Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
LANDIÐ
MORGTINBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Yngstu börnin báru Ijósiö inn í kirkjuna og í lokin út úr kirkjunni.
Fjölskyldudagur Eyfellinga
Holti - Fyrsta sunnudag í að-
ventu var haldinn fjölskyldudag-
ur Eyfellinga, sem var mjög vel
sóttur og hófst með fjölskyldum-
essu í Eyvindarhólakirkju þar
sem börn grunnskólanna í Selja-
landi og í Skógum komu fram,
fluttu bænir, lásu ritningarorð,
fluttu hugvekjur og sungu.
Yngstu börnin báru ljósið inn í
kirkjuna og í lokin út úr kirkj-
unni. Síðan bauð kvenfélagið
Fjallkonan öllum til kaffidrykkju
í Fossbúð, en þar var kvenfélagið
einnig með basar.
Grunnskólinn í Skógum var
með hátíðardagskrá þar sem
hæst bar söng stúlknakórs Ey-
fellinga undir stjórn Þorgerðar
Jónu Guðmundsdóttur.
Þá fór einnig fram bókar-
kynning, Þórður Tómasson,
safnvörður í Skógum, las úr
nýútkominni bók sinni, „Gest-
ir og grónar götur“, Sigurður
Skúlason las úr bókinni „Ert
þú Blíðfinnur. Ég er með mik-
ilvæg skilaboð" og Oddný
Sturludóttir las úr bókinni
„Dís“.
Nýtt stettarfélag*
stofnað í Skagafírði
NYTT stéttarfélag var stofnað
laugardaginn 2. desember í Skaga-
firði. Hefur það hlotið nafnið Ald-
an stéttarfélag og varð til við sam-
runa tveggja félaga sem um
áratugi hafa starfað hlið við hlið á
sama samningssviðinu, þ.e. Verka-
kvennafélagsins Öldunnar og
Verkalýðsfélagsins Fram. Vkf.
Aldan hafði starfað frá 9. jan-
úarl930 en Vlf. Fram frá því um
aldamót, stofnár og stofndagur er
óviss. Stofnfundurinn var haldinn í
húsi Fjölbrautaskólans á Sauðár-
króki. Þar voru hinu nýja félagi
sett lög og samþykkt reglugerð
fyrir sjúkrasjóð. Fyrirhugað er að
félagið skiptist í deildir eftir
starfsgreinum og samkvæmt
bráðabirgðaákvæði í lögum þess
skal vera lokið að stofna a.m.k.
þrjár deildir fyrir aðalfund 2002. Á
fundinn komu sem gestir fulltrúar
frá ASI og Starfsgreinasamband-
inu, sem og frá nágrannafélögum.
Fluttu þeir félaginu árnaðarósk-
ir og kveðjur. Þá voru flutt
tónlistaratriði frá Tónlistarskóla
Skagafjarðar. Ákveðið var að
stofna vinnudeilusjóð og verða
tekjur hans sem nemur 10% af
innheimtum félagsgjöldum.
Áhyggjur af vaxandi
vímuefnanotkun
Þá samþykkti fundurinn ályktun
um forvarnir, svohljóðandi:
Stofnfundur Öldunnar stéttarfé-
lags, haldinn 2. desember 2000,
lýsir áhyggjum sínum yfir hinni
ört vaxandi neyslu vímuefna og
þeim áhrifum sem hún hefur á lífs-
hætti og framtíð hins unga fólks.
Fundurinn samþykkir að verja
600.000 kr. úr sjúkrasjóði félagsins
til styrktar því forvarnarstarfi sem
verið er að hrinda af stað í sveitar-
félaginu um þessar mundir.
Kosið var einróma í stjórn hins
nýja stéttarfélags og er hún þann-
ig skipuð:
Jón Karlsson formaður, Anna
Birgisdóttir, Ásdís Guðmunds-
dóttir, Kári H. Árnason, Guðni
Kristjánsson, Sesselja Tryggva-
dóttir, Guðrún Björnsdóttir, Sigur-
laug Brynleifsdóttir og Særún
Björnsdóttir.
Til vara í stjórn eru: Eysteinn
Steingrímsson, María Sif Gunnars-
dóttir, Elín K. Jóhannesdóttir, Jó-
hanna Birgisdóttir og Sólveig
Guðbrandsdóttir.
Bæjaryfirvöld á Ísafírði beðin að
aðstoða erlenda fjölskyldu
A flótta undan
glæpamönnum í
E1 Salvador
BÆJARYFIRVÖLD á ísafirði
hafa verið beðin um að veita fjöl-
skyldu frá E1 Salvador í Mið-Am-
eríku liðsinni við að flytjast í
bæinn.
Samkvæmt bréfi frá Ásthildi C.
Þórðardóttur, íbúa á ísafirði, er
fólkinu, hjónum um fimmtugt, 26
ára syni þeirra og 4 ára ættleiddri
dóttur, ekki vært í heimalandi sínu
þar sem glæpamenn ógna lífi þess.
