Morgunblaðið - 09.12.2000, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 09.12.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 61 veit að jólin verða aldrei söm án þín, við borðuðum alltaf saman hangikjöt á 25. des. heima hjá þér og ömmu, nú verður bara auður stóll við hliðina á mér, þar sem þú alltaf sast. En elsku afi minn, orðin hér verða ekki mikið fleiri að sinni en takk fyrir þær ótal minningar og stundir sem þú hefur gefið mér, þær eru ómetanlegar. Eg veit að þú ert í góðum höndum núna en þær verða aldrei betri en hend- urnar hennar ömmu. Bless afi minn, við sjáumst. Þín Inga Rut. Ó afi, ég sakna þín svo mikið og ég vildi að ég gæti hitt þig aftur en það er ekki hægt að gera allt sem maður vill í lífinu. Þegar ég horfi á myndina af þér hugsa ég alltaf um hvað var gaman þegar þú komst í heimsókn til okkar. Alltaf þegai- ég kom heim til ykkar ömmu og þú varst heima þá gafstu mér kaffi með mjólk og sykri sem við kölluðum „afakaffi" því eng- inn gaf mér svoleiðis nema þú. Eg fór oft með þér í bátinn en núna er það ekki lengur hægt því hann er á hafsbotni í Húnaflóanum og núna ert þú hjá Guði. Ég veit að þú ert alltaf hjá mér, en núna ert þú í góðu himnaríki. Þinn Sveinn. Elsku afi minn. Mér finnst svo skrítið að þú sért farinn frá okkur fyiir fullt og allt. Mér finnst líka svo skrítið að það var hafið sem tók þig burtu frá okkur því ég hélt alltaf að hafið vildi þig ekki. Það virtist vera sama hvernig það viðraði, alltaf duggaðist þú aftur heim til okkar á litla bátnum þínum, þrátt fyrir að það væri stórsjór og bræla. Ég sakna þín mikið og það verður ekki fyllt upp í skarðið sem þú skildir eftir í hjarta mínu. Ég var alltaf svo montin af þér! Það átti nú ekki hver sem er afa sem var á sjó í Afríku. Þú varst svo mikil hetja! Þú varst líka alltaf svo góður og rólegur við mig þótt að allir aðrir ættu bágt með það. Ég man svo vel að þegar ég var lítil skildi ég hjólið mitt einu sinni eftir neðst í heimkeyrslunni og þegar þú varst að fara úr heimsókn keyrðir þú óvart yfir það og það eyðilagðist auðvitað. í staðinn fyrir að vera reiður og skamma mig, þá fórstu með mig niður í búð og keypt- ir splunkunýtt og eldrautt hjól handa mér. Þetta dæmi lýsir þér mjög vel því þú varst aldrei reiður við okkur krakkana þótt við létum illa og það var frekar oft. Ég veit að þú varst ekki mikið fyrir að flagga tilfinningum þínum en ég man alltaf þegar þú sagðir mér hvað þér þótti vænt um mig. Ég á alltaf eftir að sakna þín, Bíi afi minn. Sérstaklega hvemig þú glottir að manni þegar að ég var lítil og var óþekk, en þú glott- ir bara í staðinn fyrir að vera með skammir. Ég á engin orð sem tjá all- ar mínar tilfinningar og söknuð til þín. Þótt mér sé það þvert um geð að kveðja þig þá verð ég að gera það. Ég veit að þú siglir á öðrum og von- andi betri miðum núna. Þín Katrín Ósk. Kæri vinur. Það er komið að kveðjustundinni og sár er söknuður við missi góðs vinar. Margs er að minnast á kveðjustund þessari. Ég kynntist Bía fyrir tíu árum á Sauðárkrók, prakkarsvipurinn og grínið var allsráðandi, sem var hans aðaleinkenni. Það var eins og allt smylli milli okkar og varð það að hin- um besta vinskap. Þegar litið er tilbaka er margs að minnast, margar ferðir fórum við saman, sumar mjög erfiðar og lang- ar yfir vetrartímann og var þá margt spjallað. Mildð var gaman að hlusta á þig segja sögur bæði af sjálfum þér og öðrum sem eru mér enn í fersku minni og margt skemmtilegt skeði einnig í ferðum þessum. Á ferðalög- um þessum var svo mikið um að ræða okkar á milli að oftast gleymd- ist að panta dvalarstað og því þurft- um við að hringja um miðjar nætur og hrella fólk. Að vera með þér og góðum félögum við laxveiði var ein allsherjar skemmtun, mikið var þá brallað og hlegið. Það má sérstak- lega minnast þeirra skemmtilegu og fjörugu tíma sem við hjónin áttum með þér, Bíi, Maggý og sameiginleg- um vinum þegar komið var saman til góðra funda og margt var gert sér til skemmtunar. Bíi var alla tíð sjómaður, góður skipstjóri og meirihluta ævi sinnar með eigin útgerð. Margar fór hann sjóferðirnar og var alla tíð farsæll. Hann var einn af þessum mönnum sem ekki þurfti mikið af veraldar- gæðum og lét margt smátt verða sér fremur til gleði. