umræðusíðu Poli-
tiken eða þeir beðnir að
stytta þær mjög til að
fá þær birtar í Jót-
landspóstinum. Virtist
sem Politiken vildi forð-
ast faglega gagnrýni
fræðimanna á niður-
stöður Bjorns Lom-
borgs. Eina blaðið sem
birti greinar danskra
fræðimanna óstyttar
var Information.
Fagleg gagnrýni
Þetta kallaði á viðbrögð og í fram-
haldinu var ráðist í útgáfu bókar,
„Fremtidens Pris“,4 þar sem ýmsir
fræðimenn fóra yfir og gagnrýndu
niðurstöður og vinnubrögð Lom-
borgs. í kjölfar útkomu þeirrar bók-
arinnar var svo efnt til kappræðna
milli Lomborgs og gagnrýnenda
hans, sem fram fóra við háskólana í
Árósum og Kaupmannahöfn í byrjun
maí 1999. Fór Lomborg mjög halloka
í þeim kappræðum, en nú brá svo við
að Politiken sendi ekki blaðamann til
að fylgjast með kappræðunum og
greindi ekki frá þeim á nokkurn hátt.
Gagnrýnendur Lomborgs deildu
einkum á hann fyrir óáreiðanleika í
notkun tölfræðilegra upplýsinga, að
velja úr þær tilvitnanir sem gögnuð-
ust hans málstað en sleppa öðram
-misnota tilvitnanir. Einnig var hann
harðlega gagnrýndur fyrir tilraunir
til að gera andstæðingum sínum upp
markmið eða skoðanir. Dæmi um hið
fyrst nefnda er að finna á bls. 67 í bók
Árni Finnsson
Heimsástand
Er Fiskifélagið, með út-
gáfu bókarinnar, spyr
Árni Finnsson, að lýsa
sig sammála niður-
stöðum Lomborgs?
Lomborgs þar sem segir: „Fólk ger-
ir sér almennt ekki grein fyrir hinum
miklu framföram sem við höfum þeg-
ar náð. Á síðustu 50 áram hefur fá-
tækt minkað meira en næstu 500 ár á
undan. Og það hefur dregið úr fá-
tækt í flestum löndum. “6
Hér vitnar Lomborg í skýrslu Þró-
unarstofnunar S.Þ. frá 19976, en lesi
maður áfram í sömu skýrslu kemur
fram að „Á tuttugustu öld hafa átt
sér stað miklar framfarir með tilliti
til þess að dregið hefur úr fátækt...“
og síðan segir en framföram hef-
ur verið misskipt og fátækt er enn
útbreidd.“ Lomborg vitnar sem sé
bara til fyrri hlutans, sem þjónar
hans tilgangi. Hefði hann haldið
áfram hefði hann t.d. getað bent á að
í umræddri skýrslu S.Þ. segir að vís-
itala lífsgæða hefur lækkað í 30 lönd-
um.7
Niðurstaða
Hvað sem „sannleika" Lomborgs
líður var umræðan í Danmörku á
margan hátt mjög gagnleg. Þeir sem
vinna að umhverfismálum mega
heldur ekki gleyma að benda á þann
árangur sem náðst hefur og ekki ein-
blína á hið neikvæða. í öðra lagi er
nauðsynlegt að leita og benda á
lausnir þeirra vandamála sem við er
að etja fremur en að hamra á þeim
ömurleika sem við taki verði ekki
ráðist í úrbætur. Umhverfisvemdar-
samtök beina nú kröftum sínum í æ
ríkari mæli að slíkum lausnum og má
t.d. benda á „Marine Stewardship
Council" sem WWF (Alþjóða-
náttúraverndarsjóðurinn) komu á
laggimar í samvinnu við matvælaris-
ann Unilever til að auðvelda um-
hverfismerkingar fyrir þá sem
standa að fiskveiðum á vistvænan
hátt.
Rétt eins og þeir vora til fyrir 10-
15 áram sem sögðu súrt regn eða
eyðingu ósonlagsins vera bábiljur
einar, fylkir Lomborgs sér nú með
þeim sem telja að loftslagsbreyting-
ar eða lífræn þrávirk efni á borð við
DDT séu ekki mikið áhyggjuefni.
Um þriðjungur CO2 útblásturs á ís-
landi stafar frá íslenskum sjávarút-
vegi. Hagsmunafélög eins og Fiski-
félagið er því mikilvægur aðili í að
finna lausnir á því hvernig ísland
getur dregið úr útblæstri. Ennfrem-
ur felast hagsmunir íslands í að
vernda íslenskt hafsvæði gegn
mengun af völdum þrávirkra efna
sem berast langt að. Því er spurt: Er
Fiskifélagið, með útgáfu bókarinnar
að lýsa sig sammála niðurstöðum
Lomborgs?
Heimildir
1 Þ.e.a.s á hvaða umhverfísvandamálum skuli
tekið og hversu miklum íjárhæðum skuli
varið til slíkra aðgerða.
2 Sjá formála bls. 10. Fiskifélagið 2000.
3 Þetta voru niðurstöður „Rómar-klúbbsins“/
The limits of Growth frá 1972, sem byggðar
voru á tölfræðilegum upplýsingum frá
Massachusett’s Institute of Technology.
4 Fremtidens Pris, „0kologisk rád“, (Nátt-
úruverndarráð Danmerkur), Kaupmanna-
höfn 1999.
5 Fiskifélagið, Reykjavík 2000.
6 UNDP Human Development Report 1997.
7 Sjá Fremtidens pris, bls. 307-308.
Höfundur starfar með Náttúru-
vemdarsamtökum íslands.