Morgunblaðið - 09.12.2000, Page 40
40 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Bókmennta-
kynning í
MIR-salnum
ÁRLEG bókmenntakynning
Menningar- og friðarsamtaka ís-
lenskra kvenna verður haldin í
dag, laugardag, í MIR-salnum,
Vatnsstíg 10, bakhúsi, kl. 14.
Guðrún Eva Mínervudóttir Ies
upp úr skáldsögu sinni Fyrirlest-
ur um hamingju, Birna Þórðar-
dóttir kynnir bókina um Rósku,
Guðrún Helgadóttir les úr Odda-
flugi, fyrstu skáldsögu sinni fyrir
fullorðna, Vilborg Dagbjartsdótt-
ir les úr þýðingum sfnum á smá-
sögum Saki, Guðrún Hannesdóttir
kynnir Einhyrninginn, sögu og
myndir fyrir unga bókaunnendur,
Kristín Omarsdóttir kynnir frum-
legt samvinnuverkefni sitt og
ljósmyndarans Nönnu Bisp-
Biichert og les ljóð úr bókinni
Sérstakur dagur, lesið verður úr
íslensku þýðingunni á Píkutorf-
unni og Vilborg Dagbjartsdóttir
les úr Mynd af konu - Vilborg
Dagbjartsdóttir sem Kristín
Maija Baldursdóttir skráði. Andri
Leó Lemarquis, nemandi í Tón-
skólanum Do-Re-Mí, leikur á alt-
flautu. Kaffíveitingar og notaleg
aðventustemmning. Föndurhorn
fyrir börn. AHir eru velkomnir.
-------------
Nýjar bækur
• ÚTerkomin
bókin Brydding-
ar eftir Þorgerði
Einarsdóttur,
doktor í félags-
fræði.
Bryddingar er
safn 14 greina um
margvísleg mál-
efni svo sem orð-
ræðugreiningar
og ástarsambönd,
afrakstur menntunar, fæðingarorlof
og skattamál svo fátt eitt sé nefnt.
Samnefnari greinanna er umræðan
um jafnrétti karla og kvenna og
samfélagið sem sköpun mannanna.
Allar greinarnar eru frá tímabilinu
1993-2000, utan ein sem er skrifuð
1987.1 nokkrum greinanna er orð-
um fyrst og fremst beint til annarra
fræðimanna, í öðrum er fræðilegu
sjónarhorni beitt í samfélags-
gagnrýni sem einnig á erindi út fyrir
vísindasamfélagið.
Þorgerður Einarsdóttir er doktor
í félagsfræði frá Háskólanum í
Gautaborg. Hún hefur stundað
rannsóknir í kynjafræði og félags-
fræði bæði hér heima og erlendis.
Þorgerður hefur tekið virkan þátt í
jafnréttispólitískri umræðu á Islandi
um árabil. Hún hefur áður sent frá
sér bókina Gegnum súrt og sætt.
Um íslenska karla í fæðingarorlofi
(1998).
Utgefandi er Háskólaútgáfan og
Félagsvísindastofnun HI. Verð:
1.980 krónur.
Þorgerður
Einarsdóttir
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefnum
í heimilishaldi og iðnaði.
Tíðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, oliu, kltti, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vlnnuumhverfís.
LYFJA
K. Pétursson e
www.kpoturs8on.net
Spennan magnast
BÆKUR
Sakamálasuga
FÓTSPOR HINS ILLA
Eftir Birgittu H. Halldórsdóttur.
184 bls. Bókaútg. Skjaldborg.
Reykjavík, 2000.
EDGAR Allan Poe var með hin-
um fyrstu til að skrifa sakamála-
sögur. Hann taldist til höfuðskálda
Norður-Ameríku á
fyrri hluta 19. aldar.
Arthur Conan Doyle
varð hins vegar upp-
hafsmaður spennusög-
unnar sem slíkrar. Sög-
ur hans gerast í
Englandi. Margir hafa
síðan fetað í spor hans,
þeirra á meðal Agatha
Christie og Georges
Simenon. Áður en út-
varp kom til sögunnar
var reyfaralestur helsta
afþreying þorra fólks.
Reyfararnir nutu þá lít-
illar virðingar og voru
naumast taldir til bók-
mennta. Unglingar
lágu í reyfurunum,
uppalendum til lítillar gleði. Al-
mennt var fólk sólgið í spennuna.
Gömlu reyfararnir voru þó sjaldn-
ast nein hrollvekja. Hryllingurinn
kom ekki fyrr en síðar með harðn-
andi heimi.
