Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 43
ÍTALÍA.
45
Ras Alula, hershöfðingi Abyssiníukeisara, vseri á næstu grösum,
Róbílant svaraði, að ef þeir réðust á Itali, þá yrðu þeir náttúr-
iega gerðir apturreka; það væri svo sem ekkert í húfi. Dag-
inn eptir réðist Ras Alula á Itali og vann ekki á, en næsta dag
26. janúar heppnaðist honum að einangra og strádrepa her-
sveit, nálægt 500 manns, við Dogali; komst þar enginn maður
lífs af. Mönnum varð hverft við, þegar þetta fréttist heima á
Ítalíu og Róbílant sagði af sér. Yfirforingja ítala í Massovah
var vikið úr völdum, þvi hann hafði látið Abyssiníumenn fá
töluvert af byssum, til þess að þeir skyldu sleppa itölskum
ferðamönnum. Hermálaráðgjafi ítala, heimtaði 20 miljónir lire1)
til að búa út her og hefna á Abyssiníumönnum. Um sumarið
voru nær 20,000 manns undir forustu San Marzanós sendar
til Massovah. Vegna hita og rigninga er ómögulegt að berj-
ast þar i landi nema frá desemberbyrjun til marzloka.j Englend-
ingar, sem fóru frægðarför í Abyssiníu 1868 undir forustu
Napiers, sendu nú menn til Jóhannesar Abyssiníukeisara eða
Negus Negesti (konungs konunganna) sem hann kallast. þeir
voru lengi hjá honum og reyndu að miðla málum, en komu
aptur annan jóladag, og sögðu að keisari hefði óvígan her
búinn, um 100,000 manns, og vildi láta skriða til skara. Sagt
er, að franskir og rússneskir hermenn sé i liði keisara og hjálpi
honum á marga vegu. Italir fóru nú í hægðum sínum að
leggja járnbraut upp frá Massovah og biðu þess að Abyssiníu-
menn kæmi. þeim þótti ekki árenniiegt að vaða inn í miðja
Abyssiníu eins og Englendingar gerðu 1868. Við það stóð í
árslok, að hvorugur þorði á hinn að ráða.
Tekjur ítalíu árið sem leið voru 1758 miljónir líra, en út-
gjöld 1801 miljón og eru ítalir komnir í töluverðar ríkis-
skuldir.
Úmbertó reyndi að halda ráðaneyti sinu eptir ófarirnar við
Dogali. Depretis tók loks aptur við forstöðu þess en Crispi
kom í stað Róbíiants. Crispi er mæiskur maður og dugandi
og hefur tekið mikinn þátt í að steypa Bourbona-ættinni í
) I lira = 72 aurar.