Morgunblaðið - 02.11.2000, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
AP
Vopn með nýtt
hlutverk
Upplestur danskra
ljóðskálda
Danska bókaútgáfan Borgen hefur öðrum
fremur gefíð út ljóð. Nýlega sendi hún frá
______sér geisladiska með upplestri__
_____danskra skálda á eigin ljóðum.__
Örn Ólafsson fjallar um diskana.
ÁRÞÚSUNDAKLUKKU banda-
ríska list amannsins Bruce Hasson
er hér komið fyrir á Campidoglio,
ráðhústorgi Rómaborgar á Ítalíu.
Klukkan er gerð úr bræddu
TOJVLIST
liangholtskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Kórtónlist eftir Ruth Watson Hend-
erson. Kórar Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar sungu:
Gradualekór, Gradualc Nobili,
Kammerkór og Kór Langholts-
kirkju. Ruth Watson Henderson lék
með á orgel og píanó; Anna Guðný
Guðmundsdóttir Iék með á píanó og
Eiríkur Orn Pálsson og Freyr
Guðmundsson Iéku með á tromp-
eta. Einnig kom fram Bjöllukór
Bústaðakirkju. Sunnudag kl. 17.
Á TÓNLEIKUM sínum í Salnum í
vor söng Gradualekór Langholts-
kirkju nokkur lög eftir kanadíska tón-
skáldið og píanóleikarann Ruth Wat-
son Henderson. Nú hafa kórar
kirkjunnar boðið tónskáldinu til frek-
ara samstarfs, og á tónleikum á
sunnudaginn sungu allir kórar
kirkjunnar í dagskrá sem eingöngu
var helguð verkum hennar. Það má
reyndar vera að kórar kirkjunnar séu
fleiri - kórstarfið í Langholtinu vex
með hraða ljóssins og ekki man gagn-
rýnandi eftir að hafa áður heyrt í
stúlknakómum Graduale Nobili. Á
fyrri hluta efnisskrárinnar voru and-
legir söngvar, en eftir hlé var flutt
verkið „Voices of Earth“ við samofna
texta úr „Sólarljóðum" eftir Franz frá
Assisi og úr ljóðum eftir Archibald
Lampman.
Ruth Watson Henderson er prýðis-
gott tónskáld og eru kórverk hennar
vel samin fyrir raddimar. Stíll hennar
ber sterk einkenni bandarískrar kór-
tónlistar. Það er mikið um að vera í
tónlistinni. I pólýfónískum, mar-
gradda köflum verkanna eru radd-
færslur flóknar, og í hómófónískum,
samhljómandi köflum þeirra er
hljómaflóðið stórbrotið. Mikið er sam-
járni, sem áður hafði verið notað í
byssur og önnur vopn, en vopnin
sem voru ólögleg höfðu áður legið í
geymslu lögreglu San Fransisco og
Oakland í Bandaríkjunum.
ið í barbershop-stíl eða „close harm-
ony“ eins og Ameríkanar kalla það
þegar allar raddir hljómsins liggja
þétt nálægt hver annarri. Mikið er
lika gert úr mikilfengleik og stór-
brotnu risi í verkunum og langflest
verkanna sem kórinn söng enduðu í
fortissimo. Ekki er hægt að segja
annað en verk Ruth Watson Hender-
son hafi verið kunnáttusamlega sam-
in og mörg hver falleg. Hins vegar var
þetta of mikið af því góða á einum tón-
leikum. Þetta var eins og gamlárs-
kvöld á hverju kvöldi í hálfan mánuð
með tilheyrandi sprengjum og ljósa-
dýrð í hvert sinn. Með örfáum undan-
tekningum voru verkin hástemmd,
tilbeiðslan yfirdiifin og mestallan
tímann á forte eða fortissimo og jafn-
vel enn sterkar í niðurlagshendingum
þar sem orgelið kraumaði á fullu und-
ir söngnum og trompetarnir voru
báðir á fullu „blasti“. Undantekning
var lagið „Music on the Waters“ sem
Graduale Nobili söng, við texta eftir
Byron lávarð. Undirspilið líkti eftir
vaggandi bárum á sjó og söngurinn
var þétthljómandi og yndislega fal-
legur. Kórar Langholtskirkju voru
allir í sínu besta formi á tónleikunum.
Gradualekórinn söng geysivel og
Graduale Nobili sannaði sig sem úr-
valskór. Kammerkórinn galt nokkuð
fyrir fáa karla. Karlaskortur virtist
einnig hrjá stóra kórinn, en vegna
stærðarinnar var það ekki eins áber-
andi. Allt var hreint og fallega sungið,
músíkalskt og skýrt.
