Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 13
FRÉTTIR
Skiptar skoðanir um réttmæti þess að loka svæðum fyrir sjókvíaeldi og taka gjald fyrir leyfí
Hugmyndir
um greiðslur
fyrir leyfi
gagnrýndar
SKIPTAR skoðanir eru á því að
ákveðin landsvæði verði undanskilin
laxeldi hér á landi og að fiskeldisfyrir-
tæki greiði fyrir leyfi til rekstrarins,
eins og norsk stjómvöld eru með
áform um. Guðni Agústsson landbún-
aðarráðherra tekur jákvætt undir
þessi áform Norðmanna og útilokar
ekki að slíkt hið sama verði gert hér á
landi, eins og kom fram í blaðinu í gær.
Talsmenn laxveiðimanna og veiði-
rétthafa taka varlega þessum hug-
myndum um að loka sumum land-
svæðum og leyfa laxeldi í öðrum, en
telja eðlilegt að greinin greiði fyrir
leyfi vegna eldisins.
Guðmundur Valur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Sæsilfurs og
AGVA Norðurlands, sem áformar
sjókvíaeldi í Mjóafirði og Eyjafirði,
segir umræðuna um greiðslur fyrir
leyfi til laxeldis ótímabæra og „út í
hött“, eins og hann orðar það. Ekki sé
rétt að leggja skatt á atvinnuveg sem
ekki sé búinn að líta dagsins Ijós.
Hann telur samanburð við Norðmenn
ekki réttlátan á allan hátt. í Noregi
hafi laxeldi verið að þróast undan-
farna þijá til fjóra áratugi og til standi
að veita þar 50 leyfi til viðbótar við
þau 800 sem fyrir eru. Annars vegar
eigi að greiða fyrir leyfið sjálft, sem
hann telur fáránlegt, en hins vegar sé
eðlilegt að laxeldi greiði fyrir þjón-
ustu og aðstöðu á sambærilegan hátt
og önnur fyrirtæki í landinu.
Guðmundur Valur segir að hér á
landi séu nokkrir aðilar að vonast til
að fá að byija sjókvíaeldi undir
ströngum skilyrðum. „Þessir aðilar
eru að taka gííúrlega áhættu. Mér
finnst þessi umræða um greiðslu fyrir
rekstrarleyfi ekki tímabær. Enginn
veit hvernig þetta kemur til með að
fara, fyrir utan það að ekki h'tur út
fyrir að laxeldi verði stór atvinnuveg-
ur á íslandi," segir Guðmundur Val-
ur.
Hann telur ólíklegt að frumvarp
um greiðslur fyrir leyfi til laxeldis nái
í gegn á norska þinginu. Sama megi
segja um þau áform Norðmanna að
loka nokkrum landsvæðum fyrir lax:
eldi, til að vemda villta laxastofna. í
mesta lagi verði tveimur landsvæðum
lokað en ekki sjö.
„Ástæðan er sú að laxeldi hefur
greinilega ekki valdið þeim skaða sem
sumir vilja halda fram. Þetta er alltaf
að koma betur og betur í ljós. Þannig
*
Aform um eldi á laxi í sjókvíum
Mengun á við
umfangsmikla
fískvinnslu
„LÍFRÆN mengun frá laxeldis-
stöð á borð við þær sem áformaðar
eru á þremur stöðum á Austfjörð-
um yrði ekki meiri heldur en
ámóta og þekkt er frá sjávarþorp-
um með umfangsmikla fiskvinnslu.
Að segja slíkt vera gífurlegt um-
hverfisvandamál er orðum aukið.
Yfirlýsingar Orra Vigfússonar í
viðtali í Morgunblaðinu s.l. sunnu-
dag um að lífræn mengun stöðv-
anna þriggja samsvaraði 120 þús-
und manna byggð á degi hverjum
eru í því samhengi glannalegar svo
ekki sé meira sagt,“ segir Gunnar
Steinn Jónsson hjá Hollustuvernd
ríkisins.
