Morgunblaðið - 02.11.2000, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000 7?
FÓLK í FRÉTTUM
ERLENDAH
® ® ©
Jón Gunnar Geirdal hefur
verið að hlusta á Saints and
Sinners, nýju plötuna
með All Saints.
★★★☆☆
Pottþétt popp
AÐ er víst alveg ábyggilegt
að það var ekki auðvelt fyr-
ir dömurnar í All Saints að
koma fram á sjónarsviðið í kjölfar
gríðarlegra vinsælda Spice Girls -
enn eitt stelpnabandið frá Bret-
landi sem ætlaði að slá í gegn á
léttum popplögum og glæsilegu út-
liti. Dömurnar þurftu heldur betur
að sanna sig til að þagga niður
gagnrýnisraddirnar og það gerðu
þær svo um munaði. Þær slógu í
gegn og eitt af betri popplögum
síðasta áratugar er án efa metsölu-
lagið „Never Ever“ sem kom döm-
unum á tónlistarkortið og á topp
vinsældalista um heim allan. Eftir
fylgdu minna vinsæl lög en það
skipti engu því stelpurnar voru
komnar til að vera og það sem hef-
ur eflaust hjálpað þeim er stans-
laus umfjöllun í slúðurblöðum
Evrópu þar sem karlafari þeirra
eru gerð góð skil enda helstu
popparar búnir að sjást með stúlk-
unum eins og t.d. „góðvinirnir"
Robbie Williams og Liam Gallagh-
er úr Oasis.
Annarrar plötu All Saints hefur
verið beðið með mikilli eftirvænt-
ingu í Bretlandi og víðar og nú
loksins er hún komin í verslanir.
Aðdáendur fengu reyndar forskot
á sæluna í sumar þegar lagið
„Pure Shores" fyrsta lagið á plöt-
unni, heyrðist í DiCaprio myndinni
The Beach, varð mjög vinsælt um
alla Evrópu og gerði sér lítið fyrir
og skellti sér á topp breska listans.
Hér er á ferðinni frábært lag í
stórgóðri útsetningu snillingsins
William Orbit sem m.a. vann með
Madonnu að meistarastykkinu Ray
of Light. Næsta smáskífa af plöt-
unni, „Black Coffee", kom út ekki
alls fyrir löngu og það fór sömu
leið og strandarsmellurinn, beint á
toppinn í Bretlandi og er búið að
heyrast á popp-útvarpsstöðvum
landsins - alls ekki slæm byrjun
hjá All Saints og William Orbit.
En það er ljóst að þeir sem sáu um
að velja fjrrstu lög í spilun hjá
þeim dömum eiga mikinn heiður
skilinn því „Pure Shores“ og
„Black Coffee“ eru meðal bestu
laga á diskinum. Önnur lög sem
eiga eflaust eftir að heyrast á
næstu mánuðum eru sennilega
„AIl Hooked Up“, grípandi gott
lag, og „Dreams", sem er rólegt og
þægilegt. Önnur lög á diskinum
rúlla áfram án þess að skilja mikið
eftir en þetta eru ágætis lagasmíð-
ar, grípandi viðlög og hörkusöng-
ur; ávísun á pottþétta popphljóm-
sveit sem á að vera skemmtileg og
það eru All Saints svo sannarlega.
Hér er á ferðinni hljómsveit sem
er orðin svo vinsæl að hún er orðin
áskrifandi að stanslausri útvarps-
spilun laga sinna og er ísland eng-
in undantekning. Þetta er FM
95.7/ Pottþétt safndiska-hljómsveit
í orðsins fyllstu merkingu og það
ætti að segja allt sem segja þarf
um þessa ágætu hljómsveit. Saints
and Sinners verður ekki minnst
fyrir einhverja meistarasmíðina
heldur fyrir skemmtanagildi sitt
og léttleika og þar skila dömurnar
vinnu sinni vel og þú færð peninga
þinna virði af ágætri popptónlist.
Að mati Jóns Gunnars er alveg þokkalegt krydd í nýju plötu All Saints.
MESSAGE
SIEMENS C35
Þyngd nog
„Dual Band" 900 mhz og 1800 mhz
Innbyggt mótald
Rafhlaða endist í allt að 5 klst. í notkun
og 180 klst. í bið
Hægt að senda myndir í stað texta
Titrari, reiknivél, gjaldeyrisreiknivél og skeiðklukka
Innbyggð klukka með vekjara og dagsetningu
Innbyggð dagbók
LÉTTKAUPSÚTBORGUN:
7.980 kr.*
Heildarverð 19.980 kr.
Staðgreiðsluverð 18.981 kr.
Motorola t2288
Þyngd140 g
MIMh 700 mAh rafhlaða sem endist
í allt að 3,5 klst. í notkun og 210 klst. í bið
„Dual Band" 900 mhz og 1800 mhz
LÉTTKAUPSÚTBORGUN:
1 kr.*
Heildarverð 12.001 kr.
Staðgreiðsluverð 11.401 kr.
Motorola P7389
Þyngd140 g
„Tri Band" 900,1800 og 1900 mhz
Raddstýring
Upptökubúnaður
Titrari
Innrautt tengi
Innbyggt mótald til gagnaflutnings
Sérstakurtakki fyrir talhólf
LÉTTKAUPSÚTBORGUN:
11.300 kr.*
Heildarverð 23.300 kr.
Staðgreiðsluverð 22.135 kr.
NOKIA 6210
„Dual Band" 900 og 1800 mhz
Þyngd: 114 g
Valmyndakerfi á íslensku
Símaskrá geymir allt að 500 nöfn
Geymir allt að 150 SMS skilaboð
Titrari
Raddstýrð hringing
LÉTTKAUPSÚTBORGUN:
20.980 kr.*
Heildarverð 32.980 kr.
Staðgreiðsluverð 31.331 kr.
■u
WAP da^ar | íverslunijm
Símans til 4. nóvember
Þeir sem einu sinni kynnast WAP símum uppgötva af hverju
þeir hafa verið að missa. f gegnum wap gátt símans
FÆRÐU AÐGANG AÐ NETINU OG ÓTRÚLEGUSTU
FRÉTTA- OG UPPLÝSINGABRUNNUM.
Vertu með. Notaðu WAP.