Skírnir - 01.01.1888, Qupperneq 57
59
Danmörk (Danmark).
fingsaga. Varnir. Mannalát. Ýmislegt.
Nu vender vi Madam Svendsen.
Danir sátu á þingi í byrjun ársins og höfðu verið að þinga
síðan 4, október 1886. þingsagan er ekki fróðlegri en vant
er. þegar álit kom frá fjárlaganefnd fólksþingsins um frum-
varp stjórnarinnar til fjárlaga, þá réði Estrup konungi til að
rjúfa fólksþingið því hann gæti ekki komið sér saman við það
um fjárlög. Fólksþingið, sem var kosið sumarið 1884, var
rofið 8. janúar og kosningar fóru fram 28. janúar. Vinstri-
menn á þinginu voru 83 og hægrimenn 19. Eptir kosning-
arnar voru vinstrimenn 75 og hægrimenn 27. Vinstrimenn
misstu 1., 2. og 9. kjördæmi i Höfn og héldu að eins eptir
5. kjördæmi af hinum 9 kjördæmum Hafnar. þar var sósíalist-
inn Holm kosinn með 30 atkvæða mun. Nú fór að bera á því
á þingi, að vinstriflokkurinn var linari við stjórnina en Berg
líkaði. Ymsar ivilnanir við stjórnina voru gerðar ofan i vilja
Bergs. I marz sagði Berg af sér forsetavöldum í þinginu og
Högsbro var valinn til forseta í hans stað. Menn vissu ekki
fyrst hversvegna hann gerði það, en það kom fram siðar.
Hinn 1. dag aprilm. var þinginu slitið og gefin út bráðabirgða-
fjárlög eins og vant er. En nú fór að kvisast að nokkrir for-
ingjar vinstrimanna hefði verið að semja um samkomulag við
ráðaneytið að Berg fornspurðum, boðið góða kosti en hefði ekki
gengið saman með þeim. Um þetta var mikið talað í blöðunum
og Berg sagði sjálfur á fundi i Kolding 12. júní, að það
hefði verið þeir Holstein, Hörup og Bojsen, sem hefði samið
við stjórnina, en hann mundi aldrei víkja fyrir henni í neinu,
þó hann stæði einn uppi, sem reyndar ekki væri svo. því
næst gekk aðalblað Bergs, Morgenbladet i Höfn, úr höndum
honum í hendur hinna sáttfúsu manna, Um sumarið voru ótal
fundir út um land og rifrildi milli Bergs iiða og mótstöðu-