Verk Ruth Watson Henderson sem
flutt voru á tónleikunum í Langholts-
kirkju njóta sin án efa best eitt í senn í
messuumgjörð eða við önnur trúarleg
tækifæri. Til þess að þau þyldu að
standa svona mörg saman vantaði í
þau miklu meiri bh'ðu, hógværð og
sannfærandi einlægni trúarinnar. Is-
lensk tónskáld hafa fyrir löngu lært
að það þarf ekki hávaða til að himna-
smiðurinn heyri.
Bergþóra Jónsdóttir
í VETUR leið birtist tveggja diska
safn ljóða Bennys Andersens í tilefni
sjötugsafmælis hans, og nú á dögun-
um kom diskur með ljóðum Piet
Hein. Margt er líkt með ljóðum
þessara skálda, þau eru jafnan á ein-
földu hversdagstalmáli, mikið er í
þeim af lífsvisku, sem birtist í kímni
og mótsögnum. Upplestur beggja er
skýr, tilgerðarlaus, en þó blæbrigða-
ríkur eftir efni,
Piet Hein (1905-1996) var kunnur
bæði sem hönnuður og skáld. Fræg-
ur varð ofursporbaugur hans (super-
ellipse) sem setti svip á borð fyrir
um það bil fjörutíu árum. Sama mót
var einnig á skálum og á málmeggi,
sem lá á borðinu og var
svo sem ekki til neins.
Áratugum saman birti
Piet Hein í dagblöðum
smákvæði ásamt ein-
földum teikningum sín-
um. Þessi kvæði voru
yfirleitt 4-8 línur, köll-
uðust gruk, en höfund-
urinn Kumbel. Kvæðin
minna mikið á limrur,
þótt ekki fylgi þau
þeim bragarhætti. Því
þetta eru almennar
hugleiðingar, yfirleitt
með óvæntri lokalínu,
og oftast kímilegri.
Fyrsta safn grúka birt-
ist 1940, og síðan kom
hefti nánast árlega,
tuttugu voru þau orðin á árinu 1963.
Fimm hefti úrvals þeirra birtust svo
1960-1999. Hein sendi frá sér fleiri
ljóðabækur og 1962-3 komu tvær
hæggengar plötur með upplestri
hans sjálfs á 25 ljóðum og helmingi
fleiri grúkum, auk tveggja sagna.
Þessar plötur eru nú komnar saman
á einum geisladiski, sem tekur rúm-
an klukkutíma í flutningi.
Furðumikið hefur birst af grúkum
í þýðingu, a.m.k. á hollensku og
ensku, og er þó vandasamt að þýða
þessa fáorðu rímhnúta. Ég reyni að
snara fáeinum í lausamáli. Frá apríl
1940 er þetta, sem kallað hefur verið
lykill allra verka Piet Hein:
Að skilja grín sem grínið tómt
en alvarlegt bara’ alvarlega
það er að misskilja hvorttveggja
hrapallega
Yngri era eftirfarandi þrjú grúk:
Gæfan er gáta
dulin og augljós
hverful sem óljós
spuming án svars.
Hún er eitthvað sem einhver
veit að er annarra eign.
Hinir alvitru
Sumt fólk fyllir
huga minn
• ÚT ER komin ný útgáfa hljóm-
diska með verkum Jóhanns Sebast-
íans Bachs.
Hljómdiskarnir eru gefnir út í til-
efni 250 ára ártíðar Jóhanns Sebast-
íans Bachs og 25 ára afmælis Sumar-
tónleika í Skálholtskirkju.
Hljómdiskamir era:
Goldberg-tilbrigðin sem Helga
Ingólfsdóttir leikur á sembal.
Sex sónötur fyrir fiðlu og sembal
(tveir diskar) en þar leikur Hollend-
ingurinn Jaap Schröder á barokk-
með meðaumkun.
Þau fífl
sem era sérhæfð í
alvisku.
Loks er grúk sem snertir þjóð-
söng Islendinga:
Um afstæði tímans
Hvað varðar okkar flýti og fum
era þúsund ár sem dagur.
En með tilliti til þess sem næst
er dagur einn sem þúsund ár.
Benny Andersen les Ijóð sín á
tveimur diskum, sem taka saman-
lagt nær tvo og hálfan
tíma. Þetta eru 93 ljóð,
valin úr flestum ljóða-
bókum skáldsins, frá
1960 til 1996. Þannig er
þetta mjög ríkulegt úr-
val og góð leið til að
kynnast verkum
skáldsins. Heildar-
ljóðasafn þess (Saml-
ede digte) birtist 1998,
næstum þúsund blað-
síður af fyndni og and-
ríki fyrir lágt verð.
Megineinkenni er
fundvísi á margræðni
orða, dulda merkingu
þeirra, og glöggt auga
fyrir samfélaginu.
Grípum fáein Ijóð-
anna á flugi, fyrst tvö úr Einkaskjöl-
um (Personlige papirer, 1974):
Lífsgátan ráðin
Litla stelpan hrópaði til konu
minnar:
SJÁÐU, ég SIPPA!
Ég KANN það EKKI
en ég GERI það SAMT!
