Morgunblaðið - 02.11.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐI®
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000 57
UMRÆÐAN
Skollaleikur á Vest-
fjörðum og Vesturlandi
ÞAÐ eru óneitanlega
sérkennilegar aðgerðir
sera sveitarfélögin og
ríkið standa nú að í
orkumálum í tveim hér-
uðum landsins. Og það
á sama tíma og farið er
fögrum orðum um að
koma skuli á frelsi og
samkeppni á raforku-
sviði og draga úr af-
skiptum og þátttöku
rfldsins í þeirri starf-
semi.
Á Vestfjörðum geng-
ur rfldð svo langt að
fallast á að greiða „yfir-
verð“ fyrir hlut sveitar-
félaganna í Orkubúinu
með því skilyrði að sveitarfélögin
greiði vanskilaskuldir við íbúða-
lánasjóð. Sjálfsagt eru skuldirnar á
fleiri sviðum. Samkvæmt frásögn
þessa blaðs fyrir skömmu urðu við-
ræðunefndir sveitarfélaganna og
ríkisins „ásáttar“ um að meta verð-
mæti Orkubúsins 4,6 milljarða
króna í stað 1-2 milljarða sem áður
hafði verið nefnt. Sé hér rangt með
tölur farið, hvers vegna er það ekki
leiðrétt af ríkisvaldinu, sveitarfé-
lögunum eða samtökum þeirra?
Auðvitað verður farin snyrtileg
leið: stofnað hlutafélag í anda
þeirrar nýskipunar sem boðuð hef-
ur verið á leiðinni til frjálsræðis og
samkeppni. En af hverju er ekki
hverjum sem er boðið að kaupa?
Nei, ríkið skal það vera. Kannski
finnst enginn annar kaupandi? Og
hvað er rikið á sviði orkuveitna?
Það er RARIK. Fyrirtæki sem
stofnað var til að rafvæða strjálbýl-
ið og hefur gert það af myndar-
skap. En fyrirtæki sem hefur ríg-
haldið í miðstýringu frá Reykjavík.
Og fyrirtæki sem ríkissjóður er
búinn að létta skuldum af oftar en
einu sinni, eins og reyndar Orku-
búinu einnig. Samkvæmt gildandi,
löngu úreltum orkulögum hefur
líka ríkið (RARIK) forgangsrétt til
að reka héraðsveitu þar sem sveit-
arfélag „neytir eigi réttar síns“ til
þess. Fimm eða sex sinnum hafa
iðnaðarráðherrar á sl. tveim árum
tilkynnt að nú sé nýja raforkulaga-
frumvarpið á leið inn á Alþingi, en
þar er þetta forkaupsákvæði ríkis-
ins (RARIK) að sjálfsögðu fellt
brott, enda einfaldlega barn síns
tíma.
Á Vesturlandi hefur önnur uppá-
koma litið dagsins ljós. Þar er
Akranesveita „klofin í herðar nið-
ur“ ef svo má að orði komast eftir
að hafa starfað í tæp fimm ár að
því er virðist við góðar orðstír.
Skyldi eiga að nota hina veitu-
stjóralausu Akranesveitu til að
styrkja bæjarkassann? Eða er
ástæðan önnur? Og hvað verður
um Andakflsárvirkjun? Fyrir
nokkrum árum vildi RARIK eign-
ast hana. Heyrst hef-
ur að Akranesbær
leiti nú „þjónustu-
samnings“ við RAR-
IK um ýmis raf-
tæknimál.
Af hverju selur
Akranesbær ekki
ríkinu Akranesveitu
og Andakílsárvirkjun
með húði og hári?
Fyrir nokkrum árum
var Rafveita Borgar-
ness seld RARIK,
meira að segja á „yf-
irverði“ að fróðra
manna sögn. Það
skyldi þó ekki vera
hugmyndin að baki
þessu öllu, að Ríkisorkubú Vest-
fjarða hf. og Vesturlandsveita
RARIK bjargi fjárhag sveitarfé-
laganna í þessum landshlutum?
Aukin umsvif rfldsins í orkumál-
um eiga sér lengri feril. Haft var
eftir forustumönnum RARIK á sín-
um tíma að kaupin á Rafveitu og
Orkumál
Þótt hvatinn að þessum
pistli hafí verið
reimleikarnir á
Vestfjörðum og Vestur-
landi, segir Aðalsteinn
Guðjohnsen, er það
auðvitað mun stærra
mál að sú nýskipan
raforkumála, sem í
undirbúningi
er, takist vel.
Hitaveitu Siglufjarðar - ásamt
Skeiðsfossvirkjun, „féllu einstak-
lega vel að“ rekstri RARIK. (Fróð-
legt væri að sjá hve vel dæmið
„Skeiðsfossvirkjun+Siglufjarðar-
veitur“ hefur komið út). Um svipað
leyti keypti RARIK dreifikerfi
hitaveitna tveggja sveitarfélaga, á
Seyðisfirði og Höfn í Homafirði.
Nýjustu og um leið ein kyndugustu
kaupin eru án efa kaup RARIK í
fyrra á Rafveitu Hveragerðis þar
sem tilboð annarra fyrirtækja í
veituna voru skoðuð og síðan gert
eilítið hærra boð, sem Hveragerð-
isbær tók auðvitað umsvifalaust.
