Morgunblaðið - 06.12.2000, Page 52

Morgunblaðið - 06.12.2000, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 *------------------------------ MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MARGEIR SIGURJÓN VAGNSSON + Margeir Sigur- jón Vagnsson fæddist í Ósi í Arn- arfírði 16. septem- ber 1929. Hann lést 25. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sólveig Bjarney Guð- bjartsdóttir, f. 22.9. 1904, d. 27.1. 1969, og Vagn Þorleifsson, f. 23.8. 1898, d. 21.9. 1979. Margeir átti þrettán alsystkini og einn hálfbróður. Fjögur eru látin. Margeir flutti með foreldrum sínum að Álftamýri í Arnarfirði 15 ára gamall og til Ólafsvíkur 1955. Margeir kvæntist Sigríði Elínu Eggertsdóttur 26.12. 1958. For- eldrar hennar eru Eggert Jónas Guðmundsson, f. 6.12. 1906, d. 23.5. 1995, og Vilborg Jónsdótt- ir, f. 27.2. 1906, bús- ett á Dvalarheimil- inu Jaðri, Ólafsvík. Börn Margeirs og Sigríðar: 1) Eggert Hafsteinn, f. 3.7. 1958, kvæntur Sól- veigu J. Adamsdótt- ur, f. 23.11. 1961. Börn þeirra eru Brypjar, f. 30.5. 1987, og Agnes, f. 11.3. 1990. 2) Sól- veig, f. 8.2. 1961. Börn hennar eru Margeir, f. 29.1. 1982, og Bjarki, f. 3.7. 1993. 3) Vilberg, f. 5.7. 1967, kvæntur Jóhönnu Scheving, f. 18.10. 1959. Barn þeirra er Sig- ríður Elín, f. 5.1. 1996. Börn Jó- hönnu eru Katrín, f. 2.12. 1980, og Einar, f. 24.12. 1985. Útför Margeirs fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Margeir Vagnsson, Bæjartúni 11 hér í Olafsvík, lést á sjúkrahúsi í Reykjavík hinn 25. nóvember sl. en þar hafði hann dvalið undanfarnar 7 vikur. Margeir var fæddur á Ósi við Arnarfjörð, einn af 13 bömum þeirra hjóna Sólveigar Bjameyjar Guðbjömsdóttur og Vagns Þorleifs- sonar er þar bjuggu á þessum tíma. Fyrir um 11 ámm þurfti hann að gangast undir höfuðaðgerð sem gaf honum all góða heilsu um árabil en sl. tvö ár hefur heilsu hans hrakað ört. Margeir var rúmlega 71 árs er hann lést. t Ástkær móðir okkar, SVEINBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR, Melavegi 7, verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju föstudaginn 8. desember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hannes Heiðar Jónsson, Gunnar Ingi Jóhannesson, Sigurlaug Elsa Jóhannesdóttir, Pétur Ingvar Jóhannesson, Jóhannes Ragnar Jóhannesson. Útför ástkærs sonar okkar og bróður, HÓLMSTEINS Á. ÞORSTEINSSONAR, Kantatgatan 28, Malmö, Svíþjóð, fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 8. desember kl. 10.30. Þorsteinn S. Axelsson, Hólmfríður Þórarinsdóttir, Axel Þ. Þorsteinsson, Aðalheiður B. Þorsteinsdóttir. t Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar MARÍU INDRIÐADÓTTUR, Borgartúni, Ljósavatnshreppi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki lyfja- deildar I á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akueryri og heimahjúkrunar Þingeyinga á Húsavík. Arnór Benediktsson, Indriði Arnórsson, Birna Kristjánsdóttir, Þórhallur Arnórsson, Jóna Jónsdóttir, Haukur Arnórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Rakarastofa Óskars, Hárstúdíó Ness, veröur lokað eftir hádegi í dag, vegna jarðarfarar ÓSKARS H. FRIÐÞJÓFSSONAR. Hárstúdíó Ness, Austurströnd 