Skírnir - 01.01.1888, Page 42
44
ÞÝZKALAND.
verjum og leikrit hans eru leikin um allt f>ýzkaland og jafnvel
í Austurriki. Hann hefur lika búið mikinn hluta æfi sinnar í
Miinchen; hann kom til Berlínar, til að sjá eitt af leikritum
sínum leikið og var þar fagnað mæta vel. I vísindum standa
þjóðverjar Frökkum og Englendingum jafnfætis. Virchow, Du
Bois Reymond og Helmholtz eru ágætir vísindamenn. I mál-
fræði taka þjóðverjar öllum öðrum fram. Margir þjóðverjar
segja, að skólatími sé oflangur og skólakennsla ofmikil á
þýzkalandi og þjóðin sé að verða nærsýn af skólasetum. Að
öllu má ofmikið gera, hvað gott sem það er. Lærdómurinn
er orðinn svo mikill á þýzkalandi, að doktórar sitja þar á
hverju strái. I söngsmíði eru þjóðverjar lika öllum fremri.
Menn úr öllum löndum ferðast til Baireuth í Bayern, að sjá
og heyra hina stórkostlegu tónleiki Wagners, sem eru leiknir
þar í sérstöku leikhúsi fyrir utan bæinn, sem eingöngu er reist
fyrir þá. Einkum eru tónleikir hans um Niflunga og Gjúkunga
og Tistram og Isönd stórkostlegir og þungskildir og þykir
örðugt að leika þá. Wagner dó 1883, en á lærisveina í öllum
löndum og frægð hans vex ár frá ári.
Ítalía (Italia).
Úmbertó. Massovah-leiðangurinn. Depretis. Crispi. Frakkar. Her
ítala. Páfi. Giordano Bruno. Visindi. Carducci. Verdi.
Ítalía er eitt af hinum 6 stórveldum síðan 1870. í Krím-
striðinu fylgdu Sardiningar Englendingum og Frökkum móti
Rússum og þá létust Rússar ekki vita hvar konungsríkið Sar-
dinía lægi. Vittorio Emmanuele dó 1878 og sonur hans
Umbertó hefur unnið hylli þegna sinna og er ásamt drottningu
sinni Margrét (Margherita) hafður í hávegum hjá þjóðinni.
ítalir höfðu her manns i Massovah við hafið rauða. Ró-
bilant utanríkisráðgjafi var spurður á þingi 24. janúar 1887,
hvort hætt væri við áhlaupi á Massovah, því heyrst hafði, að