Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1888, Page 11

Skírnir - 01.01.1888, Page 11
EVKÓPA ÁRIÐ 1887. 13 Stambúloff sagði, að Ferdínand af Coburg mundi taka við furstatign, ef hann yrði kosinn. Furstakosningin fór fram 7. júlí og Ferdínand var kosinn með miklum atkvæðaíjölda. Nefnd manna var síðan send eptir honum til Vínar. Ferdí- nand bjó í höllinni Ebenthal nálægt Vín og tók hann mæta vei við sendimönnum, þakkaði fyrir kosninguna með fögrum orðum og sagði, að hann væri boðinn og búinn að fara með þeim, ef það væri vilji stórveldanna og soldáns. þetta líkaði sendimönnum ekki en biðu samt og biðu, heilan mánuð, meðan Ferdínand var að leita fyrir sér hjá stórveldunum enda gaf hann þeim góðar vonir. Hann ritaði nú Rússakeisara bréf og fékk það svar, að allt þetta atferli Búlgara væri ólöglegt. Nú fór sendimönnum að leiðast, en blaðmenn frá Vin sátu um Ferdínand dag og nótt og tindu upp orð hans og gjörðir. Ferdínand vissi að Austurrikismenn og Ungverjar voru honum vinveittir og að þeir leyfðu búlgörskum unglingum að ganga á hermannaskóla sina. Honum hugsaðist nú það snjaliræði, að fara að stórveldunum fornspurðum, því hann sá að enginn mundi leggja úti, að senda her til að reka sig burt þaðan og þó að einhver vildi gera það, þá mundu hin stórveldin ekki leyfa það. Við soldán var hann ekki hræddur. Hann lagði af stað. Stambúloff og aðrir höfðingjar tóku á móti honum á Dóná, þar sem hún skilur löndin. Ræður og fagnaðarskothríðir dundu um hann, en hann varð að bregða fyrir sig frönsku, því hann kunni iitið sem ekkert i búlgörsku. Alexander var ekki betur fagnað, þegar hann kom úr herferðinni móti Serbum. Hann var borinn á öxlum hermanna um göturnar í sumum bæjum, enda veitti hann óspart kampavín, þvi maðurinn er vellauðugur. Móðir hans er af hinni ríku Orleans-ætt og hafði hún eggjað hann manna mest á þessa för. Nú lögðu Rússar fast að Tyrkjasoldáni, að hann skyldi reka þenna gest úr lönd- um sinum og neyta réttar síns. En sjálfur Hundtyrkinn vildi ekki verða til, að hengja bjölluna á köttinn, hvað þá heldur aðrir. Sendiherra Englendinga í Constantinopel, White, sat líka stöðugt við annað eyrað á honum og vóg salt við Nelidoff, sendiherra Rússa. Nú kom atvik fyrir, sem sýndi að Bismarck

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.