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.I.H.) Við hjónin sendum þér Maggý, börnum og barnabömum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Friðriks Frið- rikssonar. Ómar, Guðný og fjölskylda. Okkar langar í þessari stuttu grein, að minnast vinar okkar, Frið- riks Friðrikssonar eða Bía eins og hann var ætíð kallaður. Við kynnt- umst Bía fyrst þegar við vorum hlut- hafar í Dögun á Sauðárkróki og snemma fóru að myndast vinasam- bönd sem styrktust og jukust með árunum. Bíi var tryggur og traustur vinur sem sárt verður saknað. Margar góðar stundir áttum við saman, hvort sem var í laxveiði, í útgerð og eða í sumarbústað okkar en þangað komu þau hjónin nokkrum sinnum. Þá var oft skroppið í heiðarferð eða í heimsóknir til vinafólks okkar í sveitinni. Einmitt þessar stundir rísa hvað hæst í minningum liðinna ára. Sjórinn var Bía allt, en frá ungl- ingsaldri hefur hann verið viðriðinn útgerð og reksturs báta. Árið 1997 keypti hann af okkur bátinn Ingi- mund gamla sem hann sigldi alla leið suður til Gana á haustmánuðum sama ár en kom þaðan á vormánuð- um 1999 og fór að leggja upp hjá okkur í Særúnu og gerði allt til enda. Þennan afdrifaríka sunnudag í október síðastliðnum, ræddum við saman í síma og fór vel á milli okkar, var hann kátur að vanda og ræddi um að þetta væri síðasti túrinn að sinni og lauk samtalinu á þá leið að hann tæki að sér að líta eftir skipi okkar sem við hugðumst geyma í höfninni á Hvammstanga yfir vetur- inn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Við viljum koma sérstökum þökk- um til Halla barnabarns hans fyrir áræðni hans og ákveðni. Elsku Maggý og fjölskylda, við sendum þér og fjölskyldu þinni okk- ar innilegustu samúðarkveðjur með von um að tíminn gi'æði ykkar sorg. Kári og Kolbrún. Fátt reynist erfiðara mínum gömlu gráu sellum, en að festa á blað einhver orð til að minnast látins vin- ar, en hálfnað er verk þá hafið er hvar svo sem það endar. Áhyggjur af endinum þekktust heldur ekki þegar við Bíi vorum að bralla eitt og annað í gamla daga í Eyjum og víðar. Til er kínverskt spakmæli sem segir að sá sem skoð- ar alla möguleika af yfirvegun áður en hann stígur fyrsta skrefið stend- ur alla ævi á öðrum fæti, en þetta virta spakmæli held ég að við höfum ekki þekkt í þá daga, okkur fannst þetta ætti bara að vera svona. Leiðir okkai' Bía lágu fyrst saman í Vestmannaeyjum á vordögum árið 1964. Þá voru Eyjarnar sannkallað- ur ævintýraheimur, líf og fjör hvert sem litið var, fullt af fiski og faran- dverkamönnum, Surtsey spúandi eldi og eimyrju úti við sjón- deildarhring og svo Bíi sem var punkturinn yfii' öllu saman, þessi ljóshærði lífsglaði æringi, gæddm' svo ótrúlegum persónutöfrum að jafnvel heilsulausir fýlupokar tókust allir á loft, ef þeir heyrðu minnst á hann. Vík varð svo milli vina eftir Heimaeyjargosið 73, en þá fluttu þau Bíi og Maggý með dætur sínar þrjár norður á Hvammstanga og hóf hann þar rækjuveiðar á báti sem hann hafði látið smíða í Eyjum í fé- lagi við Harald, frænda Maggýar, og segja má að Húnaflóinn hafi verið hans starfsvettvangm' upp frá því. Ég hef ekki í hyggju að rekja ævi- eða ættarsögu þessa vinar míns, enda stend ég þar nánast á gati þar sem tengslin rofnuðu að mestu eftir að leiðir skildi. En þau ár sem leiðir okkar lágu saman verð ég alltaf þakklátur fyrir og sá kafli gleymist aldrei. Þau voru ansi mörg skiptin, þegar leiðin lá norður í land og maður sá Heggstaðanesið nálgast, að ég sagði við sjálfan mig „nú læt ég verða af því í bakaleiðinni að stoppa á Hvammstanga og heilsa upp á Bía og Maggý“, en endaði svo alltaf í ein- hverju ímynduðu tímahraki svo að bakaleiðin var tekin í einum rykk, augunum kannski aðeins gjóað út flóann þegar komið var yfir Mið- fjarðarána og hugsað með sér: „Jæja, maður verður nú að gefa sér tíma næsta sumar.