Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 60
'30 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
DAGBÓK
MORGUNBLADIÐ
í dag er miðvikudagur 6. desem-
ber, 341. dagur ársins 2000. Niku-
lásmessa. Orð dagsins: Takið því
hver annan að yður, eins og Kristur
tók yður að sér, Guði til dýrðar.
(Róm. 15,7.)
Skipin
Reykjavikurhöfn:
Emma og Freyja Re
koma í dag. Zulujala fer
ídag. __________
Hafnarljardarhöfn:
Heltrmaa kom í gær,
Ramnes kemur í dag,
Lagarfoss fer í dag.
Fréttir
Bókatfðindi 2000. Núm-
er miðvikudagsins 6.
desember er 94086.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sólvalla-
götu 48. Flóamarkaður
og fataúthlutun. Opið
kl. 14-17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Verslun-
arferð í Smárann 7. des.
lagt af stað frá Granda-
vegi 47, kl. 13. með við-
komu á Aflagranda 40.
Skráning í afgreiðslu.
Árleg aðventuferð sam-
starfsverkefni Olíufé-
lagsins hf. Essó og lög-
reglunnar í Reykjavík,
lagt af stað kl. 13. frá
Aflagranda 8. des. kl.
13. Uppl. í síma 562-
2571.
Árskógar 4. Kl. 9-16.30
klippimyndir, útsaumur
o.fl., kl. 13 smíðastofan
opin og spilað í sal, að-
ventukaffi í dag kl. 15.
Bólstaðarhiið 43. Kl. 9-
12 vefnaður, kl. 9-16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 banki, kl. 13
spiladagur og vefnaður.
Jólahlaðborðið verður 7.
des kl. 18. Salurinn opn-
aður kl. 17.30. Jólahug-
vekja. Jónas Þ.
Dagbjartsson og Jónas
Þórir leika á píanó og
fíðlu. Aron Dalin Jónas-
son 12 ára leikur á fiðlu,
Signý Sæmundsdóttir
syngur. Tvær 11 ára
stúlkur Berglind Jóns-
dóttir og Katrín Þor-
steinsdóttir lesa jóla-
sögur. Skráning í s.
568-5052.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9 og
kl. 13 opin handa-
vinnustofan.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Myndmennt kl. 13. Pílu-
kast kl. 13:30. Púttæf-
ing á morgun í Bæjar-
útgerðinni kl. 10-12.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Asgarði
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Asgarði
Glæsibæ kl. 10. Söngfé-
lag FEB kóræfing kl.
17. Línudanskennsla
fellur niður í kvöld.
Jólavaka FEB verður 9.
des. Söngfélag FEB
syngur jólalög, hug-
vekja Þórir Bergs, 12
ára piltur, leikur á hom,
lesin ljóð, tvísöngur o.íl.
Kaffi og meðlæti.
Skráning á skrifstofu
FEB. Jólaferð á Suður-
nesin 16. des. Upplýst
Bergið í Keflavík skoð-
að. Ekið um Keflavík,
Sandgerði og Garð.
Brottför frá Asgarði,
Glæsibæ kl. 15. Æski-
legt að fólk skrái sig
sem fyrst. Uppl. í síma
588-2111 kl. 10-16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9 vinnustofur opnar,
frá hádegi spilasalur op-
inn, leiðsögn í vinnu-
stofu fellur niður.
Myndlistasýning
Hrefnu Sigurðardóttur
stendur yfír.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 10-17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 16 hringdansar, kl.
17 bobb og tréskurður.
GuIIsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Leik-
fimi kl. 9 og kl. 10, vefn-
aður kl. 9, keramikmál-
un kl. 13, enska kl.
13.30.
Hraunbær 105. Kl. 9-
16.30 bútasaumur, kl. 9-
12 útskurður, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Jólafagnaður verður 8.
des. Jólahlaðborð, tón-
list Pavel Manásek,
heiðursgestir og ræðu-
menn Guðrún Péturs-
dóttir, Ólafur Hanni-
balsson og sr. Hjörtur
Magni Jóhannesson
Fríkirkjuprestur. Lög-
reglukórinn syngur,
fjöldasöngur. Veislu-
stjóri Þórdís Ásgeirs-
dóttir. Uppl. í síma 587-
2888.
Hæðargarður 31. Kl. 9
opin vinnustofa. Jóla-
fagnaður verður föstu-
daginn 8. des. kl. 18.30.
Tilkynna þarf þátttöku.
