Morgunblaðið - 02.11.2000, Side 70
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
JELLV (70U6MNUT5 MAKE
VOU FEEL GOOP ALL OVER..
UUMEN NOTMING 15 GOOP
FOR YOU, VOU MAVE TO
PRETENP TMAT EVERVTHING
IS 600P FOR VOU í
Þetta var sé besti kleinuhringur
með sultu sem ég hef smakkað.
Ekkert kallar fram betri líðan
en kleinuhringur með sultu.
Þegar allt sem maður borðar
er óhollt, verður maður að
láta sem allur matur sé hollur.
gllorgvmMafráfr
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Rautt ginseng
frá Kóreu
Frá Kristínu Kui Rim:
EG sem þessar línur skrifa er fædd
og uppalin í litlu þorpi á miðhálendi
Kóreu rétt sunnan landamæra kór-
esku ríkjanna.
Allir vita að það
er óravegur milli
æskustöðva
minna og íslands,
en færri vita að
þjóðarvitund okk-
ar á ýmislegt
sameiginlegt. Eg
hef jafnvel freist-
ast til að yflrfæra
orð Tómasar
Guðmundssonar um hjörtun í Súdan
og Grímsnesinu yfir á litla fjalla-
þorpið mitt og Mosfellsbæ.
Þótt kóreska þjóðin sé ríflega 250
falt fjölmennari en íslendingar, lítur
hún á sig sem smáþjóð í þeim skiln-
ingi að hún er friðsöm og á tvo vold-
uga nágranna annan í norðri en hinn
í suðri. Rétt eins og íslendingar,
hafa Kóreubúar sótt styrk sinn og
sjálfsvitund í fornbókmenntir og
ævagamla sagnahefð, þar sem mikið
er lagt upp úr því að allir kunni að
lesa og skrifa.
Náttúrulækningar eru órjúfanleg-
ur hluti af mannlífinu eins og hjá öðr-
um gömlum menningarþjóðum.
Hvert mannsbam þekkti t.a.m. gin-
sengrótina (mannsrótina) og vissi
eitt og annað um notagildi hennar.
Verðmætast allra ginsengtegunda
er rauða ginsengið, sem eingöngu er
framleitt af ríkinu og þykir mikil
gersemi.
Það gladdi mitt hjarta þegar ég
komst að því, að hægt var að kaupa
þessa merkilegu afurð hér á landi.
Með sama hætti rann mér það til
rifja þegar ég sá að ólíkar vörur eru
hér á markaði, en allt selt sem rautt
ginseng frá Kóreu.
Saga ginsengnotkunar spannar
vel yfir 4000 ár, en elstu heimildir
um rautt ginseng eru 1000 ára. í
gömlum kínverskum lækningabók-
um, er talað um að nota ginseng við
magnleysi, þreytu, streitu, depurð
og fyrirbyggjandi gegn umgangs-
pestum. Ginsengjurtin frá Kóreu
nefnist Panax Ginseng og hún hefur
sérstaka eiginleika vegna staðbund-
inna aðstæðna í veðurfari og jarð-
vegi og er besti hluti rótarinnar not-
aður til að framleiða rautt ginseng,
undir umsjón og eftirliti kóreska rík-
isins.
Rautt ginseng er mikilsmetið nátt-
úrulyf í Asíu og víða um heim, en af
landfræðilegum ástæðum er hvergi
hægt að rækta kóreskt ginseng, sem
gefur það efnainnihald og þar með
þá verkun, sem rautt kóreu-ginseng
á að hafa, nema í Kóreu.
Frá fornu fari gilda strangar
reglur í Kóreu um framleiðslu á
rauðu ginsengi. I gömlum austur-
lenskum lækningabókum, sem fjalla
um ginseng til heilsubótar eða lækn-
inga kemur greinilega fram að átt er
við vöru sem unnin er úr sjálfri gin-
sengrótinni, en ekki öðrum jurta-
hlutum s.s. blómum, blöðum, stöngl-
um eða rótarendum. Leifar af
rótinni, sem ekki eru nýttar, þegar
rautt ginseng er unnið, er hægt að
nýta til framleiðslu á ginseng tei og
einnig í aðrar ódýrari afurðir, þar
sem einkum er verið að sækjast eftir
hinu sérkennilega ginseng bragði.
í Kóreu er takmarkað kjörlendi,
til ræktunay á ginsengi í hæsta
gæðaflokki. Á hinn bóginn er vax-
andi eftirspurn eftir þessari vöru á
Vesturlöndum. Það virðist vera
freistandi fyrir aðila utan Kóreu,
sem framleiða ginseng í hylkjum, að
nota ódýrara hráefni en umbúðir
vörunnar gefa til kynna. Þess eru
dæmi hér á landi og á því er hér með
vakin athygli.
KRISTÍN KUI RIM,
Álmholti 13, Mosfellsbæ.
Kristín Kui
Rim
Synd og skömm
Frá Gunnari Friðberg
Jóhannssyni:
ÉG SAT í hádeginu við matarborðið
og fjölskyldan var að ræða um Ól-
ympíumót fatlaðra og að Kristín Rós
hefði fengið enn eitt gullið sitt í
sundi. Svo hlustuðum við á fréttirnar
á RÚV og biðum eftir því hvort
nokkuð myndi verða sagt frá árangri
hennar og ég varð fyrir frekar mikl-
um vonbrigðum að frétt um ein-
hverja úldna önd sem seld hafði ver-
ið í Frakklandi kom á undan.
Og mér finnst það verulega lélegt
að þegar Ólympíuleikarnir stóðu yfir
var dagskrá Ríkissjónvarpsins
breytt til þess að koma að beinum út-
sendingum en ekki er eytt nema rétt
rúmum hálftíma í að sýna smá yfirlit
frá Ólympíumótinu. Hvers vegna er
það? Er það vegna þess að það eru
færri keppendur frá Islandi? Eða er
það vegna þess að fatlaðir þykja ekki
nógu merkilegir til að fjallað sé um
árangur þeirra í íþróttum? Ég veit
það ekki en mér finnst þetta skömm
og svívirða að íslenskir fjölmiðlar
veiti fatlaða íþróttafólkinu okkar
ekki meiri athygli. Vala Flosadóttir
fékk lof á lof ofan fyrir að ná þriðja
sæti í stangarstökki og hún fékk því
sem næst heilan Kastljóssþátt útaf
fyrir sig og sinn árangur. Ékki það
að mér líki neitt illa við hana Völu,
hún stendur sig vel og mér finnst
hún alveg eiga skilið lof fyrir. En
Kristín Rós hefur þrátt fyrir fötlun
sína fengið tvenn gullverðlaun og
tvenn bronsverðlaun og úldin önd er
tekin fram fyrir hana.
Mér finnst þetta mjög ósann-
gjarnt og ég vil koma því á framfæri
við íslenska fjölmiðla og alla íslensku
þjóðina að fatlaðir íþróttamenn eiga
skilið jafn mikla, og ef ekki meiri at-
hygli fyrir árangur sinn því þeir eru
að berjast við fötlun sína jafnt því að
æfa íþróttir af kappi.
Legg ég því til að íslenskir
fjölmiðlar gefi sér ærlegt spark í aft-
urendann og einbeiti sér að því að
dreifa athygli sinni jafnt milli fólks-
ins.
GUNNAR FRIÐBERG
JÓHANNSSON,
Kirkjuvegi 53, Vestmannaeyjum.
AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.