12, Seltjamarnesi, sími 561 2333. Með Margeiri Vagnssyni er fall- inn í valinn virtur og vel metinn maður hér í byggð með samfelldan starfsvettvang hjá sveitarfélaginu hátt á 4. áratug, fyrst hjá Ólafs- víkurhreppi, síðar Ólafsvíkur- kaupstað og loks hjá hinu nýja, sameinaða sveitarfélagi, Snæfells- bæ. Starfsvettvangur Margeirs hjá sveitarfélaginu spannar mestan at- hafna- og uppgangstíma byggðar- innar. Vegna mikilla og góðra afla- bragða og uppbyggingu í atvinnu- lífinu hér á 6. áratugnum var hér að störfum mikill fjöldi aðkomusjó- manna- og verkafólks víðs vegar að. Meðal þeirra er hingað komu af þessum ástæðum voru margir dugnaðarforkar af Vestfjörðum. Einn þeirra, eins og áður sagði, var Margeir Vagnsson úr Amarfirðin- um sem síðar stofnaði hér fjöl- skyldu með sinni hressu og glað- lyndu eiginkonu, Sigríði Egg- ertsdóttur, en þau hófu fljótlega undirbúning að byggingu tvíbýlis- húss við Bæjartúnið í félagi við Sig- urdór, bróður Sigríðar. Þar stóðu heimili þeirra systkina og fjöl- skyldna um fjölda ára og stendur enn hjá Margeiri og Sigríði. Sá sem þessar línur ritar kynnt- ist Margeiri Vagnssyni fyrst sem skipsfélaga á m.s. Snæfelli sem gert var út héðan úr Ólafsvík, - haustið 1962 og á vetrarvertíð 1963. Kynni okkar hafa staðið síðan. Á 20 ára tímabili áttum við Mar- geir Vagnsson traust og gott sam- starf á sviði sveitarstjómarmála, nánar tiltekið á tímabilinu 1962- 1982. Stór hluti þess var á vettvangi hafnarmála, þau sömu ár sem Mar- geir starfaði við Ólafsvíkurhöfn. Hafnarmálið var hér á þessum ár- um stóra málið sem yfir annað gnæfði og hafði því forgang umfram annað. Upp úr 1960 var ljóst að Ól- afsvíkurhöfn fullnægði á engan hátt þjónustuhlutverki sínu við stóran og sífellt stækkandi fiskiskipaflota og afskipunarþörfinni vegna mikils út- flutnings framleiðslunnar. Nýja höfn varð því að byggja hér og leggja þá gömlu af ella töpuðum við hinum ört vaxandi flota frá okkur. Það var svo á árinu 1963 að stjórn- völd samþykktu byggingu nýrrar hafnar hér í Ólafsvík og var þá strax á sama árinu hafist handa. Við þær aðstæður verður það að teljast hafa verið mikið happ íyrir sveitar- félagið að mannkostamaður eins og Margeir Vagnsson skyldi þar koma til starfa. Hans beið þama samfellt 37 ára starf; fyrst hjá Ólafsvíkur- höfn, síðar sem verkstjóri og for- stöðumaður Áhaldahússins og að lokum sem fyrsti forstöðumaður hins nýja félagsheimilis á Klifi í Ól- afsvík eða frá því það var tekið í notkun í ágústmánuði 1987 og þar til hann lét þar af störfum sökum heilsubrests. Á starfstímabili Margeirs, í hartnær fjóra áratugi, voru í fyrstu í forgangi hafnarmálin en eins og áður sagði, aðrar stórar fram- kvæmdir vora þá þegar í augsýn; ný og glæsileg kirkja var tekin í notkun árið 1967, íþróttahús og sundlaug vora á byggingastigi, í undirbúningi bygging 14 verbúða, nýtt félagsheimili á biðlista, mikil vinna við skipulagsmál og gatna- gerð o.fl. mætti telja. Allt snerti þetta með einum eða öðram hætti starf Margeirs Vagnssonar og hans starfsmanna hjá sveitarfélaginu. Þetta er því sett hér fram að það lýsi með nokkram hætti starfsum- hverfi hans og manna þeirra