Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 72
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Sími 587 7777
áí/aAa/cuv
Hyundai Starex H-1 Dfsel tur-
bo 12/99, 5g, álfelgur, 7manna,
snúningsstólar, o. fl., ek 10 þ.
km, bílalán 1800, v. 2290 þús.
Isuzu Trooper 3.0 Dísel turbo
8/1999, 5g, 32''dekk, ál- felgur,
filmur, dráttarkr, cd, og fl, bíl-
alán 2050, v. 2900 þús. einnig
sjálfsk,.
MMc Pajero 2.5 Tdi 1996, 5g,
32"dekk, dráttarkr, gott eintak,
ek 86 þ. km, bílalán 1100, v.
1790 þús.
Ford Explorer Xlt 4.0 1997,
sjálfsk, allt rafdr, ek 62 þ km,
bílalán 2.0 m v. 2190 þús.
Toyota Landcruiser 90 Vx
1997, sjálfsk, ný 32" dekk,
7manna, cd, o. fl., ek 87 þ km,
bílalán 2.1, v. 2890 þús.
Nissan Patrol 2.8 Tdi 3/1999,
*5g, eður, topplúga, ek 35 þ
km, v. 3490 þús. (einnig árg
2000 3.0L- 30"-38" dekk).
Suzuki Vitara jlxi Se 8/1998,
5g, allt rafdr, ek 74 þ km, verð
1350 þús, jólatilboð 990 stgr.
Landrover Defender 9m Td-5
11/1999, v. 2790 þús.
‘ Landrover Freelander Lx
6/2000, v. 2250 þús.
Opel Zafira 1.6 Comfort
8/2000, v, 1660 þús.
Kia Grand Sportage 2000.
Range Rover 4.0 10/2000,
v. 5850 þús.
Skráðu bílinn á www.litla.is
Funahöfða 1 - Fax 587 3433
www.litla.is
Mmc Pajero Sport President
2.5 Tdi President 8/2000, 5g,
leðurinnr., topplúga, álfelgur,
dráttarkr., o. fl., ek 8 þ. km,
bilalán 2300, v. 3150 þús.
Mmc Pajero V6 3.5 1994,
sjálfsk, 35"dekk, sóllúga, ál- f-
elgur, cd, dráttarkr og fl, ek.
113 þ. km, einnig árg 1992,
32"dekk (35"br) þ. km, gott ein-
tak v. 1250 þús.
Lifandi jólaljós á jólatré
Aðventutónlistar-
guðsþjónusta í
Fella-og Hólakirkju
ANNAN sunnudag í aðventu, 10.
desember, verður bamaguðsþjón-
usta í Felia- og Hólakirkju á hefð-
bundnum tíma kl. 11:00 í safnaðar-
heimilinu í umsjón Margrétar Ó.
Magnúsdóttur. I stundinni verður
einnig jólaíöndur. Aðventutónlistar-
guðsþjónusta verður í kirkjunni
sama dag kl. 14:00. Sr. Hreinn
Hjartarson predikar og þjónar fyrir
altari. Lilja G. Hallgrímsdóttir
djákni aðstoðar við guðsþjónustuna.
Flutt verður aðventutónlist eftir
ýmsa höfunda, m.a. Atla Heimi
Sveinsson og J.S. Bach. Flautuleik-
ararnir Guðrún Birgisdóttir og
Martial Nardeau, Peter Maté, píanó-
og orgelleikari, flytja tónlistina
ásamt kór Fella- og Hólakirkju og
Mettu Helgadóttur sem syngur ein-
söng. Stjórnandi er Lenka Mátéová,
organisti og kórstjóri Fella- og Hóla-
kirkju. Eftir guðsþjónustuna er
kirkjugestum boðið í safnaðarheimil-
ið þar sem rjúkandi súkkulaði og
smákökur bíða þeirra. Njótum að-
ventunnar í húsi Drottins og í rólegu
samfélagi í safnaðarheimilinu.
Fella- og Hólakirkja.
Færeysk aðventu-
guðsþjónusta í
Hafnarfjarðarkirkju
SUNNUDAGINN kemur, 10. des-
ember, kl. 17.00 mun fara fram fær-
eysk aðventuguðsþjónusta í Hafnar-
fjarðarkirkju.
Sr. Bergur Debes Joensen sókn-
arprestur í Þórshöfn í Færeyjum
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sr. Gunnþóri Ingasyni sóknarpresti.
