Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 37
Jólasýning
í Borgar-
skjalasafni
NÚ Á aðventunni stendur Borg-
arskjalasafn Reykjavíkur fyrir
sérstakri jólasýningu í húsakynn-
um Borgarskjalasafns Reykjavík-
ur á 3. hæð Grófarhússins,
Tryggvagötu 15. í dag, laugar-
dag, verður opið kl. 13-16.
Á henni eru sýnd jóla- og ný-
árskort, sum hver handgerð, frá
lokum 19. aldar og fram eftir 20.
öld. Þar má sjá hvemig myndefni
kortanna breyttist og fylgdi
tískusveiflum, eins og annað.
Einnig em sýndir aðgöngumiðar
og auglýsingar um jólatré-
skemmtanir, skondið skeyti frá
borgarstjóra um að jólasveinninn
sé á leiðinni frá Reykjavík til
Englands að hitta böm, hand-
skrifaðar jólasögur skólabarna,
glansmyndir, jólaservíettur, kerti
og spil og ýmislegt fleira frá jól-
um Reykvfldnga á öndverðri öld
þeirri sem nú er að liða.
Hluti af því sem sést á sýning-
unni er úr fómm einstaklinga
sem afhentu Borgarskjalasafninu
skjöl sín til varðveislu og færir
9íeáikg jól'
Jólakort sem sjá má á sýning-
unni í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur.
Borgarskjalasafnið þeim kærar
þakkir fyrir. Sem fyrr Ieitast
safnið við að fá til varðveislu
bréf, dagbækur, kort, minningar-
bækur og fleira frá einstakling-
um í Reykjavík.
Sýningin er opin mánudaga-
fóstudaga kl. 10-16 og er að-
gangur ókeypis.
Sýningin stendur til 6. janúar.
Opin vinnustofa
DRÖFN Guðmundsdóttir mynd-
höggvari hefur opnað vinnustofu á
Fálkagötu 30b undir nafninu „Is-
lensk list“.
Dröfn hefur starfað sem mynd-
höggvari frá því hún útskrifaðist úr
MHI 1993. Undanfarin ár hefur
hún að mestu unnið með gler. Hún
hefur haldið nokkrar einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum í
Reykjavík og úti á landi.
Fiskar úr gleri ásamt stjörnum,
fuglum og hvölum, einnig úr gleri,
hafa verið unnir á vinnustofunni og
eru til sýnis og sölu þar. Einnig er
þar að finna aðra hluti eins og skál-
ar, skúlptúra, veggmyndh og diska.
Hún hefur sérhæft sig í fjalladisk-
um sem hægt er að nota sem nytja-
hluti eða hengja á vegg. Hún hefur
unnið diska með myndum af fjöllum
eins og Snæfellsjökli, Keili, Heklu,
Súlunum og ýmsum öðrum fjöllum.
Einnig getur fólk komið með óskir
sínar um ákveðið fjall á diski til
Drafnar.
Dröfn rak Gallerí Listakot á
Laugaveginum ásamt 14 öðrum
listakonum frá árinu 1994 til 2000,
en þegar Listakot hætti fór hún að
vinna sjálfstætt að íslenskri list,
sem er nú staðsett í vinnustofu
listamannsins.
Vinnustofan á Fálkagötu 30b er
opin frá kl. 14 til 18 alla virka daga.
Auk þess getur fólk haft samband
við listamanninn varðandi aðra
tíma.
„Holdtekja“ í Islenskri grafík
SIGURÐUR Hrafn Þorkelsson og
Þórarinn Svavarsson opna sýningu í
sýningarsal félagsins Islensk grafik,
Hafnarhúsinu Tryggvagötu 17
(hafnarmegin), á morgun, laugar-
dag, kl. 14.
Sigurður Hrafn og Þórarinn eru
báðir menntaðir grafík-listamenn frá
Myndlista- og handíðaskólanum og
Listaháskóla Islands.
