Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 90
90 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
•Sf------------------- -----
FOLKI FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Ifl
3
3
5-
<
0
$
a
c
3
ÞRÁÐLAUS SÍMI
MEÐ NÚMERABIRTI
• 12 númer í minni
• Hringt beint
úr númerabirtingaminni
• Hægt að tengja við simkerfi
Doro
www.mbl.is
Óþolandibók-
in skemmtir
Allt í senn, gamanrit, fræðirit og
uppflettirit er Óþolandibókin
eftir Önnu Jóhannesdóttur og
Ernu Guðmundsdóttur. Þær spjöll-
uðu við Asgeir Ingvarsson
blaðamann um pirrandi hluti.
„ÞAÐ SEM ER óþolandi: - þegar maður þarf að flýta sér
- Ijóslausir bflar - skán á kakóinu.“ Þannig hefst Öþol-
andibókin eftir þær vinkonurnar Önnu og Emu.
„Vinur okkar benti okkur á við væmm alltaf að tala
um eitthvað óþolandi," segir Anna. „Við byrjuðum síðan í
gamni að safna þessu saman og ákváðum fyrir stuttu að
gefa þetta allt út.“
Bókin gæti í senn flokkast sem gaman-, uppfletti- og
fræðirit. „Flestir kannast við það sem er rætt um í bók-
inni. Þú notar hana t.d. ef þú lendir í þrasi við einhvem.
Þá flettirðu upp á hvað er þreytandi við viðkomandi."
Hver kannast t.d. ekki við að missa af uppáhalds sjón-
varpsþættinum sínum? - sannarlega óþolandi! Anna seg-
ist eiga sér „uppálialds" óþolandiatriði: að bi'ta í tunguna
á sér „mér finnst það mjög óþolandi og lendi oft í því.“
Bókin kemur ekki einungis út á pappír, heldur verður
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þær eru allt annað en óþolandi,; Anna og Erna.
einnig hægt að nálgast efni hennar á Viti og vitleysu,
SMS-þjónustu Tals. „Það verður hægt að fá sendan frasa
úr bókinni í GSM-súnann þinn. Þá, ef þú vilt fá eitthvað
óþolandi þá biðurðu bara um SMS.“ Þær Anna og Ema
búast hins vegar ekki við að fólk verði pirrað af að lesa
bókina. „Þetta em hlutir sem að flestir kannast við og
hafa lent í - en em mjög fyndnir eftir á“ og blaðamaður
rekur augun f texta f bókinni: þegar allt góða nammið
er búið úr Mackintosh dollunni“ og gnístir tönnum.
Óþolandibókin verður til söiu í öllum betri bókabúðum
og einnig bensínstöðvum Olís og verður, að sögn stelpn-
anna, ódýr og tilvalin gjöf handa hveijum þeim sem
vantar óþolandi hluti til að kætast yfir. Blaðamaður á
vafalítið eftir að fletta upp í bókinni ef hann er niður-
dreginn, glotta við og hugsa með sjálfum sér „að minnsta
kosti er ég ekki með meira hár í nefinu en á hausnum."
Tónlist fyrir alla fjölskylduna
ÍSLENSKU DISNEY LÖGIN
Loksins eru nokkur af bestu íslensku Disney-
lögunum sem allir þekkja komin saman á eina
plötu. Lög úr myndunum Konungur Ljónanna,
Herkúles, Pocahontas og fleirum. Þau eru í
flutningi frábærra listamanna, (þeirra sömu og
syngja þau í myndunum) Selmu Björnsdóttur,
Stefáns Hilmarssonar, Ladda, KK og fleiri. TARZAN DINOSAUR FANTASIA
Dynosaur 102 Dalmatians Jungle Book Donald
Töfrar Disney í tölvuna þína
m
Stutt
Maður
bítur hund
ÞAÐ ER margt
furðulegtí
henni Ameríku.
Það sést hvað
bestáSteven
Maul sem nú á
yfir höfði sér
refsingu fyrir
slæma meðferð á dýrum eftir að
hafa bitáð hundinn sinn.
Málavextir voru þeir að
hundur Stevens, Boo, stórvax-
inn labradorhundur, slapp út á
götu þar sem þeir búa í San
Francisco. Steven náði Boo áð-
ur en hann fór sér að voða og, til
að sýna honum að hann mætti
ekki gera svona, tók utan um
hundinn og beit hann í hálsinn,
að eigin sögn á hátt sem tíðkast
innbyrðis hjá hundum til að
sýna vald yfir hinum bitna.
Steven á víst ekki að hafa meitt
hundinn, að minnsta kosti fékk
hundurinn Boo ekki sár af bit-
inu. Að sögn lögfræðings
Stevens er hann mjög tengdur
hundinum sínum, og „munnleg-
ur“ í samskiptum sínum við
hann og kyssir hann jafnvel
frönskum kossum.
Bit-þjálfunaraðferðin hefur
verið rannsökuð af hundarækt-
endum í áranna rás en verið
mjög umdeild og hart gagnrýnd.
Hundaeigendur í vesturheimi
virðast hinsvegar vera tengdari
hinum ferfættu vinum sínum en
tíðkast hér heima, ef eitthvað er
að marka atlot Stevens við
hundinn sinn, og verður fólki
ósjálirátt hugsað til minnisstæðs
vinskapar aldraðrar konu og
hunds hennar í myndinni Það er
eitthvað við Máry.
Svalar
nærbrækur
JAPANSKA fyrirtækið Miz-
uno hefur að sögn þróað nýtt
gerviefni fyrir nærbrækur
karlmanna sem heldur hinum
verðmæta miðjuhluta lík-
amans einni celsíusgráðu sval-
ari en sambærilegar bómullar-
nærbuxur myndu gera.
Þessi eiginleiki er talinn munu
reynast gagnlegur íþrótta-
mönnum og þeim sem vilja
auka sæðisfrumumagn sitt, en
sæðisframleiðsla er víst mest
við hitastig aðeins undir
líkamshita, enda hefúr náttúr-
an hagað því svo að kynfæri
karlmanna eru staðsett utan
líkamans þar sem betur gustar
um.
Keppinautar Mizuno efast
þó um yfirlýsingar fyrirtækis-
ins um yfirburðagæði: „ Við
höfum bara ekki enn haft f
okkur kjark til að mæla hita-
stigið í klofi rnanna."
Sjóræningja-
afkomendur
krefjast lands
AFKOMENDUr sjóræningjans
Robert Edwards hafa krafist
eignar á 77 ekrum lands á Man-
hattan-eyju. Krafan grundvall-
ast á skjali sem nýlega var upp-
götvað af einum afkomanda
Róberts þar sem Georg Bret-
landskonungur leigir landið af
Róberti til einnar aldar, og sem
lýkur á klausu um að landið skuli
að loknum samningstímanum
(1778-1877) afhent afkomendum
sjóræningjans aftur. Landsvæð-
ið, þar sem nú standa bygging-
ar á borð við World Trade
Center og verðbréfamarkað
New York, er lauslega metið á
andvirði 750 milljarða banda-
ríkjadala eða um 64.000 millj-
arða íslenskra króna.