Morgunblaðið - 06.12.2000, Side 27

Morgunblaðið - 06.12.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 27 Ávextir Söru Björnsdóttur; erfðabreyttir tómatar og myndband með maur í hveitihálendi. Stökkbreytt Michelin-skrímsli Gabríelu Friðriksdóttur, eða Operazione romantica, eins og neyslupúkinn heitir réttu nafni. gróðamyndunar, eða öllu heldur má ekki svala löngunum viðskiptavinar- ins svo rækilega að hann þurfi ekki á frekari viðskiptum að halda. Þann- ig fylgir list Gjörningaklúbbsins svipuðum lögmálum og ástin og lífið. Það er ávallt einhver óuppfyllt ósk eftir sem steytir á skeri raunveru- leikans. Hversu fallegt og stórt sem það kann að vera er fimmstjömu dýrahótelið ekki annað en fangelsi. Úlfur Grpnvold hefur ekki látið mikið fyrir sér fara frá því hann slapp af skólabekk. Framlag hans kemur því skemmtilega á óvart og undirstrikar sjóræningjaeðli hins frakka og freka ævintýramanns sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Vandinn er sá að þessi deyj- andi manntegund á sér ekki aðra undankomuleið en táknrænan heim listarinnar þar sem allt er mögulegt á plani sem tekur mið af raunveru- leikanum án þess að vera annað en spegilmynd af honum. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir er annað dæmi um listamann sem hendir gaman að rómantíkinni og sýnir með nöturlegu háði hve ómögulegt það er að bregða upp gagnvart umheiminum hefðbund- inni mynd af landi og þjóð. Það jaðr- ar við pínlega afskræmingu að sjá listakonuna storma um glerbygg- ingahverfi Docklands í Lundúnum á bláum skautbúningi eins og fjallkon- una út úr hól. Og samt er þessi neyðarlega tímaskekkja sú mynd af þjóðrækni sem íslendingabyggðir um allan heim varðveita hvað best. Lady og Leggir, framlag Hrafn- hildar Amardóttur, fjallar einnig um ímynd og þann hola hljóm sem birtist í hégómagirninni, einhverri lífseigustu dauðasynd okkar sjálfs- uppteknu tíma. Hin narkissíska ímynd sem Hrafnhildur fjölfaldar er blendin því trú samtíðinni gengst hún við glæpnum. Það er hrífandi sönn mynd sem hún birtir af sjálfri sér sem holdgervingi sjálfhverfrar firringar. Slíka allegoríska sjálfsmynd er einnig að finna í verki Söru Björns- dóttur, en sprottna af allt öðrum áherslum. Sara sýnir sig tómatijóða í kinnum skoða tvo erfðabreytta tómata sem hún heldur á í lófanum. A meðan klífur maur - á sjónvarps- skjá skammt frá ljósmyndinni - himinháa hveititinda eins og fótfrár fjallgöngumaður. Fígúrur Gabríelu Friðriksdóttur líkjast einmitt fómarlömbum erfða- fræðilegra mistaka. Aðalpersónan í skipan hennar í kjallara Gerðar- safns er einna líkust Michelin-karl- inum eftii' að hann hefur farið í megrun, eða bráðnað svolítið. Við hlið þessa stökkbreytta dekkja- riddara er innkaupakarfa í stíl; stökkbreytt í rauðu og hvítu. Ef eitt- hvað er skjaldarmerki okkar, neysl- ufikla nútímans, er það innkaupa- karfa stórmarkaðarins. Það er því spurn hvort þetta stórfurðulega tónlistarskrímsli Gabríelu - því frá kvikindinu líður músakskotin tón- list, ef til vill til að fá okkur til að kaupa meira - sé ekki Olafur heitinn Liljurós endurborinn sem hring- myndaður Kringlukastari. Særún Stefánsdóttir, Egill Sæbjörnsson, Hekla Dögg Jónsdóttir og Stephan Stephensen draga öll athygli okkar frá hinu gagnrýna háði til nánustu tilveru, tilfinninga, ástar og bernsku. Umhverfið, augnablikið, ævintýrið og dulúð hversdagsleik- ans eru viðfangsefni þeirra þótt úr- vinnslan sé afar ólík. Öll krefjast þau þó einbeitni áhorfandans og reyna reyndar að fá hann til við- bragða. Gagnvirkt ferðalag Egils um slóðir bernskunnar kallast á við Einkaveröld Særúnar á meðan Hekla Dögg mætir Stephan með því að undirstrika ómetanleik óska- stundarinnar þar sem þau og við verðum fyrir upplifun og uppljómun tilverunnar, hamingjuhögginu sem aðeins varir örskotsstund. Þau Hekla Dögg og Stephan eru þó inn- byrðis jafnólík í nálgun sinni og Eg- ill og Særún. Vonandi verður þetta ekki eina ungdómssýningin í Gerðarsafni, til þess er hún alltof lofandi og upp- lýsandi fyrir líf okkar og listrænar pælingar á líðandi stund. Halldór Björn Runólfsson iðnbúð 1,210 Garðabæ sfmi 565 8060 sía Collection Framtíðin hefst TOSHIBA heimabíó /jasta og fullkomnasta skni á einstöku verði! Super-5 Digital Blackline myndlampi 180-300W magnari ________ • 3 Scarttengi að aftan • 2 RCA Super VHS/DVD- tengi að aftan Super VHS, myndavéla- og heyrnartækjatengi að framan • Barnalæsing á stöðvar. • Glæsilegur skápur m/glerhurð og 3 hillum • 6 framhátalarar • 2 bassahátalarar • 2 x 2 bakhátalarar' verð m/öllu þessu frá aðeins 134900,-.. Önnur TOSHIBA tæki fást í stærðunum frá 14"-61" \ TOSHIBA DVD • SD 100 er af 5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, með betri myndgæðum og mun fullkomnari en aðrir bjóða! TOSHIBA eru fremstir í tækniþróun. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins, Pro-Drum mynd- bandstækjanna og DVD mynddiskakerfisins. *staögreiSsiuafsiáttur er 5% ///' Einar Farestveit &Cahf. Borgartúni 28 • S: 562 2901 8t 562 2900 • www.ef.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.