Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
EIMSIR VEIMJULEGIR EIMGLAR
ATH. Man Utd ocj Snatch eru sýnd i Regnboganum
Utgáfutónleikar
Tilraunaeldhússins
Sýnd kl. 6, 8 og 10. b. í. 12.
Morgunblaðið/Sverrir
Hilmar Jensson, einbeittur
að vanda.
Tilraunabú
í 12 Tónum
TILRAUNAKENND neðanjarðar-
tónlist hefur verið mikið til ofan-
jarðar í ár, eins þversagnakennt
°g það kann að hljóma, og hefur
það einkanlega verið fyrir tilstilli
hinna hamslausu matreiðslu-
manna Tilraunaeldhússins. Á veg-
u®i eldhússins, Smekkleysu og
plötubúðarinnar 12 Tóna hefur
verið ráðist í útgáfu tveggja
safndiska, MotorIab#l og #2 sem
inniheldur upptökur frá uppá-
komunum Óvæntir bólfélagar sem
glatt hafa forvitna tónlist-
aráhugamenn mánaðarlega í ár.
Utgáfutónleikar vegna þessa fóru
fram í verslun 12 Tóna á föstu-
daginn var, á sjálfum fullveldis-
deginum, og nutu gestir veitinga
að hætti hússins í bland við óm-
stríða hljómlist Hilmars Jensson-
ar og Hispurslausa Sextettsins.
Áhorfendur fylgdust
með af áhuga.
HARRISON FORD
MICHELLE PFEIFFER
★★★ Al Mbl
Yfir 33.000 áhorfendur!
Hvað byr undir niðri
WHAT
LIES
BENEATH
Sýnd kl. 5.45,
8 og 10.20
Dr.G
ber
Sprellóperan Ferfætta
borgin verður sýnd í
Iðnó í kvöld kl. 21.
Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við
höfundana, þá
Guðberg Bergsson og
Dr. Gunna.
FERFÆTTAborgin er hluti af uppá-
komuröðinni Óvæntir bólfélagar, sem
Tilraunaeldhúsið hefur staðið fyrir.
„Fyrst er frá því að segja að það er
voðalega gaman að vera með Dr.
Gunna,“ segir kímileitur Guðbergur.
„Að fá tækifæri til að semja eitthvað
fyrir hann.“
Þeir segjast hafa samið efnið hvor í
sínu lagi og Guðbergur segir að eigin-
legt samstarf hafi ekki verið neitt.
Hann hafi samið söngtexta og Gunni
hafi samið tónlist og svo verði þessu
slengt saman í kvöld.
Guðbergur segir þetta nýja
reynslu fyrir sig. „Ég er að reyna að
yngja mig upp með þessu,“ segir
hann, sjálfhæðinn á svip. „Ég er að
reyna að breiða yfir elhna, yfir það
hvað ég er gamaldags. Þetta er verk
fyrir verðandi ömmur og afa, fyrir
ungt fólk sem á eftir að verða gam-
alt.“
Óvænt eðli bólfélaganna er brokk-
gengt að mati Gunnars, stundum
gangi þetta upp, stundum ekki.
Guðbergur segir hann og Gunna
sannarlega vera óvænta bólfélaga.
„Ég þekki t.d. ekki Dr. Gunna og er
að hitta hann í annað skipti núna.“
í takt við efnið tekur spjalhð sum-
part óvænta stefnu, leiðist út í um-
ræður um íslenska menningu í al-
þjóðasamhengi. Guðbergur er að
velta því fyrir sér hvað sé séríslenskt í
list og hvað sé það ekki, segir að það
að vera alþjóðasinni sé að leita eftir
séreinkennum þjóðar sinnar, leita eft-
MAGNÁÐ
BÍÓ
mi
SÍMI
íM
551
LIU
Morgunblaðið/Sverrir
Ferfætlingurinn Guðbergur Bergsson og Dr. Gunni í menningarvininni Kaffi Mokka.
ir því hvemig þjóðin hljómi. Skáldið
verður því ekki stöðvað þegar hann er
spurður hvort Ferfætta borgin sé ís-
lensktverk.
„Já, hún er það. Það er reynt að
tengja þetta ákveðnum stöðum hér í
Reykjavík. í mínum texta er ekki á
neinn hátt reynt að leita eftir breskri
eða bandarískri aðstoð. Ég forðast
allt slíkt markmiðsbundið."
Gunnar segir að það standi til að
hljóð- og myndrita þennan viðburð,
segist viija eiga þetta á fóstu formi.
„Ég held að hvorki útvarps- né
sjónvarpsstöðvamar hafi áhuga á
þessu,“ segir Guðbergur. „Oft er það
svo, að fólk fær ekki áhuga fyrr en
eftir á, þegar það er orðið of seint.“
Guðbergur grípur tækifærið og slær
á almennari nótur að lokum og leggur
áherslu á varðveislu menningarlegra
fyiirbæra. „Þau em nothæf í framtíð-
inni. Til þess að gera sér grein fyrir
fortíðinni þarf að eiga einhveijar
heimildir tiltækar. Og þá getur mað-
ur farið út fyrir hefðimar og skapað
eitthvað nýtt. Oft heldur fólk að það
sé að búa til eitthvað nýtt en það er
ekki að því af því að það þekkir ekki
fortíðina."
Blýnótt Hans Henny Jalinn
Geir Sigur&sson og Bjöm Þorsteinsson þýddu.
„Blýnótt er síðsprottið
blóm evrópskrar
úrkynjunar, kynlega
angandi jurt sem ætti að
þrífast vel í hugarþeli
spilltra lesenda.“
Sjón
FORLAGIÐ
Óvæntir bólfélagar kveðja