Rauði kross íslands sendi einnig
bréf um sama málefni,_ þar sem
óskað er eftir liðsinni ísafjarðar-
bæjar.
Halldór Halldórsson bæjarstjóri
sagði að bréfin hefðu verið lögð
fyrir bæjarráð og að sér hefði ver-
ið falið að fylgja málinu eftir.
Hann sagði að þar sem fólkið væri
ekki ofsótt af stjórnvöldum í eigin
landi uppfyllti það ekki skilyrði um
pólitískt hæli,.
„Næsta skref hjá mér er að
ræða við félagsmálaráðuneytið og
Rauða krossinn og athuga hvort
það sé einhver flötur á því að
flytja fólkið hingað," sagði Hall-
dór. „Við lítum þetta jákvæðum
augum, en ef við gerum eitthvað
þá gerum við það ekki öðruvísi en í
samstarfi við þessa aðila og ég
mun ræða við þá seinna í vikunni.11
Foreldrarnir komnir
til Bandaríkjanna
í bréfi Ásthildar, sem er í
mægðum við fólkið, er farið fram á
að bærinn veiti því aðstoð.
„Þá er ég með í huga að bærinn
útvegi þeim íbúð frítt í eitt ár og
leikskólapláss fyrir 4 ára barn.
Eða eitthvað sambærilegt," segir í
bréfinu. „Fólk þetta þarf að flýja
land til að bjarga lífi sínu. Þau
teljast ágætlega vel stæð á þeirra
mælikvarða sem varð til þess að
glæpamenn ógna nú lífi þeirra. Og
því ekkert annað að gera fyrir þau
en flýja land.“
í bréfi Ásthildar segir að Rauði
kross íslands vinni nú þegar að
því að koma fólkinu hingað til
lands.
„Foreldrarnir eru komnir til
Bandaríkjanna, þar sem þau eiga
ættingja og geta verið í allt að 6
mánuði, en sonurinn er vegalaus
og er unnið að því að koma honum
sem fyrst hingað."
Jólasveinar þjófstörtuðu í Grindavik
Morgunblaðið/GPV
Jólasveinarnir þjófstörtuðu og mættu til að stjórna fjöldasöng en ekki
voru allir kátir að sjá þá því minnsta fólkið á það til að verða skelkað.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hjónin Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir og Þorbjörn Sigurðsson verka
minkaskinn. Með þeim er dóttirin Telma Þöll.
Pelsun skinna í
fullum gangi
Hrunamannahreppi - Þessar vik-
urnar eru loðdýrabændur að pelsa
og verka skinn víða um landið. Að
Ásgerði II hér í sveit stendur pels-
un yfir og verður lógað um 8.000
minkum en á búinu eru um 1.700
læður sem er eitt af stærstu loð-
dýrabúum á landinu.
Þetta er mikil vinna og koma
6-7 manns að þessum störfum en
skinnin eru verkuð jafnóðum sem
er nákvæmnisvinna.
Að sögn Þorbjörns Sigurðssonar
bónda sem er einn stjórnarmanna
í SÍL, sambands íslenskra loðdýra-
bænda, er gert ráð fyrir að slátra
um 170 þús. minkum á landinu að
þessu sinni en í heiminum öllum
verður pelsað um 26 milljónir
dýra. Þar af eru Danir með 41% af
framleiðslunni.
Hann segir að eftirspurn sé í
jafnvægi og að verð ætti ekki að
lækka á uppboðunum í vetur,
fremur er vonast eftir að verð á
skinnum hækki á uppboðum í
Kaupmannahöfn og Finnlandi.
Þegar efnahagur Rússa versnaði
fyrir 2-3 árum hættu þeir að
kaupa loðskinn en keyptu áður
stóran hlut af minkaskinnum
heimsins. Hann sagði að líkur væri
á að þeir kæmu inn á markaðinn
með bætum efnahag á næstu miss-
erum.
Þá sagði Þorbjörn að loðdýra-
stofninn hér væri sá heilbrigðasti í
heiminum, mikið væri um sjúk-
dóma í stofninum erlendis, t.d. í
Danmörku. Það leiddi aftur til
þess að mjög erfitt væri að fá inn-
flutt dýr til kynbóta.
Kveikt á
vinabæjar-
jólatrénu
Grindavík - Nýlega var kveikt á
jólatré frá vinabæ Grindavíkur,
Hirtshals í Danmörku. Sá bær
hefur verið vinabær Grindavíkur
síðan 1990.
Það er alltaf hátíðarstund þeg-
ar kveikt er á jólatrénu, enda er
það formleg byrjun á jólaundir-
búningnum, sem þó var víða haf-
inn.
Auk þess cru settar upp ljósa-
skreytingar á götuljósin og hefur
gamla götuljósaskreytingin feng-
ið hvfld. Hún hafði það skemmti-
lega nafn meðal bæjarbúa „flug-
brautin", því þau ljós þóttu minna
á flugbrautarljós. Bærinn er því
orðinn skreyttur og margir ibúar
hafa sett upp sínar jólaskreyting-
ar.