Sýninguna nefna þeir „Holdtekja"
(„Embodiment")
Sigurður Hrafn og Þórarinn nota
mannslíkamann í grafísku samhengi
í verkunum og útfæra þau með
blandaðri tækni.
Meginhugmynd verkanna á sýn-
ingunni er ferli í að kanna hugtakið
„Þrykk“ í sem víðustum skilningi og
fara út fyrir hefðbundna ramma
grafíklistarinnar.
Sýningin stendur til 17. desember
Opið kl. 12-18 laugardaga og sunnu-
daga.
Skartgripir
og smámyndir
SAMSÝNING á verkum Helga S.
Friðjónssonar og Sifjar Ægisdóttur
verður opnuð í Gullsmiðju- og List-
munahúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, í
dag, laugardag, kl. 15.
Helgi útskrifaðist úr nýlistardeild
MHÍ árið 1983 og Jan van Eyck
Akademíunni í Maastricht, Hollandi
árið 1986. Hann hefur sýnt bæði
gjörninga og innstillingar og tekið
þátt í samsýningum, bæði heima og
erlendis. Á þessari sýningu sýnir
Helgi á sér hlið sem lítið hefur farið
fyrir hingað til, í formi smámynda, af
vörðum sem unnar eru með vatnslit-
um og tússi. Myndirnar eru allar
unnar á þessu ári.
Sif Ægisdóttir útskrifaðist úr
skúlptúrdeild MHÍ árið 1991 og
gullsmíðadeild Lahti’s Institute of
Design, Finnlandi áiið 1996. Hún
hefur sýnt skartgripi heima og er-
lendis.
Sif sýnir nú silfurskartgripi, þar
sem hún leikur sér með nýjar út-
færslur á hinu klassíska víravirki.
Sýningin stendur til 24. desember
og er opin á versiunartíma.
Hekla Dögg
sýnir í gallerí-
@hlemmur.is
HEKLA Dögg Jónsdóttir opnar
einkasýningu í gallerí@hlemmur.is í
Þverholti 5 í Reykjavík í dag, laugar-
dag, kl. 17.
Hekla Dögg útskrifaðist með
MFA-gráðu frá California Institute
of the Arts árið 1999 og er þetta
hennar fyrsta einkasýning hér á
landi. Hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga bæði hér heima og er-
lendis. Sýningunni lýkur 7. janúar.
------*-H------
Yinnu-
stofusýning
HELGI Gíslason myndhöggvari
opnar vinnustofusýningu á Lindar-
götu 46 í dag, laugardag, kl. 16.
Á sýningunni eru bronsverk og
teikningar.
Upplestur við opnun Einar Már
Guðmundsson.
Sýningin er opin daglega kl. 12 -
18 fram til 17. desember.
Myndlistar-
sýning Sigurð-
ar Atla
SIGURÐUR Atli Atlason opnar
fyrstu einkasýningu sína á olíumál-
verkum í Galleríi Reykjavík, Skóla-
vörðustíg 16, í dag, laugardag, kl. 15.
Sigurður Atli útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1987. Sýningin samanstendur af ol-
íumálverkum unnum á striga, er
spanna um 10 ára tímabil.
Aðalþema myndanna er íslenskt
landslag í abstrakt formi, ásamt fíg-
úratífum túlkunum óháðum tíma og
rúmi.
Sýningunni lýkur 31. desember.
Opið mánudaga til föstudaga kl.
13-18, laugardaga kl. 13-17 og
sunnudaga kl. 14-17.
------*-H-------
Málverka-
sýning á
Café Mflanó
NU stendur yfir sýning Ingvars Þor-
valdssonar í Café Mflanó í Faxafeni.
Á sýningunni eru olíu og vatnslita-
myndir.
Sýningin stendur til áramóta og
eru allar myndirnar til sölu.