Það er auðvitað í hæsta máta sið-
laust að RARIK nýti sér löngu úr-
elt ákvæði orkulaga á árinu 1999 til
að bæta samkeppnisstöðu sína rétt
áður en samkeppni verður komið á.
Tilboð hinna voru nefnilega mark-
laus vegna forkaupsréttar RARIK.
Fjármál ríkis og sveitarfélaga
eru í brennidepli um þessar mund-
ir. Því eru þessi dæmi af orkusvið-
inu rakin hér og nú. Einnig vegna
þess að aðgerðirnar ganga þvert á
þá hugsum sem liggur að baki
þeirri nýskipan raforkumála sem
boðuð hefur verið. Seinagangurinn
í undirbúningi þeirra breytinga er
að mínu viti að komast á hættustig.
Frelsi og samkeppni
í raforkumálum
Þótt bærileg samstaða væri um
niðurstöðu nefndar sem fyrir fjór-
um árum skilaði áliti um Framtíð-
arskipan orkumála, gerðu mörg
orkufyrirtæki athugasemdir, ýmist
beint til iðnaðarráðherra eða til
iðnaðarnefndar Alþingis, en hún
fékk til meðferðar Tillögu til þings-
ályktunar um framtíðarskipan raf-
orkumála. Iðnaðarnefnd skilaði
áliti í apríl 1998. Þar vonuðu ýmsir
að komin væru drög að stefnumót-
un í raforkumálum. Svo reyndist
ekki vera og má í raun segja að
þingsályktunatillaga þessi hafi
hlotið hægt andlát - því miður.
Ég tel að stjómvöld verði að
gera verulegt átak ef það markmið
á að nást að fara að reglum
EES-samningsins og koma á frelsi
og samkeppni á raforkusviðinu á
tilskildum tíma. Ef það bregst að
frumvarp til nýrra raforkulaga
verði lagt fram á Alþingi þegar í
upphafi þings eftir áramót sýnist
mér hættan verða orðin augljós.
Þótt hvatinn að þessum pistli
hafi verið reimleikarnir á Vest-
fjörðum og Vesturlandi, er það
auðvitað mun stærra mál að sú
nýskipan raforkumála, sem í undir-
búningi er, takist vel. Stjórnvöld
bera eðlilega íyrir sig miídu ann-
ríki og jafnvel að verulegu leyti í
orkumálum (virkjana- og stóriðju-
deilur) en einnig á viðskiptasviði
(sviptingar fyrirtækja og samruni
banka).
Ég er í þeirri góðu aðstöðu að
sitja í stjómum NORDEL (Nor-
rænum samtökum kerfisstjóra
landsneta) og EURELECTRIC
(Evrópusamtökum raforkufyrir-
tækja) og get því fylgst vel með
framvindu mála erlendis. Nýlega
hefur EURELECTRIC gert átak
til að hraða framkvæmd tilskipunar
ESB. Það er staðreynd að fram-
kvæmd hennar, þ.e. þróun sam-
keppni og frjálsræðis, hefur í heild
gengið mun hraðar en tilskipunin
gerir lágmarkskröfu til. Þetta gild-
ir jafnt um EES/EFTA-ríki og
ESB-ríki.
í síðari grein mun ég beina at-
hyglinni að framtíðinni, m.a. í ljósi
reynslunnar í ríkjum Evrópu.
Höfundur er orkuráðgjafí borgar-
stjóra. Var til skamms tíma
rafmagnsstjóri íRcykjavík og
formaður samtaka raforkuveitna.
Aðalsteinn
Guðjohnsen
og laugardaga
frá kl. 10:00-16:00.
Grandagarði 2 I Reykjavík | simi 580 8500
I I
Næg bílastæði
Oplfi alla virka daga
frá kl. 8:00- 18:00
Model 9015B
Slipirokkur 1050 W O ■ 125 m
TILBOÐSVERÐ
14.300,-
Modal 1902
Heflll, 550 W 82 mm
TILBOÐSVERÐ
12.000,-
PÚR HF
Reykjavík - Akureyri
Reykjavík: Ármúla 11 - Sími 568-1500 - Akureyri: Lónsbakka - Slmi 461-1070
Model 6834
Gifsskrúfvól 470 W O = 4 x 57 mm
TILBOÐVERÐ
Model HR4000C
SDS Max Bor/brotvól 1050 W, Max 0= 40 mm
TILBOÐSVERÐ
19.900,-
56.000,-
Model 6228DWE
14.4 v Rafhlööuborvól Aukarafhiaöa / taska
TILBOÐSVERÐ
15.900,-
22.600,-
Model HR2410
SDS-f Höggborvól 680 W, Max O = 24 mm
TILBOÐSVERÐ
Stuttermabolir frá kr.
Stuttbuxur frá
Frábært
Fyrir iþróttadótið
íþróttatöskur frá kr.
ÍK: Þolfimifatnaöur
■ 20%
iafsláttur
Þrekhjól 4|jjjgÍ
verð frá:
14.300^
10% afsláttur
af þrek og æfingatækjum
Bakpokar frá kr.
Iþróttaskór, Adidas, Nike, Puma, Reebok,
20 °/o afsláttur
Ármúla 40 g
Sími: 553 5320 I lAl I
Férslunin W
/VI4RK