Morgunblaðið - 06.12.2000, Page 47

Morgunblaðið - 06.12.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 ^ félagi í Soroptimistaklúbbi Reykja- víkur haustið 1959 sem var fyrsti klúbburinn á íslandi. Hún var áhugasöm og starfsglöð klúbbsystir og sótti fyrir hönd íslenskra Soropt- imista sendifulltrúaþing Evópusam- bands- og Alheimssambands Soropt- imista. Halldóra var kosin annar varaforseti Evrópusambands Sor- optimista 1977-1979 íyrst íslenskra systra. Á árinu 1970 var hún kosin í út- breiðslu- og laganefnd í sínum klúbbi með það að markmiði að stofna fleiri klúbba. Útbreiðsla Soroptimista- hreyfingarinnar var henni hjartans mál og lagði hún á sig mikla vinnu við að þýða alþjóðalög og reglur samtak- anna. Nýr klúbbur var stofnaður í Hafn- arfirði og Garðabæ vorið 1973 og þá þegar hófst hún handa við að stofna Soroptimistasamband íslands sem var samþykkt af Evrópusambandi Soroptimista 1974. Halldóra var stofnforseti þess og gegndi síðar fjöl- mörgum embættum innan lands- sambandsins og var ávallt reiðubúin til þess að taka að sér ný störf á veg- um þess. Soroptimistaklúbbum fjölgaði það ört hér á landi á næstu árum að at- hygli vakti út fyrir landsteinana. Halldóra átti stærstan hlut í stofnun flestra þeirra. Hún var guðmóðir tólf klúbba og fylgdi þeim eftir af áhuga og var ötul við að dreifa til þeirra upplýsingum frá alþjóðasamtökun- um um hvernig haga skyldi störfum. Hún var hvatamaður að stofnun Systrasjóðs sem er styrktar- og líkn- arsjóður innan íslensku samtakanna. Fyrir allt þetta var hún kosin heið- ursfélagi Soroptimistasambands Is- lands. Orðið soroptimisti þýðir bjartsýn- issystir og meðal mikilvægustu markmiða hreyfingarinnar er að láta gott af sér leiða. Þetta brýndi hún fyiir systrum og lagði áherslu á að við gæfum okkur tíma á hverjum fundi til að minna okkur á þessi markmið. Verkefni Soroptimista hafa verið margvísleg, bæði utan- lands sem innan, og hefur víða mun- að um frumkvæði þeirra og störf ásamt fjárframlögum. Styrkur Soroptimsta felst ekki hvað síst í því að þar starfa saman og tengjast vináttuböndum konur af ólíkum uppruna með mismunandi menntun og reynslu. Dugnaður og áhugi Halldóru vakti oft aðdáun, hún var Soroptimsti af lífi og sál og var ótrúlega dugleg að sækja fundi, jafn- vel sárþjáð eins og hún var því miður oft hin síðustu ár. Soroptimistasystur á íslandi þakka Halldóru að leiðarlokum fyrir hennar óeigingjarna brautryðjenda- starf og þá gæfu sem hún veitti okk- ur þegar hún gaf okkur kost á að ganga til liðs við þessi mannbætandi samtök. Aðstandendum hennar sendum við innilegar samúðarkveðjur. Soroptimistasamband Islands. Fyrsta helgin í aðventu hefur hér á heimilinu verið tími gleði og ánægju þegar allir tiltækir fjölskyldumeðlimir hafa safnast saman til laufabrauðsgerðar undir styrkri stjórn Halldóru frænku. En þetta árið verður aðventan með öðr- um blæ, nú kveðjum við Halldóru hinsta sinni. Það er mikill sjónar- sviptir að þessari stórbrotnu, góðu konu. Halldóra vai- elsta dóttir hjónanna Eggerts Sölvasonar og Jóninnu Jónsdóttur, en Jóninna var systir Þóru, móður Álfþórs. Það var á þeim erfiða tíma hjá fjölskyldu okkar þeg- ar Þóra og Jóhann, foreldrar Álfþórs, létust árið 1966 að kynni okkar af Halldóru hófust fyrir al- vöra. Hún varð tíður gestur á heimil- inu og gaf sig mjög að börnunum sem nú áttu enga ömmu. Ekkert var henni óviðkomandi sem snerti velferð barnanna. Hún fór ófáar ferðirnar með krakkana um landið þvert og endilangt þeim til mikillar ánægju. Hún