Opið hús
á Korpúlfs-
stöðum
OPIÐ hús verður hjá myndlistar-
mönnum á Korpúlfsstöðum á morg-
un, sunnudag, kl. 15-18.
Korpúlfsstaðir fyrrum stórbýli,
hýsir nú meðal annars vinnustofur
og sýningarsal starfandi listamanna
í málun, lehlist, grafík, myndvefnaði
og skúlptúr.
----------------
Sýningu lýkur
SÝNINGU Garðars Péturssonar á
vatnslitamyndum í Baksalnum í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16,
lýkur á morgun, sunnudag. Sýning-
una nefnir listamaðurinn Kardem-
ommur og kaffibaunir.
Opið í dag kl. 10-22 og á morgun,
sunnudag, kl. 14-17.
Tilfínninga-
næmir töffarar
KVIKMYNDIR
Sambíóin
GUNSHY★★
Leikstjóri og handrit shöfundur: Er-
ic Blakeley. Aðallcikarar: Liam
Neeson, Sandra Bullock, Oliver
Platt, José Zúniga, Andrew Lauer
og Frank Vincent. Fort is Films
2000.
GUN SHY er sambland af glæpa-
mynd og rómantískri gamanmynd,
sem hristist furðulega saman. Lflct og
í sjónvarpsþáttunum The Sopranos
og kvikmyndinni AnaJyse This segir
hér frá harðjaxli, löggunni Charlie
(Liam Neeson) í þessu tilviki, sem
leitar hjálpar sálfræðings, þegar hann
þarf að takast á við sitt seinasta verk-
efni áður en hann sest í helgan stein.
En vegna mikils ótta tekst honum
ekki að hafa stjóm á þarmastarfsemi
sinni, og í gegnum þann kvilia kynnist
hann þessari líka ljúfu hjúkku, Judy
„stólpípudrottningu" einsog hún
kynnir sig, og er leikin af framleið-
anda myndarinnar, hinnar viðkunn-
anlegu Söndru Bullock.
Áhugaverða hlið myndarinar er sú
að hún fjallar um menn, af ýmsum
stærðum og gerðum, sem eru allir á
vitlausum stað í lífinu. Menn sem eru
að gera það sem þeir vilja ekki gera,
vegna þrýstings frá fjölskyldu og
samfélagi sem krefjast vissra hluta
frá sönnum karlmönnum. Tilfinning-
anæmar týpur í töffaraleik og vilja út
Það hefði hins vegar mátt vera skýr-
ari og stærri þáttur í myndinni, auk
þeirra áhrifa sem Judy hefur á líf
Charlies, annað en það að ást er fín
íýrir sjálfstraustið og allt það. Mynd-
in hefði orðið áhugaverðari með þessa
dýpri hlið málanna á yfirborðinu, því
fí-amvinda glæpasögunnai- sjálfrar er
ekki sérlega áhugaverð, eiginlega alls
ekki.
Og í þessari gamanmynd, eða
þannig, er húmorinn bæði einkar lé-
legur og þungmeltur. Auk þess verð-
ur Liam Neeson seint talinn góður
gamanleikari. Meira að segja Oliver
Platt, sem leikur hér Fulvio tengda-
son alræmds mafíósa, og oft á góðar
kómískar hliðar, kemur kímninni ekki
til skiia. Gun Shy er ekki alvond
mynd. Hún á sínar ljósu hliðar án
þess að vera hvorld nógu skemmtileg
né spennandi.
Hildur Loftsdóttir
Bók er best vina
Skoðið
Bókatíðindin .
Félag íslenskra
bókaútgefenda I
Afar og ömmur,
mömmur og pabbar,
synir og dætur!
Vinsælu
gjafakortin
okkar eiga vel við núna.
Barnamyndir
Fermingarmyndir
Stúdentamyndir
Fjölskyldumyndir
Ömmu- og afamyndir
LJOSMYNDIR
Grensásvegi 11,
sími 568 0150.