Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1888, Side 38

Skírnir - 01.01.1888, Side 38
40 ÞÝZKALAND. verja er kaþólskrar trúar. Píus níundi skrifaði bréf 1875 til biskupa á |>ýzkalandi og bannaði þeim að hlýða lögum þeim, sem komu út í maí 1873 og eru kölluð maílögin. þ>essi lög brjóta klerkana undir hina veraldlegu stjórn. iþau hafa síðan verið linuð, en nú var frumvarp lagt fyrir Prússaþing vorið 1887; það frumvarp linar þau svo mjög, að kaþólskir menn geta nú gefið páfanum það, sem páfans er, og keisaranum það sem keisarans er. A ársfundi kaþólskra manna í Trier lýsti Windthorst, foringi hins kaþólska þingfiokks, reyndar yfir, að þetta væri ekki nóg og að stjórnin yrði að jeta ofan í sig lögin að fullu og öllu. Enn væri svo sem verið hefur, að fremur ber að hlýða guði en mönnum, fremur páfa en keisara. En Bismarck sagði á þingi, að fyrst að páfinn sjálfur gerði sig ánægðan, þá yrðu trúarliðar hans líka að gera það. Kaþólskir menn væru jafnhollir þegnar og aðrir að undanskyldum þeim, sem færu með drottinsvik og landráð og vildu gera Hannóver að konungsríki aptur. Windthorst kippir sér ekki upp við, þó Bismarck sendi honum slíkar hnútur, þvi hann er því alvanur. En hertoginn af Cumberland, sem býr í Gmunden nálægt Vín og er giptur f>yri, yngstu dóttur Kristjáns níunda, lifir sí og æ í von um að verða konungur í Hannóver, þó margir segi, að þann dag muni hann aldrei sjá. Vilbjálmur, þýzkalandskeisari og Prússakonungur, hélt 90 ára afmæli sitt 22. dag marzm. í Berlin með mildlli dýrð. Hann barðist á móti Napóleon mikla á Frakklandi 1814 og var þá 17 ára. Hann hefur verið konungur i 26 ár og keisari síðan 18. janúar 1871. A hans dögum hefur hin þýzka þjóð safnast i eina heild og þýzkaland orðið hið voldugasta stór- veldi á meginlandi Evrópu. Hann er líka tignaður um allt þýzkaland eins og hálfguð. Ovíða er hús á þýzkalandi, þar sem myndir þremenninganna, Vilhjálms, Bismarks og Moltke, eru ekki til. Hérumbil 90 konungbornir menn komu að færa keisara heillaóskir; einn af þeim var krónprins Dana og líkaði hinum dönsku Slésvikingum ferð hans iila. Keisarinn er furð- anlega ern enn, opt lasinn en aldrei rúmfastur meir en einn eða tvo daga. Krónprinsinn, sonur hans, hefur fengið mein i bark-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.