Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 59
Andleg niðurlæging
Frá Önundi Ásgeirssyni:
SJÁLFSAGT hafa allir tekið eftir
því að þetta þjóðfélag líður nú sár-
lega af fátækt andans.
Menn mega gjarnan velta því
fyrir sér hvað valdi. Á „Degi ís-
lenzki-ar tungu“ veitti menntamál-
aráðherra „meistara Megasi" ís-
lenzkuverðlaun Jónasar Hall-
grímssonar, en Megas hafði áður
unnið sér það til ágætis að flytja
mesta níð sem heyrst hefir um Jón-
as Hallgrímsson á rauðri 1. desem-
berhátíð stúdenta fyrir mörgum ár-
um síðan. Verðlaun sem bera nafn
Jónasar eru þannig á réttum stað.
Þökk sé spilltu fjölmiðlafólkinu.
Ráðherrann ætti að biðja Morgun-
blaðið að ílytja landslýð afsökunar-
beiðni vegna hlutdeildar hans í
fjölmiðlaáróðrinum og múgsefjun-
inni. Nú baðar þessi verðlaunahafi
Jónasar sig í sviðsljósi fjölmiðlanna.
Fjölmiðlafólkið getur varla niður-
lægt heilbrigða skynsemi almenn-
ings í landinu frekar en þetta. Er
ekki kominn tími til að skipta um
yfirstjórn hjá fjölmiðlunum? Hver
er talinn bera ábyrgð á öllu ruglinu
þar? Öllum er frjálst að svara.
Orsök niðurlægingarinnar er án
efa hin gjörspilltu stjórnmál lands-
ins. Þar gildir sérhagsmunastefnan
og spillingin til fulls. Þessa dagana
lýsir spillingin sér bezt í „baráttu"
Seðlabankans við að viðhalda föstu
gengi krónunnar með stöðugt
hækkandi vaxtaokri sem eðlilega
lendir strax á almenningi í landinu.
Upplýst er að fyrir ári síðan keypti
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er-
lend verðbréf fyrir 23 milljarða
króna, þá væntanlega á opinberu
gengi 72 IKR/$. Til að koma í veg
fyrir gegnisfall selur Seðlabankinn
nú dollara sem hann kaupir á gegni
um 90 IKR/$. Hvaðan fær hann
þessa dollara? Augljóst er að LV
hefir hagnast um 25% á þessari
fjárfestingu í erlendum verðbréfum
eða um 5,75 skattfrjálsa milljarða á
árinu. Þetta er þó aðeins lítill hluti
af dæminu því að lífeyrissjóðir
landsmanna nema nú um 600 millj-
örðum Samt er okkur sagt að gengi
krónunnar sé ekki enn fallið.
Hversu lengi geta „sérfræðingar"
Seðlabankans staðið á þessu?
Forsætisráðherra landsins held-
ur á töfrasprota. Með honum slær
hann ónothæfa stjórnmálamenn til
æðstu embætta og gerir þá „sér-
fræðinga" í Seðlabankanum, þ.e.a.s.
þegar ekki er pláss fyrir þá í sendi-
herrastörfum í Útópíu. Síðan heyr-
ist aldrei frá þeim meir, enda sagt
að þeir hittist helzt á golfvöllum
víða um heiminn, því að slíkt sé
heilsusamlegt. Með þessum hætti
má einnig losna við keppinauta og/
eða hugsanlega andstæðinga. Þann-
ig fengum við óvænt tvo vel not-
hæfa sendiherra í Ameríku nýlega,
sem er algjör nýjung í því um-
hverfi.
Finnist einhverjum þetta ófull-
komin mynd af starfsemi Seðla-
bankans er honum ráðlagt að leita
sér andlegrar uppbyggingar í Þjóð-
leikhúsinu. Þar sýna þeir nú kassa-
stykkið „Ástkonur Picassós.“ Þeir
hafa þá einu afsökun að þeir fundu
ekkert betra.
ÖNUNDUR ÁSGEIRSSON,
fv. forstjóri.
LaqerútsaCa á
CeUÍfÖMQHtH
OpnutH í dag á
BœiarArauHÍ Ib, Hafnarfirði
Mi^ið úrvaC af tus^udýrutu,.
ArÍHQÚHttt, spiCadósMH
o.fC. frá Atncrí^u.
fÖHdurtÖsíiM, sujóþotur
oq margt fCeira.
Öpið tO'JS virfya daqa, Canqardaga 10-16.
Gefið ástinni
hlýja gjof
Ekta pelsar
Sigurstjama
verð frá kr. 50.000 Fákafeni (Bláu húsin),
s. 588 4545
Hársnyrtistofan
Hár Class Skeifunni 7
VILLI ÞÓR
HARSNYRTIR
Tímapantanir í síma 553 8222
Lifandi jólatré
meðframtíð!
