Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 54
56
RÚSSLAND.
þykir enn verra eru tollar, som Rússar hafa lagt á járnvöru og
ýmislegt annað, sem flutt er frá þýzkalandi inn á Rússland.
þjóðverjar hæðast að pappírsrúblunum rússnesku (rubl), sem
eru ekki verðar nema tæplega 3/5 af sínu upprunalega verði, sem
stendur. Tekjur Rússa á ári eru 880 miljónir rúbla og útgjöid
nokkuð meiri. Rikisskuld Rússa er lcomin upp í 10,440
miljónir lcróna! það er voðaleg skuldasúpa og þjóðverjar sem
eiga mikið af skuldunum, eru hræddir um að Rússar lýsi yfir,
ef í hart fer, að þjóðverjar fái ekki einn eyri af þeim. þeim
er því um og ó að leggja úti ófrið við þessa skuldaþrjóta.
Nihilistar (Nigilist) á Rússlandi eru nú í mörgum flokkum
og vill liver sitt. Samt gerðu þeir banatilræði við Alexander 3.
13. dag marzm. Keisari var í kirkju þann dag við guðsþjón-
ustu, sem haldin er á hverju ári í minningu hins hörmulega
dauðdaga föður hans 1881. Lögregluliðið tók eptir því, að 3
háskólastúdentar, sem það grunaði um leynipukur, gengu fram
og aptur á götu, sem leið keisarans lá um, með stórar bækur
undir hendinni. þeir voru teknir höndum og innan i bóka-
spjöldunum fundust sprengivélar fylltar með hinu megnasta
eitri (Strychnin). þeir ætluðu að kasta þeim inn í vagn keis-
ara, þegar hann æki fram hjá og efnafræðingar sögðu, að eitrið
í þeim væri svo sterkt, að það mundi hafa drepið fjölda manns
kringum keisaravagninn. Keisara var strax sagt frá i kirkj-
unni hvað vel lögregluliðið hefði veitt, en hann sagði ekki
drottningu frá þeirri hættu, sem hafði vofað yfir þeim, fyr en
þau voru komin burt úr Pétursborg. Síðan hefur frétzt um
mörg banatilræði við keisara, en það hefur ætið reynst lygi og
optast komið frá þýzkalandi.
Rússar hafa i hyggju mikið stórvirki. Sem kunnugt er,
hafa þeir lagt járnbraut um Mið-Asíu allt að landamærum
Afganistans með ótrúlegum flýti og er það mest að þakka
dugnaði Annenkoffs hershöfðingja. Nú ætla þeir að leggja
járnbraut frá Rússlandi um þvera Norður-Asíu til Vladivostock
við Kyrrahafið. þessi vegur er frá Pétursborg um 1200 mílur á
lengd og talið er að brautin muni kosta allt að 750 miljónir rúbla !
Og þetta geta Rússar þó þeir séu skuldum vafnir. Kínverjum er