er lutu verkstjórn hans. Vart hefur það alltaf verið dans á rósum því marg- ar óskir bárast að sjálfsögðu dag- lega um þjónustu við borgarana til viðbótar við þungavigtarfram- kvæmdir sem jafnan vora í gangi og því mikilvægt að skilningur væri fyrir því megingildi að góð fram- koma af hálíú starfsmanna sveitar- félagsins hverju sinni. Persónueinkenni þau er ávallt fylgdu Margeiri Vagnssyni vora sterkt jafnvægi í umgengni við fólk; ávallt orðvar og athugull, eins við alla. Margeir hafði jafnan yfir sér hversdagslegan þokka sem jók traust fólks á honum og auðveldaði það samskipti við alla sem við hann átti erindi sem starfsmann bæjar- ins, en þeir vora margir. Þegar við nú að leiðarlokum hug- leiðum lífshlaup og starfsævi Mar- geirs Vagnssonar hér meðal okkar fer það heldur ekki fram hjá okkur hver er og var þáttur eiginkonunn- ar og ekki síst umönnun hennar nú síðustu árin þegar heilsa hans þvarr og við tók hreyfihömlun og einnig minnkandi geta til tjáskipta. Dugn- aður hennar, hressileiki og eðlislæg glaðværð lögðust á eitt að gera hon- um lífið eins bærilegt og mögulegt var við aðstæður í heimahúsi þar sem hann gat dvalist sem lengst með sínum nánustu. Þar gat hann einnig fylgst með miklu áhugamáli sínu, byggingu nýja íþróttahússins, sem hann sá úr íbúð þeirra. Allt gerði þetta sitt til að stytta að lok- um þann tíma er hann þurfti að dvelja á sjúkrahúsi. Allt er þetta Sigríði eiginkonu hans mikill sæmdarauki. Farsælli starfsævi Margeirs Vagnssonar er nú lokið. Við Olafs- víkingar kveðjum hér góðan sam- borgara með virðingu og þökk. Eftirlifandi eiginkonu og fjöl- skyldunni allri óskum við gæfu og farsældar um ókomin ár. Elinbergur Sveinsson. Elsku Margeir minn. Það vora forréttindi að eiga þig sem tengdapabba. Kærar þakkir fyrir allt. Þín tengdadóttir, Sólveig. Tímabilið 1950 til 1965 var mikill uppgangur í Ólafsvík, vaxandi út- gerð, fjölgun fiskibáta, fiskvinnslu- húsa og mikil atvinna. Á þessu tímabili flutti margt fólk frá Vest- fjörðum til Ólafsvíkur og Rifs. Þetta var kraftmikið fólk, sjómenn og landverkafólk, sem strax hleypti nýju lífi í atvinnulífið til sjós og lands. Margeir Vagnsson var meðal þessara innflytjenda, kraftmikill í sjón og reynd. Hann hóf sjó- mennsku með Leifi Jónssyni á Rifi, sem var einn af þessum harðdug- legu sjómönnum frá Vestfjörðum. Á þessu tímabili kom það í minn hlut að útvega fólk til ýmissa þjón- ustustarfa í bæjarfélaginu. Eg var svo lánsamur að kynnast Margeiri, eftir að hann flutti til Ólafsvíkur og fann strax að þarna var maður sem hægt var að treysta og fela honum margvísleg verkefni. Á þessum ár- um vora í gangi stórkostlegar hafn- arframkvæmdir í Ólafsvík, sem kölluðu á menn sem hægt væri að trúa fyrir margvíslegum störfum. - Frágíingur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að hand- rit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fyigi- Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð takmarkast við eitt til þijú er- indi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa sldmarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Yfirverkstjóri við hafnarfram- kvæmdirnar, Sigurður J. Magnús- son, benti