Skírnir - 01.01.1857, Side 75
Spánn.
FRÉTTIK.
77
hélt þv! drottníng honum í rábaneyti sínu af naubsyn einni en ekki
af ást. Espartero er hinn drenglyndasti mabur, fyrir því uggbi hann
eigi vini sína, því hann gat eigi ætlab þeim svik og undirferli.
Margir höfbu sagt þab ljóst og í rábgátu, ab O’Donnel væri eigi
trúanda, hann væri mabur ósvífinn og hugsabi eigi um annab en
ab koma sjálfum sér fram, mundi hann því svikja tryggbavin sinn
og þjóbarinnar, Espartero, og steypa hæbi honum og þjóbfrelsinu
undir eins og færi gæfist. — O’Donnel er írskur ab ætt og upp-
runa; hann er hraustur hermabur, harbsnúinu og mi^lúngi tryggur.
Engar vinsældir hefir hann getib sér hjá alþýbu maMia, og aldrei
hefbi uppreist sú hin síbasta orbib alþjóbleg, né henni sigurs aubib,
ef Espartero hefbi eigi komib til sögunnar og helgab hana meb
nafni sinu og áliti. Sá er og munur þeirra Esparteros og O’Donnels,
ab Espartero er hinn frjálslyndasti og ósérplægnasti mabur, en hinn
eigingjarn og ekki frjálslyndur framar en honum þykir bezt henta.
En þab dró helzt til vináttu meb þeim, ab Espartero þótti vænt um
O’Donnel fyrir snarræbi hans og ötulleik, þvi hann var sjálfur
hvílrækinn, svo var og O’Donnel vel látinn af mörgum höfbíngjum;
ekki gat Espartero heldur grunab hann um græzku, þótt O’Donnel
gerbi ábur samblástur gegn honum 1841, því hann vissi, ab ekki
mundi O’Donnel komast langt, ef hann missti sin vib. En nú
fór þó svo, sem verr gegndi; O’Donnel var búinn ab undirbúa
allt ab rábi drottníngar, þá er hún skyldi leggja samþykki sitt á
stjómlög þíngsins; hann lét hefja þrætu á stefnu rábgjafanna, og
kom því svo fyrir, ab Espartero og allir hans menn bábu drottníng
um lausn, og var O’Donnel einn af þeim; en nú fór svo, sem
Espartero sízt varbi, ab drottníng tók fúslega beibni Esparteros, en
bab O’Donnel þegar ab taka sér nýja menn í rábaneyti. þegar
er borgarmönnum barst þessi fregn, hlupu allir til vopna, en þíng-
menn, þeir sem eptir voru í horginni, komu á fund saman; en
O’Donnel hafbi búizt vib öliu þessu, hann hafbi lib vígbúib og fór
á móti borgarmönnum. Var þá barizt í samfleyttar 26 stundir, en
þá gáfust borgarmenn upp, en O’Donnel bar sigur úr býtum.
Espartero var eigi í þessu upphlaupi borgarmanna, enda mundi og
hafa öbru vísi til tekizt, ef borgarmenn hefbi séb hann í broddi
fylkíngar og hann liefbi stjórnab þeim meb herkænsku sinni.