Hvassaleiti 58-60. Kl. 9
keramik, tau, og silki-
málun og jóga, kl. 11
sund í Grensáslaug, kl.
15 teiknun og málun.
Jólahlaðborð verður
fóstudaginn 8. des kl.
19. Skemmtiatriði.
Uppl. og skráning í s.
588-9335.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
12.30 útskurður, kl. 9-
16.45 handavinnustof-
urnar opnar, kl. 10
sögustund, kl. 13-13.30
bankinn, íd. 14 félags-
vist, kaffi og verðlaun.
Fimmtud. 7. des. kl. 13,
samstarfsverkefni Olíu-
félagsins hf., Esso og
lögreglunnar. Jólagleði
verður 8. des. kl. 14.
Jólahugvekj, lesin jóla-
saga. Inga Backman
syngur. Hátíðakaffi-
hlaðborg. Uppl. og
skráning í s. 568-6960.
Vesturgata 7. Jólafagn-
aður verður 7. desem-
ber. Pavel Smid við
flygilinn, jólahlaðborð.
Tvísöngur Bergþór
Pálsson og Helgi
Björnsson. Kór leikskól-
ans Núps. Strengjasveit
frá Suzuki-skólanum
Upplestur, hugvekja,
fjöldasöngur. Uppl. og
skráning í s. 562-7077.
Aðventuferð. 8. desem-
ber kl. 13 Samstarfs-
verkefni Olíufélagsins
hf. Essó og lögreglunn-
ar. Fimmtud. 7. des. er
þjónustumiðstöðin lok-
uð frá kl. 13 vegn undir-
búings jólafagnaðar
sem hefst kl. 17.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
kl. 9.30 bankinn kl. 10
morgunstund, bókband
og bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 14.10 verslunarferð.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun kl. 10,
á Korpúlfsstöðum. Pútt-
að, kaffi og spjallað.
Háteigskirkja. Opið hús
í dag fyrir 60 ára og
eldri í safnaðarheimili
Háteigskirkju frá kl.
10-16. Á morgun kl. 10
„foreldramorgunn“, kl.
1617.30 „bros og bleiur"
fyrir foreldra um og
undir tvítugt.
Bústaðakirkja starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13-16.30 spilað,
fondrað og bænastund.
Barðstrendingafélagið
spilað í kvöld í Konna-
koti, Hverfisgötu 105, 2
hæð kl. 20.30.
Áhugahépurinn um
sjögrens-sjúkdóminn
Hádegispjall í dag á
Cafe Victor kl. 12-13.
ITC-deildin Irpa. Jóla-
fundurinn í kvöld kl. 20
í Hverafold 5 í sal sjálf-
stæðismanna i Grafar-
vogi.
Kvenfélag Köpavogs.
Jólafundur verður 7.
des. kl. 20.30 að Hamra-
borg 10. Gestur fundar-
ins: Lillja Hallgríms-
dóttir djákni.
Hana-nú Kópavogi
Fundur í Bókmennta-
klúbbi kl. 20 í kvöld á
Lesstofu Bókasafns
Kópavogs. Dagskrá:
Frjáls kynning á bók-
menntum og upplestur.
Slysavarnadeild
kvenna í Reykjavík.
Jólafundurinn verður 7.
des. kl. 20 í Grandhóteli
v/Sigtún. Kaffiveitingar,
upplestur, einsöngur,
happdrætti, jólahug-
vekju flytur sr. Ólöf 01-
afsdóttir. Konur, munið
jólapakkana.
Hvítabandsfélagar.
Jólafundurinn verður í
kvöld í Skála á Hótel
Sögu 2. hæð kl. 19. Sr.
Auður Eir Vilhjálms-
dóttir flytur hugvekju.
Kvenfélags Hallgrímsk-
irkju. Jólafundurinn
verður 7. des. kl. 20.
Börn úr barnakór Hall-
grímskirkju syngja Sig-
ríður Hannesdóttir leik-
kona skemmtir. Sr. Jón
Dalbú flytur hugvekju.
ITC-deildirnar Fífa og
íris. Sameiginlegur
jólafundur verður hald-
inn í Hjallakirkju, Álfa-
heiði, 17, Kópavogi, kl.
20.15.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar jólafundurinn
verður í Safnaðarheim-
ilinu 11. des. kl. 19.15.
Jólamatur, upplestur,
happdrætti og helgi-
stund. Skráning í s. 553-
8500.
Kvenfélagið Hringur-
inn í Hafnarfirði. Jóla-
fundurinn verður 7. des.
kl. 20. í Hraunholti.
