Morgunblaðið - 06.12.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 06.12.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís Ddmsmálaráðherra um ályktun Umferðarþings Ekki tímabært að ræða fjárhagsáætl- un á þessu stigi Heimasíða Þjóðminja- safnsins opnuð BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra opnaði í gær nýja heima- síðu Þjóðminjasafnsins, www.nat- nius.is. Á heimasiðunni er að finna margs konar upplýsingar um safn- kost og starfsemi safnsins. Þar er meðal annars fjallað sérstaklega um myndadeild, munadeild, þjóð- háttadeild, húsverndardeild, forn- leifadeild, bókasafn, sýningar Lækningaminjasafnsins í Nesi við Seltjörn og Sjóminjasafnsins í Hafnarfirði. Heimasíðan var opnuð við hátíð- lega athöfn í Vesturvör 20 þar sem stærstur hluti safnkosts Þjóðm- injasafnsins er nú varðveittur, en stefnt er að því að opna hús Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu, eftir gagngerar endurbætur, í árs- lok 2002. Frumrit sambands- laganna frá 1918 ÞEIR sem lögðu leið sína í Þjóðmenningarhúsið um helgina fengu þar að sjá frum- rit sambandslaganna frá 1918, en skjal þetta, sem varðveitt er í Þjóðskjalasafni Islands, var til sýnis í bóksal Þjóð- menningarhússins í tilefni fullveldisdagsins, 1. desember. Auk sambandslaganna voru tvö önnur skjöl sem tengjast sjálfstæðisbaráttu Islendinga til sýnis í Þjóðmenningarhús- inu um helgina. Annars vegar frumrit stjórnarskrárinnar 1874 og hins vegar gjörðabók þjóð- fundarins 1851. SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra segir gagnrýni, sem kom fram á nýafstöðnu Umferðarþingi á umferðaröryggisáætlun, ekki sann- gjarna enda hafi hún ekki verið rædd á þingi enn. Á Umferðarþingi var samþykkt ályktun þar sem bent var á að fullnægjandi umferðarör- yggisáætlun fyrir árin 2001-2012 yrði að innihalda fjárhags- og fram- kvæmdaáætlun og að tryggja yrði að nægt fé rynni til áætlunarinnar úr opinberum sjóðum. I ályktuninni segir ennfremur: „Umferðarþing lýsir vonbrigðum sínum yfir því að í fjárlögum fyrir árið 2001, sem nú er verið að afgreiða á Alþingi, verður nánast ekkert vart við aukna fjár- muni til þessai’ar baráttu. Umferð- arþing skorar því á ríkisstjórn og Alþingi að lýsa því nú þegar yfir, að væntanleg 12 ára áætlun muni upp- fylla framangreind skilyrði." Um- ferðarþing fagnaði hinsvegar stefn- umörkun dómsmálaráðheiTa að miða við 40% fækkun dauðaslysa og meiri háttar slysa í umferðinni á næstu 12 árum á íslandi. Ósanngjörn gagnrýni Sólveig sagði í samtali við Morg- unblaðið að gagnrýnin sem kom fram í ályktun Umferðarþings væri ekki sanngjörn. Hún benti á að enn væri unnið að umferðaröryggisáætl- un fýrir árin 2001-2012 og það plagg sem kynnt var á Umferðarþingi væri aðeins drög. „Þetta er rammi sem hér er fram settur og síðan þarf að ræða um áætlunina á Alþingi. Það er því ekki tímabært að ræða nákvæma fjárhagsáætlun nú,“ sagði Sólveig og bætti við að fjárveitingar til umferðaröryggisáætlunarinnar kæmu til umræðu við fjárlagagerð fyrir árið 2002. Eftir væri að ræða hina nýju áætlun og samþykkja á Alþingi. „Það má auðvitað vel taka undir