Staðsetning laxeldis-
stöðvanna er lykilatriði
Gunnar Steinn sagði enn fremur
að sjónarmið Hollustuverndar væri
að setja úrgang og frárennsli í
samhengi við alla þætti. Varðandi
fiskeldisstöðvarnar sem til umræðu
eru væri ekki rétt að gera lítið úr
frárennsli frá þeim og mengun af
völdum þess og því nauðsynlegt að
hafa með þeim vakandi eftirlit. I
sjávarþorpum tækist hins vegar að
halda fjörunum tiltölulega ómeng-
uðum þrátt fyrir fiskvinnslu og
hvað varðaði laxeldisstöðvarnar þá
væri staðsetning þeirra lykilatriði.
Þær væru fyrirhugaðar utarlega í
fjörðunum sem um ræðir, á nokkru
dýpi og þar sem straumar ná að
leika um og dreifa frárennslinu. A
árum áður, er sjókvíaeldi var
reynt, bæði á Austfjörðum og víð-
ar, hefði staðsetningu kvía oft verið
ábótavant og þær settar þar sem
skjól var mest og best, jafnvel fyrir
innan hafnargarða á dauðu vatni.
„Krafa okkar varðandi byggð er
fyrst og fremst sú að gerlum sé
haldið frá fjörunni og það verður
best tryggt með því að koma úr-
gangi í góðan straum. En það fylg-
ir þessu mengun, fram hjá því
verður ekki horft. Við höfum spurt
kollega okkar í Noregi ráða og þeir
hafa viðurkennt að hjá þeim séu
dæmi um rangar staðsetningar
fiskeldisstöðva, en hvort vandamál
verður stórt eða lítið er háð að-
stæðum á hverjum stað. Ef við ætl-
um að leyfa sjókvíaeldið verðum
við einnig að leyfa áhrif sem grein-
inni fylgja, en halda þeim í lág-
marki,“ segir Gunnar Steinn Jóns-
son.
Flutningabíll í skurð
ÖKUMANN flutningabíls sak-
aði ekki þegar bifreið hans fór
út af Gaulverjabæjarvegi rétt
fyrir sunnan Selfoss í fyrra-
kvöld.
f gærmorgun var bíllinn hífð-
ur upp á veginn með krana og
var vegurinn lokaður um tíma af
þeim sökum. Skemmdir urðu
miklar á húsi bílsins og annað
framdekkið fór undan. Tildrög
slyssins eru ókunn.
Guðmundur Valur Orri Óðinn
Stefánsson Vigfusson Sigþórsson
hefur ekki verið hægt að sýna fram á
svokallaða erfðablöndun laxastofna í
Noregi. Laxalúsin er einnig horfin að
mestu, nema hvað smávægileg vanda-
mál eru vegna hennar í kringum
Bergen. Menn eru búnir að ná tökum
á laxeldinu, framfarimar hafa verið
það miklar. Lax sleppur úr kvíum í
minna mæli í dag og stefnir í að það
verði minna og minna,“ segir Guð-
mundurValur.
Hann tekur undir þau orð landbún-
aðarráðherra í Morgunblaðinu í gær
að mikilvægt sé að læra af reynslu
Norðmanna. Hann er einnig sammála
því að ákveðin svæði við strendur ís-
lands verði undanskilin laxeldi, og
þau verði tekin út. Síðan eigi að ein-
beita sér að öðrum svæðum sem eru
fjarri náttúrulegum laxveiðiám.
Guðmundur Valur bendir á að sjó-
kvíaeldi sé umhverfisvæn atvinnu-
grein sem geti skapað mörg tækifæri
fyrir íslendinga. Það blasi t.d. við að
erfitt geti orðið að selja fiskimjöl úr
landi, á meðan Norðmenn geti notað
nær allt sitt fiskimjöl innanlands og
þá einkum til laxeldis. Þá séu mörg
dæmi þess í Noregi að ákveðin
byggðasvæði hafi verið að deyja út en
með tilkomu laxeldis séu þetta blóm-
legar byggðir í dag. Orri Vigfússon,
formaður Norður-Atlantshafslaxsjóðs-
ins, segir þá hugmynd geta verið við-
unandi undir vissum kringumstæðum
að loka ákveðnum landsvæðum fyrir
laxeldi, séu menn að tala um eldi á
norskum laxi í Noregi og íslenskum
laxi á íslandi. En þar sem til standi að
ala upp norskan lax hér á landi sé þetta
yfirhöfuð óásættanlegt, hvort sem loka
eigi svæðum eða ekki. Að hans mati
séu í raun fá svæði á landinu sem þoli
laxeldi, kannski einna helst Vestfirðir
og strendur Suðurlands.
