Morgunblaðið - 18.11.2000, Side 9

Morgunblaðið - 18.11.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 9 FRÉTTIR Umboðs- maður Al- þingis með heimasíðu HALLDÓR Blöndal, forseti Al- þingis, opnaði í gær nýja heima- síðu umboðsmanns Alþingis. Þar má finna almennar upplýsingar um starfsemi umboðsmanns Al- þingis auk laga og reglna um starfsemina, en umboðsmaður Al- þingis hefur lögum samkvæmt það hlutverk að hafa f umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og hann skal tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Embætti umboðsmanns Alþingis var stofnað 1988. Á heimasíðunni er hægt að nálgast eyðublað fyrir kvörtun til umboðsmanns, en meginefni heimasíðunnar er síðan álit og aðrar niðurstöður sem umboðs- maður telur rétt að birta ásamt útdrætti í hverju máli. Alls má finna þar niðurstöður í 814 mál- um. Til að auðvelda leit í þessu Morgunblaðið/Jim Smart Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, við formlega opnun nýrrar heimasíðu umboðsmanns Alþingis. efni er á heimasíðunni sérstök leitarvél, þar sem hægt er að leita eftir atriðisorðum, heitum stofnana auk almennrar textaleit- ar. Þar er einnig aðgangur að skrám yfir lagatilvitnanir og at- riðisorð í formi textaskjala. Heimasíðunni er ætlað að auð- velda leit að úrslausnum umboðs- manns vegna einstakra við- fangsefna og málaflokka. Slíkt aðgengi að úrlausnum umboðs- manns er líka mikilvægt innlegg í að upplýsa bæði almenning og starfsfólk stjórnsýslunnar um þær réttarreglur sem gilda um mál- efni stjórnsýslunnar og umboðs- maður Alþingis hefur fjallað um. Umboðsmaður Alþingis er Tryggvi Gunnarsson og var hann kjörinn af Alþingi til næstu fjög- urra ára frá og með 1. janúar sl. Slóð heimasíðunnar er: www.umbodsmaduralthingis.is. Bætur vegna kvikmynda í skólum HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ís- lenska ríkið til að greiða þremm- höfundarréttarhöfúm samtals 1,6 milljónir króna í bætur vegna sýninga í skólum og öðrum fræðslustofnunum á kvikmyndun- um Atómstöðin og Punktur, punkt- ur, komma, strik. Kvikmyndafélagið Óðinn, sem var í eigu Þorsteins Jónssonar, Þórhalls Sigurðssonar og Ömólfs Ámasonar, var lýst gjaldþrota árið 1986 og kvikmyndimar tvær seld- ar Þorsteini á uppboði með þeim réttindum sem tilheyrðu framleið- anda. Þeir félagar töldu sig fara sameiginlega og óskipt með höf- undarrétt að myndunum. Árið 1988 samdi Þorsteinn við mennta- málaráðuneytið um sýningar á myndunum í skólum og öðmm fræðslustofnunum á Islandi í fimm ár. Þremenningamir höfðuðu mál á hendur ríkinu og kröfðust bóta fyrir fjártjón og miska þar sem kvikmyndimar hefðu verið notaðar til kennslu allt fram á skólaárið 1997 til 1998 þrátt fyrir að samn- inguiinn hefði aðeins verið til fimm ára. Hæstiréttur taldi sannað að myndimar hefðu verið leigðar út 14 mánuðum lengur en samningar kváðu á um en sagði frekari afnot ósönnuð. Menntamálaráðuneytið hefði borið ábyrgð á því að sýning- um var haldið áfram þrátt fyrir að samningstímabilið hefði verið hðið en með því hefði verið brotið gegn höfundarrétti Þorsteins, Þórhalls og Ömólfs. Framkvæmdir hafa ekki umtalsverð umhverfisáhrif STEFÁN Thors, skipulagsstjóri rík- isins, segist ekki vera á sama máli og Aðalheiður Jóhannesdóttir lögfræð- ingur, sem stundar doktorsnám í umhverfisrétti, um að kísilgúrnám á námusvæði 2 í Syðriflóa Mývatns hafi í för með sér umtalsverð um- hverfisáhrif. Af þeim sökum sé hann heldur ekki sammála Aðalheiði um það að í nýlegum úrskurðum skipu- lagsstjóra ríkisins og umhverfisráð- hen-a um mat á umhverfisáhrifum kísilgúrvinnslu úr Mývatni hafi svo- kallaðri varrúðarreglu ekki verið beitt. Leggur hann áherslu á í þessu sambandi að miðað við þá fyrirvara sem framkvæmdaraðila séu settir í úrskurðunum muni framkvæmdirn- ar ekki hafa umtalsverð umhverfis- áhrif. í grein Aðalheiðar, sem nýlega birtist í Morgunblaðinu, gerir hún fyrrgreinda úrskurði skipulags- stjóra og umhverfisráðherra m.a. að umtalsefni og telur að í úrskurðun- um hafi ekki verið fylgt neinni varúð- arreglu. Bendir hún á að í úrskurði skipulagsstjóra ríkisins, frá 7. júlí sl., hafi komið fram að í varúðarreglu felist að ekki megi nota vísindalega óvissu til að heimila framkvæmdir. Náttúran eigi að njóta vafans. Síðan segist hún telja að í úrskurði um- hverfisráðherra frá 1. nóvember sl. hafi ekki verið fylgt neinni varúðar- reglu. Framkvæmdaraðili hafi notið alls vafa sem komið hafi fram í mati á umhverfisáhrifum, öðrum