Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 7-L
Safnaðarstarf
Aðventukvöld í
Vídalínskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 10. des-
ember, verður aðventukvöld í Vída-
línskirkju í Garðabæ. Aðventukvöld
er fastur liður í starfí Garðasóknar
og hefur dagskráin verið í höndum
kórs Vídalínskirkju. Að þessu sinni
verður tónlistin enn fjölbreyttari en
áður. Auk kórs Vídalínskirkju syng-
ur nýstofnaður Kvennakór Garða-
bæjar tvö lög undir stjórn Ingibjarg-
ar Guðjónsdóttur sópransöngkonu.
Kórarnir syngja síðan saman tvö lög,
annað þeirra er Ó, helga nótt þar
sem Ingibjörg syngur einsöng. Und-
irleikur verður í höndum strengja-
sveitar, orgelleikara og annars af
heiðurslistamönnum Garðabæjar ár-
ið 2000; Peter Tompkins, sem leikur
á óbó. I lok aðventukvöldsins verður
ljósahátíð þegar nokkrar stúlkur
koma inn syngjandi með kertaljós.
Stjórnandi tónlistar á aðventukvöld-
inu verður organisti Garðasóknar,
Jóhann Baldvinsson. Allir eru vel-
komnir á aðventukvöldið, en að því
loknu verður boðið upp á súkkulaði
og piparkökur í Kirkjuhvoli, safnað-
arheimili kirkjunnar.
Kór Hrafnistu syng-
ur við guðsþjónustu í
Hafnarfj ar ðarkirkj u
SUNNUDAGINN 10. desember
næstkomandi mun Kór Hrafnistu í
Hafnarfírði syngja við guðsþjónustu
í Hafnarfjarðarkirkju. Kór Hrafn-
istu i Hafnarfirði var stofnaður síð-
sumars á liðnu sumri. Kórinn skipa
16 heimamenn við Hrafnistu og er
um blandaðan kór að ræða. Stjórn-
andi kórsins er Böðvar Magnússon
en hann er jafnframt stjórnandi fé-
lagsstarfs Hrafnistu í Hafnarfirði og
leikur hann undir söngnum. Kórinn
hefur til þessa sungið á ýmsum öldr-
unarheimilum á höfuðborgarsvæð-
inu. Það má teljast til afreka hjá
öldruðu fólki að læra ný lög og texta
á stuttum tíma og flytja þau opinber-
lega. En áhuginn „flytur fjöll“ og æft
er tvisvar í viku. Mun kórinn að
þessu sinni flytja lag eftir Pál Þor-
leifsson, heimilismann á Hrafnistu,
Hafnarfírði. Páll er fæddur 1910. A
unglingsárum söng hann með kór
Hérðasskólans að Laugarvatni undir
stjórn Þórðar Kristleifssonar. 1934
byrjaði Páll svo að syngja með karla-
kórnum Þröstum í Hafnarfirði og
hefur kórinn flutt sjö lög eftir hann.
Páll var m.a húsvörður í Flensborg-
arskóla í ein 20 ár. Ljóðið við lagið
sem kórinn flytur við guðsþjónust-
una er ort af Eiríki Pálssyni, sem er
fæddur 1911, en hann er þekktur
Hafnfirðingur, var bæjarstjóri 1945-
1948, síðan skattstjóri og forstjóri
Sólvangs. Kór H afn arfj arð arkirkj u
leiðir safnaðarsönginn undir stjórn
Natalíu Chow, en prestur er sr. Þór-
hallur Heimisson, sem jafnframt er
prestur á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Guðsþjónustan hefst kl. 11.00 og eru
allii' að sjálfsögðu velkomnir.
Samhljómur kirkna
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 11. desem-
ber kl. 20.30 verður fjallað um sam-
hljóm trúar og kirkna í safnaðar-
heimili St. Jósefskirkju í Hafnarfirði
á samkirkjulegu fræðslukvöldi á
vegum hennar og Hafnarfjarðar-
kirkju. Fjallað verður um samein-
andi tilbeiðsluhætti fyrr og nú og
leitað í þá fjársjóði sem kirkju- og
fagurtónlist aldanna hefur að geyma
og glæðir guðsvitund, samkennd og
lífslotningu. Hlýtt verður á tóndæmi
af hljómdiskum sem glöggt draga
þau verðmæti fram. Sr. Kristján Val-
ur Ingólfsson lektor og sr. Jakob
Roland og sr. Gunnþór Ingason
munu leiða þessa umfjöllun og stutta
helgistund sem á eftir fylgir í
kirkjunni. Allir eru velkomnir.
Gerðubergskórinn
og kaffisala í Breið-
holtskirkju
ANNAN sunnudag í aðventu, 10.
desember, fáum við ánægjulega
heimsókn í Breiðholtskirkju í Mjódd.