.í’essi umræða í Noregi um að loka
ákveðnum svæðum og leyfa laxeldi í
öðrum hefúr verið í gangi síðastliðin
tvö til þijú ár. Þetta er flókið mál því
erfitt er að skilgreina hvar laxinn
gengur um. Eg er mjög hræddur við
þetta,“ segir Orri og bendir í því sam-
bandi á fyrirhugað sjókvíaeldi á Aust-
Qörðum. Það geti haft áhrif á laxa-
göngur td. í Vopnafirði.
Orri segir að hættan á erfðablönd-
un sé mismunandi eftir svæðum.
Hann tekur undir þau sjónarmið að
því lengra sem laxeldi er frá laxveiði-
ám því minni sé hættan. En ef haf-
straumar séu þannig að laxinn ferðist
hratt yfir þá geti það haft áhrif.
Aðspurður um þann möguleika að
rekstraraðilar fiskeldis hér á landi
verði látnir greiða fyrir leyfi sem
stjómvöld veita, segist Oi-ri vera
hlynntur því. Annað en greiðslur
komi ekki til greina, verði eldið á ann-
að borð heimilað. „í augnablikinu er
ekki til fjármagn til að undirbúa það
sem af veikum mætti er verið að
reyna. Ég hef ekki séð slíka Qárveit-
ingu á fjárlögum. Ef af sjókvíaeldinu
verður þarf hið opinbera að greiða
mikla fjáiinum til að standa straum af
kostnaði við eftirlit og fleira," segir
Oití og telur eðlilegt að greinin greiði
nokkur hundruð milljónir króna í
stofngjald og um 10-20 milljónir í eft-
irlitsgjöld. Oðinn Sigþórsson, formað-
ur Landssambands veiðifélaga, segir
að það sé pólitískt álitamál hvort út-
hluta eigi þeirri takmörkuðu auðlind,
sem eldi laxa í sjó væri, frítt til þeirra
sem fyrstir sæktu um. Umræðan eigi
eftir að fara fram.
„Umræðan um greiðslur í Noregi
hefur farið fram á grundvelli þess að
leyfin ganga kaupum og sölum. Þetta
er eitthvað sem menn hljóta að skoða
hér á landi. Það er ekki óeðlilegt að
menn greiði fyrir leyfi, í ljósi þess sem
er að gerast annars staðar,“ segir Óð-
inn. Varðandi umræðuna um að loka
ákveðnum landsvæðum fyrir laxeldi
og leyfa það í öðrum leggur Óðinn
áherslu á að veiðirétthafar séu ekki
talsmenn þess að leyfa eldi á norskum
laxi í sjó. Sú afstaða liggi klár fyrir.
„Það liggur einnig fyrir að ákveðin
landsvæði eru viðkvæmari en önnur,
með tilliti til erfðablöndunar. Ég tel
að í þessum efnum þurfi að vera stífar
reglur," segir Óðinn og telur að frið-
unarsvæði við árósa þurfi að vera
mun stærri en skv. núgildandi lögum.
Sem dæmi um viðkvæmt svæði nefnir
Óðinn laxeldi í Mjóafirði, sem geti
haft áhrif á stofna í Vopnafirði.
ANTIQUE LACE
Rjómakanna, sykurkar,
græmetisskál og kökufat
í pakka.
TILBOÐSVERÐ
15.700 Áður 17.900
Steikarfat
(takmarkað magn)
TILBOÐSVERÐ
FLAME D'AMORE
15%
afsláttur af öllum glösum
meðan byrgðir endast
Bæjarlind I-3, sími 544 40.44
FULL BUÐ AF
JÓLAVÖRUM.
JÓLASTELL
Á FRÁBÆRU
VERÐI!
MATAR- OG KAFFI
Brúðargjafir
Söfnunarstell
Gjafakort
Áletrum glös
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16, sunnud. 13-16