Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
MORGUNBLADIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Danskir verktakar eru langl komnir með nýja við-
byggingu við Austurbæjarskólann.
Nýbygging
í notkun eft-
ir jólafrí
Austurbær
NÝ VIÐBYGGING við
Austurbæjarskóla verður
tekin í notkun strax að
loknu jólaM. „Ég horfí til
byrjunar aldarinnar með
mikilli tilhlökkun," sagði
Guðmundur Sighvatsson,
skólastjóri Austurbæjar-
skóla, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Þetta
verður ofborðslegur léttur
og allt annað líf fyrir litlu
börnin.“
Nýbyggingin er reist of-
an á hús gömlu spenni-
stöðvarinnar í suðurhluta
skólalóðarinnar en hún er
nú nýtt sem geymsla.
Danskir verktakar
hrepptu verkið í útboði og
hafa á nokkrum vikum
nær lokið við að koma ein-
ingahúsi sem er á fjórða
hundrað fermetra, auk
tengigangs yfír í gamla
skólahúsið.
Guðmundur skólastjóri
sagði að framkvæmdir
gengju allai- samkvæmt
áætlun og kennsla gæti
hafíst í nýju byggingunni,
strax eftir jólaleyfí. „Við
fáum þama fjórar ágætis
stofur og þar verða sex ára
bömin og einn sjö ára
bekkur,“ sagði hann.
Yngstu árgangamir
hafa til þessa verið með
aðstöðu í gamla skólahús-
inu „sem er ekki góð að-
staða fyrir 6 ára böm,“ að
mati skólastjórans.
Með tilkomu nýbygging-
arinnar losnar hins vegar
rými sem upphaflega hef-
ur verið hugsað fyrir fé-
lagsstarf og tóm-
stundaaðstöðu yngstu
barnanna og barna á
miðstigi grunnskólans, svo
og svæði sem hægt verður
að nýta fyrir lengda við-
veru skólabarnanna en
hefur þurft að nýta til
kennslu vegna þrengsla í
þessum elsta grunnskóla
höfuðborgarinnar.
Þegar hefur verið geng-
ið frá samningum um kaup
á húsgögnum og búnaði
fyrir viðbygginguna og
verður unnið að því að
koma henni í endanlegt
horf í jólafríinu svo bömin
geti mætt í nýju stofurnar
að því loknu.
Borgarstjórn samþykkir tillögu sjálfstæðismanna um hafnarsvæðið
Samkeppni um nýt-
ingu slippasvæðisins
Reykjavíkurhöfn
BORGARSTJÓRN hefur
samþykkt að efna til hug-
myndasamkeppni um skipu-
lag slippasvæðisins, sem af-
markast af Ægisgarði,
Grandagarði og Geirsgötu.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins sem sæti á í hafnar-
stjórn, sagði að á næstu
mánuðum yrði efnt til opinn-
ar samkeppni þar sem arki-
tektum gæfist kostur á að
setja fram hugmyndir um
nýtingu svæðisins. Sam-
keppnin verður ekki skilyrt
að neinu leyti.
„Þar sem maður sér fyrir
sér á þessu svæði er upp-
bygging sem tengist ferða-
þjónustu, veitingastaðir,
aðstaða fyrir listamenn og
þess vegna íbúðir og verslan-
ir,“ sagði Guðlaugur Þór.
„Þama er náttúrlega líka
hægt að hafa hafnsækna
starfsemi, þarna væri hægt
að setja viðlegukant og að-
stöðu fyrir smábáta eða hvað
sem er, þetta er allt mjög op-
ið og aðalmálið er að menn
komi fram með sínar hug-
myndir.“
Stáltak flytur eftir tvö ár
Guðlaugur Þór sagði að
sjálfstæðismenn hefðu fyrst
lagt fram tillögu um hug-
myndasamkeppni um skipu-
lag svæðisins í hafnarstjórn í
júní, en að afgreiðslu hennar
hefði verið frestað. Hún hefði
síðan verið tekin upp að nýju
í lok október og samþykkt.
Hann sagði að borgarstjóm
hefði loks samþykkt tillög-
una fyrir skömmu.
Reykjavíkurhöfn hefur
keypt lóðir og húseignir Stál-
taks hf. við Ægisgarð og
Mýrargötu fyrir 323 milljón-
ir króna, ásamt hlut Stáltaks
í Dráttarbrautum Reykjavík-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stáltak mun flylja starfsemi sfna af slippasvæðinu eftir tvö ár og eftir það má búast við að
svæðið taki miklum breytingum.
