Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 13
Egilsstaðabændur mega ekki
við því að missa meira land
stöðum sem menntaskólakennari.
Varðandi afgreiðslu umhverfis-
ráðs sveitarfélagsins, þar sem full-
trúi Sjálfstæðisflokks bókaði mót-
mæli gegn veitingu framkvæmda-
leyfis, sagði Sigrún að þetta væri
þverpólitískt mál. Engu að síður
mætti fastlega reikna með því að
leyfið verði veitt á fundi bæjar-
stjórnar á þriðjudaginn. Kæmu
fram frekari mótmæli fram að þeim
tíma gæti það haft áhrif á afgreiðslu
bæjarstjórnar.
Til marks um þverpólitíska hlið
málsins má geta þess að eining er
ekki um það á heimili Sigrúnar þar
sem eiginmaður hennar var meðal
þeirra 125 íbúa sem ljáðu nafn sitt á
fyrmefndan undirskriftalista. En
hún sagðist standa fast á sínu, óháð
skoðunum húsbóndans.
„Við finnum meðbyr fyrir því í
samfélaginu að hafa brúna þarna. Ef
undirskriftalisti færi af stað hinum
megin frá þá held ég að hann yrði
lengri,“ sagði Sigrún.
Teppa-
hreinsivél
Morgunblaðið/Bjöm Jóhann Björnsson
Talsmenn íbúa sem mótmælt hafa brúarstæðinu við Eyvindará. Þorbjörn Rúnarsson bendir á fyrirhugaða leið yfir ána og við hlið hans á Seyðisfjarðar-
vegi standa þau Sigurbjörn Snæþórsson og Snædís Snæbjömsdóttir. í baksýn er nýjasta byggð Egilsstaða.
Gunnar Jónsson, bóndi á býlinu
Egilsstöðum V, á ásamt föður sín-
um, Jóni Agli Sveinssyni, land að
Melshorni á þeirri leið sem margir
íbúar og Vegagerðin hafa viljað fara.
Gunnar sagði við Morgunblaðið að
bændur á Egilsstöðum mættu ekki
við því að missa meira landsvæði,
búið væri að taka það mikið undir
þéttbýli, flugvöll og vegi.
„Ég lít á þetta sem ákveðna vam-
arlínu. Með því að færa veg, er verið
að opna land. Ef maður ætlar að lifa
á þessum búskap í dag má maður
ekki missa af þessu landi,“ sagði
Gunnar.
Varðandi mótmæli íbúa við fyrir-
huguðu brúarstæði minnti Gunnar á
að það væri búið að vera lengi á
skipulagi á þessum stað. Ekki væri
verið að auka umferð á þessari leið.
Eins og komið hefur fram hér á
undan er ekki útilokað að brú komi
eftir sem áður yfir Eyvindará við
Melshom. Gunnar sagðist gera sér
grein fyrir því, ef byggðin héldi
áfram að stækka, að gengið verði frá
búskapnum á Egilsstöðum. Spurn-
ingin væri hvort íbúar sveitarfélags-
ins vildu það.
Gunnar sagðist standa í fram-
kvæmdum, meðal annars með bygg-
ingu nýs fjóss, og hann hefði fengið
viljayfirlýsingu frá skipulagsráði
Austui'-Héraðs um að búskapara-
ðstaða jarðarinnar verði ekki skert
nema að eitthvað sérstakt komi til.
Þarft þú að hreinsa hjá
þér teppið fyrir jólin?
Vegagerðin og
Austur-Hérað deila
Hljóð-
mön of
nálægt
stofn-
braut
NÝLEGA sendi Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri
bæjaryfirvöldum bréf, í
kjölfar um-
sóknar um
fram-
kvæmda-
leyfi vegna
brúarinnar
yfir Ey-
vindará,
þar sem
bent var á
Helgi að hljóð-
Hallgrímsson mön væri
of nálægt Seyðisfjarðarvegi
samkvæmt vegalögum, og
sama mætti segja um ibúða-
byggð við veginn. Vegalög
kveða á um að byggingar
eða önnur maunvirki, föst
sem laus, megi ekki vera
nærri en 30 metra frá mið-
línu stofnbrauta, nema með
Ieyfi Vegagerðarinnar. Hús-
in, sem byrjað er að byggja,
eru um 17 metra frá miðlinu
Seyðisfjarðarvegar. Þessi
deila er óleyst og standa við-
ræður yfir, þar sem meðal
annars kemur til greina að
færa Seyðisfjarðarveg
lengra frá byggðinni.
Helgi sagði við Morgun-
blaðið að hljóðmönin væri að
mati Vegagerðarinnar meira
mál en nálægð húsanna. Þau
hefðu lengið verið á skipu-
lagi Egilsstaða en hljóðmön-
in væri nýtilkomin. Hann
reiknaði með að Vegagerðin
virti þá ósk bæjaryfirvalda
að leyfa möninni að standa í
vetur, en fram að því yrði
veturinn notaður til að
hanna vænlegri kost.
Varðandi deiluna við
Vegagerðina um hljóðmön
og nálægð húsa við Seyðis-
fjarðarveg sagðist Björn
Hafþór Guðmundsson, bæjar-
stjóri Austur-Héraðs, vona
að sátt næðist. Ákveðins mis-
skilnings hefði gætt milli að-
ila.
990 kr.
Sólarhrings leiga
Björn Hafþór _ Katrín Jón Kr.
Guðmundsson Ásgrímsdóttir Amarson
fyrir allt héraðið væri í
gangi þar sem m.a.
kæmi til greina að færa
Fagradalsbraut út fyr-
ir Egilsstaði. Skoða
þyrfti umferðarmál í
héraðinu heildstætt.
