Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Verndarar kvenlegra
hannyrða; gríska gyðjan
Aþena og rómverska
gyðjan Mínerva
HELSTA heimild um grísk trúarbrögð eru hin
miklu söguljdð eftir Hómer, Ilíonskviða og
Odysseifskviða sem voru rituð á 8. öld fyrir Krists-
burð. Þessi söguljóð eru elstu sigildu bókmenntir
Vesturlanda. A þeim tímum sem þau voru rituð var
útlit guðanna mannlegt og hegðun þeirra einnig en
þeir voru þó ódauðlegir og gæddir því sem margur
maðurinn þráir, eilífri æsku. Helstu guðirnir áttu
heima á Ólympsfjalli sem er hæsta fjall Grikklands í
samnefndum fjallgarði í Þessalíu.
Hin gríska gyðja Aþena, ásamt rómverskri hliðstæðu sinni Mínervu, er
„hagvirk hannyrðagyðja, og sjálf hefur hún af hugviti sínu fundið upp
ýmiss konar verkfæri og áhöld til þess að efla velferð manna með þeim
íþróttum og menningargreinum sem til friðarins heyra; flautan er frá
henni komin, og lúðurinn; hrífan, klafinn og beislið; vagninn og skipið.
Aþena er höfundur tölvísinnar og þeirra iðna, sem konum sæma, til að
mynda spuna vefnaðar og matseldar." (Heimild: Óðurinn um Evu eftir
Mascetti.) Henni eru eignaðir bæði kvenlegir og karllegir eiginleikar
ef svo mætti að orði komast því hún er stríðsgyðja en gagnstætt guðin-
um Aresi, sem geysist um eins og berserkur í trylltu æði í ógnun bar-
dagans, er Aþena gyðja skipulegs hernaðar sem er háður af viturleik
og ráðkænsku. Hún leysir úr deilum með sáttum og viðheldur lögum án
ofbeldis. Það þarf því ekki að spyrja að hinum kvcnlegu kostum.
Til er skemmtileg sögn um tilurð þessarar áhugaverðu gyðju. „Goð-
sögn ein hermir, að Seifur hafi fyrst gengið að eiga Metis (viskuna). Er
Uranos og Ge (himinn og jörð) höfðu kunngert honum, að Metis mundi
fyrst ala dóttur, er verða mundi jafnoki föður síns að mætti og visku,
og sfðan son, er konungur yrði guða og manna, gleypti Seifur Metis,
þegar hún var þunguð orðin, því að hann óttaðist, að spádómurinn
rættist. Nokkru seinna fékk Seifur afleitan höfuðverk. Kallaði hann á
Hefaistos smíðaguð og skipaði honuin að opna á sér höfuðið með exi.
Spratt Aþena þá með alvæpni út úr höfði Seifs og æpti heróp. Ólymps-
fjall nötraði, og öll náttúran lék á þræði. Aþena er Seifi kærari en
nokkur hinna guðanna. Hún fær stundum eldinguna að láni hjá honum,
og eins og hann ber hún ægisskjöldinn, er fylgdi myrkur, þrumur og
eldingar.“ (Heimild: Goðafræði grikkja og rómverja eftir Jón Gislason.)
Þess má geta að Háskóli íslands hefur andlit gyðjunnar Aþenu í skjald-
armerki si'nu, enda er hún líka gyðja visku, vísinda og lista. Það er því
óhætt að segja að það séu kröftug og hvetjandi skilaboð til allra
kvenna.
I nóveinber-Spuna er boðið upp á girnilega og fljótprjónaða peysu,
húfu, trefil og olnbogahli'far úr mjúku Funny-pelsgarni og Kitten
mohair-garni sem herskáum gyðjum hæfír til að hrista af sér töfra Vet-
urs konungs. Einnig er boðið upp á mjúka og hlýlega hettupeysu úr
pels-garni til að umvefja litlu krflin okkar.
Það er ekki dónalegt að hefjast handa við sköpun af þessu tagi vitandi
að kraftur gyðjunnar Aþenu verndar verkið og finna að auðvitað hefur
tilvist hennar sprottið fram vegna þess að hún býr í öllum konum.
Peysa úr
þreföldu garni
Peysa prjónuð úr þrem mismunandi þráðum
sem gefa skemmtileg litbrigði.
I nóvemberspuna er boðið upp á hettupeysu handa litlu krflunum
ásamt peysu, trefli, húfu og olnbogahlífum, úr mjúku Kitten Mohair-
garni og Funny-pelsgarni, sem hæfir herskáum gyðjum til að hrista af
sér töfra veturs konungs.
Ath.: Ekki þarf meira garn en
vanalega þó þráðurinn sé þre-
faldur.
Prjónað er með tveimur þráðum
af Kitten Mohair og einum þræði af
Funny-pelsgarni sem gefur
skemmtileg litbrigði.