Teikning/Guðjón Bjamason
Samkvæmt hugmynd Guðjóns Bjarnasonar arkitekts er
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir listamenn á slippasvæðinu,
veitingastöðum og ibúðum og þá liggur síki að húsnæði
Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
MfRAROm 26&HVJMRBAKK1
FKAMIÉWtSfN
ur hf. fyrir um 50 milljónir að
nafnvirði. Fyrir átti höfnin
tæplega helming hlutafjár í
því félagi. Stáltak mun flytja
starfsemi sína af svæðinu
eftir tvö ár en fram að þeim
tíma leigja húsnæðið og að-
stöðuna af hafnaryfirvöldum.
Guðlaugur Þór sagðist
hafa haft samband við Guð-
jón Bjarnason arkitekt og
beðið hann að útfæra laus-
lega hvernig svæðið gæti lit-
ið út, en með landfyllingu
gæti það orðið um 30 til 40
þúsund fermetrar að flatar-
máli. Samkvæmt hugmynd
Guðjóns er gert ráð fyrir við-
legukanti á svæðinu og að-
stöðu fyrir listamenn í hús-
um við höfnina, veitinga-
stöðum og jafnvel
íbúðarblokkum á sunnan-
verðu svæðinu. Þá var hann
einnig með hugmynd um
sjávarútvegssafn sem yrði að
miklu leyti neðanjarðar og
síki sem lægi að húsnæði
Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
Guðlaugur Þór sagði að
ekki væri búið að taka neina
ákvörðun um framtíð núver-
andi bygginga á svæðinu.
Hann sagði að væntanlega
yrðu einhver hús rifin en
önnur gerð upp.
Þjónusta við erlenda
sjómenn tengd
Alþjóðahúsi
Reykjavík
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
hefur samþykkt viljayfírlýs-
ingu um að borgin gangi til
viðræðna við Stjórn sjó-
mannaþjónustunnar um sam-
starf um rekstur þjónustu við
erlenda sjómenn í höfnum á
höfuðborgarsvæðinu, sem
rekin verði í tengslum við
væntanlegt Alþjóðahús í
borginni. Um 20 þúsund er-
lendir sjómenn koma til
landsins á hverju ári og hafa
um 80% þeirra lýst áhuga á að
nýta sér þjónustu af þessu
tagi hérlendis. Stefnt er að því
að starsemin hefjist á næsta
ári.
Séra Jón Dalbú Hrjóbjarts-
son er formaður Velferðar-
sjóðs sjómanna, sem á í sam-
starfí við ITF Seafarers
Trust, sem rekur sjómannaat-
hvörf víða í nágrannalöndun-
um. Jón Dalbú átti fundi í
London í gær með hinum er-
lendu samstarfsmönnum og
voru þar lagðar fram áætlanir
um reksturinn og ósk um
styrk til starfseminnar.
20 þúsund erlendir
sjómenn á ári
Jón Dalbú sagði í samtali
við Morgunblaðið að málið
væri allt á undirbúningsstigi
en verið væri að ræða við full-
trúa borgarinnar um sam-
starfíð í tengslum við Alþjóða-
hvaða húsi starfsemin verður
rekin.
„Við vitum að, samkvæmt
könnun sem Gallup gerði síð-
asta sumar, koma til landsins
um 20 þúsund erlendir sjó-
menn á ári og um 80% þeirra
myndu vilja þiggja svona
þjónustu í landi. Við sjáum að
þetta er eitthvað sem við þurf-
um að takast á við. Svona
þjónusta er veitt í öllum lönd-
unum í kringum okkur en hef-
ur vantað mjög mikið hjá okk-
ur“ sagði Jón Dalbú.
Sjómannafélag Reykjavík-
ur, sjómannadagsráð, Vél-
stjórafélag íslands, Far-
manna- og fiskimannasam-
band íslands og Þjóðkirkjan
vinna saman að málinu. Jón
Dalbú sagði að víða erlendis
væri verið að sameina rekstur
sjómannakristniboðsmið-
stöðva og annarra velferðar-
„Kirkjan kemur inn í þetta af
miklum áhuga og skilningi,“
sagði hann.