Veitingar og skemmti-
atriði, happdrætti.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið.
vELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Morgunblaðið/Ásdís
Enginn til að vega við.
Monthús
Davíðs
ÞAÐ er merkilegt hvað
forsætisráðherra vorum
tekst vel upp með að
koma sér upp húsum á
kostnað þjóðarinnar, sem
vaða fram úr fjárhags-
áætlunum.
Ráðhús borgarinnar fór
einhverja milljarða fram
úr öllu peningalegu vel-
sæmi undir hans stjórn og
þjónar samt ekki fullkom-
lega þörfum borgarfull-
trúa að sagt er. Síðan tek-
ur hann gamla góða
Sjafnarhúsið, sem átti svo
góða sál, í gegn fyrir góð-
an flokksmann, sem féll út
í kosningu og nú kemur á
daginn að kostnaðurinn
sem átti að vera 95 millj-
ónir er rétt eina ferðina
undir hans stjórn, kominn
hundrað milljónir fram úr
áætlun, segi og skrifa, í
195 milljónir og það sem
líka er vont að húsið virð-
ist eftir tiltekt hans hafa
glatað þeirri góðu sál sem
það átti og er orðið að
köldu snobb- og monthúsi,
þar sem nafn Davíðs
Oddssonar er vel þrykkt á
skjöld í anddyri hússins.
Svo kemur forsætisráð-
herra vor fullur vandlæt-
ingar á framúrkeyrslu
sveitarfélaga og segir
bæjarfulltrúa fara illa með
fé almennings.
Það hlýtur að vera létt
verk fyrir ráðherrann að
semja við kennara fyrst
hann getur eytt 195 millj-
ónum til þæginda fyrir
einn góðan flokksmann.
Hrafnhildur
Guðmundsdóttir
Markarflöt 37
Garðabæ.
Hjálpsamur
bflsljóri
27. NÓVEMBER sl. vildi
svo óheppilega til að móð-
ir okkar datt í hálku þegar
hún var á leið frá öldrun-
arþjónustunni í Lönguhlíð
og heim til sín. Þetta átti
sér stað á Flókagötunni.
Ungur hugulsamur bíl-
stjóri varð vitni að þessu,
gaf sig á tal við hana og
keyrði hana heim. Viljum
við þakka þessum unga
manni kærlega fyrir að-
stoðina. Þar sem mikil-
vægt er að fá lýsingu á
óhappinu vegna meiðsla er
hún hlaut í fallinu, viljum
við biðja þennan bjarg-
vætt um að hafa samband
við okkur, því móðir okkar
veit ekki alveg hvernig
þetta átti sér stað. Síma-
númerin eru: 568-3856,
557-8070 eða 557-4166.
Dætur.
Afnám jólagleði
í skólum
GUÐRÚN hafði samband
við Velvakanda og sagði
að það færi fyrir brjóstið á
sér, að það ætti að afnema
jólagleði í skólum í því
formi sem hún hefur ver-
ið. Jólagleðin er ákveðin
menning, þar eru leikrit,
sungið og fleira. Þetta er
ákveðin kennslustund í
öðru formi en þessi hefð-
bundna.
Tapad/fundið
Húslykill í óskilum
HÚSLYKILL fannst við
bensínstöðina við Kringl-
una, föstudaginn 1. des-
ember sl. Upplýsingar i
síma 557-6523.
Dýrahald
Köttur hvarf
að heiman
YNDILSEGUR gulur og
hvítur köttur hvarf frá
Laugarnesveginum. Hann
er með blátt eyrnamerki.
Ef einhver hefur orðið
hans var, vinsamlegast
hringið í síma 581-3051.
Kisa í óskilum
LÍTIL læða, mjög loðin,
silfurgrá og dökk á baki
og ofan á skotti með
dökka díla í hliðunum,
sennilega skógarköttur.
Hún er mjög falleg. Hún
fannst á Hofteigi 28. nóv-
ember sl. Upplýsingar í
sima 557-3461 eða 696-
4843.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 mýrarljós, 8 lýkur, 9
sælu, 10 hrós, 11 mæla
fyrir, 13 líkamshlutann,
15 ullarsnepla, 18 smá-
kornið, 21 eyktamark, 22
sverð, 23 rándýrs, 24
trassafenginn.