tók því ljúf- mannlega að gæta bús og barna ef á þurfti að halda og stjórnaði af mikilli röggsemi. Aldrei var neitt svo um að vera í fjölskyldunni að Halldóra frænka væri ekki með í ráðum, svo vægt sé til orða tekið. Þessi fyrrum skóla- stjóri húsmæðraskóla tók að sér all- ar stærri veislur í fjölskyldunni með ánægju og ósérhlífni. Það duldist engum þegar Halldóra var í heimsókn því hún hafði sterka nærveru. Henni lá hátt rómur og hún sagði sína meiningu á mönnum og málefnum umbúðalaust. Halldóra gat virkað hrjúf en þeir sem þekktu hana vissu vel hve raungóð og hjartahlý manneskja hún var. Við söknum Halldóru og þökkum fyrir samfylgdina með henni. Systk- inum hennar og fjölskyldu vottum við samúð. Björg, Álfþór og börn. Sumarið 1945 kenndi Halldóra Eggertsdóttir í Húsmæðrakennara- skóla Islands á Laugarvatni, í sum- arleyfum fastakennara. Það féll í hennar hlut að sýna okkur að kveikja upp í kolaeldavél. Hún gerði það mjög virðulega, var í hvítum kjól með mjallahvíta, stífaða svuntu og hvorki var blettur né hrukka á bún- ingnum þegar skíðlogaði í eldavél- inni. Öll störf virtust auðveld í hönd- um hennar. Halldóra var forstöðukona og kennari í húsmæðraskóla. Að feng- inni þeirri reynslu taldi hún til bóta að allir verknámskennarar hús- mæðraskólanna væru í sama félagi, bæði handavinnu- og vefnaðarkenn- arar og þeir sem kenndu matreiðslu, þvott og ræstingu. Hún stofnaði því árið 1947 Húsmæðrakennarafélag íslands sem oftast var kallað félagið hennar Halldóru. Fyrir var Kenn- arafélagið Hússtjórn, í því voru ekki handavinnu- og vefnaðarkennarar. Félögin voru sameinuð 1953 og frá þeim tíma tók Halldóra þátt í nor- rænni samstarfsnefnd um hússtjórn- arfræðslu NSH. Vísir að þessum félagsskap varð til 1909 og efldist eftir heimsstyrj- öldina 1939-1945. Um miðja öldina voi-u haldin námskeið fyrir hús- stjórnarkennara annað hvert sumar til skiptis á Norðurlöndunum. Fyrsta NSH-námskeiðið hér á landi var haldið árið 1965 fyrir at- beina Halldóru. Það sóttu 135 manns þar af 91 frá hinum Norðurlöndun- um (Frétt í Alþýðublaðinu 6. júlí 1965). Mótið hófst sunnudaginn 4. júlí kl. 2 með ræðu Ingólfs Jónssonar landbúnaðarráðherra og um morg- uninn hlýddu þátttakendur á messu í Dómkirkjunni. í tilefni námskeiðsins voru settar upp tvær sýningar. Nefndist önnur „Búrið í gamla daga“ og var þar kynntur matur sem neytt var daglega og á hátíðum áður fyrr og verkun hans, nú kallaður þorra- matur. Á hinni sýningunni var handavinna nemenda handavinnu- kennaradeildar Kennaraskólans og verk eftii’ nemendur úr vefnaðar- deild Myndlistar- og handíðaskól- ans. Síðan hafa NSH fundir og nám- skeið verið hér reglulega á vegum Hússtjórnarkennarafélags Islands. Veturinn 1971-72 var ég við nám í Danmarks Lærerhöjskole og notaði tækifærið til að sækja fundi og nám- skeið hússtjórnarkennara í Kaup- mannahöfn og nágrenni. Um leið og félagarnir heyrðu að ég væri frá ís- landi spurðu þeir: Hvað er að frétta af Halldóru? Þær þekktu allar Hall- dóru Eggertsdóttur og langaði að vita hver væru helstu áhugamál hennar um þessar mundir. Halldóra var góður bílstjóri og ólöt að bjóða samverkamönnum far. Síðustu árin átti hún erfitt með gang en þegar hún var sest undir stýri voru henni allir vegir færir. Hún var á margan hátt dæmigerður 20. aldar Islendingur. Hún fæddist á af- skekktum sveitabæ norður í landi og kunni að elda og baka við hlóðir sem í örbylgjuofni. Að ævilokum hafði hún ferðast um hálfan hnöttinn í tengsl- um við félagsstörf fyrir