Vaxandi
óánægja íbúa
Sigrún
Harðardóttir
Gunnar
Jónsson
sjálfstæðismenn. 1 þeirra málefna-
samningi er ekkert minnst á brúar-
framkvæmdir en það mun hafa verið
rætt að taka brúarmálið ekki upp.
Þegar Vegagerðin setti fram-
kvæmdina á áætlun og brúin fór í út-
boð kom málið aftur á dagskrá, eins
og áður sagði.
Katrín Ásgrímsdóttir, oddviti
Framsóknarflokksins og forseti
bæjarstjómar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að sökum þess hve
brúarmálið hefði verið viðkvæmt á
síðasta kjörtímabili hefði fyrri
meirihluti þessa kjörtímabils með F-
listanum ákveðið að taka málið ekki
upp. Við myndun nýs meirihluta
með sjálfstæðismönnum hefði þeirri
ákvörðun ekki verið breytt. Síðan
hefði málið komið upp nú þegar
brúarframkvæmdir vom boðnar út.
Katrín sagði þá skoðun almennt
vera ríkjandi innan Framsóknar-
flokksins að fara með brúna yfir fyr-
irhugað stæði, þótt vissulega væm
deildar meiningar manna á meðal.
Hún sagði að málið væri of langt
komið til að stöðva það núna, fram-
kvæmdaleyfi væri síðasti hlekkur-
inn í þeirri ákvörðun sem á sínum
tíma var tekin um þessa brú. Mikil-
vægt væri að vanda til verka, með
tilliti til umhverfisins og sjónarmiða
íbúanna í grennd við brúna.
Aðspurð um þá kröfu minnihlut-
ans og margra íbúa að fresta fram-
kvæmdaleyfi þar til aðalskipulag
væri tilbúið sagði Katrín að leyfið
væri óháð skipulagsvinnunni. Hún
minnti á að vinna við svæðaskipulag
Jón Kr. Arnarson,
oddviti F-listans, sem
er nú í minnihluta bæj-
arstjórnar Austur-
Héraðs, lagði fram til-
lögu fyrir um mánuði í
bæjarstjórn um að
fresta framkvæmdum
við Eyvindarárbrú þar
til nýtt aðalskipulag væri staðfest,
en tillagan var felld af meirihlutan-
um. Hann vill að sveitarfélagið fari
fyrst í þær mótvægisaðgerðir varð-
andi umhverfið, sem t.d. hefðu kom-
ið fram í umhverfismatsskýrslu
Vegagerðarinnar. Einnig nefndi Jón
hljóðmönina sem dæmi, sem Vega-
gerðin samþykkti ekki.
Hann sagði að auk mótvægisað-
gerðanna, væru rök F-lista gegn
brúarframkvæmdunum m.a. þau að
vinnu við nýtt aðalskipulag væri
ekki lokið og óánægja meðal íbúa
færi vaxandi víða í sveitarfélaginu.
Hann sagði mörg fordæmi fyrir því í
öðrum sveitarfélögum að þrýstingur
íbúa gæti haft áhrif á ákvarðanir
sveitarstjórna, t.d. Laugardalsmálið
í Reykjavík og Vatnsendamálið í
Kópavogi.
„Það væri mjög lýðræðislegt af
bæjarstjórninni að taka tiilit til
þessara mótmæla,“ sagði Jón.
Fátt nýtt komið fram
Sigrún Harðardóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, sagði við
Morgunblaðið að í raun hefði fátt
eða ekkert nýtt komið fram sem
gæfi núverandi meirihluta ástæðu til
að breyta fyrri ákvörðunum um að
hafa brúna á þessum stað. Sigrún
benti á að þegar Melshomsleiðin
hefði fyrst verið skoðuð hefði um-
ferðin um Seyðisfjarðarveg yfir
gömlu brúna verið mæld. Þá hefði
komið í ljós að hún hefði verið mjög
lítil. Það hefði verið mat manna að
sólarhringsumferð þama hefði ekki
náð hálftíma á Miklubrautinni.
Þessi mæling hefði styrkt þáver-
andi meirihluta Egilsstaðabæjar í
þeirri trú að hafa brúna við sama
stað. Ný brú myndi ekki þýða aukna
umferð heldur sköpuðust möguleik-
ar á að gera umferðina hættuminni.
Núverandi meirihluti Austur-Hér-
aðs væri einmitt að skoða þá leið,
með þeim skilyrðum fyrir fram-
kvæmdaleyfi að unnið sé að öryggis-
málum, m.a. með undirgöngum und-
ir brúna, hraðahindrunum og
mögulega tilfærslu vegarstæðisins.
„Rökin fyrir því að hafa brúna
þarna eru meðal annars þau að
byggð myndist í kringum þjónustu.
Þarna hafa þjónustufyrirtæki verið
að byggja sig upp. Ekkert hefur
komið fram, að mínu mati, sem gefur
okkur ástæðu til að breyta ákvörð-
unum sem fyrir löngu voru teknar.
Auðvitað hlustum við á raddir
íbúanna en ég tel að við séum að
koma til móts við þeirra sjónarmið
með því að hafa undirgöng og hraða-
hindranir. Við erum sannfærð um að
það sé rétt að hafa brúna á þessum
stað. Gamla brúin er stórhættuleg
og ég veit allt um það þar sem ég ek
þarna um oft á dag,“ sagði Sigrún,
sem býr á Eiðum en starfar á Egils-
HÚSASMIDJAN
Simi 525 3000 • www.husa.is