Því við fáum GESTI í kvöld
og ég HLAKKA til
og ég get ekki BEÐIÐ
svo ég SIPPA!
Enda þótt ég eigi erfitt með að
ímynda mér sippandi skapara sló
það mig um leið að nokkumveginn á
sama hátt hlýtur lífið að hafa orðið
til.
Tekið til í lyfjaskáp
Litlar flöskur og túpur með lykt
af löngu gleymdum kvillum
krem gegn horfnum líkþornum
sterkir vökvar gegn innri ama
sem altók hug einsog líkama
daga og nætur
en nú er á bak og burt
seinni kvillar hafa leyst hann af.
Dropar til fróunar ungum augum
sem nú hafa séð of mikið
þó ekki nóg.
Töflur sem annaðhvort hafa haft
áhrif einhvem tíma
Nýjar geislaplötur
fiðlu en Helga Ingólfsdóttir á sembal.
Jóhann Sebastían Baeh samdi
Goldberg-tilbrigðin á seinni árum
ævi sinnar. Hafði hann þá um hríð
unnið að hljómborðsverkum, ekki
síst verkum fyrir sembal, sem náðu
hátindi í Goldberg-tilbrigðunum.
Ekki er vitað með vissu hvenær Bach
samdi sónötumar sex fyrir fiðlu og
sembal, en víst er að hann samdi fyr-
ir hljóðfærin tvö á nýstárlegan hátt
og lauk m.a. upp með þeim nýjum
kafla í tónlistarsögunni.
eða einmitt ekkert dugað
altént era þær ekki lengur
teknar.
og tilgangur þeirra er frá -
liðin hitasótt
visnaður hósti
uppgufaður sársauki
Hégómi
hégómi
burt með það allt
Víkið fyinr komandi kvillum.
Hér byggist grínið á nærtækum,
undirfurðulegum líkingum, talað er
um hóstann sem plöntu, en sárs-
aukann sem einhverskonar vökva,
gæti verið hóstasaft! Og tvítekningin
á orðinu hégómi minnir á orðskviði
Salómons í Biblíunni, sem virðist
hlálega hátíðlegt við svo hversdags-
legar aðstæður.
Úr Ijóðabókinni Undir báðum
augum, 1978 er eftirfarandi ljóð,
sem sýnir ýmislegt af því sem gerir
Andersen vinsælan. Gamansemin
birtist í andstæðum stíls, skýrslu-
gerðarformi og tali um hvers kyns
óviðkomandi dagleg fyrirbæri gagn-
vart tilfínningaofsa, og einnig er það,
að allt fellur í ljúfalöð að lokum.
Til manns sem kastaði stól
Þú stóðst með stólinn á lofti
þegar ég kom.
Ég var móður.
Þú hafðir hringt til mín
Augu þín voru útstæð
og tennur þínar þegar þú
hrópaðir
„Fjórum áram af ævi minni hef
ég eytt í hana!
Er nokkuð eins kalt og kona
sem annars er hlý!
í fjögur ár hef ég elskað hana!“
Ég náði ekki að segja
neitt.
Svo æptir þú:
„Út úr lífi mínu!“
og hentir stólnum.
Ekki gluggann!
náði ég að hugsa.
Hér er svo listinn yfir
það sem ég náði ekki að segja:
1) Fjögur ár þurfa ekki að hafa
farið til spillis
líttu á þau sem gjöf
sem þú annars hefðir misst af
2) Ég á tvo miða á Count Basie
3) Mig vantar einmitt svona stól
4) Einhverntíma eigum við eftir að
hlæja að þessu
5) Stattu kyrr svona, þá sæki ég
myndavélina mína
6) Geturðu lánað mér 5.000 krón-
ur
7) Þú heldur vitlaust á þessum stól
8) Þegar tveir speglar spegla hvor
annan
spegla þeir þá eigin spegilmynd
eða spegla þeir endurspeglun
spegilmyndar hins spegilsins?
9) Buxnaklaufin þín er opin
En mikilvægast var
að ég náði fram
rétt áður en stólnum var hent
og brotinn á veggnum
milli tveggja glugga.
Mildlvægast er tryggur vinur
sem horfir á
þegar maður hendir stólnum
sínum.
Helga Ingólfsdóttir lék Goldberg-
tilbrigðin á Sumartónleikum í Skál-
holtskirkju 1993 og 1999, en Jaap
Schröder og Helga fiðlusónötur
Bachs 1994 og 1998.
Hijómdiskarnir eru teknir upp í
Skálholtskirkju ogsá Halldór Vík-
ingsson um upptöku og hljóðvinnslu.
Utgefendur eru Smekkleysa ogArs-
is. Japis dreifir á Islandi. Goldherg-
tilbrigðin kosta 2.199 kivnur og són-
öturnar2.999 krónur (tvöfaldur disk-
ur).
Hástemmdir
lofsöngvar
Benny
Andersen