Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sala á raforku frá Nesjavöllum hefst 1. mars á svæði Orkuveitu Reykjavíkur Raforkuverð lækkar um 10% STJÓRN veitustofnana hefur ákveðið að lækka verð á raforku til almennings á svæði Orkuveitu Reykjavíkur, þ.e. Reykjavík, Kópa- vogi, Mosfellsbæ, Seltjarnamesi og hluta Garðabæjar, um 10% frá og með 1. mars næstkomandi. Hver kílóvattstund, kWh, lækkar í verði úr 6,34 kr. í 5,71 kr. án virðisauka- skatts og nær lækkunin til rúmlega helmings heimila í landinu. Ástæða þess að unnt er að lækka orkuverð nú er tilkoma raforkuvers- ins á Nesjavöllum. Raforka sem þar hefur verið framleidd hefur ein- göngu verið seld til stóriðju fram til þessa. Rafmagn frá Nesjavöllum kemur í fyrsta sinn á markað á svæði Orkuveitunnar 1. mars nk. Aætlað er að það nægi til að upp- fylla um 10% af orkuþörfinni á svæði Orkuveitunnar. Rafmagnsreikningur á meðal- heimili er á bilinu 40-50 þúsund kr. á ári og leiðir lækkunin því til 4-5 þúsund kr. lægri raforkureiknings á ári. Hagkvæm virkjun á Nesjavöllum í máli Alfreðs Þorsteinssonar, formanns stjómar Orkuveitu Reykjavíkur, á blaðamannafundi þar sem lækkunin var tilkynnt, kom fram að Nesjavellir em ein hag- kvæmasta virkjun landsins. Meðal- verð raforku, sem Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt af Lands- virkjun á heildsöluverði, hefur verið um 3,20 kr. hver kWh en kostnaður við eigin framleiðslu á Nesjavöllum er 1,50 kr. hver kWh. Alfreð segir að gerður hafi verið samrekstrarsamningur við Lands- virkjun, sem tryggir Orkuveitunni varaafl. Aætlanir Orkuveitunnar benda til að afkoma fyrirtækisins á næsta ári verði góð og er það annars vegar rakið til tilkomu Nesjavallavirkjun- ar og hins vegar að samlegðaráhrif sameiningar veitufyrirtækjanna eru byrjuð að skila árangri. Áætlað er að tekjur Orkuveitunnar af raforku- sölu á næsta ári verði 690 milljónir kr. og um einn milljarður árið 2002. Þá er áætlað að tekjurnar nemi 1,7 milljörðum kr. árið 2005. Alfreð sagði að lækkunin, sem tæki gildi 1. mars nk., væri aðeins fyrsta skref í frekari orkuverðs- lækkunum. Stórnotendur, eins og t.d. stærri iðnfyrirtæki, spítalar og stórar verslunarmiðstöðvar, mættu búast við lækkun strax á næsta ári. Jafnframt hefur stjórn veitustofn- ana samþykkt nýja gjaldskrá fyrir heitt vatn til snjóbræðslu þar sem boðið er upp á útihitastigsstýrðan taxta með 50% afslætti á framrásar- vatni. Alfreð sagði að þriðja vélasam- stæða Nesjavallavirkjunar væri komin til landsins og yrði gangsett í júní. Með henni stækkar raforku- verið úr 60 MW í 76MW og síðar í 90 MW. Lagaheimild er fyrir 76 MW en eftir á að breyta lögum sem heimila stækkun upp í 90 MW. Þá er ætlunin að hefja lagningu hitaveitu í Grímsnes- og Grafnings- hreppi á næsta ári en sumarbú- staðabyggðin á því svæði er ein sú stærsta á landinu. Einnig eru fyrir- hugaðar viðamiklar rannsóknabor- anir á Hellisheiði á næsta ári til undirbúnings frekari virkjunum þar. Loks verður fyrsta skóflu- stunga fyrir nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur tekin í jan- úar nk. við Réttarháls í Reykjavík. Listaverk eftir Erró afhjúpað í Kringlunni NÝTT listaverk eftir Erró var afhjúpað í Kringlunni í gær- kvöldi. Verkið er unnið í keramík og samsett úr fjölda keramikflísa. Verkið var sett upp fyrir til- stilli Listasjóðs atvinnulífsins og er ráðgert að það verði í Kringlunni til frambúðar. Morgunblaðið/Kristinn Ráðherra hefur ekki heimild til að fyrirskipa opinbera rannsókn á máli Magnúsar Leopoldssonar Lagt til að kæruheim- ild verði bætt í lögin DÓMSMÁLARÁÐHERRA kynnti ríkisstjóminni í gær áform sín um breytingar á lögum sem gera ráð- herra kleift að endurskoða