Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 76
76 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Ljósahátíð norrænu menningarborganna gengur í garð Ljósin ÞESSA helgina er haldin í Reykjavík svokðlluð ljósahá- tíð sem er hluti af dagskrá menningarborgarinnar árið 2000. Norrænu menningarborgirnar þrjár, Reykjavík, Helsinki og Bergen, standa að hátíð sem hefur það að markmiði að lýsa upp myrkrið og einnig að beina aug- um manna að öllu því sem myrkrið gerir okkur kleift að njóta. Ljósahátíðin er samvinnuverkefni Reykjavík- í norðri ur, Helsinki og Bergen en listamenn frá þessum borg- um taka þátt í hátíðinni með listviðburðum innan húss og utan. Auk menningarborganna þriggja standa Orkuveita Reykjavíkur, Norræna húsið, Borgarleik- húsið og Listaháskóli Islands að Ljósum í norðri. Nán- ari upplýsingar má finna á heimasíðu menningarborg- arinnar, www.reykjavik2000.is. Annarleg skamm- degis- birta A svæðinu milli Njarð- argötu og Norræna hússins hafa nokkrir ----------------t- nemar á lokaári LI komið upp ljósabekkj- um og ætla að bjóða gestum Ljósahátíðar í Ijós í svartasta skamm- deginu. Unnar Jónasson reið á vaðið. ÞAÐ ERU þau Gunnhildur Hauks- dóttir, Elín Helena Evertsdóttir, Sigrún Sirra og Vilhjálmur Egill Harðarson sem ætla að hleypa týr- unni inn í líf landsmanna á svo ný- stárlegan hátt en þau eru öll nem- endur í Listaháskóla íslands. En hvað vakir fyrir þeim? Ljósabekkir á víðavangi Gunnhildur: „Þetta er verk sem fjallar um sólarleysi Islendinga á veturna og þörf allra íslendinga fyr- ir að fara í ljós. En það eru ekki nógu margir sem nýta sér þann munað að fara í Ijós, til dæmis hefur Tumi Magnússon, einn af kennurunum okkar, aldrei farið í Ijós. Verkið sam- anstendur einmitt af 9 ljósabekkjum sem verða útí mýri á norðaustur- horni túnsins við Norræna húsið, nær Njarðargötu. Hefurðu ekki ann- ars tekið eftir því hvað við erum geð- veikt brún og sælleg, en ekki eins og einhverjir mýrardraugar?" Elín: „Já, hann Svavar í Heimasól í Hveragerði lánar okkur einmitt ljósabekkina í verkið. Hann kemur með sólskin í heimahús fyrir íbúa fyrir austan fjall og víðar.“ Sirra: „Líka í bænum.“ Bíddu, ætlið þið að hafa ljósabekk- ina útiá víðavangi? Elín: „Já, bekkirnir verða undir beru lofti, en að sjálfsögðu verðum við með flíkur sem við klæðum þá í til verndar veðri og vindum og Segla- gerðin Ægir útvegar." Sirra: „Svo er líka sér manneskja í að passa þá, það verður kveikt á þeim um leið og Ijósastaurunum og það slokknar líka á þeim um leið og það fer að birta og slokknar á ljósa- staurunum." Getur fólk þá bara brugðið sér í ljós? Sirra: „Nei, þetta er meira bara svona „visualt11, skúlptúr." Elín: „Það verður eins konar „cyberbirta“ þarna, fyrir grasið. “ Gunnhildur: „Og gæsir eins og mig.“ Ljósin í Reykjavík úr lofti Sirra: „Svo erum við líka með ljósaflug." Gunnhildur: „Já, við ætlum að bjóða Reykvíkingum í kvöldflug yfir borgina, til að skoða ljósin sem eru þar fyrir. Þau eru svo falleg, séð úr lofti. Fólk á bara að njóta þess sem það hefur.“ Elín: „Einmitt. Engin veit hvað átt hefur fyrr en séð hefur.