Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bann ESB við kjöt- og beinamjöli
kostar 100 milljarða
ESB-þjóðir telja
ýmist of langt eða
of skammt gengið
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
VIÐBRÖGÐ hafa verið misjöfn við
ákvörðun Evrópusambandsins um
að banna allt dýramjöl nema físki-
mjöl í skepnufóður. Danskir bænd-
ur og mjölframleiðendur hafa
brugðist ókvæða við, Bretar og
Frakkar fagna banninu en Þjóð-
verjar segja ekki nógu langt geng-
ið. Kostnaður við bannið við kjöt-
og beinamjöl er talinn nema um 1,5
milljarði evra, tæpum 100 milljörð-
um ísl. kr. en landbúnaðarráðherr-
ar og framkvæmdastjórn ESB
töldu þetta einu leiðina til þess að
slá á ótta neytenda við kúariðusýkt
kjöt og endurvinna traust þeirra.
Sala á nautakjöti hefur hrapað í
mörgum löndum, t.d. Frakklandi,
vegna kúariðutilfella sem komið
hafa upp.
Bannið tekur gildi um áramót og
stendur í sex mánuði til að byrja
með. Fullyrt er að Þýskaland og
Finnland hafi greitt atkvæði gegn
banninu, Þjóðverjar vegna þess að
þeir vildu að gengið yrði lengra og
dýrafita bönnuð auk þess sem þeir
telja tímabundið bann ekki nóg,
Finnar vegna hins gríðarlega
kostnaðar sem það hefur í för með
sér en engin tilfelli um kúariðu
hafa komið upp þar í landi. Bretar
fagna banninu sem þeir segja jafna
samningsstöðu þeirra en breskur
landbúnaður hefur orðið illa úti
vegna kúariðunnar.
Alls eru framleidd um 3-4 millj-
ón tonn af kjöt- og beinamjöli í
ESB árlega. Kostnaðurinn fellur á
aðildarlöndin en embættismenn í
Brussel lýstu því yfir að mjölfram-
leiðendur gætu selt mjölið til sem-
entsverksmiðja er geti nýtt það
sem eldsneyti. Framleiðendur í
Danmörku hafa brugðist ókvæða
við, sagt bannið hafa mikinn kostn-
að í för með sér og kunna að skaða
umhverfið ef brenna þurfi miklu
magni af mjöli.
Landbúnaðarráðherrarnir tóku
hins vegar ekki ákvörðun um ann-
an og umdeildari þátt tillögunnar
sem rædd var í gær, kröfu um að
tekin verði sýni úr öllum nautgrip-
um eldri en 30 mánaða sem ætlaðir
eru til manneldis. Var tillögunni
vísað til tækninefndar ESB sem
fundar í næstu viku.
Tillagan stendur í mörgum aðild-
arlandanna, þar sem hún er talin
hafa gífurlegan kostnað í för með
sér og vera nær óframkvæmanleg.
Áætlaður kostnaður við hana nem-
ur um 12 milljörðum evra, um 80
milljörðum ísl. kr., og er lagt til að
ESB beri 70% kostnaðarins, ein-
stök aðildarlönd 30%. Ritt Bjerre-
gaard, matvælaráðherra Danmerk-
ur, lýsti því yfir á mánudag að hún
væri mótfallin kröfunni þar sem
hún væri allt að því ófram-
kvæmanleg og skapaði falskt ör-
yggi hjá neytendum. í Danmörku
hefur því verið haldið fram að ekki
sé hægt að prófa alla nautgripi
eldri en 2% árs við núverandi að-
stæður, auk þess sem óljóst sé
hvað gera eigi við þá nautgripi sem
séu tilbúnir til slátrunar en ekki
hægt að prófa.
„Ovenjuleg staða réttlætir sér-
stök og jafnvel óvenjuleg svör,“
sagði Franz Fischler, sem fer með
landbúnaðarmál í framkvæmda-
stjórninni. Þá gerði franski land-
búnaðarráðherrann lýðum Ijóst að
Frakkar vildu bætur til handa
frönskum bændum sem bættu
þeim það tjón sem þeir hefðu orðið
fyrir vegna kúariðunnar frá því að
tilfelli hennar greindust í Frakk-
landi fyrir tveimur mánuðum.
Alls hafa 89 manns í Evrópu
sýkst af Creutzfeldt-Jakob sjúk-
dómnum sem kúariða veldur í
mönnum. Hafa áttatíu manns látist
úr honum í Bretlandi og tveir í
Frakklandi.
Skotið á belgíska
flugvél í Burundi
Bujumbura. AP, AFP.
SKOTIÐ var á flugvél belgíska
flugfélagsins Sabena er hún
hafði búið sig til lendingar á
flugvellinum í Bujumbura, höf-
uðborg Burundi, á mánudags-
kvöld. Tveir særðust lítillega í
árásinni, sem yfirvöld í Burundi
telja að hafi verið verk uppreisn-
armanna. Talsmaður ríkisstjórn-
arinnar, Luc Rukingama, sagði
blaðamönnum í gær að augljóst
væri á því hvernig staðið hefði
verið að árásinni að hún væri
gerð til að vekja athygli á þeim
sem að henni stóðu.
Talsmaður Sabena, Wilfried
Remans, sagði í gær að vélin
hefði verið í 100 metra hæð þeg-
ar sjö vélbyssuskot hæfðu hana.
Tólf manns voru í áhöfn vélar-
innar og 158 farþegar. Þeir sem
særðust voru farþegi frá Túnis
og einn úr áhöfninni.
