Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Páfagarð- ur verst gagnrýni PÁFAGARÐUR brást í gær til varnar gegn vaxandi gagn- rýni vegna fyrirhugaðs fund- ar austur- ríska þjóðernis- öfgamanns- ins Jörgs Haiders með Jó- hannesi Páli páfa. Haider er væntanleg- ur til Páfa- garðs 16. þessa mánaðar, til að afhenda páfa jólatré frá Karnten-héraði, þar sem hann er héraðsstjóri. Tréð mun standa á Péturstorginu yfir jólahátíðina. ísraelsstjórn hefur lýst óánægju með að páfi taki á móti Haider og íta- lskir vinstrimenn ráðgera mótmæli vegna komu hans. Talsmaður Páfagarðs sagði þessa gagnrýni ósanngjarna, kaþólska kirkjan ætti ekkert með að leggja dóm á Haider. „Páfagarður er opinn hverj- um sem er, það ætti ekki að koma neinum á óvart,“ sagði talsmaðurinn í gær. Hækkerup tekur við af Kouchner KOFI Annan, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti í gær að Hans Hækkerup, varnarmála- ráðherra Danmerk- ur, tæki við af Bernard Kouchner sem yfir- maður SÞ í Bosníu um miðjan jan- úar. Hækk- erup var kjörinn á. danska þingið árið 1979 og hefur verið varnarmálaráð- herra frá 1993. Mötmælend- ur liggja undir grun HERSKÁIR hópar mótmæl- enda á Norður-írlandi ei-u grunaðir um að bera ábyrgð á tveimur morðum og einni morðtilraun í Belfast á þriðjudag og miðvikudag. Kaþólskur byggingaverka- maður, Gary Moore, var skot- inn til bana á miðvikudag, þar sem hann var við vinnu sína í hverfi mótmælenda. Skömmu síðar var skotið á annan kaþ- ólikka, Paul Scullion, við leigubílastöð í nálægu hverfi. Hann særðist lífshættulega. Lögreglan í Belfast telur hugsanlegt að tilræðin séu tengd, og liggja herskáir mót- mælendur undir grun. Þá var 35 ára mótmælandi, Trevor Kell, skotinn til bana í hverfi sambandssinna á þriðjudag. Grunur vaknaði strax um að hann væri fórn- arlamb deilna milli hópa her- skárra mótmælenda, en fjöl- skylda hans þvertekur fyrir að hann hafi tengst slíkum hópum. Forsetanefnd leggur til að Pope verði náðaður Moskvu. Reuters. RÁÐGJAFARNEFND Vladímírs Pútíns Rúss- landsforseta hvatti hann í gær til að náða bandaríska kaupsýslu- manninn Edmond Pope, sem hefur verið dæmd- ur í 20 ára hegningar- vinnu fyrir njósnir. Pope er fyrsti Vestur- landabúinn sem hefur verið dæmdur fyrir njósnir í Rússlandi frá lokum kalda stríðsins. Hann er haldinn sjald- gæfu beinkrabbameini og fjölskylda hans ótt- ast að hann deyi verði hann að afplána dóm- inn. „Nefndin samþykkti einróma að leggja til að Pope yrði náðaður," sagði Anatolí Prístavkín, formaður náðunamefndarinnar. Annar nefnd- armaður sagði að Pútín gæti ekki náðað Pope fyrr en dómurinn tæki gildi í næstu viku. Forsetinn gaf til kynna áður en dómurinn var kveðinn upp að hann kynni að náða Pope vegna veikinda hans. „Til marks um njósnaþráhyggju" Bandaríkjastjórn mótmælti dómn- um og Prístavkín sagði að hann hefði verið of harður. Pope var dæmdur fyrir að afla sér leynilegra upplýs- inga um rússnesk tundurskeyti en hann kvaðst saklaus af ákærunni og sagði að upplýsingam- ar hefðu þegar verið gerðar opinberar. Nokkrii- nefndar- mannanna gagnrýndu þátt leyniþjónustu Rússlands í ákærunni, en hún hefur hreykt sér af því að hafa náð fleiri njósnurum á síð- ustu árum en í kalda stríðinu. „Réttarhöldin í máli Pope sýna að rannsóknarstofnanir okkar bera enn ein- kenni sovétkerfisins,“ sagði Maria Tsjúdak- ova, ein nefndar- mannanna. „Ég fylgd- ist með réttarhöldunum og komst að þeirri niðurstöðu að þau væra til marks um rgósnaþráhyggju, sem við þekkjum ölL“ Pope sendi Pútín bréf í fyrradag og óskaði eftir náðun vegna veikinda sinna. Bandaríkjastjóm hafði hvatt rúss- nesk yfirvöld til að falla frá ákæranni og leyfa Pope að gangast undir lækn- ismeðferð í Bandaríkjunum. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ræddi málið við Pútín en rússneski forset- inn kvaðst ekki vilja taka fram fyrii- hendurnai' á dómstólum. Bandaríkjastjóm skoraði á Pútín að náða Pope strax. „Við teljum að dómurinn sé óréttlætanlegur og rangur," sagði Sandy Berger, þjóð- aröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta. Edmond Pope Ekkert spurst til 400 milljóna sem rænt var í Danmörku Lögregla telur ræningj- ana í hættu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. LEITIN að milljónunum 400, sem rænt var í siðustu viku og ekkert hefur spurst til, tekur á sig æ skuggalegri mynd. Nú hefur ver- ið lýst eftir fimm mönnum í tengslum við ránið, 24 ára manni, sem talinn er hafa verið vitorðsmaður ræningjans, og Qórum mönnum, sem hafa beitt vafasömum aðgerðum