Skírnir - 01.01.1888, Qupperneq 15
EVRÓPA ÁRIÐ 1887.
17
IV. Rússland og Austnrríki eða ófriðargrýlan.
Um vorið 1887 sögðu rússnesk blöð einkum Moskvu-
tiðindi Katkoífs, að Bismarck, svikahrappurinn, hefði með Berlínar-
samningnum 1078 bolað Rússland frá þvi, sem þeir hefðu
unnið með ærnu fé og blóði, en látið Austurríki fá Bosniu og
Herzegovinu, slafnesk lönd. Varð nú mikil blaðarimma um
þetta mál, þangað til «Norddeutsche Allgemeine Zeitung*
(norðurþýzk almenn tiðindi), sem ér hið helzta blað Bis-
marcks, sagði, að Andrassy, sem var utanrikisráðgjafi Áusturríkis
um það leyti, hefði samið við Rússa, áður en þeir lögðu
út í stríðið við Tyrki og áskilið Austurriki Bosníu, ef það
léti ófriðinn hlutlausan. Tisza ráðgjafi var spurður af Ung-
verjum á þingi í Pest 21. maí, hvort þetta væri salt, og
játaði hann það. Sama dag stóð i Parisarblaðinu Figaro,
grein eptir Lefló, sem var sendiherra Frakka i Pétursborg
1875. Segist hann hafa sagt Rússakeisara og Gortjakoíf frá,
að eptir sögn og bréfum áreiðanlegra manna ætlaði Bismarck
að ráðast á Frakka þegar voraði og bað hann ásjár. þeir
kváðust báðir ætla til Berlínar og lofuðu að bjarga við friðinum
og leyfa ekki Bismarck þetta. En reyndar ætluðu þeir þá í strið
við Hundtyrkjann, að leysa úr ánauð hina slafnesku bræður, sem
varð 1877, og vildu íáBismarck til að láta það hlutlaust. þýzku
blöðin sögðu, að þetta væru tilhæfulausir elliórar úr Lefló. Nú
leið sumarið. Fám dögum eptir að Alexander hafði verið í
Berlín, sögðu blöð í Austurriki, að Rússar væru alltaf að auka
her sinn við landamæri Austurríkis eins og þeir ætluðu að vaða
inn á landið og væri hann bráðum kominn upp í 2—300,000
manns. Felmtri og ótta sló yfir Vínarbúa. Austurríkiskeisari
kallaði saman ráðgjafa sína og hershöfðingja og ráðgaðist um við
þá hvað eptir annað. Varð það ofan á, að hinar 12 miliónir gyll-
ina, sem veitt voru til herbúnaðar 18. febrúar, skyldi nú brúlcaðar,
en ekki þorði neinn að impra á að spyrja Rússakeisara, hvernig
stæði á þessum herbúnaði. Ferdinand af Coburg var skamm-
aður í blöðunum. Hann væri rótin til alls þessa óróa og ætti að
leggja niður völdin. Blað hinnar ungversku stjórnar í Pest
2