mér á Margeir Vagnsson: Þama er maðurinn sem þig vantar, bæði þrælsterkur og verkhygginn. Ég fór að ráðum Sigurðar og tal- aði við Margeir. Á milli okkar myndaðist strax trúnaður sem aldrei brást. Samstarf okkar var ör- uggt og gott þá áratugi sem við unnum saman að þjónustustörfum fyrir okkar byggðarlag. Margeir var hafnarvörður frá 1962. Því fylgdi hafnarradíó og samband við fiskibátana. Þessu fylgdi einnig vörumóttaka. Margeir varð síðan verkstjóri bæjarins. Byggt var áhaldahús, ýmis vinnutæki og vélar keyptar, vinnuflokkur ráðinn. - Öllu þessu stjómaði Margeir af festu og ráðdeild. Það era ekki allir sem gera sér ljóst hversu yfirgripsmikið starf það er að hafa á hendi verkstjórn með öllu þjónustukerfi í stóra bæjarfé- lagi og sjá um að allt sé i góðu lagi. Það má nefna vatns- og holræsa- kerfi, gatnakerfi, snjómokstur og fleira og fleira. Margeir réð við þetta allt. Vinnuflokkur hans var samstilltur og mat yfirstjóm hans að verðleikum. Að leiðarlokum vil ég þakka Mar- geiri Vagnssyni traust og gott sam- starf í áratugi og hlýja vináttu sem var mér mikils virði. Við Björg vottum Sigríði, börnum þeirra og öðram ástvinum okkar dýpstu samúð og kveðjur og biðjum góðan Guð að blessa þeim minning- una um kæran ástvin. Minning hans lifir. Alexander Stefánsson. Svona er lífið, eins og lækur, sem á upptök sín í hlíðum hinna háu fjalla, það er greið leið niður bratt- ann, en þegar á jafnsléttu er komið er erfiðara fyrir hann að brjótast áfram, því margar ójöfnur verða óhjákvæmilega á vegi hans, áður en hann samlagast hinu óendanlegu hafi, hafi eilífðarinnar, móðunnar miklu, enginn fær það stöðvað, það gerist hjá hverjum og einum. Það er samt ekki sama hvernig það ber að höndum. Það er kærkomið þeim sem hafa barist við illskeyttan sjúk- dóm í mörg ár, að fá hvíld og frið. Þannig er hugsun mín þegar ég sendi þessi síðustu kveðjuorð til bróður míns Magga, eins og við kölluðum hann alltaf hér heima. Ég ætla ekki að fara að rekja neina lofgjörð um Magga bróður minn, eitt er víst að tryggur og traustur var hann vinum sínum og vildi úr hvers manns vanda leysa. Það væri ekki í anda Margeirs Vagnssonar að draga fram neina lofgerðarþulu fyrir hans hönd og ætla ég því að sleppa því. Minning- amar lifa í huga okkar allra sem þekktu Margeir Sigurjón Vagnsson, þar fór drengur góður, megi hann hvfla í friði. Eiginkonu, börnum og bamabörnum votta ég samúð mína. Megi sá sem öllu stjórnar styrkja þau í sorg sinni. Vertu sæll að sinni, Maggi bróðir. Ó besti vinur bróðir, þín bíður heilög nótt. Kn gæta englar góðir þú getur sofið rótt. I faðmi ljóss er ffiður þú fmnur loksins skjól. Þar kátt í lofti er kliður um hvfld og eilíf jól. Loft í fjarska ljómar launin hlýtur þú. Frá öllum dyrum ómar þín ósk var von og trú. Þú lærðir snemma að líta á líf sem æðra vald. Eg sá þig aldrei sýta þér sæmir endurgjald. Stjama fógur starir stöðugt á þitt rúm. Á meðan vilji varir verður aldrei húm. í hjarta sál og sinni sorgin aldrei býr. Ef geymist mér í minni mynd þín hrein og skír. (KSVÓ.) Kveðja. Kristjana Sigríður Vagns- dóttir og niðjar hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.