Fáðu þérlifandi jólatré í stofuna
og á útidyratröppurnar; gróðursettu þau
að vori í garðinum - og njóttu þeirra alla tíð.
Jólatré í pottum - takmarkað magn!
Opið 8-16, lokað um helgar
GRÓÐRARSTÖÐIN
‘ií'TVIÖrK
STJÖRNUGRÓF18, SÍMI581 4288, FAX 581 2228
mnv.niorlc.is mork@mork.is
Tölvunám
(^Forritun og kerfisfræði
C.
Fornám - 144 kennslustundir
er fjárfesting
til framtíðar!
Innritun er hafin fyrir vorönn!
Tölvunám
er lykillinn
að framtiðinni!
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði
Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981
Markmiðið með þessu námskeiði er að undirbúa nemendur fyrir forritunar- og
kerfisfræöinámið.
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa náð tvitugsaldri og hafa lokið að minnsta kosti
þremur árum i framhaldsskóla. Þeir þurfa einnig að hafa haldgóða þekkingu á Windows
umhverfinu og á notkun Intemetsins. Góð enskukunnátta er einnig nauðsynleg þar sem flestar
kennslubækur i aðalnáminu eru á ensku.
Til að komast áfram i forritun og kerfisfræði þurfa nemendur að ná lágmarkseinkunn I þeim
prófum sem lögð eru fyrir. Um erað ræða kvöld- eða morgunnámskeið.
Aðalnám -tværannir - 594 kennsiustundir
Markmiðið með þessu námskeiöi er að svara vaxandi þörf atvinnulffsins fyrir starfsfólk til aö
vinna viö forritun og kerfisfræði. Val kennslugreina miðast við að mæta þörfinni þar sem hún er
mest þ.e. varðandi höpvinnulausnir og hlutbundna greiningu, hönnun og forritun (Object Oriented
Development). Þetta nám hefur þegar skilað góöum árangri og er reynslan sú að þeir nemendur
sem Ijúka náminu og ná tilskildum prófum eru eftirsóttir á vinnumarkaðnum.
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa haldgóða undirstöðumenntun, stúdentspróf eða
hliðstæða menntun og/eða starfsreynslu eða hafa lokið fomámi. Þeir þurfa einnig að hafa
haldgóða þekkingu á Windows umhverfinu og notkun Intemetsins.
Framhaldsnám -144 kennsiustundir
Nám þetta er ætlað þeim sem hafa lokiö aðalnámi I forritun og kerfisfræði og vilja
auka við kunnáttu slna til að takast á við krefjandi verkefni úti á vinnumarkaöinum.
Námið byggirá fomtun í Delphi og C++.
Til að komast áfram í framhaldsnámið þurfa nemendur að hafa
náð tilskiljnni lágmarkseinkunn úr forritunar- og
kerfisfræðnáminu.
^Kerfis- & netumsjón (meðUNux)
Tvær annir - 540 kennslustundlr
Markmiðið með þessu námskeiði er að mæta vaxandi þörf atvinnullfsins fyrir starfsfólk
með sérþekkingu á rekstri og umsjón netkerfa. Kennt verður á RedHat Linux og verður
fjöldi þátttakenda á námskeiðinu takmarkaðurvið 12.
Farið er itariega yfir Linux umhverfið og allar helstu grunnskipanir þess. Nemendur fá
góða þjálfun í almennri notenda- og skráaumsjón, þar sem sérstaklega verða tekin fyrir
réttinda- og öryggismál. Nemendur læra að þekkja helstu stýriskrár kerfisins og hvemig
þær eru notaðar. Farió er yfir skeljar I Linux, skeljarskriftur, táknsegðir, ferilsstjómun og
pipur.
Einnig er fariö er yfir helstu hugtök og heiti i netkerfum. Kynntar em helstu tegundir
netkerfa, s.s. staöamet (LAN), viðnet (WAN) og Intemet. Einnig er kynntur helsti
vélbúnaður netkerfa. Teknirem fyrir helstu samskiptastaðlar, þará meðal TCP/IP.
Nemendur fá kennslu og æfingu í uppsetningu og umsjón helstu netþjóna (stuðst við
Linux umhverfiö). Farið er yfir allar helstu aögeröir s.s, skráaflutning (FTP), ijarvinnslu
(Telnet), nafnaþjónustu (Bind) og vefþjónustu (Apache).
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa hatdgóða undirstöðumenntun, stúdentspróf
eða hliðstæða menntun og/eða starfsreynslu. Þeir þurfa einnig að hafa haldgóða
þekkingu á Windows umhverfinu og notkun Intemetsins. Góð enskukunnátta er
nauðsynleg þarsem kennslubækurem á ensku.
Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum og þarf að gera ráð fyrir nokkm
heimanámi utan skólatlma.
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hlíðasmára 9 - 200 Kópavogi Austurvegi 38 - 800 Selfossi
Sími: 544 4500 - Fax: 544 4501 Sími: 482 3937 og 482 1006
Netfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is