Vel gekk að lenda vélinni, sem
er af gerðinni Airbus 330-200, en
henni var ekki flogið áfram til
Nairobi í Kenýa heldur haldið
eftir til viðgerða. Sabena aflýsti
einnig öllu áætlunarflugi til Bur-
undi um óákveðinn tíma.
Yfirvöld lokuðu umsvifalaust
flugvellinum eftir að flugvélin
var lent.
Þau meinuðu ennfremur
blaðamönnum um aðgang að
flugvellinum og gerðu myndavél-
ar ljósmyndara upptækar.
Uppreisnarmenn hafa bæki-
stöðvar í grennd flugvallar
Flugvöllurinn í Bujumburi er
notaður í sameiningu fyrir her
og almenna borgara. Hann er
einungis 10 km frá landamærum
Kongó þar sem Hutu uppreisn-
armenn hafa komið sér fyrir.
Þeir berjast gegn ríkisstjóm
Pierre Buyoya forseta Burundi.
Að sögn starfsmanna flugvallar-
ins hafa uppreisnarmenn flutt
sig nær flugvellinum undanfarið.
Á gamlárskvöld 1997 réðust upp-
reisnarmenn á flugvöllinn og lét-
ust yfir 200 manns í þeirri árás.
Borgarastríð hefur staðið yfir
í Burundi í um sjö ár og hefur
það kostað um 200.000 manns líf-
ið, flest óbreytta borgara. Upp-
reisnarmennirnir hafa neitað að
taka þátt í friðarviðræðum sem
staðið hafa yfir með milligöngu
Nelson Mandela, fyrrverandi
forseta S-Afríku, og setja sem
skilyrði að herinn í Burundi, sem
er undir stjórn Tutsimanna, fall-
ist á vopnahlé og leysi úr haldi
það sem uppreisnarmenn kalla
pólitíska fanga.
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
.
MEÐAL VIÐBURÐA:
MIÐVIKUDAGUR 6. DES. KL. 17.00
f PORTI HAFIMARHÚSSINS
Tónleikar hins magnaða finnska öskurkórs: Huutajat, sem sungið
hefur vfða um heim og nytur mikillar hylli. Aðeins þessir einu
tónleikar. Ókeypis inn á meðan húsrúm leyfir.
FIMMTUDAGUR 7. DES. KL. 19.30 í HASKÓLABÍÓI
Frumflutningur á verki Hjálmars H. Ragnarssonar. Einleikari Evelyn
Glennie. Verkið er eitt af þeim fjölmörgu nýju Islensku tónverkum
sem sérstaklega hafa verið pöntuð í tilefni menningarborgarársins.
FÖSTUDAGUR 8. DES. A VIIMNUSTÖÐUM OG VÍÐAR
Á þriðja tug skálda og rithöfunda verða með upplestur um alla
borg. Meðal viðkomustaða eru: Melaskóli, Barnaspítali Hringsins,
Kaupþing, Ráðhús Reykjavíkur, Stjórnarráðið, Morgunsjónvarp
Stöðvar 2, Blindrafélagið, Litla Hraun, Gluggasmiðjan, Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund, Kaffivagninn, álverið f Straumsvfk, Olfs,
Eimskip o.fl.
FÖSTUDAGUR 8.-17. DES. í HÁSKÓLABÍÓI
Kvikmyndahátfð f Háskólabfói f tilefni af 25 ára starfsafmæli Friðriks
Þórs Friðrikssonar. Frægustu myndir Friðriks Þórs og aðrar sem fáir
hafa séð. Hátfðin hefst kl. 20.30 með syningu á nýju eintaki af
Skyttunum.
LAUGARDAGUR 9. DES. KL. 17.00 A HVERFISGÖTU
Svffandi sjónarspil og skrautsyning yfir og á Hverfisgötu.
Ævintyraverur og listamenn frá eftirsóttasta útileikhúsi ítala, STUDIO
FESTI, syna f samvinnu við Þjóðleikhúsið. Syningin fjallar um
hamingjuna og byggir á frumkröftunum fjórum sem einkenna
dagskrá Menningarborgarinnar. Ómissandi veisla fyrir augað og
alla fjölskylduna.
LAUGARDAGUR 9. DES. FRA KL. 14:30 í
BORGARBÓKASAFNI f GRÓFARHÚSI
Kvennadagur þar sem bækur um og eftir konur verða kynntar.
Tónlist, upplestur og fróðleg erindi.
SUNNUDAGUR 10. DES. KL. 15.00 - 17.00
A AUSTURVELLI
Jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Borgarstjórinn f Reykjavfk og
sendiherra Noregs fly^a ávarp, kveikt verður á jólatrénu frá Ósló,
hjjómsveitin Múm flyturjólaperlur, bráðfjörugirjólasveinar bregða
á leik, Óháða götuleikhúsið litar völlinn, Dómkórinn syngur,
Lúðrasveit Reykjavíkur spilar, fsskúlptúrar skapaðir, tendruð jjós á
tröllakransi, hjjómsveitin Flís djassar jólalögin, Raddir Evrópu
syngja, trúðarnir Spæli og Skúli velta fyrir sér jólunum o.fl.
Skemmtunin er samvinnuverkefni M2000 og Reykjavfkurborgar.
ÍTARLEG DAGSKRÁ A
www.reykjavik2000.is
MINNINGARBORG
EVRÖPU ARIÐ 2000
MATTARSTÓLPAR menningarborgar
SJÓVÁiÁí' ÍÁLMENNAR
Landsvirkjun
11
EIMSKIP