Birgitta H. Halldórsdóttir skrifar
sakamálasögur. Eins og aðrir slíkir
fetar hún í spor þessara frumherja.
Þó er minni dul en meiri harka í
sögum hennar. Gamla uppskriftin
var þessi: Morð er framið, lög-
reglan kemur á vettvang og leit
hefst að morðingjanum sem finnst
ekki fyrr en undir sögulok. Þá fyrst
er líka upplýst hver tilgangurinn
var með ódæðinu. Birgitta fer eins
af stað en byrjar þegar í miðri sögu
að rekja sundur þræðina og upp-
lýsa leyndarmálið. Hún spinnur
líka söguefnið úr fleiri þráðum.
Ástin er t.d. fyrirferðarmikil í sögu
hennar. Jafnvel flökrar henni ekki
við að skreyta texta sinn með
blautlegum lýsingum. í því efni
getur hún reyndar haft fyrir sér
ýmsa síðari tíma höfunda. Söguefn-
ið byggir hún að
hluta til á fræðilegum
grunni líkt og t.d.
Arthur Hailey. All-
nokkuð á hún samt í
land að setja saman
skáldverk eins og
Hótel og Flugstöðina.
Þessi saga hennar
hefst á eftirfarandi
einkunnarorðum: »í
hverri sál búa tvö öfl,
gott og illt. Það er val
mannanna hvort
þessara afla þeir
kjósa og hvaða leið
þeir ganga.« Aðal-
söguhetjan er ung
stúlka. Geðsveiflum
hennar er lýst í þaula
frá degi til dags. Þrír karlmenn
keppa um hylli hennar. Einn er
ágjarn, annar lostafenginn, þriðji
vinnusamur. Tilfinningar hennar til
þessara þriggja manna hafa áhrif á
gang mála í sögunni. Einum er hún
reyndar að stjaka frá sér við upp-
haf sögunnar. Þá kynnist hún hin-
um tveim. Eftir það sveiflast ding-
ull ástarinnar á milli þeirra
tveggja. Annar telst reyndar til
glæpalýðsins. Það takmarkar
spennuna að lesandinn fer að gruna
hann alltof snemma.
Glæpagengi eins og það, sem
Birgitta lýsir, hafa aldrei fest ræt-
ur á landi hér. Hins vegar fara sög-
ur af athöfnum slíkra í Norður-
Ameríku. Þangað hlýtur Birgitta
því að sækja hugmyndina. Allt er
það nokkuð framandi hér um slóðir.
Þeim mun meira reynir á innlifun
lesandans.
Sums staðar - en þó ekki alltaf -
fer Birgitta of fljótt yfir sögu. Til-
tekin atriði eru afgreidd of hratt.
Bókin hefði þess vegna mátt vera
fimmtíu til hundrað síðum lengri.
Yfir heildina litið tekst þó höfundi
að magna upp þá spennu sem hún
stefnir að. Birgitta býr yfir góðum
hæfileikum til að skrifa sögu af
þessu tagi. Enn sem komið er hafa
henni þó tæpast nýst þeir hæfileik-
ar til fulls. Hvorki skortir hana
sögugleði né andríki. Það sem á
vantar er fremur tæknilegs eðlis.
Enginn ætlast til að spennu-
sagnahöfundur skapi fíóknar mann-
gerðir, kafi djúpt í sálarlífið né
upphefji stíl sinn með málskrúði.
Texti Birgittu er einfaldur og
næsta fábrotinn. Með góðri aðstoð
hefði mátt slétta úr fjölmörgum
smávægilegum misfellum sem mað-
ur hnýtur um í bók hennar.
Prentvillur, margvíslegar og
hvimleiðar, óprýða bókina mjög.
Útgefandinn hefði átt að sýna þess-
um aðalhöfundi sínum þann sóma
að láta að minnsta kosti renna aug-
um yfir prófarkirnar og fækka þar
með villunum. Það er fásinna að
ætla að lesendur Birgittu séu upp
til hópa illa læsir einfeldningar.
Lesendur sakamálasagna eru af öll-
um stéttum og á öllum aldri og
gera kröfur til vandaðs frágangs til
jafns við aðrar bækur.
Erlendur Jónsson
Birgitta H.
Halldórsdóttir
Þjóðsöguverur
og nútímagott
BÆKUR
B a r n a b « k
GRÍMUR OG SÆKÝRNAR
Eftir Álfheiði Ólafsdóttur.
35 blaðsíður.
Nýja bókafélagið 2000.