Gerð hafa verið drög að
þjónustu- og samstarfssamn-
ingi milli Reykjavíkurborgar
og Stjórnar sjómannaþjónust-
unnar. Jón Dalbú sagði að
stefnt væri að því að veita á
einum stað félagslega, lög-
fræðilega og andlega þjón-
ustu fyrir erlenda sjómenn,
„þannig að það sé tekið á þeim
vanda sem menn standa
frammi fyrir á öllum sviðum
mannlífsins. Við vitum að sjó-
menn, sem eru langt frá sín-
um heimahögum, lenda oft í
erfiðleikum og sorg sem þarf
að taka á og hjálpa mönnum
að vinna úr,“ sagði hann.
Nokkur dæmi eru þess frá
síðustu misserum að erlendir
sjómenn hafí verið hér
strandaglópar vikum og mán-
■jiðum saman vegna rekstrar-
erfiðleika útgerða og Jón Dal-
bú sagði að sjómannaþjón-
ustan gæti komið til móts við
menn í slíkri stöðu með því að
sjá til þess að þeir geti á ein-
um stað gengið að tiltækri
þjónustu. Auk upplýsinga-
miðlunar og ráðgjafar mun
sjómannaþjónustan bjóða að-
gang að tölvutengingum og
erlendum dagblöðum, svo og
ýmissi afþreyingu, eins og
tíðkast víðast hvar í höfnum
erlendis, að sögn Jóns Dalbú.
Einnig verður stefnt að því að
bjóða erlendum áhöfnum í
ferðir að virða fyrir sér borg-
ina og landið.
Samnýting við
Alþjóðahús
Aðkoma Reykjavíkurborg-
ar að þessu máli tengist
áformum um rekstur Alþjóða-
húss þar sem verði miðstöð
fjölmenningarlegs
á höfuðborgarsvæðinu sem
leggi áherslu á að bjóða ís-
lendingum af erlendum upp-
runa margs konar þjónustu.
Snjólaug Stefánsdóttir, hjá
þróunar- og fjölskyldusviði
borgarinnar, sagði að hægt
yrði að samnýta kraftana við
rekstur Alþjóðahúss og sjó-
mannaþjónustu með ýmsum
hætti, svo sem hvað varðar
upplýsingagjöf og túlkaþjón-
ustu.
Markmið Alþjóðahúss
verður að veita útlendingum
betri þjónustu. Snjólaug sagði
að samstarfið við sjómanna-
þjónustuna hefði ýmsa kosti í
för með sér frá sjónarhóli
borgarinnar og skynsamlegt
væri að veita þjónustu af
þessu tagi í einu lagi frekar en
tvennu.
Sú könnun, þar sem fram
kom að um 80% erlendra sjó-
sér þjón-
ustu af þessu tagi í landi, hafí
einnig leitt í ljós að þeir vildu
gjarnan geta komist frá borði,
hitt presta, skoðað markverða
staði og fleira í borginni og
nágrenni hennar þá 2-3 daga
sem þeir hafa hér viðdvöl að
meðaltali.
Reykjavíkuborg hefur leit-
að eftir samstarfí við sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu
um rekstur Alþjóðahúss og
einnig er vænst þátttöku rík-
isins og e.t.v. félagasamtaka á
borð við Rauða kross íslands.
Alþjóðahús mun taka við
verkefnum þeirrar Nýbúa-
miðstöðvar sem rekin hefur
verið í borginni um skeið og
auka við þjónustuna að ýmsu
leyti. Snjólaug sagði stefnt að
því að hefja starfrækslu þess í
marsmánuði á næsta ári. Auk
túlkaþjónustu verða á vegum
hússins gefnir út ýmiss konar
upplýsingabæklingar á fjöl-
mörgum tungumálum og
komið upp samræmdum mið-
lægum grunni með upplýsing-
um um ýmsa þjónustu. Þá
verður fólki boðin aðstoð við
að fá atvinnu við hæfí en það
orð hefur lengi legið á að vel
menntað fólk af erlendum
uppruna eigi erfítt með að fá
störf við hæfí hérlendis. Jafn-
framt mun Alþjóðahús vinna
að því að fyrirbyggja fordóma
og átök milli fólks af mismun-
andi þjóðerni, m.a. með því að
beita sér fyrir rannsóknum og
upplýsingaöflun af ýmsu tagi.
húaiðn Fikki liggnr fynr i stofnana fyrir sjómenn.