Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 79
FÓLKí FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
fVifx, <j'; o;r <tt fs%/ f%*X i■/'V í / J UV
LAUGARDAGÚR 18. NÓVEMBER 2000 79 ,
|
I
Gísli Rúnar er Algjör sveppur
Sálin hans
Palla
Grallarinn Palli í Stund-
inni okkar kom ýmsu í
verk og gaf m.a út plötu.
Eða hvað? Gísla Rúnar
Jónsson skýrði málið
fyrir Hildi Loftsdóttur.
ALLIR sem sáu Palla í
Stundinni okkar veturinn
1975-76 muna ljóslifandi
eftir brúðustráknum,
enda ekki bara böm sem heilluðust
af grallaranum þeim, heldur einnig
foreldrarnir.
Gísli Rúnar Jónsson leikari var
maðurinn á bakvið Palla og þessa
dagana er verið að endurútgefa plöt-
una Algjör sveppur, sem flestir köll-
uðu reyndar bara Pallaplötuna þótt
Palli væri þar hvergi nefndur á nafn.
En hvemig stóð á því?
Palli var sendur í sveitina
Sirrý: „Hvað er að þér í röddinni?"
Palli: „Ég var á spítala, það þurfti
að taka úr mér kitlurnar."
Sirrý: „Hvað segirðu?"
Palli: „Mig kitlaði svo í hálsinn að
þeir tóku úr mér kitlurnar."
Sirrý: „Þú átt við kirtlana?“
Palli: „Já, ég átti við það. Þeir
tóku þá.“
Þannig var það afgreitt í Stund-
inni okkar þegar Gísli Rúnar tók við
dúkkunni Palla með tveggja daga
fyrirvara seint að hausti en þá hafði
þessi brúða komið fram í sjónvarp-
inu í fáeinar vikur. Einn góðan veð-
urdag breyttist Palli í öllu látbragði.
Hann varð hásari, hreyfði sig meira,
hóstaði, ropaði, geispaði, söng og
blístraði og gerði flest sem lifandi
fólk gerir og varð mun frakkari.
„Til þess var raunar ætlast að ég
héldi uppteknum hætti dúkkunnar,
sem var heldur á dauflegri nótunum,
röddin blæbrigðalaus og orð og æði
ekki sérlega innblásið, en vandinn lá
m.a. í því að réttlæta persónuleika-
breytingu fyrir börnunum. Ég lá yfir
dúkkunni í tvo sólarhringa reyndi
milljón raddir og datt svo niður á
rödd og fas sem passaði," segir Gísli
Rúnar. Hann lék Palla allan veturinn
og öðlaðist dúkkan miklar vinsældir.
„Ég minnist samvem minnar með
Palla sem ánægjulegs tímabils. En,
þegar ég undir vor lenti í deilum við
forsvarsmenn Sjónvarps vegna van-
efnda um hækkun á lúsarlaunum var
fjandinn laus. Og ég gleymi því
aldrei, þegar ég var að þrasa við dag-
skrárstjóra um verðlagningu á þessu
framlagi mínu til túlkandi lista, sem
honum þótti í rýrara lagi að hann
spurði mig: „Telur þú þig vera meiri
listamann en söngkonan sem syngur
Carmen í Þjóðleikhússinu? Þú biður
um sambærileg laun. - Hvað gat ég
sagt? - Jú, ég er u.þ.b. tvöfalt meiri
listamaður og því vel að þessum
launum korninn," segir Gísli Rúnar
og getur ekki varist brosi.
Verður að
tragikómedíu
Gísla Rúnari var tjáð að enginn
væri ómissandi og ákvað hann að
láta á það reyna, gekk út og i næstu
þremur bamatímum, sem voru eftir
á vetrardagskránni, var sagt að Palli
væri farinn í sveitina. „Blaðasknf
hófust og ég á heila úrklippubók með
lesendabréfum úr Vísi og Dagblað-
inu. „Hvar er Palli? Hvenær kemur
hann úr sveitinni? Bömin em grát-
andi!“ rifjar Gísli Rúnar upp. „Þetta
fékk á sig svip tragíkomedíu, einkum
þegar hæstráðandi Sjónvarpsins gaf
út opinberar yfirlýsingar þess efnis
að skefjalaus fégræðgi leikarans réði
því að aumingja börnin fengu ekki að
sjá Palla sinn. Og um haustið, þegar
Stundin okkar hóf göngu sína á ný,
afréðu yfirmenn stofnunarinnar að
koma ekki til móts við leikaragarm-
inn en réðu þess í stað atvinnueftir-
hermu til að herma nokkuð nákvæm-
lega eftir rödd hans og látbragði.
Það sannaði náttúrlega að í sjálfu
sér var ég því sem næst ómissandi,"
segir Gísli Rúnar og hlær.