áskorun til ríkisstjórnarinnar og Al- þingis að tryggja nægilegt fjármagn til umferðaröryggisáætlunarinnar á næstu árum en það er ekki hægt að taka undir að slíkar áherslur séu ekki sjáanlegar nú,“ sagði Sólveig. „Eg upplýsti m.a. í setningarræðu minni á Umferðarþingi að fjárlaga- nefnd væri að vinna að hugmyndum að fjölgun lögreglumanna m.a. með tilliti til aukins umferðareftirlits," sagði Sólveig og bætti við að lög- reglumönnum hefði fjölgað verulega á undanfömum árum. Þá hefðu fjár- framlög til málaflokksins aukist um- talsvert. Þar að auki væri gert ráð fyrir auknu fjármagni til vegagerð- ar á næsta ári. A Umferðarþingi hefði að auki verið skrifað undir viljayfirlýsingu um æfingasvæði fyr- u' ökunema og tilkynnt um stofnun rannsóknarsjóðs fyrir umferðarör- yggismál. Bréf ritað vegna tsjetsjensks flóttamanns Mannrétt- indi að fá að stofna hjónaband ASLAN Gilaev, sem segist vera tsjetsjneskur flóttamað- ur, sendi dómsmálaráðuneyt- inu bréf í gær, sama dag og formlegur andmælaréttur í máli hans rann út, en Útlend- ingaeftirlitið hafnaði honum um dvalarleyfi í síðasta mán- uði og var sá úrskurður kærð- ur til ráðuneytisins. Ingvi Hrafn Óskarsson, að- stoðarmaður dómsmálaráð- herra, sagði í samtali við Morgunblaðið að engin niður- staða lægi fyrir í máli Gilaevs og vildi hann ekki gefa það upp hvort búið væri að færa sönnur á hver hann væri eða frá hvaða ríki. I bréfi Gilaevs færði hann rök fyrir því hvers vegna hann ætti að fá dvalarleyfi og voru meginrökin þau að hann væri giftur íslenskri konu og þyrfti að sjá um fjölskyldu. Fjölskyldan fái að lifa eðlilegu lífi Jakob Rolland, prestur kaþ- ólskra, sendi dóms- og kirkju- málaráðherra bréf fyrir skömmu þar sem hann talar máli Gilaevs og segir hann það gi-undvallarmannréttindi að fá að stofna til hjónabands. „Þessi réttindi eru óhaggan- leg og eru þar með ofar lög- sögu einstaklinga eða kirkna eða ríkja, segir í bréfi Roll- ands. „Ríkinu og kirkjunni og þjóðfélaginu ber að virða og vernda þessi réttindi. Eg fer því fram á það að þér sjáið til þess að þessi fjöl- skylda fái nú og strax að lifa eðlilegu lífi í friði og njóti frið- helgi sem hún á skilið eins og allar aðrar fjölskyldur hér á landi. Gilaev er þegar búinn að sanna að hann sé frá Tsjet- sjeníu, og það fimm sinnum. Hann gekk í gegnum próf tvisvar í Noregi, tvisvar í Sví- þjóð og einu sinni í Reykja- vík.“ Búast má við niðurstöðu í máli Gilaevs á næstu vikum að sögn Ingva Hrafns. Þjdðhagsstofnun spáir auknnm viðskiptahalla og V2% aukningu kaupmáttar 2001 Spáð 5,8% verð- bólgu á næsta ári ÞJÓÐHAGSSTOFNUN spáir 5,8% verðbólgu á næsta ári í endurskoð- aðri spá um þróun efnahagsmála sem birt var í gær. Er þetta mun hærri verðbólguspá en í þjóðhags- áætlun sem lögð var fyrir Alþingi í byrjun október þar sem reiknað var með 4% hækkun verðlags á milli áranna 2000 og 2001. Horfur eru á að viðskiptahalli nemi 68 milljörðum á næsta ári samanborið við áætlanir um 61!4 milljarðs viðskiptahalla á þessu ári. Þá gerir Þjóðhagsstofnun nú ráð fyrir að kaupmáttur muni aukast minna á næsta ári en gert var ráð fyrir í þjóðhagsáætlun