Petur Nolsoj trúboði í færeyska sjó-
mannastarfinu hér á landi annast
meðhjálparastörf. Sungnir verða
færeyskir sálmar og horft til þýðing-
armikillar vináttu og samskipta
bræðraþjóðanna Færeyinga og ís-
lendinga fyrr og nú. Organisti er
Natalia Chow. Eftir guðsþjónustuna
er boðið til kirkjukaffis í Ljósbroti
Strandbergs, safnaðarheimilis Hafn-
arfjarðarkirkju. Ánægjulegt væri að
Færeyingar og velunnarar þeirra
fjölmenntu til þessarar færeysku
guðsþjónustu.
Prestar Hafnarfjarðar kirkj u.
Furðuleikhúsið
heimsækir
sunnudagaskóla
Laugarneskirkju
„LEITIN að Jesú“ er yfirskrift jóla-
leikþáttar, sem sýndur verður í
sunnudagaskólanum í Laugarnes-
kirkju á sunnudaginn. Það er Furðu-
leikhúsið sem sýnir og við hin hlökk-
um til. Messan hefst að venju kl.
11:00 þar sem böm og fullorðnir eiga
samleið fyrstu mínútumar. Kveikt
verður á aðventukransinum, barn
borið til skírnar og börnin fá að
koma upp og syngja fyrir kirkjugest-
KIRKJUSTARF
KVEIKUR
Það ljós sem í hönd þinni lýsir best
er lítið eitt kerti á jólum.
Þótt bemska vor líði og bam hafi elst
þá bjarmar það ofar sólum.
Og skuggamir hverfa ef skilurðu veg
að skjóli frá Drottins barmi.
Því ungur og gamall og einnig ég
mun eiga þar von í harmi.
Geym ætíð þá dýrð, sem undrið þitt var
frá æskunnar glóð í höndum
með lítið kerti, sem kærleikann bar
að Kristi frá öllum löndum.
Krístiim Gísli Magnússon.
ina og skírnarbamið. Síðan fá þau að
ganga yfir í safnaðarheimilið áður en
prédikun og altarisganga hefst. Það
verður skemmtileg og áhugaverð
stund. Verið velkomin í Laugarnes-
kirkju.
Omar Ragnarsson
á aðventuhátíð
Fríkirkjunnar
í Reykjavík
AÐVE NTUHÁTÍÐ verður haldin í
Fríkirkjunni í Reykjavík næstkom-
andi sunnudag, sem er annar sunnu-
dagur í aðventu. Aðventan er helgur
undirbúningstími jólanna þar sem
fjölskyldur reyna að fjölga samveru-
stundum og undirbúa komu hátíðar-
innar jafnt í anda og verki.
Bama- og fjölskyldumessa er
kl. 11.00 um morguninn og þar mun
Kvennakór Reykjavíkur leiða safn-
aðarsönginn. Foreldrar em sérstak-
lega hvattir til þess að koma með
bömum sínum. Bamasamvera dags-
ins er í höndum Elfu Bjarkar
ÁLgústsdóttur æskulýðsleiðtoga. Um
kvöldið, kl. 20:30, verður hið vinsæla
aðventukvöld, sem kallar unga sem
aldna til kirkjunnar, enda kirkjan
jafnan þéttsetin á þessu kvöldi. Þar
munu Kór og hljómsveit Fríkirkj-
unnar í Reykjavík verða með fjöl-
breytta tónlistardagskrá. Flutt verð-
ur kantatan „Nun komm der heiden
Heiland“ eða á íslensku „Nú kemur
heiðinna hjálparráð“, BtW 61, eftir
J.S. Bach. Flytjendur, ásamt kór og
hljómsveit kirkjunnar, em þau Mar-
grét Ámadóttir sópran, Eyjólfur
Eyjólfsson tenór og Hjálmar Péturs-
son bassi. Einnig verða sungnir létt-
ir jólasöngvar í útsetningu Willkocks
og fleiri. Stjómandi er Kári Þormar.
Ræðumaður kvöldsins er Ómar
Ragnarsson. En hann er landsþekkt-
ur fjölmiðlamaður með meim, og á
hann rætur að rekja til Fríkirkju-
safnaðarins. Ailt frá upphafi
aðventukvöldanna hefur leikmaður
stigið í stólinn og flutt ræðu. Það
fylgir því ætíð eftirvænting að fá
leikmann til þessa verks og því er
Ómar sérstaklega boðinn velkominn.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
Aðventukvöld
í Óháða
söfnuðinum
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 10. des-
ember kl. 20.30 verður endurkomu-
kvöld/aðventukvöld í kirkju Óháða
safnaðarins.
