Morgunblaðið - 09.12.2000, Side 87
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 87^
Gæða-
legjól
TOJVLIST
Geislaplata
JÓLAPLATAN
Jólaplatan með Borgardætrum
Söngur Andrea Gylfadóttir, Berg-
lind Björk Jónasdóttir og Ellen
Kristjánsdóttir.
Lögin sömdu ýmsir útlendingar.
Textar eftir Andreu Gylfadóttur,
Kára Waage, Ómar Ragnarsson,
Friðrik Erlingsson, Loft Guðmun-
dsson og Ólaf Gauk. Hljóðfæraleik-
ur: Gítar: Eðvar Lárusson. Kontra-
bassi: Gunnlaugur Guðmundsson,
Birgir Bragason og Valdimar Kol-
beinn Siguijónsson. Trommur: Ein-
ar Valur Scheving, Matthías Hem-
stock, Jóhann Hjörleifsson, Helgi
Svavar Helgason. Píanó, harmo-
nikka, sleðabjöllur, bassi, raf-
strengir: Eyþór Gunnarsson. Skeið-
ar: Berglind Björk Jónasdóttir.
Blásarar: Einar Jónsson, Sigurður
Flosason, Jóel Pálsson. Strengir:
Szymon Kuran, Herdís Jónsdóttir.
Lúðrasveit: Birkir Freyr Matthías-
son, Kjartan Hákonarson, Davíð
Þór Jónsson, Samúel Jón Samúels-
son, Þórhallur I. Halldórsson.
Upptökustjóm: Eyþór Gunnarsson.
Upptaka og hljóðblöndun: Eyþór
Gunnarsson og Gunnar Smári
Helgason.
ÞAÐ ER amerískur jólabragur
yfir jólabami Borgardætranna,
enda inniheldur hún ýmis kunnug-
leg jólalög sem orðið hafa til vest-
anhafs. Þó voru einhver lög á plöt-
unni sem ég hafði ekki heyrt áður.
Lögin sem Borgardæturnar hafa
valið að syngja eru eins konar jóla-
dægurlög, létt og grípandi. í raun
gætu sum þeirra, ef jólatexta og
sleðabjöllum væri sleppt, verið ást-
arlög eða jafnvel sumarlög. En við
þekkjum þessi lög sem jólalög og
ekki er hægt að segja annað en að
stemmningin yfir plötunni sé öll
hin jólalegasta, hlýleg og umvefj-
andi.
Lipur flutningur Borgardætra
og meðleikara færir mann til eftir-
stríðsáranna í Bandaríkjunum, þar
sem fyrirmyndar millistéttafjöl-
skyldan heldur sín jól, sbr. „hann
FÓLK í FRÉTTUM
fékk bók en hún
fékk nál og tvinna".
En það sem kemur
svo sem hressandi mót
vægi við þetta eru góð-
ir íslenskir textar,
þar sem t.d. rjúpur,
Laugavegur, Grýla,
skötuveisla og
brennivín koma við
sögu. Því má segja að
platan sé vel stað-
færð fyrir okkur Is-
lendinga. Reyndar
er það eitt helsta
aðalsmerki plötunnar
hversu góðir textarnir
eru, hér á ég þó sér-
staklega við nýju
textana. Þeir eru mjög
sönghæfir en samt
hnittnir og skemmtileg-
ir.
Ef litið er á plötuna
í heild sinni er hug-
myndin á bak við
hana ekki ýkja frum-
leg. Utsetningarnar
næstum að öllu stældar
eftir frumgerðunum og flutningur-
inn samkvæmt því. En þá kemur
aftur á móti upp sú spurning hvort
fólk vilji einlægt heyra eitthvað
frumlegt þegar kemur að jólunum?
Hvað sem slíkum spursmálum líð-
ur, þá verður að segjast að flutn-
ingurinn á þessari plötu er í alla
staði frábær. Það yrði endalaus lof-
semdarræða ef ég ætlaði mér að
útlista hvað er gott og hverjir eru
góðir í hljóðfæraleiknum. Þessir
rúmlega tuttugu einstaklingar skil-
uðu einfaldlega sínu, lipurlega og
músíkalskt, og mynduðu þannig
„Það sem er aðdáunarvert
við Borgardætumar sjálfar
er hversu ótrúlega samhæfð-
ar þær eru.“
fullkomna og al-
gjörlega nauðsyn-
lega umgjörð utan
um söng Dætranna.
Það sem er aðdá-
unarvert við Borgar-
dæturnar sjálfar er
hversu ótrúlega
samhæfðar þær
eru. Það er erfitt
að samhæfa þrjár
söngraddir í
frjálsum dægur-
lagasöng svo út-
koman verði
sannfærandi, en
þegar þær stöllur
syngja saman,
syngja þær
bókstaflega eins og
einn maður. Radd-
irnar stemma mjög
vel innbyrðis og
aldrei ber meira á
einni þeirra en hinum.
Einsöngslínumar eru
ágætis tilbreyting, en
þær fölna eiginlega í
samanburði við sam-
sönginn, sem hefur ein-
hverja fyllingu og dýpt sem erfitt
er að koma fingrinum á. Jólaplatan
frá Borgardætrum er samkvæm
þeirri tónlist sem við erum vön að
hafa í eyrunum um jólin og að auki
er hún mjög gæðaleg í alla staði.
Það vakna því upp þessar „nosta-
lgíu“-tilfinningar sem loða við jólin,
strax við fyrstu hlustun. Því ætti
ekkert að vera því til fyrirstöðu að
hún seljist vel og verði að ástsælli
jólaplötu.
Ólöf Helga Einarsdóttir
1928, á horni Laugavegs og Klapparstígs, sími 552 2515.
Gott vejrð - mikið úrvai
Cappuccino bollasett á aðeins
Hárnákvæm baðvog
2.499 kr.
Sígild og vinsæl loftvog
með hita- og rakamæli
Mikið úrval af serfum og aukaperum
Hitakönnur í öllum regnboganslitum
Úr þessum amerísku pottum er t
að hella án þess að taka lokið af
Snagar frá hinum virtu
hönnuðum Interdesign
með kampavinið
eint I fötunal
lulegasta bai
Tvöfaldur hitabrúsi, ryðfrftt stál
og engin glerflaska
verslanir
íKriníminndag^| ff
taugardag, kl. 13 til 15:30 | |
sseti
metsölulistans
etní
Atmennt
nov
Fimmtán manns voru klukkustundum saman í stórkostlegri
lífshættu ofan á þaki rútu í beljandi Jökulsá á Fjöllum í sumar, |
eftir að straumurinn hafði borið rútuna rúman hálfan kílómetra.
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa fengið feiknagóðar
viðtökur hjá lesendum. Þær lýsa mannraunum, kjarki og áræði
venjulegs fólks og eru bæði spennandi og lipurlega skrifaðar. ||
Það kunna lesendur að meta.
1
1
I
),Seiður Grænlands er skemmtileg aflestrar og í bókinni
eru óborganlegar frásagnir. Höfúndurinn er lipur penni og
skrifar af smitandi áhuga...
Seiður Grænlands slær óviðbúinn lesanda þess konar
töfrum að fyrr en varir er hann genginn inn í heim
ævintýrisins og leggur hana ekki frá sérfyrr en fulllesna.u
I
(Hrafn Jökulsson, Bókavefurinn)
;
ÍSLENSKA BÓKAÚTGÁFAN
Dalvegi 16b, sími 554 7700