Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 26
28
ENGLAND.
samninginn. Englendingar áttu að rýma Egyptaland eptir 3-
ár og Suezskurðurinn að vera öllum jafnheimill. Englendingar
áttu að hafa rétt til að hlutast til á Egyptalandi ef þeim þætti
þess við þurfa. Soldán fiýtti sér ekld meir en hann er vanur
og fékk hvern frestinn á fætur öðrum, enda sátu sendiherrar
Rússa og Frakka við hitt eyrað á honum, svo hann vissi ekki
sitt rjúkandi ráð hverjum hann átti að geðjast. Hann bar
fyrir sig, að hátíðahöld gæfu sér ekki tíma til ritstarfa.
Drummond gaf honum endilegan frest til 4. júlí og kvaðst
fara þann dag, ef soldán ekki ritaði nafn sitt. Soldán gleymdi að
skrifa nafn sitt, Drummond fór og samningurinn fór út um þúfur.
Seinna gerði Salisbury samning við Frakka um Suez-
skurðinn, sem var líkur hinum og Frakkar lofuðu að rýma eyjar
við Ástraliu, sem heita Nýju Suðureyjar (New Hebrides). Enskir
og rússneskir hermenn voru að marka landamæri milli Rússa
og Afgana um sumarið og eru ekki búnir að því enn. Hinn 9.
nóvember hélt Salisbury ræðu i Guildhall í Lundúnum, eins og
venja er á hverju ári, þegar bæjarstjóri i City tekur við em-
bætti. Hann kvaðst hafa verið sannspár 9. nóvember 188&
er hann spáði friði. Hann sagði frá, að Ajub Khan, sem slapp
úr varðhaldi Persa haustið 1887 til Afganistan og gat orðið
vandræðagripur þar, hefði sjálfkrafa gefizt upp á vald Indlands-
stjórnar. Salisbury sendi um haustið Jósef Chamberlain, sem
áður er getið, til Ameríku að semja milli Bandafylkjanna og
Canada um misklíðir út af fiskiveiðum. Áður en Chamberlain
fór hélt hann ræður i Ulster, þeim hluta Irlands, sem hefur
prótestanta trú og er andstæður Parnell. Hann sagði þeim
að, ef írar fengi sjálfsforræði, þá mundi þeir kúga þá og eyði-
leggja hið blómlega ástand, sem Ulster væri í. Við árslok
var ekki enn gengið samán í samningunum milli hans og
Bandafylkjanna.
A Indlandi var Dufferin lávarður, sá sem var á íslandi
1856 jarl. Stjórn hans þykir afbrágðsgóð. Furstinn af Hýder-
abad gaf honum af sjálfsdáðum 11 miljónir króna til viggirð-
inga á Indlandi. Við riki Engléndinga jókst um áramótin
Sikkim við Himalayafjöllin í skarðinu milli Indlands og Thibet.