“ Hvernig kemst maður í svoleiðis flug? Elín: „Fólk getur hringt í sérstakt símanúmer á hátíðardögunum. Ljósaflugsnúmerið er 595-2025 og það verður hægt að hringja dagana sem hátíðin stendir yfir, frá föstu- degi til mánudags, á milli kl 14-16 á meðan sæti eru laus, annars kemur símsvari." Gunnhildur: „En hátíðin veltur auðvitað öll á því að veðrið verði sæmilegt." Oghvað kostar að fara íljósaflug? Elín: „Það verður ókeypis fyrir alla að fara í ljósaflug því Ljósahá- tíðin er styrkt af einhverjum sam- norrænum sjóði og svo stendur LHÍ við bakið á okkur og Leiguflug LIO er líka listavinur og gefur fal- legan afslátt." Gunnhildur: „Við erum sem sagt með tvö verk núna um helgina, ann- arlega íslenska skammdegisbirtu og ljósaflug, flug yfir borginni. Það eru allir velkomnir að koma og kíkja á ljósabekkina við Norræna húsið og af hverju ekki að skella sér í ljósa- flug um helgina?“ Morgunblaðið/Bjargey Bjargey klófesti vampíra í sænskum skdgi. Eg veiddi vampíru í Svíþjóð í SKÓGINUM örskammt frá Gautaborg veiddi Bjargey Ól- afsdóttir myndlistannaður vampíru sem hún sýnir fólki núna um helgina niðri á hafnarbakka fyrir fram- an Kolaportið. En af hverju að sýna vampíru, eitt ljósfælnasta afbrigði mannskepnunnar sem til er, á hátíð ljóssins? Sænsk vampíra með ferðaþrá „Égvará ferðalagi um Sví- . . 1 þjóð og rakst þá á hana ein- hversstaðar í skóginum þama í suðri en ég var þar við sveppa- tínslu eins og tíðkast í Svíþjóð. Hún var ekkert mjög mannfælin og alls ekkert óvinveitt í íyrstu. Ég trúði nú varla mínum eigin augum þegar ég tók eftir því að hún var vampíra og þá ákvað ég að reyna að lokka hana til mín og það tókst og náði ég þá að klófesta hana með miklum erfiðis- munum. Hún heitir Caisa Stina og er af gamalli skandinavískri ætt vamp- íra sem heitir á latínu „desmondus diphylla scandinavus" og er frekar meinlaus miðað við austur-evrópsku ættkvíslina. Hún er mjög ljósfælin en samt alveg ótrúlega ljóshærð og hvít á hörund þannig að það skín eigin- lega af henni og þegar ég fékk það verkefni að vinna verk íyrir ljósahá- tíðina hér í Reykjavík var hún nátt- úrulega það fyrsta sem kom uppí hugann,“ segir Bjargey. Bjargey og vampíran eru núna orðnar hinir mestu mátar. I eitt skipti voru þær að ræða ferðalög og annað slíkt og þá komst Bjargey að því að það hef- ur alltaf blundað í Caisu ferðaþrá og að ísland var ofarlega á lista yfir lönd sem hana langaði til að heim- sækja. Núna er þessi draumur hennar orð- inn að veruleika. „Ég ætla að sýna henni landið okkar og munum við ferðast að næturlagi og skoðaein- hverjar af perlum Suð- urlands. Þeg- ar ég sýni hana al- menningi verður hún í búri þannig að fólk þarf ekkert að óttast um heilsu sína en hún getur verið hættuleg bæði sér og öðrum þannig að það borgar sig að hafa allan vara á. Annars líður henni mjög vel, hún hefur sína eigin kistu til þess að sofa í og er í ágætis sambandi við fjölskyldu sína. Hún skrifast á við þau og það kemur líka fram í bréfum hennar að henni líður alveg prýðilega hér. Núna dafnai’ hún líka vel og svo er stefnan tekin á Ljósahátíðina í Helsinki því þangað hefur hún heldur aldrei komið." Fólki býðst því einstakt tækifæri til að sjá sænska vampíru núna um helgina á fóstudag, laugardag og sunnudag klukkan 19 og 21 niðri við Reykjavíkurhöfn þegar farið er að dimma því að hún þolir víst mjög illa dagsbirtu en hefur vanist rafmagns- Ijósum þannig að fólk getur séð hana í fullum skrúða og það kostar ekkert. ' Vampíran, Caisa Stina sýnir tennurnar. Eru norðurljósin hættuleg mannkyninu? Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Trans Light hdpurinn sem ætlar að fanga ljósið innra með íslendingum. Á MORGUN, föstudaginn 3. nóv- ember, klukkan 23:00 opnar Trans Light-hópurinn nýjan næturklúbb í kjallara Kaffi Thomsen, Hafnar- stræti 17. Klúbburinn, sem heitir „Photosynthesis" er liður í Ljósa- hátíð Reykjavíkur Menningarborg- ar Evrópu 2000 og verður opinn aðeins þetta eina kvöld, en frá Thomsen mun Trans Light ferðast til Helsinki og halda þar áfram rannsóknum sínum. Táknræn ljóstillífun „Photosynthesis" er ekki hefð- bundinn næturklúbbur heldur einskonar umbreyting á nætur- klúbbaumhverfi með sterkum til- vísunum í eiginleika ljóssins og eðli klúbbamenningarinnar. Verk- ið er unnið í samvinnu við Orku- veitu Reykjavikur, Slökkvilið Reykjavikur og Sláturfélag Suð- urlands og verður opið augum al- mennings til klukkan 2 á föstu- daginn. „Nýlegar vísindakannanir gerð- ar á norðurhveli jarðar sýna fram á að norðurljósin hafa heilsuspill- andi áhrif á þá einstaklinga sem njóta þeirra," segir Ásmundur Ásmundsson einn af meðlimum hópsins. „Þetta ku vera orðið al- varlegt vandamál í afskekktum héruðum norðursins. Við í Trans Light-hópnum höfum mikla vantrú á þessari kenningu og höfum því hafið leit að öðrum fyrirbrigðum í náttúrunni sem við teljum hina raunverulegu orsök fyrir heilsu- leysi þessa minnihlutahóps. Við teljum að ástæðurnar megi rekja til viðbragða alheimsandans við al- þjóðlegum kenningum um gróður- húsaáhrif og sé því nokkurskonar myndlíking fyrir hreina allegoríska eða táknræna ljóstillífun." Næturklúbbur sem er nær sannleikanum Trans Light er hópur listamanna sem vill breyta rétt og í honum eru fjórir menn; Ásmundur Ásmunds- son, sem nam listir í Reykjavík og New York og hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, Magnús Sigurðarson sem nam listir í Reykjavík og New Jersey og hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, Ingirafn Steinarsson sem útskrifaðist frá LHÍ 1999 og hefur tekið þátt í fjölda samsýn- inga og Pétur Eyvindsson sem er sjálfmenntaður tónlistarmaður og hefur starfað með hljómsveitinni Vindva Mei síðan 1994. Vindva Mei gaf nýlega út frum- raun sína On Fire sem hefur hlotið afbragðs dóma víða í heimsþorp- inu. Hljómsveitin hefur haldið fjölda tónleika bæði hér heima og erlendis. „Trans Light er ekki bara myndlistarlegur gjörningur heldur miklu frekar almenn upplifun mannsandans, sem er staðráðinn í að fanga ljósið sem býr hið innra með sérhverri manneskju. Við byggjum aðgerðir okkar á laus- beislaðri festu, með áherslu á hinn altæka kraft sem birtist okkur á hraða Ijóssins. Þess vegna trúum við að við séum nær sannleikanum en nokkru sinni fyrr, bæði hvað varðar lífeðlisfræðilegar upplifanir og andlegar stökkbreytingar," seg- ir Ásmundur að lokum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.