„En auðvitað fór þetta svoh'tið fyr-
ir brjóstið á mér, enda sambærilegt
og ef, tja ... t.d. Ladda væri bannað
að leika Elsu Lund í Sjónvarpinu og
Örn Árnason fenginn til að herma
eftir honum. En þegar áhorfendur
tóku að kvarta undan því hvað mér
hefði farið aftur með dúkkuna var ég
nauðbeygður að gefa út yfirlýsingu
um að ég væri ekki lengur með lúk-
urnar í Palla.“
Það er bara til einn
Palli og það er ríkispalli
Gísli Rúnar og Svavar Gests
ákváðu síðan að gefa út plötu með
Palla fyrir jóhn. „Það mátti til sanns
vegar færa að ég ætti sálina í
dúkkugarminum þótt ég ætti strangt
til tekið ekki útht hennar. Það var
hinn fjölhæfi kúnstner Gunnar Bald-
ursson hjá Sjónvarpinu sem hannaði
gripinn en persónusköpunin var mín
og það sem dúkkan lét út úr sér kom
beint úr minni smiðju. Platan hét Al-
gjör sveppur - dagur í lífí stráks og
svo mikið lá fulltrúum ríkisfjölmiðil-
isins á að stöðva okkur Svavar Gests
að þeim dugði ekkert minna en að
rjúfa venjubundna dagskrárkynn-
ingu þulunnar eitt kvöldið, eins og
gert er t.d. þegar Katla gýs og þ.h.
og þulan tilkynnti að sá Palli sem
væri á plötunni hjá SG-hljómplötum,
væri ekki sami Palli og væri í Sjón-
varpinu. Forsjárhyggjan í algleym-
ingi, eins og hjá Marteini Mosdal,
„Það er bara einn Palli og það er í
ríkispalli" ... það var eins og ég
hefði falsað frægt listaverk og skrif-
að sjálfan mig fyrir útkomunni,“seg-
ir Gísli Rúnar og glottir við.
En þessi náttúruhamfaratilkynn-
ing hafði það fyrst og fremst í för
með sér að SG-hljómplötur þurfti
engu að eyða í sjónvarpsauglýsingar
fyrir þessi jól. „Mér fannst þetta
reyndar svolítið sláandi, ég var ekki
nema 23 ára gamall, óharðnaður
leikari, og næstu fjögur árin á eftir
fékk ég ekki að sjást á skjám lands-
manna né heyrast á öldum Ijósvak-
ans. En þótt mönnum hafi verið heitt
í hamsi finnst mér það skondið í dag,
að lítil, sakleysisleg tuskudúkka með
tómt gúmmíhöfuð skyldi öðlast vægi
í dægurmálaumræðunni sem aðeins
geðveikir þjóðhöfðingjar og lýta-
læknaðar poppstjörnur hljóta.“
Húmorískt fræðsluefni
Gísli Rúnar hafði horft á Sesame
Street í kanasjónvarpinu, þar sem
reynt var að sameina hjá bömunum
skemmtun og fræðslu. „Ég heillaðist
af þessu og reyndi meðal annars að
láta Palla kenna bömunum umferð-
arreglur, kurteisi og fleira. Það er
vist gamalgróinn þumalfingursmæli-
kvarði á hvort bamaefni er í lagi ef
fullorðna fólkið hefur gaman af því
líka. Ég hef umgengist böm í stómm
stíl, og alltaf verið ofsalega mikill
barnakarl auk þess sem mér var
margt svo ferskt í minni frá því þeg-
ar ég var sjálfur bam.“
Og þegar Gísli Rúnar var barn
vom Baldur og Konni vinsælustu
skemmtikraftar landsins. „Mér er
sannur heiður að játa að Palli sækir
innblástur til búktalarans Baldurs
heitins Georgs og dúkkunnar hans
Konna. Baldur var meirháttar séní
Gísli Rúnar hlær við er hann rifjar upp gamla tíma. Morgunblaðift/ Ásdís
Margt gerist í einum degi í lífi stráks,
Palli eins og hann birtist á bókinni sem Guðrún
Helgadóttir skrifaði um hann.
,Pallaplatan“ vinsæla.
hún var gerð, ekki síst í ljósi aðdáun-
ar minnar á Baldri og Konna og laga-
val mitt er sjálfhverf, nánast öll lögin
frá 1920-50 sem er mitt eftirlætis
dægurlagatímabil og minn gamli vin-
ur, Diddi fiðla, útsetti plötuna af
stakri snilld. Ef ætti að gera bama-
plötu í dag yrði sjálfsagt veðjað á nú-
tímalegri tónlistarstíl og hefði
strangt til tekið átt að gera það líka
árið 1976, en þráhyggja mín réð ferð-
inni. Húmorinn virðist líka hafa elst
þokkalega en Palli segir fáein orð á
undan hveiju lagi. Platan er saman-
sett af atriðum sem hanga saman á
bláþræði, sem er dagur í lífi stráks
frá morgni til kvölds. Sígilt dæmi og
platan var rifin út á sínum tíma og er
ekki til lengur, enda þrykkt í vínil,"
segir Gísli Rúnar.
- Hefurðu spilað diskirtn fyrir sjö
árason þinn?
„Já, ég leyfði honum að hlusta
þegar var verið að undirbúa endur-
xitgáfuna og hann filar hana í botn.
En hann er reyndar hlutdrægur, því
honum finnst ég svo rosalega
skemmtilegur!"
með einstakan, „spontant" húmor,“
segir Gísli Rúnar og bætir við hann
bíði óþreyjufullur eftir að gömlu 78-
snúninga plöturnar með þessum
æsku-ídólum hans verði endurút-
gefnar.
Gamaldags og sígild
En hvemig ætli 25 ára platan hafa
elst?
„Bærilega. Það var vísvitandi
gamaldags blær yfir henni þegar
HARMONIKUBALL
„Meðan ég enn er frá á fæti fer ég á
ball......“ Dansleikur í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima í kvöld. Félagar úr
Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir
dansi. Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
Allir velkomnir.