til að hafa uppi á vitorðsmanninum, m.a. mannránum og ofbeldi. Telur lögreglan að ræningjarnir séu í lífshættu vegna áhuga misgóðra manna á að komast yfir fenginn. Forsaga málsins er að pen- ingaflutningabíll var rændur 1 siðustu viku af öðrum bflsfjóran- um. Hann náðist sólarhring seinna og er í haldi lögreglu en peningarnir, um 400 milljónir ís- lenskra króna, eru horfnir. Lög- reglan telur að kunningi bflstjór- ans, Tim Hansen, hafi verið með í ráðum en hann hefur áður kom- ist í kast við lögin og hefur ekk- ert til hans spurst frá því ránið var framið. Er Hansen eftir- lýstur í Danmörku og íhugað er að senda út alþjóðlcga hand- tökuskipan á hendur honum. Því fer þó (jarri að lögreglan sé ein um að leita hans, því vitað er að fjölmargir glæpamenn eru á höttunum eftir vitorðsmannin- um. Þegar bflstjórinn var hand- tekinn fagnaði faðir hans því injög þar sem það hefði lfldega orðið til að bjarga lífi hans að lögreglan en ekki góðkunningjar hennar skyldu hafa hendur f hári hans. Lögregla tekur undir þetta og telur báða ræningjana í lífs- hættu. Mannrán og skotbardagi Glæpamenn leita vitorðs- mannsins ákaft og undanfarna daga hefur fjögurra manna hóp- ur, þrír útlendingar og einn Dani, numið nokkra vini Hansens á brott, einn í einu, ekið þeim á afskekktan stað og reynt að þvinga þá til að gefa upp dvalar- stað hans. í einu tilfellinu var skotið á bfl glæpamannanna er þeir voru með eitt fórnarlamba sinna og telur lögregla, að þeir hafi rekist á Hansen og hann gripið til byss- unnar til að komast undan. Réttarhöldin yfír forseta Filippseyja AP Þúsundir andstæðinga Josephs Estrada kreljast afsagnar hans á mótmælafundi nálægt þinghúsinu í Manila. Vitni sakar Estrada um mútuþægni Manila. AFP, AP. Kohl kær- ir vegna hlerunar- skýrslna Berlín. Reuters. HELMUT Kohl hefur lagt fram kæru gegn ríkisstofnun þeirri sem sér um umsýslu skjala austur- þýzku leyniþjón- ustunnar fyrr- verandi, í því skyni að hindra að hleranar- skýrslur af sím- tölum kanzlarans fyrrverandi frá kaldastríðsáran- um verði gerðar opinberar. Greindi lögmað- ur Kohls frá þessu í gær. „Við erum að fara fram á, að dómurinn meini stofnuninni að láta af hendi upplýsingar um Helmut Kohl, sem aflað var með aðferðum sem ekkert eiga skylt við reglur réttarríkis," sagði lögmaðurinn, Stefan Holthoff-Pförtner, í bréfi til stjórnsýsluréttar í Berlín, sem fylgdi kæru Kohls. Bæði hjá saksóknara í Bonn og fyrir sérskipaðri rannsóknarnefnd þýzka þingsins er verið að rann- saka ásakanir á hendur Kohl, þess efnis m.a. að hann hafi brugðizt trausti (í skilningi laganna) með því að neita að gefa upp hverjir hefðu látið honum í té fé í leynilega sjóði Kristilega demókrataflokksins. Fyrr á þessu ári höfðu forsvars- menn Stasi-skjala-stofnunarinnar sagt, að þeir vildu láta afrit af skjölum sem talin væru hafa sögu- legt gildi. Rannsóknarnefnd þings- ins, þar sem pólitískir andstæðing- ar Kohls era í meirihluta, hefur - enn sem komið er að minnsta kosti - ekki óskað eftir því að fá að sjá þau gögn sem kanzlarinn fyrrver- andi vill nú hindra að verði gerð op- inber. VITNI ákæravaldsins í málshöfðun til embættismissis á hendur Joseph Estrada, forseta Filippseyja, bára á öðram degi réttarhaldanna í gær að hann hefði tekið við mútufé af hagn- aði af ólöglegu fjárhættuspili. Héraðsstjórinn Luis Singson, sem sjálfur er alræmdur fyrir að standa fyrir ólöglegum fjárhættuspilum, sakar forsetann um að hafa þegið jafnvirði hundraða milljóna króna af ágóða af fjárhættuspilinu , jueteng". Aðstoðarmaður héraðsstjórans, Emma Lim, bar fyrir réttinum í gær að hún hefði í þrígang sótt eina millj- ón filippseyskra peseta, jafnvirði 1,7 milljóna króna, af fjárhættuspila- hagnaðinum á skrifstofu sonar for- setans, Jinggoy Estrada. Féð var ætlað föður hans. Jinggoy er borgarstjóri í San Juan, smáborg í útjaðri höfuðborg- arinnar, Manila, og hefur verið sak- aður um að innheimta „toll“ af hagn- aði af ólöglegum fjárhættuspilum og tóbaksskatti. Honum hefur verið stefnt til að bera vitni fyrir réttinum. Estrada er ákærður fyrir mútu- þægni, spillingu, brot á stjórnar- skránni og trúnaðarbrest, en mútu- málið er þungamiðja málatilbúnaðar andstæðinga hans. Öldungadeild fil- ippseyska þingsins úrskurðar í mál- inu, en í henni sitja 22 þingmenn. Til að svipta forsetann embætti þurfa tveir þriðju hlutar öldungadeildar- þingmannanna að komast að þeirri niðurstöðu að hann sé sekur um að minnsta kosti eitt ákæraatriðanna. Helmut Kohl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.