Þá kemur Gerðubergskórinn, kór fé-
lagsstarfsins í Gerðubergi, og syng-
ur við messu kl. 14 undir stjóm Kára
Friðrikssonar, en sú hefð hefur
skapast að kórinn syngi við messu í
kirkjunni þennan sunnudag og hefur
sú heimsókn ávallt verið mjög vel
heppnuð. Einnig munu þátttakendur
úr félagsstarfinu, þau Heiða
Tryggvadóttir, Jakob B. Þorsteins-
son, Ragna Hjartar og Þorkell Sig-
urðsson, lesa ritningarlestra og
bænir. Vakin skal athygli á því að
hér er um að ræða breyttan messu-
tíma frá því sem venjulegast er í
kirkjunni.
Að messu lokinni verður síðan
kaffisala Kvenfélags Breiðholts, en
félagið hefur alla tíð stutt safnaðar-
starfið og kirkjubygginguna af mikl-
um dugnaði og rausnarskap. Það er
von okkar að sem flestir safnaðar-
meðlimir og aðrir velunnarar
kirkjunnar og félagsstarfsins í
Gerðubergi hafi tækifæri til að taka
þátt í guðsþjónustunni og styðja síð-
an starf kvenfélagsins með þvi að
þiggja veitingar á eftir.
Sr. Gísli Jónasson.
Aðventusamkoma í
Nj ar ð ví kur kir kj u
Aðventusamkoma verður haldin
sunnudaginn 10. desember kl. 20.00.
Guðbjörg Böðvarsdóttir flytur hug-
leiðingu. Böm úr Tónlistarskóla
Þarftu
að hitta F
VEÍninn?
Hann verbur til vibtals
í NESTI 4 dag!
iagnvegi,
NESTI Ga
kl
NESTI Stórahjalla,
kl. 14-16
(0)
Olíufélagið hf
www.esso.is
Reykjanesbæjar koma fram. Ferm-
ingarböm lesa ritningarlestra. Lísa
Dóra Sigurðardóttir syngur einsöng.
Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir
stjórn Steinars Guðmundssonar org-
anista. Sóknarnefnd Innri-Njarðvík-
ursafnaðar og Systrafélag Njarðvík-
urkirkju bjóða upp á veitingar í
safnaðarheimilinu að samkomu í
kirkjunni lokinni. Þessi aðventu-
stund í gamla helgidómnum er öllum
opin og viljum við hvetja unga sem
aldna til að mæta og taka þátt í und-
irbúningi jólanna á aðventu.
Sóknarnefnd
Innri-Njarðvíkursafnaðar.
Aðventukvöld
Fríkirkjunnar í
Hafnarfírði
AÐVENTUSAMKOMA Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði verður haldin
sunnudagskvöldið 10. desember og
hefst dagskráin kl. 20:30.
Að venju verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá í tali og tónum.
Kirkjukórinn flytur séræft efni sem
tengist boðskap aðventu og jóla og
leiðir almennan safnaðarsöng.
Barnakór Fríkirkjunnar kemur
fram og syngur jólalög en stjómandi
beggja kóra er Þóra Vigdís Guð-
mundsdóttir organisti. Undirleik á
píanó annast Jón Sigurðsson. Þá
mun Örn Amarson koma fram og
syngja tvö lög ásamt kirkjukómum
og Örn syngur einnig tvísöng ásamt
Emu Kirstínu Blöndal söngkonu. Að
sjálfsögðu verður lesin jólasaga og
jólaljóð og mun Sóley Elíasdóttir sjá
um upplestur ásamt fleimm. Sam-
verunni lýkur með helgistund í um-
sjá prestanna og djáknans. Það er
von þeirra sem að dagskránni standa
að safnaðarfólk og gestir fjölmenni
til kirkjunnar og eigi þar fallega
kvöldstund við kertaljós í nánd jól-
anna.
Hólagarður
LANCÖME
PARIS
| www.lancome.com [jíj
Glæsileg LANCÖME jól!
Viðskiptavinir athugið,
LANCÖME jólavaran
fæst hjó okkur.
Fallegar gjafaöskjur
í miklu úrvali.
Chateau d’Ax
Borð og 6 stólar á mynd kr. 250.800,- stgr. Borðið er stækkanlegt úr 150x100 sm. í240x100 sm.
Veggskápur á mynd kostar kr. 237.400,- stgr., stærð 203 sm. br., 211 sm. h., 56 sm. d.
Raðgreiðslur
til allt að 36 mán.
öndvogl, Siðumúla 20, simi 568 8799, Hnfnartttrcotf 22 Ahuroyri, simi 461 1115.