GRÍ MUR býr í húsi sem stendur á
kletti við hafið. Veröld hans markast
óhjákvæmilega af nábýlinu við sjó-
inn, glugginn í herberginu hans vísar
út á haf og þegar hann liggur vak-
andi ímyndar hann sér allskyns
kynjaverur koma upp úr sjónum.
Eina nóttina flýgur raunveruleg
sækýr upp úr sjónum og á land, í leit
að hjálp. Grímur og tíkin hans, Týra,
fá þar með tækifæri til þess að heim-
sækja undirdjúpin, sem honum eru
svo hugleikin, bjarga veikri sækú og
lenda svo í örmum illskeytts risakol-
krabba.
Sækýr, að vísu ekki fljúgandi, og
marbendlar eru þekkt fyrirbæri úr
þjóðsögunum og sögusviðið er í aðra
röndina tímalaust, nema hvað ver-
urnar borða súkkulaðimola og pitsu.
Sagan skiptist í 16 stutta kafla með
22 málverkum og myndskreytir Álf-
heiður bæði bókina og semur text-
ann. Litrík málverkin gæða frásögn-
ina enn frekara lífi og athygli vekur
hvað sumar sögupersónurnar skipta
oft um lit. Sækýmar eru til að
mynda bláar, brúnar, grænar, gular
og gráar og risakolkrabbinn úr
Svartadal ýmist rauðbleikur eða
blár. Kýrnar eru margar og sumar
sérlega fallegar, sérstaklega sækýr-
in Grána á næturhimni á blaðsíðu 13,
og saknaði þessi lesandi þess að fá
ekki frekari mynd af Grími og Týru á
baki Gránu í undirdjúpunum.
Pabbi Gríms er vitavörður og
bóndi og spurt er hvað mamma hans
geri annað en að minna á háttatíma
og hjálpa til með kvöldbænirnar.
Ekki kemur fram hvað Grímur er
gamall eða hvað foreldrar hans heita
en dýi-in eru öll nefnd, utan mar-
bendill, sem heitir Marbendill. Eins
og fyrr er getið skiptist bókin í
marga stutta kafla og hefði textinn
að ósekju mátt vera talsvert ítarlegri
þar sem farið er býsna hratt yfir
sögu.
Tækifæri til þess að veita barninu
á heimilinu innsýn í sjávarveröld
Gríms hefur ekki gefist enn, þar sem
bækur eru í augum þess ennþá bara
eitthvað til þess að bíta í og rífa. Hins
vegar er það tilhlökkunarefni að geta
einhvern tímann dregið fram bók
með íslenskum myndum og blæ, til
mótvægis við allt mynd- og skemmti-
efnið frá Disney.
Helga K. Einarsdóttir
Bókmennta-
stund í Húsinu
BÓKMENNTASTUND Byggða-
safns Árnesinga og Endur-
reisnarfélags Eyrarbakka verður á
morgun, sunnudag, kl. 15.
Þrír skáldsagnahöfundar koma í
heimsókn, þau Vigdís Grímsdóttir,
Iðunn Steinsdóttir og Friðrik Erl-
ingsson. Vigdfs mun lesa úr bókinni
„Þögnin". Iðunn les úr „Haust-
grímu" og Friðrik úr bókinni
„Bróðir Lúsífer“. Tekið verður á
móti gestum með ljúfu tónaspili
nemenda Tónlistarskóla Ár-
nesinga.
Sama dag verða tendruð Ijós á
jólatrénu við Álfsstétt á Eyrar-
bakka.
Jólasveinarnir mæta.
-----*->-»----
Skáld-
kvennakvöld
Næstu tvö sunnudagskvöld, 10. og
17. desember, verður efnt til skáld-
kvennakvölda á Næsta bar í Ingólfs-
stræti. Umsjón með upplestrinum
hefur Hjalti Rögnvaldsson leikari.
Sunnudagskvöldið 10. desember
lesa úr verkum sínum Guðrún
Helgadóttir, Guðrún Eva Mínervu-
dóttir, Fríða Á. Sigurðardóttir, Sig-
urbjörg Þrastardóttir, Gerður
Kristný, Ragna Sigurðardóttir og
Þórey Friðbjömsdóttir. Gítarleikur
fyrir og eftir upplesturinn er í hönd-
um Edda Lár og Hjalti Rögnvalds-
son kynnir og flytur brot úr skáld-
skaparfræðum Aristótelesar.
