Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1888, Page 23

Skírnir - 01.01.1888, Page 23
ENGLAND. 25 1880, þegar hann steypti Beaconsfield. Walesbúar fylgja honum flestir i hinu írska máli og af 30 þingmönnum þaðan fylgja 24 honum. þeir eru keltneskir að kyni og heimta sjálfsforræði fyrir sig þó þeir séu ekki nema 1V2 miljón að tölu. þeir þrjózkast við að borga tíund til biskupakirkjunnar ensku, enda er ekki nema Ve þeirra í henni. Gladstone hélt ótal ræður á járnbrautar-stöðvum og vögnum og víðsvegar. Hann kvaðst vona að hann lifði úrslit írska málsins og þá kæmi Wales á dagskrá; hann sagði, að meiri hluti Englendinga fyrir utan England, sem væri miklu fleiri en Englendingar sjálfir (70 miljónir, en Englendingar 37), væri sín megin. Stjórnin kom með uppástungu, þegar aptur var gengið á þing. Annari umræðu glæpafrumvarpsins skyldi lokið kvöldið 10. júní kl. 10, hvað margar breytingartillögur sem væri óræddar þá. Irar versnuðu nú enn. írskum þingmönnum var bannað að koma á fundi, sum- um í viku, sumum i hálfan mánuð vegna óbótaskamma um aðra þingmenn. Hinn 8. dag júlím. var 3. umræðu frumvarpsins lokið í neðri deild, en daginn eptir fjölgaði flokk Gladstones. þann dag voru aukakosningar til þings í Coventry og Harting- tonsflokkur missti þar mann og hafði misst annan 1. júli við kosningarnar í Spalding. Um sama leyti tók Gladstone við heiðursgjöf frá 10,700 borgurum í New-York. Hann sagði við sendimennina, þegar hann tók við henni, að nú væri þjóðin að snúast á sitt mál og hann óskaði nýrra kosninga svo ekki yrði lengur kákað við Irland og ýfð upp gömul sár. Hin nýju lög mundu verða í höndum stjórnarinnar vopn móti henni sjálfri, (líkt og öxin 1 höndum Grettis). Hinn 18. dag júlím. ritaði Victoría nafn sitt undir lögin, sem síðan heita Crimes Act (Glæpalög). En í júlílok afgreiddi þingið landbúnaðarlög, sem áttu að friða Ira jafnframt hinum lögunum. Nú vikur sögunni til írlands. Irar voru hættir að greiða land- skuldir umhaustið 1886 eptir fyrirsögn Dillons ogBrjáns. þeirvörð- ust í kofum sínum með vellandi biki, sjóðandi vatni, stækri keitu og öllu því sem hönd á festi. Hinum ensku hermönnum þótti hin mesta svívirða að láta afgamla karla og kerlingar skaðskemmá sig, enda kom það fyrir að þeir borguðu sjálfir landskuldina

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.