eða um 0,5% samanborið við 1,5% í fyrri spá. Gert ráð fyrir 4% hagvexti á yfirstandandi ári I endurskoðaðri spá Þjóðhags- stofnunar er búist við að hagvöxtur á yfirstandandi ári nemi 4% sam- anborið við áætlun um 3,6% aukn- ingu landsframleiðslunnar í fyrri spá Þjóðhagsstofnunar. Reiknað er með að töluvert dragi úr hagvexti á árinu 2001 og hann nemi 1,6% en það er óbreytt spá frá þjóðhags- áætlun í haust. Flestar breytinganna sem Þjóð- hagsstofnun hefur gert á spánni fyrir næsta ár má rekja til áhrifa af breytingum á gengi krónunnar að undanförnu en stofnunin gerir þó ráð fyrir að gengi krónunnar verði óbreytt frá því sem nú er út árið 2001. Stofnunin spáir nú 5,8% hækkun verðlags á milli áranna 2000 og 2001. „Þessa breytingu má rekja til gengisbreytinga á undanförnum vikum og mánuðum. Frá septem- ber, þegar síðasta spá var gerð, til nóvember hefur gengi krónunnar lækkað um 3M;-4%. Hér er vissu- lega um verulega hækkun á verð- lagsspá að ræða. Venju fremur er hún óvissu háð og er sú óvissa til beggja handa. Veikist gengi krón- unnar frekar má búast við áhrifa þess gæti í hærra verðlagi. For- sendur um launahækkanir spárinn- ar taka mið af þeim samningum sem gerðir voru á almennum mark- aði fyrr á þessu ári, að viðbættu nokkru launaskriði. Hækki laun umfram þessar forsendur má gera ráð fyrir að þessi verðlagsspá sé of lág. Á hinn bóginn er hugsanlegt að þróun olíuverðs verði hagstæðari á komandi ári, en hér er lögð til grundvallar forsenda OECD um að ekki komi til umtalsverðar lækkun- ar á verði olíu fyrr en seint á næsta ári. Þá eru merki þess að verð á húsnæði hafi náð hámarki, en í for- sendum þessarar spár er ekki gert ráð fyrir að það lækki á komandi ári,“ segir í endurskoðaðri spá Þjóðhagsstofnunar. Hægir á vexti einkaneyslunnar Þar sem útlit er fyrir meiri verð- bólgu hefur Þjóðhagsstofnun einn- ig endurskoðað áætlanir sínar um kaupmátt ráðstöfunartekna og reiknar nú með að kaupmáttur aukist um Ms% á komandi ári sam- anborið við 1 M>% í þjóðhagsáætlun. Jafnframt er reiknað með að draga muni úr vexti einkaneyslu sem talin er aukast um 1,7% á næsta ári í stað 2,6% í þjóðhags- áætlun. Spá um samneyslu er óbreytt frá fyrri áætlun þar sem gert er ráð fyrir 3% vexti. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að lægra gengi krónunnar, hærri vextir og meiri verðbólga hafi nokkur áhrif á fjárfestingu á komandi ári. í stað l‘/2% samdráttar er nú áætlað að fjárfesting dragist saman um 2/2% á árinu 2001. Þessar breytingar fela í sér að þjóðarútgjöld munu vaxa hægar á árinu 2001 en ætlað var í þjóðhags- áætlun, eða 0,9% í stað 1,7%. Einn- ig er gert ráð fyrir að atvinnuleysi aukist lítils háttar en verði áfram undir 2%. Þjóðhagsstofnun bendir á að samkeppnisstaða útflutnings batn- ar vegna gengisbreytinga og út- flutningsframleiðsla muni því dragst minna saman en áður var gert ráð fyrir eða um 1,3% saman- borið við 1,6% í fyrri spá. Á móti er gert ráð fyrir að al- mennur innflutningur dragist sam- an og innflutningur í heild verði 3% minni á næsta ári en á árinu 2000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.