Sunnudagskvöldið 17. desember
koma fram skáldkonurnar Vigdís
Grímsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir,
Kristín Ómarsdóttir, Vilborg Dav-
íðsdóttir, Iðunn Steinsdóttir og Auð-
ur Jónsdóttir. Gítarleikari er Krist-
ján Eldjárn og kynnir er Hjalti
Rögnvaldsson. Skáldkvennakvöldin
hefjast kl. 21 og aðgangur er ókeyp-
is.
Nýjar bækur
• ÚT er komin út bókin Þegar
orð fá vængi eftir Torfa Jóns-
son.
Torfi hóf að safna og þýða
spakmæli og snjallyrði af ýmsu
tagi fyrir meira en fjörutíu ár-
um. Heimildir hans hafa verið
allt frá fjölda erlendra spak-
mælabóka, auk annarra bóka
og tímarita, til dagblaða, sjón-
varps og fleira. Áður hafa kom-
ið út nokkur spakmælakver
sem hann setti saman (Nokkur
orð um...) og árið 1986 kom út
Spakmælabókin. Bókin sem nú
er komin út er mun stærri og
veglegri en sú fyrri, eða 524
blaðsíður, og spakmælin og til-
vitnanirnar yfir átta þúsund,
allt frá heimspekilegum vanga-
veltum um tilgang lífsins til
spaugilegra athugasemda um
menn og málefni líðandi stund-
ar. Hundruð manna og kvenna
eiga spakmæli í bókinni, þeirra
á meðal Sókrates, Shake-
speare, Sara Bernhardt, Oskar
Wilde, Elísabet drottingarmóð-
ir, Winston Churchill, Bob
Hope og Brigitte Bardot.
Spakmælin eru efnisflokkuð.
Utgefandi er Torfi Jónsson.
Dreifingu annast Kasima sími:
8625038, netfang: panta-
bok@maiI.com Leiðbeinandi
verð er 4.290 krónur.
• ÚT er komin sagan Blýnótt
eftir Hans Henny Jahnn.
I fréttatilkynningu segir:
„Þetta er eitt dularfyllsta verk
evrópskra bókmennta. Magn-
þrungin lýsing á undarlegri
borg þai' sem eilíft myrkur
virðist ríkja.
Hans Henny Jahnn var einn
helsti rithöfundur Þjóðverja á
tuttugustu öld. Hann var
trúaður maður sem fordæmdi
kristnina, athafnamaður sem
leitaði að lífselexír í þvagi
drengja og hrossa, fram-
úrstefnumaður sem vakti
hneykslun almennings, friðar-
sinni sem barðist fyrir vemdun
umhverfis og dýra, baráttu-
maður fyrir frelsi í lífi og listum
- rithöfundur sem markaði
djúp spor í evrópskar bók-
menntir.
Blýnótt er þýdd af tveimur
meðlimum í hópnum Tekknól-
amb, Geir Sigurðssyni og Birni
Þorsteinssyni. Geir Sigurðs-
son ritar eftirmála."
Útgefandi er Bókaútgáfan
Forlagið í félagi við hópinn
Tekknólamb. Kápu hannaði
Börkur Arnarson. Bókin er
prentuð hjá AITíFalun, Sví-
þjóð. Hún er 137 bls. og leið-
beinandi verð er2.990 krónur.
• ÚT er komin sakamálasag-
an Réttarkrufning e ftir banda-
rísku skáldkonuna Patriciu
Cornwell, en hún er einn allra
þekktasti og vinsælasti saka-
málasagnahöfundur samtím-
ans. Hér er á ferð fyrsta
skáldsaga hennar, en hún kom
fyrst út árið 1990 og nefnist á
frummálinu Postmortem. Þýð-
andi er Atli Magnússon.
Aðalsöguhetja Patriciu
Cornwell, svo í þessari bók sem
í þeim mörgu bókum hennar er
á eftir hafa fylgt og njóta
feiknavinsælda, er yfir-
réttarlæknirinn Kay Scarpetta,
sem starfar í borginni Rich-
mond í Virginíu.
I Réttarkrufningu snýst sag-
an um fjöldamorðingja sem fer
hamförum í Richmond, og er
sagan hefst hafa þrjár konur
þegar látið lífið, eftir að hafa
verið misþyrmt og loks kyrktar
í sínu eigin svefnherbergi.
Engar vísbendingar um morð-
ingjann hafa fundist. Hann
virðist láta til skarar skríða af
handahófi - en jafnan aðfaran-
ótt laugardags.
Útgefandi er Muninn bóka-
útgáfa. Bókin er282 bls. Leið-
beinandi verð: 3.480 krónur.