gögnum og flestum umsögnum sem og í úr- skurðinum sjálfum „þrátt fyrir að ekki leiki nokkur vafi á að það ríkir vísindaleg óvissa um það hvort og Níu íkveikjur í Mosfellsbæ upplýstar LÖGREGLUMENN á hverf- islögreglustöðinni í Mosfellsbæ hafa upplýst níu íkveikjur í Mosfellsbæ. íkveikjurnar áttu sér stað á nokkurra vikna tíma- bili. Eldur var m.a. lagður að strætisvagnaskýlum, kveikt var í þakskeggi Varmárskóla og nú síðast var eldur kveiktur í rusli við Bæjarleikhúsið í Mos- fellsbæ. Ungur piltur, búsettur í Mos- fellsbæ, hefur gengist við íkveikjunum. Málið er nú til skoðunar hjá barnavemdar- yfirvöldum í bæjarfélaginu. hvemig áhrif kísilgúrnám hefur á líf- ríki Mývatns.“ Stefán bendir m.a. á að í úrskurði Skipulagsstofnunar frá því í sumar sé vísað til varúðarreglu með eftir- farandi hætti: „Islendingar hafa með alþjóðleg- um samningum skuldbundið sig til að hafa svokallaða varúðarreglu að leiðarljósi. í henni felst að ekki megi nota vísindalega óvissu til að heimila framkvæmdir, náttúran eigi að „njóta vafans“.“ Farið að varúðarreglunni Þá bendir Stefán á umsögn Skipu- lagsstofnunar hinn 9. okóber sl. en þar hafi eftirfarandi komið fram um varúðarregluna og hvernig hún hafi birst í úrskurði skipulagsstjóra hinn 7. júlí sl. „Skipulagsstofnun telur að í hinum kærða úrskurði hafi verið farið að varúðarreglunni varðandi mat á umhverfisáhrifum fyrirhug- aðra framkvæmda og niðurstaða úrskurðarins sé í fullu samræmi við varúðarregluna. Niðurstaða úr- skm-ðarins varðandi námusvæði 1 byggir á því að ekki liggi fyrir nægi- legar upplýsingar til að taka afstöðu til þess hvort umhverfisáhrif efnis- töku þar séu umtalsverð, og því er gerð krafa um öflun frekari gagna þar. Niðurstaða úrskurðarins varð- andi námusvæði 2 byggist hins vegar á því að sýnt hafi verið fram á við aðra athugun að unnt sé að vinna kísilgúr á námusvæði 2 án þess að vinnsla þar hafi í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Vegna þýðingar svæðisins sé hins vegar nauðsynlegt að leyfisveitingar til efnistöku á námusvæði 2 byggist á mjög ítarlegum framkvæmdalýs- ingum og áætlunum, sem og af- dráttarlausum vöktunaráætlunum og viðmiðum um hvenær vöktunar- mælingar kalli á breytingar á fram- kvæmdum eða stöðvun fram- kvæmda. Skipulagsstofnun felst því ekki á að niðurstaða úrskurðarins varðandi námusvæði 2 byggist á því að nota vísindalega óvissu til að heimila framkvæmdir, eins og haldið er fram í kærum. Eins og fram kem- ur í úrskurðinum ... var í framlögðum gögnum við aðra athugun sýnt fram á að unnt væri að stunda efnisnám á námusvæði 2 án þess að vinnslan hefði í för með sér umtalsverð um- hverfisáhrif." Ekki umtalsverð umhverfisáhrif Stefan segir því að niðurstaðan hafi verið sú að kísilgúrnám á námu- svæði 2 muni ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. „Sú nið- urstaða var bundin ítarlegum skil- yrðum, enda framkvæmdin um- fangsmikil og framkvæmdasvæðið viðkvæmt og nýtur auk þess sér- stakrar vemdar m.a. með sérlög- um.“ Stefán bendir á að lögum sam- kvæmt sé það hlutverk leyfisveit- enda að framfylgja þeim skilyrðum sem sett eru í úrskurðum um mat á umhverfisáhrifum. „Eðli málsins samkvæmt er það svo í þessu máli sem og öðrum að fari svo að ekki reynist unnt að uppfylla skilyrði úrskurðar við undirbúning og útgáfu leyfa eru forsendur úrskurðar brostnar og því getur ekki komið til leyfisveitinga að öðm óbreyttu. Þar er niðurstaða um mat á umhverfis- áhrifum kísilgúrnáms úr Mývatni í engu frábragðin fram- kvæmd laga um mat á umhverfis- áhrifum í öðmm málum og tengslum þeirra við leyfisveitingar." Ókeypis bæklingur íslenski Póstlistinn sími 557-1960 www.postlistinn.is “. : ' I rúskinnsdragtir flott-föt Opið virka daga W. 10-18. laugardaga kl. 10-16. Hlíðasmára 17, Kópavogi, sfmi 554 7300, (v. hl, á Sparisjóði Kópavogs). Kjólar og dress Buxur og peysur í miklu úrvali Gott verð Ríta TÍSKUVERSLUN Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. H ' í í -s n y r t i s t o f o ti Hef hafið störf u liársnyrtistofunni Laugavegi 178 s-552 0305 MargrétJ. Halldórsdóttir hárgretítslumeistari (áður Hátel Sögu) Full búð af nýjum, glæsilegum sparifatnaði Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Funai myndbandstæki frá þýskaiandi 6 hausa Nicam Stereo Long play NTSC afspilun Góð kyrrmynd, og m.fl. Tilboð kr. 18.900,- ON OFF VÖRUMARKAÐUR Smiöjuvegi 4, græn gata, Kópavogi, Slmi: 577 3377

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.