Hönnun: Olaug Kleppe
Uppl. um gam í síma: 565-4610
Stærðir: (S) M (L) XL
Yfirvídd: (110) 118 (126) 134 sm
Sídd: (67) 69 (71) 73 sm
Ermasídd: (48) 49 (50) 51 sm
Garn: Kitten mohair
Dokkufjöldi:
Kirsuberjarautt 4517: (3) 4 (4) 4
Appelsínugult 3308: (3) 4 (4) 4
Funny pelsgarn:
Rautt 4109: (7) 8 (8) 9
Prjónar: Hringprjónn og sokka-
prjónar nr. 9
Prjónfesta: 10 lykkjur í sléttu
prjóni með þreföldu gami á prjóna
nr. 9 = 10 sm.
Bolur: Fitjið upp með einum
þráð af hverjum lit (= þrefalt garn)
á hringprjón nr. 9 (110) 118 (126)
134 lykkjur. Prjónið slétt prjón í
hring. Þegar bolurinn mælist (42)
43 (44) 45 sm er bolnum skipt í
tvennt með (55) 59 (63) 67 lykkjum
á hvom stykki. Prjónið hvort
stykki íyrir sig.
Bakstykki: Prjónið fram og til
baka þar til bakstykkið mælist (22)
23 (24) 25 sm frá skiptingu. Fellið
af (13) 13 (15) 15 lykkjur í miðju =
hálsmál. Prjónið hvora hlið fyrir
sig, takið jafnframt úr á öðmm
hverjum prjóni 2 lykkjur tvisvar
sinnum = (17) 19 (20) 22 lykkjur á
öxl. Prjónið þar til handvegur mæl-
ist (25) 26 (27) 28 sm. Fellið af
Framstykki: Prjónað eins og
bakstykki þar til bolurinn mælist
(58) 60 (62) 64 sm. Fellið af (7) 7 (9)
9 lykkjur í miðju = hálmál. Prjónið
hvora hlið fyrir sig, takið jafnframt
úr á öðmm hverjum prjóni 3 lykkj-
ur einu sinni, 2 lykkjur einu sinni
og 1 lykkju tvisvar. Prjónið þar til
réttri sídd er náð. Fellið af.
Ermar: Fitjið upp með einum
þráð af hverjum lit (= þrefalt gam)
á sokkapijóna nr. 9 (22) 22 (24) 24
lykkjur. Prjónið slétt prjón í hring.
Athugið: Síðasta lykkjan á hringn-
um er alltaf prjónuð bmgðin =
merkilykkja. Aukið í 1 lykkju báð-
um megin við hana með ca 3 sm
millibili þar til (50) 52 (54) 56 lykkj-
ur era á erminni. Prjónið þar til
ermin mælist (48) 49 (50) 51 sm.
Fellið af. Prjónið hina ermina eins.
Frágangur: Saumið axlir saman.
Hálslíning: Prjónið upp með þre-
földu garni á prjóna nr. 9 ca 4-5
lykkjur á hverja 5 sm. Prjónið í
hring (7) 7 (8) 8 sm. Fellið laust af
frá röngu með sléttum lykkjum.
Saumið ermarnar í.
Húfa
Garn: Funny-pelsgam
Rautt 4109:2 dokkur
Prjónar: Sokkaprjónar eða lítill
hringprjónn nr. 4
Prjónfesta: 20 lykkjur í sléttu
prjóni á prjóna nr. 4 = 10 sm. á
breidd.
Fijið upp á prjóna nr. 4,90 lykkj-
ur. Prjónið slétt prjón í hring þar
til húfan mælist 22 sm. Takið úr
þannig: 2 lykkjur slétt saman, 13
lykkjur slétt, endurtakið allan
hringinn. Prjónið eina umferð án
úrtöku. Takið úr í næstu umferð
þannig: 2 lykkjur slétt saman, 12
lykkjur slétt, endurtakið allan
hringinn. Prjónið eina umferð án
úrtöku. Takið þannig úr í annarri
hverri umferð með einni lykkju
færri á milli þar til eftir era 30
lykkjur. Takið nú úr í hverri um-
ferð þar til 6 lykkjur em eftir. Slítið
frá, dragið bandið í gegnum lykkj-
urnar og herðið vel að.
Trefill
Gam: Kitten niohair
Stærð: ca 33 x 170 sm.
Rautt 4219:1 dokka
Kirsuberjarautt4517:1 dokka
Appelsínugult 3308:1 dokka
Prjónar: Sokkaprjónar eða
hringprjónn nr. 9
Prjónfesta:
11 lykkjur í garðaprjóni á prjóna
nr. 9 = 10 sm.
Fitjið upp með rauðu á prjóna
nr. 9 37 lykkjur. Prjónið fram og til
baka, slétt pijón á réttu og slétt
pijón á röngu = garðaprjón. Ath.
trefíllinn er röndóttur: *6 umf. með
rauðu, 6 umf. með kirsuberjarauðu,
6 umf. með appelsínugulu*. Endur-
takið frá *-* allan tímann. Klippið
þræðina eftir hverja litaskiptingu.
Prjónið þar til mælist 170 sm eða
þá lengd sem óskað er eftir. Fellið
af. Athugið: Felið endana í sama lit.