hússtjómar- kennara og önnur félagasamtök. Ég þakka Halldóm Eggertsdótt- ur vináttu og dygga forystu við að efla heimilisfræði og framgang hús- stjórnarkennara. Aðstandendum votta ég samúð. Anna Gísladöttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LAUFEY AÐALHEIÐUR STEFÁNSDÓTTIR (LULLA), elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis á Vífilsgötu 18, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Hringbraut sunnu- daginn 3. desember síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Guðný Kristín Garðarsdóttir, Konstantín Hauksson, Rafn Benediktsson, Hulda Hjaltadóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR SÆMUNDSDÓTTIR, Ljósheimum 4, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 4. desember. Indriði Indriðason, Guðrún Indriðadóttir, Jón Ágúst Sigurjónsson, Sólveig Indriðadóttir, Stefán K. Guðnason og barnabörn. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, KRISTÍN SOFFIA JÓNSDÓTTIR frá Gilsfjarðarbrekku, Vesturbergi 138, Reykjavík, lést sunnudaginn 3. desember. Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini. t Konan mín, móðir okkar og amma, KATRÍN BJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR, Túngötu 57, Eyrarbakka, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 24. nóvember. Jarðað var í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigurður Andersen, Óðinn K. Andersen, Sveinn S. Andersen og barnabörn t Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, SIGURÐUR KRISTJÁNSSON, Grænatúni 18, Kópavogi, fyrrv. bóndi á Víðivöllum, sem lést fimmtudaginn 30. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. desember kl. 13.30. Gísli Sigurðsson, Kristján Sigurðsson, Lilja Sigurðardóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Áslaug Kristjánsdóttir, Bjarni Kristjánsson, Karl M. Kristjánsson, Halldór Kristjánsson, Kristrún Kristjánsdóttir, Valdimar Kristjánsson, Jai Ramdin. Unnur Jónsdóttir, Helga Einarsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Axel Snorrason, Brenda Kristjánsson, Guðmundur Kristjánsson, Jónína B. Olsen. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, fóstur- móðir, systir, amma og langamma, ELÍN MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR húsfreyja í Laxárdal, Þistilfirði, verður jarðsungin frá Svalbarðskirkju laugar- daginn 9. desember kl. 14.00 Petra Sigríður Sverresen, Einar Friðbjörnsson, Ólafur Eggertsson, Anna Antoníusdóttir, Stefán Eggertsson, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Marinó Pétur Eggertsson, Ósk Ásgeirsdóttir, Guðrún Guðmunda Eggertsdóttir, Þórarinn Eggertsson, Særún Haukdal Jónsdóttir, Garðar Eggertsson, Iðunn Antonsdóttir, Bragi Eggertsson, Helga Jóhannsdóttir, Oddgeir Friðrik Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir, mágur, barnabarn og frændi BENEDIKT ODDSSON, flugvirki, Greniteig 36, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtu- daginn 7. desember kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, láti SÁÁ njóta þess. Sesselja Erna Benediktsdóttir, Oddur Gunnarsson, Erna Bergmann, Gunnar Oddsson, Kristín Bauer, Hulda Agnarsdóttir, Oddur og Eva Sif Gunnarsbörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG ÓLAFÍA GUÐLAUGSDÓTTIR frá Hokinsdal í Arnarfirði, til heimilis í Háagerði 43, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 7. desember kl. 13.30. Guðríður Kristinsdóttir, Kristinn Kristinsson, Elínborg Kristjánsdóttir, Lilja Kristinsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.