LÓÐRÉTT:
2 hrotti, 3 tæplega, 4 ull,
5 var fastur við, 6 sálmur,
7 kvenfugl, 12 erfiði, 14
háttur, 15 hægur gangur,
16 tapi, 17 dáið, 18 krók,
19 nísku, 20 boli.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fjörs, 4 hadds, 7 nældi, 8 lófar, 9 get, 11 regn,
13 engi, 14 andar, 15 fálm, 17 rusl, 20 arg, 22 kopar, 23
arður, 24 reisa, 25 tórði.
Lóðrétt: 1 fánar, 2 öflug, 3 seig, 4 holt, 5 dofin, 6 sorti, 10
eldur, 12 nam, 13 err, 15 fákur, 16 Lappi, 18 urðar, 19
lerki, 20 arða, 21 galt.
Víkverji skrifar...
AKVEÐIN bjórtegund hefur
öðru hverju verið auglýst í
sjónvarpi í haust og sérstaklega vak-
in athygli á því að um léttöl sé að
ræða, þ.e. að tegundin hafi sama
áfengisstyrkleika og pilsner. Er það
erlendur framleiðandi sem þannig
auglýsir.
Það er svo sem allt í lagi en hins
vegar dregur Víkverji mjög í efa að
þessi tegund sé til sem pilsner hér-
lendis. Hér sé miklu fremur verið að
reyna að vekja athygli á nafninu og
framleiðslunni sem slíkri þannig að
menn muni eftir henni næst þegar
þeir kaupa bjór. Þarna er því ekki
verið að brjóta lög um bann við
áfengisauglýsingum með því að
auglýsa léttöl eða bjór eða hvað?
Enda þykir sjálfsagt að reyna að
fara kringum hlutina eins og hægt er
og kannski verður aldrei hægt að
koma í veg fyrir auglýsingar um
áfengi þrátt fyrir bann. Víkverji er
heldur ekki beint hlynntur boðum og
bönnum og í þessum málum hlýtur
uppeldi og mótun þeirra fullorðnu að
skipta mestu máli um velfarnað ung-
menna á sviði áfengismála en ekki
hvort þessar ákveðnu auglýsingar
eru bannaðar eða ekki. Ætli fyrir-
mynd okkar og fordæmi sé ekki dá-
lítið á reiki þegar áfengismál eru
annars vegar?
XXX
SVO virðist sem líkamsárásir séu
að færast í aukana eða í það
minnsta hafa birst fleiri fréttir af
slíkum atburðum síðustu daga og
vikur. Það sem virðist nýtt í þessum
efnum er líka að menn veitist að lög-
reglunni þegar hún kemur á vett-
vang til að skakka leikinn eða kanna
hvað sé á seyði. Ekki kann Víkverji
skýringu á þessu en menn virðast
svífast einskis ef þeir ætla á annað
borð að berja náungann. Vitanlega
eru svona barsmíðai- alltaf jafn
slæmar hvert sem fórnarlambið er
og það getur varla borið vott um
annað en vægast sagt undarlegan
hugsunarhátt þegar menn þurfa að
níðast þannig á náunganum að hann
liggur limlestur eftir. Stundum svo
illa að hann ber þess ekki bætur.
Þetta eru líka allt annars konar
barsmíðar en smávegis tusk eða
„venjuleg slagsmál" (ef hægt er að
taka svo til orða) sem stundum urðu
á sveitaböllum í eina tíð og mönnum
varð ekki ýkja meint af slíku að því
er Víkverja hefur skilist af fregnum
sér fróðari manna. Hér er á ferðinni
ofbeldi þar sem verið er að berja til
að ræna, berja einhvern til hlýðni
eða bara lemja einhvern sem óvart
verður á vegi ofstopamanna. Hvað
gengur mönnum eiginlega til?
xxx
TALSVERÐ gróska virðist vera í
íslenskri flugstarfsemi um
þessar mundir jafnvel þótt heldur
illa ári hjá Flugleiðum. A Víkverji þá
einkum við þá sem stunda leiguflug,
fraktflug og flugrekstur fyrir aðra
aðila úti í hinum stóra heimi, því ís-
lenskur markaður tekur ekki enda-
laust við eins og menn vita. Þetta eru
áhugaverðir vaxtarbroddar í at-
vinnulífinu og kannski eru vöruflutn-
ingar sífellt meira að færast úr skip-
um í flugvélar. Kröfur eru sífellt
meiri um hraða á afgreiðslu send-
inga og matvæli verða að vera sem
ferskust þegar þau koma á markað.
Allt þetta þýðir aukna möguleika í
fluginu sem íslenskir athafnamenn
virðast kunna að nýta sér.