ákvörðun ríkissaksóknara um opinbera rann- sókn í málum þar sem sök er talin fymd. Beiðni Magnúsar Leopolds- sonar um opinbera rannsókn á til- drögum þess að hann var um tíma grunaður um aðild að hvarfi Geir- finns Einarssonar er kveikjan að væntanlegri lagabreytingu en ráð- herra telur sig að óbreyttum lögum ekki hafa heimild til að hnekkja ákvörðun ríkissaksóknara sem hafn- aði beiðni Magnúsar. „Þetta er flókið og erfitt mál þar sem mörg sjónarmið hljóta að koma til skoðunar. Niðurstaða mín eftir vandlega skoðun laga og lagafram- kvæmdar er sú að í þessu tilviki geri lög ekki ráð fyrir möguleika á að ákvörðun ríkissaksóknara sé endur- skoðuð af dómsmálaráðherra. Þess vegna tel ég þörf á lagabreytingu nú,“ sagði Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra eftir ríkisstjóm- arfundinn í gær. Ekki möguleikar á endurskoðun Hún vekur athygli á því að þegar lögum um meðferð opinberra mála var breytt vorið 1999 og sett í lögin ákvæði sem mælir fyrh' um rýmri heimild ríkissaksóknara til að taka mál upp hafi ekki verið gert ráð fyrir möguleikum til að áfrýja niðurstöðu hans. Ráðherra hefði því ekki heim- ild til að hnekkja ákvörðun ríkissak- sóknara nema ákvörðun hans væri beinlínis fjarstæðukennd eða and- stæð lögum. „Ég tel eðlilegt að slík kæmheim- ild sé íyrir hendi í svo sérstöku máli, enda meginregla í okkar stjómarfari, hvort sem er í dómskerfinu eða hjá stjómsýslunni, að sérhver ákvörðun lúti endurskoðun æðra stjórnvalds eða æðri dómstóls, sem tryggir auð- vitað réttaröryggi fyrir borgarana. Venjulega tekur ríkissaksóknari mál til meðferðar sem æðra stjórnvald; eftir að rannsókn lögreglu er lokið. I málum af þessum toga er hins vegar ákvörðun tekin af ríkissaksóknara á fyrsta stigi og er sú ákvörðun loka- ákvörðun samkvæmt gildandi lögum. Ég mun því leggja fram framvarp í ríkisstjóm á næstu dögum sem felur í sér nýtt ákvæði um að kæraheimild í þessum sérstöku málum verði bætt við lög um meðferð opinberra mála,“ sagði dómsmálaráðherra og lagði um leið áherslu á að mál af þessum toga væra afai' sérstæð og heyrðu til al- gerra undantekninga. Sérstakur ríkissaksóknari Varðandi mál Magnúsar Leopoldssonar sagði Sólveig ekki hægt að horfa fram hjá því að tölu- verð óvissa væri í loftinu vegna þess gamla máls sem nú væri óskað rann- sóknar á og spurningar sem vaknað hefðu kölluðu á frekari skoðun þess. í umræddu lagaframvarpi, sem nú er verið að semja í dómsmálaráðuneyt- inu, er gert ráð fyrir því fyrirkomu- lagi að sérstakur ríkissaksóknari skuli skipaður til að fara með málið ef ákvörðun ríkissaksóknara um að synja um rannsókn verði felld úr gildi. Magnús Leopoldsson sagði í gærkvöldi að sér litist nokkuð vel á áform dómsmálaráðherra, miðað við stöðu málsins og fyrst ráðuneytið treysti sér ekld til að taka á því eftir lögunum frá 1999. Hann segir að málið hafi tekið langan tíma og hann hefði kosið að dómsmálaráðherra hefði tekið á því fyrir löngu. „En þótt biðin hafi verið löng hef ég alltaf ver- ið viss um að þetta myndi hafast að lokum, það hefur aldrei verið neinn efi um það í mínum huga,“ sagði Magnús. í dag Morgunblaðinu í dag fylgir bækling- ur frá verslunar- miðstöðinni Glæsi- bæ, Álfheimum 74. Bæklingnum verð- ur dreift á Suð- vesturlandi. ► í VERINU í dag er fjallað um sjávarútvegssýninguna Marine 2000 sem haldin var á Nýfundnalandi í nóvem- ber sl., góða síldveiði að undanförnu og stöðu þorsks- ins á heimsmarkaði. Stórt skref í tryggingum íþróttafólks/Dl Skemmtilegt vidfangsefni,segir formaður mótanefndar KSÍ/D4 rm ■/? fj Vtf i/j r„ 'í/ri/y^ ► Teiknimyndasögur ► Myndir ► Þrautir ► Brandarar ► Sögur ► Pennavinir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.