Morgunblaðið - 06.12.2000, Blaðsíða 54
,-54 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Flugmálastjórn íslands
auglýsir eftirtalin störf:
Starf flugradíómanns
á ísafjarðarflugvelli
Starfssvið:
AFIS-þjónusta og upplýsingagjöf í flugturni
á ísafjarðarflugvelli.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið þjálfun flug-
radíómanns, samkvæmt kröfum Flugmála-
stjórnar. Skilyrði er gott vald á enskri tungu.
Starf flugvallareftirlitsmanns
á ísafjarðarflugvelli
Starfssvið:
Annast daglegt eftirlit á tækjum og búnaði,
flugbraut, byggingum og öðrum mannvirkjum.
-Snjómokstur og brunavarnir á vellinum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Krafist er réttinda meiraprófs bifreiðastjóra
og réttinda í stjórnun þungavinnuvéla.
Skilyrði er gott vald á enskri tungu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum við
starfsmenn ríkisins.
Starf flugumferðarstjóra í Reykjavík
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að hafa gilt skírteini flug-
^umferðarstjóra til starfa á íslandi.
Launakjör:
Launakjörfara eftir kjarasamningi Félags
íslenskra flugumferðarstjóra við fjármálaráð-
herra.
Umsóknir:
Skriflegar umsóknir skulu berast starfsmanna-
haldi eigi síðar en 22. desember nk.
Nánari upplýsingar og eyðublöð fást hjá starfs-
mannahaldi. Öllum umsóknum verður svarað.
Flugmálastjórn Islands er ríkisstofnun, sem innir af hendi margvíslega
þjónustu í þágu flugsamgangna. Hlutverk Flugmálastjórnar er I meg-
inatriðum að hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum
íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innan lands og utan, að
sjá um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita flugumferðar-
og flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug og alþjóðlegt flug
yfir Norður-Atlantshafi. Stofnuninni er skipt í fjögur svið sem samtals
, hafa um 260 starfsmenn um allt land. Flestir þessara starfsmanna
hafa hlotið sórhæfða þjálfun. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan
rétt kvenna og karla til starfa.
KÓPAVOGSBÆR
Frá Félagsheimilinu
Gjábakka
Laust er til umsóknar 50% starf við
ræstingar fyrri hluta dags.
Launakjör samkv. kjarasamningi Eflingar og
Kópavogsbæjar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Björgvins-
dóttir í síma 554 3400.
Starfsmannastjóri
IHnptUnkib
Blaðbera
vantar
í Seiðakvísl, Reykjavík,
á Reykjavíkurveg, Hafnarfirði
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Smart
Vegna mikilla anna þurfum við að bæta við
góðum starfskrafti í fullt starf. Vaktavinna.
Skilyrði er að viðkomandi sé þjónustulundaður,
samstarfsfús og að stutt sé í brosið. Tekið verð-
ur við skriflegum umsóknum á staðnum.
Sólbaðstofan Smart,
Grensásvegi 7.
FÉLAGSSTARF
V
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
Jólateiti
Laugardaginn 9. desember næstkomandi efna sjálfstæðis-
félögin í Reykjavík til hins árlega jólateitis
í Valhöll frá kl. 16.00 til 18.00.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, flytur stutta
hugvekju.
Brassbandið Snæfinnur leikur jólalög.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjálfstæðismenn
í Reykjavík til að líta við í Valhöll, t.d. að loknum
verslunarerindum, og verma sig í góðra vina
hópi með góðum veitingum sem að venju
verða á boðstólum.
Stjóm Vardar - Fulltrúaráds sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélags Hlíða-
og Holtahverfis
verður haldinn í Valhöll fimmtudaginn 7. desember kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÖUR
HJÚKRUNAR-
FRÆÐINGAR
Munið félagsfund Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga í kvöld, miðvikudaginn
6. desember, á Grand Hótel, kl. 20.00.
Efni fundarins er „Einkarekstur í heil-
brigðisþjónustunni". Framsöguerindi
flytja hjúkrunarfræðingarnir Ragnheiður
Haraldsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneyti, Ásta
Möller alþingismaður, Þuríður Backman
alþingismaður og Sigríður Snæbjörns-
dóttir fyrrverandi hjúkrunarforstjóri
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að loknum
framsöguerindum verða pallborðsum-
ræður með þátttöku frummælenda.
Sjávarútvegur í Brasilíu —
kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í Sjávarút-
vegshúsinu, Skúlagötu 4,1. hæð, föstudaginn
7. desember nk., kl. 13.30. Á fundinum mun
fulltrúi frá brasilíska sjávarútvegsráðuneytinu
kynna stöðu sjávarútvegs þar í landi. Einnig
munu fulltrúartveggja fyrirtækja kynna starf-
semi sína.
Kynningarfundurinn er hugsaðurfyrir aðila
sem tengjast sjávarútvegi og vilja kynna sér
möguleg tækifæri í Brasilíu.
Þátttaka tilkynnist sjávarútvegsráðuneytinu
í síma 560 9670.
Sjávarútvegsráðuneytið.
UPPBOÐ
Listmunir
Höfum kaupendur að góðum verkum gömlu
meistaranna. Vinsamlega hafið samband sem
fyrst, ef þið viljið selja listaverk fyrir jólin.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14—16,
sími 551 0400.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp í Hnjúkabyggð 33,
Blönduósi, föstudaginn 15. desember 2000 kl. 14.00:
IÞ-860 M-3207 MD-749 VP-420
Greiðsla við hamarshögg
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi 1. desember 2000.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Höfðabraut 6, Hvamm-
stanga, fimmtudaginn 14. desember 2000 kl. 13.00.
JR-884 KX-897 MS-190 PS-733 RV-896 SF-491 TG-346.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi 1. desember 2000.
TIL SÖLU
Til sölu Nissan Patrol
Nissan Patrol árg. 1998. Ekinn 55 þús. km.
Nánari upplýsingar í síma 897 0445 og 462 8105.
Isuzu pallbíll til sölu
Vel með farinn og lítið keyrður árg. '98.
3ja tonna burðargeta á palli, sliskjur fyr-
ir smávélar.
Upplýsingar í síma 567 2230.
TILKYIMIMIMGAR
BORGARBYGGÐ
Borgarbyggð
Auglýsing
Breyting á deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Urriðaár, Borgarbyggð
Samkvæmt ákvæðum 26. gr skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreindar breytingar
á núverandi skipulagi.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 6.desember 2000 til
5. janúar 2001.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 21. janúar 2001 og skulu þær vera skrif-
legar.
Tillagan tekur yfir fyrra deiliskipulag er gert
var fyrir svæðið.
Borgarnesi, 23. nóvember 2000.
Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
VIIMIMUVÉLAR
Fermec smágröfur til sölu
Vel með farnar Fermec smágröfur, teg. 115,
128, 526 og 528 í góðu ásigkomulagi.
Allar undir 1000 tímum, ýmsir fylgihlutir
með. Tilboð óskast.
Uppl. í síma 567 2230, fax 567 2272.
í Ijíi fVloi i ’.t m fri tim (1ÖO A
h/vll lAI ICIÍ f jill MVítlflÍlHI
Stjörnuspá á Netinu