Olnbogahlífar
Garn: Funny-pelsgarn
Sömu stærðir og peysa.
Rautt 4109: 2 dokkur í allar
stærðir.
Fitjið upp með rauðu á prjóna
nr. 4 (38) 40 (40) 42 lykkjur. Prjónið
slétt pijón í hring. Þegar hlífamar
mælast 16 sm em lykkjurnar felld-
ar af.
Barnajakki með hcttu:
Hönnun: Ingjerd Thorkildsen
Uppl. um gam í síma 565-4610
Stærðir: (1/2) 1 (11/2) 2 (4) ára
Yfirvídd: (66) 70 (74) 78 (82) sm.
Ermasídd með uppábroti: (20) 22
(25) 28 (32) sm.
Garn: Funny-pelsgarn
Gult 2337: (6) 7 (8) 9 (10) d.
Prjónar: Hringprjónn nr. 4
Tölur: (4) 4 (4) 5 (5) stk.
Prjónfesta: 20 lykkjur í sléttu
pijóni á breiddina á prjóna nr. 4 =
10 sm.
Slétt prjón = prjónið slétt á
réttu og bragðið á röngu.
Bolur: Fitjið upp á hringprjón
nr. 4 (133) 141 (149) 157 (165) lykkj-
ur. Prjónið 1 prjón slétt = rangan,
pijónið áfram slétt prjón fram og
til baka. Athugið: Fyrsta og síðasta
lykkjan er alltaf prjónuð slétt =
kantlykkja.
Prjónið þar til bolurinn mælist
(16) 18 (20) 22 (25) sm. Skiptið boln-
um í þrennt með (33) 35 (37) 39 (41)
lykkju á hvoru framstykki og (67)
71 (75) 79 (83) lykkjur á bakstykki.
Prjónið hvert stykki fyrir sig.
Framstykkin: Prjónið þar til
handvegur mælist (11) 12 (13) 14
(15) sm. Fellið af fyrir hálsmáli við
kantinn (6) 7 (7) 8 (8) lykkjur einu
sinni, síðan á öðmm hverjum prjóni
2 lykkjur einu sinni og 1 lykkju
tvisvar = (23) 24 (26) 27 (29) lykkj-
ur á öxl. Prjónið þar til handvegur
mælist (14) 15 (16) 17 (18) sm. Fell-
ið af.
Bakstykki: Prjónið þar til fullri
sídd er náð. Fellið frá réttu fyrstu
(23) 24 (26) 27 (29) lykkjurnar -
geymið næstu (21) 23 (23) 25 (25)
lykkjur á nælu - fellið af síðustu
(23) 24 (26) 27 (29) lykkjurnar.
Ermar: Fitjið upp á prjón nr. 4
(40) 42 (44) 46 (46) lykkjur. Pijónið
1 prjón slétt. Prjónið slétt prjón
fram og til baka, þegar ermin mæl-
ist (4) 4 (5) 5 (5) sm er aukið í einni
lykkju á hvom hlið. Endurtakið
þessa útaukingu með 2 sm millibili
þar til (56) 60 (64) 68 (72) lykkjur
em eftir. Prjónið þar til ermin
mælist (20) 22 (25) 28 (32) sm með
uppábroti. Fellið passlega laust af.
Frágangur: Saumið axlir saman.
Hetta: Fitjið upp 10 lykkjur á
prjón nr. 4. Takið síðan í framhald-
inu upp lykkjurnar í kringum háls-
inn frá réttunni (47) 51 (51) 55 (55)
lykkjur, fitjið síðan upp 10 lykkjur
= (67) 71 (71) 75 (75) lykkjur. Setj-
ið merki í miðjuna á baki hettunnar
með (33) 35 (35) 37 (37) lykkjum á
hvorri hlið. Prjónið slétt prjón fram
og til baka og aukið í 1 lykkju sitt
hvom megin við miðjulykkjuna á
öðmm hverjum prjóni (5) 5 (6) 6 (6)
sinnum, síðan á 4. hverjum pijóni
(3) 3 (4) 4 (4) sinnum = (83) 87 (91)
95 (95) lykkjur á prjóni. Þegar hett-
an mælist frá öxl (22) 23 (24) 24 (25)
sm. er fellt passlega laust af.
Saumið hettuna saman í toppinn.
Brettið kantinn upp og saumið
hann niður neðst við hálslíninguna.
Listar að framan: Byrjið neðst á
hægra framstykki og prjónið upp
alla hliðina með tvöföldu garni á
prjóna nr. 4 ca 5 lykkjur á hverja 3
sm. Snúið við hjá hálslíningu og
fellið passlega laust af frá röngunni
með sléttum lykkjum. Prjónið
vinstra lista eins. Saumið niður (4)
4 (4) 5 (5) krækjur á kant hægra
framstykkis og tilsvarandi tölur á
þann vinstri. (Athugið: Hægt er að
nota garnið sjálft eins og það er,
einnig er gott að hekla úr garninu
nokkra sm af loftlykkjum og búa til
krækjur úr því.)
Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT