Skírnir - 01.01.1888, Qupperneq 12
14
EVRÓPA ÁRIÐ 1887.
var illa við stjórnarbreytinguna í Búlgaríu. Blað bæjar-
stjórans i Rúsjtjúk hafði eitthvað styggt hinn þýzka konsúl í
bænura og þá heimtaði Bismarck strax, að bæjarstjóri yrði
settur af, blaðið gert upptækt og ritstjóri þess settur í fangelsi.
Minna mátti það ekki vera, og hann beiddi Tyrki leyfis, að
mega senda 8 pansaraskip inn i Svartahaf móti Búlgörum. En
til þess kom ekki, því Búlgarar gerðu strax það sem hann heimt-
aði. Ferdínand fór nú að koma sér á laggirnar í hægðum
sinum. Kosningar voru til þings í októberm. og mikill fjöldi hinna
nýju þingmanna voru fylgismenn stjórnarinnar. Rússar sömdu
nú við Tyrki og bótuðu þeim, að heimta herkostnað, sem þeir
eiga hjá þeim síðan 1878, en Tyrkinn fór undan i flæmingi
og dró allt á langinn eins og hann er vanur með hógværð.
Uppástunga kom frá Rússum í september, að rússneskur her-
foringi og tyrkneskur umboðsmaður, skyldi setja nýja stjórn og
láta velja nýtt þing í Búlgaríu. Tyrkinn spurði Bismarck hvort
hann vildi koma þessu á framfæri við stórveldin, en hann
svaraði, að Tyrkinn yrði að segja fyrst sjálfur, hvað hann vildi.
iþá komst soldán i standandi vandræði, en Englendingar stældu
hann upp i endalausa samninga við Rússa og við það stendur
enn (febrúar). Móðir Ferdínands kom til Búlgariu að hitta son
sinn og er þar enn. Um nýjársleitið (1888), var uppreisn í
bænum Burgas í Eystri Rúmelíu af völdum Rússa, en var bæld
niður á augabragði. A nýjársdag Búlgara, sem er 13. janúar
eins og Rússa, sagði Ferdínand, að ekki mundi hann víkja úr
landinu fyrir vopnum, en treysta sinum trúu þegnum til viðtöku
og kvaðst hann vera fús til að leggja líf sitt i sölurnar fyrir
sjálfsforræði Búlgara.
III. Alexander Rússakeisarí og falsskjöl. Þrenningarsamband
eða sambandið helga.
það er kunnugt, að Alexander þriðji Rússakeisari er kvong-
aður dóttur Kristjáns níunda, Dagmar eða Maríu Feódórovna,
sem hún kallast á rússnesku, og kvað hún vera hinn mesti kvenn-
skörungur. Alexander skreppur opt til Danmerkur með konu sinni