“ Og svo, allt í einu, hrekkur maður í kút því það er orðið of seint að segja fyrirgefðu. En svona er lífið, góður ásetningur sem ekki vannst tími til að framkvæma er eins og slóð á eftir okkur. Elsku Maggý, ég votta þér, dætr- unum og þeirra fjölskyldum mína dýpstu samúð, þið hafið mikils að sakna. Trúað gæti ég að þegar Bíi fer að láta til sín taka í nýjum heim- kynnum gæti orðið hálfstrembið fyr- ir Drottin að halda virðuleikanum við hvað sem á dynur. Síðast en ekki síst vil ég þakka Bía fyrir allt það sem við áttum sam- an að sælda. Það óð oft á súðum, en alltaf slysalaus lending. Hvíl í friði gamli vin. Stefán Sigurðsson, Hafnarfirði. Elsku Bíi, ég þakka fyrir ómetan- legar samverustundir sem við áttum saman. Það var svo gaman að geta farið til þín um helgar um borð í Ingimund gamla þegar þið Halli vor- uð að vinna við upptekningu á vél- inni sl. vetur og vor. Öll símtölin við ykkur Halla fyrir svefninn þegar þið voruð á úthafsrækjunni eru mér ógleymanleg. Þú komst alltaf fram við mig eins og jafningja. Það var einstaklega gaman þegar þú varst að koma heim til okkar í kaffi. Við höfðum sömu áhugamál, sama húmorinn og töluð- um saman okkai' mál á okkar kjarn- góðu íslensku. Aldur í þínum huga var afstætt hugtak. Allar samveru- stundirnar með þér eru mér dýr- mætt veganesti út í lífið. Það hugaiTÖ veitir í harmanna tíð, ef horfum við fram á veginn, að hláturinn glaði og brosin þín blíð bíða okkar hinum megin. Elsku Maggý, Halli og aðrir ást- vinir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Fannar Karl Ómarsson. Elsku Bíi okkar, við heiðrum minningu þína með virðingu og þökk. Þú varst ljósið í lífi okkar. Við kveðjum þig að sinni með þessu ljóði: Sártervinaraðsakna, sorgin erdjúpoghljóð. Minningar djúpar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og þjarta, húmskuggi féll á brá. Lifir þó Ijósið bjarta, lýsiruppmyrkriðsvarta vinur þó falli frá. Góðar minningar geyma, gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma, sofðu í sælli ró. Elsku Maggý, Halli Friðrik og aðrir aðstandendur, við vottum ykk- ur okkar dýpstu samúð. Ómar og Harpa. t Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar HALLGRÍMS EÐVARÐSSONAR frá Helgavatni í Vatnsdal. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Heil- brigðisstofnunarinnar á Blönduósi. Þorbjörg Jónasdóttir Bergmann, Kristín Hallgrímsdóttir, Gert Grassl, Eðvarð Hallgrímsson, Helga Guðmundsdóttir, Guðmundur Hallgrímsson, Oddný Sólveig Jónsdóttir, Sigurlaug Helga Maronsdóttir, afabörn og langafabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Laugarvatni, andaðist á Ljósheimum, Selfossi, miðviku- daginn 6. desember. Sigríður Bergsteinsdóttir, Hörður Bergsteinsson, Elín Bachmann Haraldsdóttir, Kristín Bergsteinsdóttir, Áslaug Bergsteinsdóttir, Ari Bergsteinsson, Sigrún Skúladóttir, ömmubörn og langömmubörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVEINN SIGURSTEINSSON, Njálsgötu 86, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 7. desember. Katrín Pálsdóttir, Kristinn Ómar Sveinsson, Lára G. Sighvatsdóttir, Eyjólfur H. Sveinsson, Aldís Kristinsdóttir, Bergdís Sveinsdóttir, Þorbjörn Sveinsson, afabörn og langafabörn. t Ástkær sambýlismaður minn og bróðir okkar, KRISTINN GUÐSTEINSSON garðyrkjumaður, lést fimmtudaginn 7. desember. Elísabet Magnúsdóttir og systkini hins látna. t Móðir okkar, UNA JÓHANNESDÓTTIR, Neshaga 7, Reykjavík, lést föstudaginn 8. desember. Sigurður Björnsson, Jóhannes Björnsson. t Systir okkar og mágkona, ÁSA GUÐMUNDSDÓTTIR DEGROOT, lést fimmtudaginn 30. nóvember síðastliðinn í Idleyld Park í Oregon-ríki, USA. Útför hennar fer fram þar laugardaginn 9. des- ember. Hulda H. Guðmundsson, Þórunn Guðmundsd. Jensen, Vagn Jensen, Harald Guðmundsson, Björg Einarsdóttir, Sveinn Guðmundsson, Ingrid Guðmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.