Bamakór Fella- og Hólakirkju
syngur ásamt kór safnaðarins undir
stjórn Péturs Máté við undirleik
Pavel Manasek. Kjartan Ólafsson
flytur hugleiðingu og í lokin er
smakk á smákökunum með viðtek-
inni varavætingu.
Aðventukvöld
í Skálholtskirkju
SUNNUDAGINN 10. des. verður
haldið aðventukvöld í Skálholts-
kirkju og hefst það kl. 21. Þar mun
Ámi Johnsen alþingismaður flytja
hugvekju. Frú Rósa B. Blöndals
mun flytja Ijóð.
Á samkomunni verður fjölbreytt-
ur tónlistarflutningur undir stjórn
organistanna og söngstjóranna
Hilmars Amar Agnarssonar og Guð-
jóns Halldórs Óskarssonar. Kórarn-
ir sem koma fram em Skálholtskór-
inn, Barna- og kammerkór
Biskupstungna og Samkór Rangæ-
inga. Einsöngvarar verða Bergþór
Pálsson og Gísli Stefánsson. Krist-
rún H. Bjömsdóttir og Petrea Ósk-
arsdóttir leika á þverflautu. Sophie
Schoonjans leikur á hörpu.
Að lokinni athöfninni er kirkju-
gestum boðið að þiggja kaffiveiting-
ar í boði Skálholtsstaðar. Er það nú í
sjöunda sinn, að haldið er slíkt að-
ventukvöld í Skálholti og hefur það
reynst uppbyggilegur þáttur í föstu-
iðkunum okkar fyrir jólin og er þess
vænst að svo verði enn.
Sigurður Sigurðarson
Aðventuhátíð
fjölskyldunnar
í Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 10. desember,
annan sunnudag í aðventu, verður
aðventuhátíð fjölskyldunnar í
Hjallakirkju kl. 17. Þetta er
skemmtileg stund fyrir alla fjöl-
skylduna með léttri jóladagskrá,
söngvum og sögum. Furðuleikhúsið
flytur stutt bamaleikrit um litla
stúlku sem leitar að Jesú í iðu jóla-
undirbúningsins. Krakkar úr 5. bekk
kórs Snælandsskóla syngja undir
stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur. Þá
syngjum við öll að sjálfsögðu jóla-
söngva saman og njótum stundar-
innar í kirkjunni. Að henni lokinni
verður boðið upp á kakó og pipar-
kökur í safnaðarsal kirkjunnar. Við
hvetjum fjölskyldur til að fjölmenna
á aðventuhátíðina, allir em hjartan-
lega velkomnir.
Neskirkja. Félagsstarf eldri borgara
kl. 14. Jólahátíð. Jólahlaðborð. Litli
kórinn og Inga J. Bachmann, ein-
söngvari syngja. Reynir Jónasson
stjómar tónlist og almennum söng.
Gengið í kringum jólatréð. Veislu-
stjóm og hugvekja era í höndum sr.
Halldórs Reynissonar. Munið
kirkjubílinn. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja. AA-hópur kl. 11.
Fríkirkjan Vegurinn: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Brauðsbrotning.
Samkoma kl. 20. Brauðsbrotning.
Högni Valsson prédikar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS: Vitnisburðarsamkoma í
dag, laugardag, kl. 14. Basar á morg-
un, sunnudag, kl. 14-17. Þar verða
m.a. til sölu heimabakaðar kökur,
skreytingar og ýmsar fallegar gjafa-
vörur. Nýbakaðar vöfflur og rjúk-
andi kaffi selt á vægu verði og lof-
gjörðartónlist leikin og sungin. Allur
ágóði rennur í kirkjubyggingarsjóð
safnaðarins. Allir velkomnir. Þriðju-
d.: Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.:
Samvemstund unga fólksins kl.
20.30. Föstud.: Bænastund unga
fólksins kl. 19.30. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10^12 ára) kl. 13. Um-
sjón: Hreiðar Öm Stefánsson.
BRIDS
Uinsjón Arnðr G.
Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
í dag kl. 13 verður haldið jóla-
mót, hraðsveitakeppni, og verður
spilað í félagsheimilinu á Mána-
gmnd. Veitt verða verðlaun fyrir
þrjú efstu sætin.
Jólatvímenningur er í fullum
gangi og er lokið fyrsta kvöldinu af
þremur. Staða efstu para er nú
þessi:
Garðar Garðarss. - Óli Þór Kjartanss. 38
Randver Ragnarss. - Jón Bj. Stefánss. 35
Karl G. Karlss. - Amór Ragnarss. 28
Björn Dúason - Karl Einarss. 17
Önnur umferð verður spiluð á
mánudagskvöld kl. 19.30.
Opna Borgarfjarðarmótið
í tvímenningi
Nú er lokið 5 kvöldum af 6 í Opna
Borgarfjarðarmótinu í tvímenningi
en mótið er samstarfsverkefni
bridsfélaganna í Borgarfirði og
Borgarnesi. Þátttaka er mjög góð
eða 24 pör. Auk heimaspilara mæta
keppendur frá Akranesi, Hrútafirði
og Reykjavík. Spilað hefur verið til
skiptis í Borgarnesi og Reykholts-
dal. Keppnin hefur farið hið besta
fram og ljóst að framhald verður á
samvinnu af þessu tagi. Fimmta
kvöldið skomðu eftirtalin pör best:
Gunnar Valgeirss, - Hösk. Gunnarss. 54
Birgir Jónsson - Ólafur Flosason 45
Jón Einarsson - Guðmundur Arason 44
Og fyrir síðasta kvöldið er staðan
þessi:
Alda Guðnad. - Kristján B. Snorrason 251
Birgir Jónsson - Ólafur Flosason 171
Guðm. Ólafss. - Hallgrímur Rögnvaldss.116
Jón Einarsson - Guðm Arason 110
Guðjón Karlss. - Jón Ágúst Guðmundss. 91
Jón Pétursson - Magnús Magnússon 66
Bridshátíð
Vesturlands
Bridshátíð Vesturlands verður
spiluð helgina 6. og 7. janúar nk. á
Hótel Borgamesi. Keppnin verður
með sama sniði og undanfarin ár
þannig að sveitakeppnin verður spil-
uð á laugardeginum og tvímenning-
ur á sunnudeginum. Hótel Borgar-
nes býður helgarpakka á góðu verði
og að sjálfsögðu verða góð verðlaun
í boði. Nú er bara að taka helgina
frá í tíma og njóta hennar í góðum
félagsskap Vestlendinga og gesta
þeirra.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á ellefu borðum
fimmtudaginn 7. desember. Miðl-
ungur var 200. Beztum árangri
náðu:
NS
Andrés Bertelsson - Bragi Melax 265
Sigurður Gunnlaugss. - Sigurpáll Ámas.264
Kristján Guðm. - Sigurður Jóhannss 232
AV
Þorgerður Sigurgeirsd. - Stefán Friðbj. 259
Díana Kristjánsd. - Ari Þórðarson 242
Óla Jónsdóttir - Anna Jónsdóttir 242
Tvímenningur verður spilaður
mánudaginn 11. desember. Síðasti
spiladagur fyrir jól fimmtudaginn
14. desember - Jólakaffi. Mæting
kl. 12.45 báða dagana.
Bridsdeild Félags eldri borgara
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði í Glæsibæ fimmtudaginn 30.
nóvember. 26 pör. Meðalskor 216
stig.
Arangur N-S:
Alfreð Kristjánss. - Birgir Sigurðss. 301
Jón Stefánss. - Sæmundur Björnss. 285
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 254
Árangur A-V:
Sigurleifur Guðjónss. - Oliver Kristóf. 276
Óskar Þráinss. - Albert Þorsteinss. 261
Hannes Ingibergss. - Björn E. Péturss. 259
Tvímenningskeppni spiluð mánu-
daginn 4. desember. 22 pör. Meðal-
skor 216 stig.
Árangur N-S:
Kristján Olafss. - Eysteinn Einarss. 276
Sigurður Pálss. - Halla Ólafsd. 228
ViggóNordquist-GunnarAndréss. 222
Árangur A-V:
Hannes Ingibergss. - Bjöm E. Péturss. 254
Alda Hansen - Margrét Margeirsd. 245
Þorsteinn Laufdal - Magnús Halldórss. 233