Skírnir - 01.01.1888, Side 60
62
DANMÖRK.
mann gaf út skáldsögu «Med den brede Pensel» og Gjellerup
gaf dt drápu; það var ekki um auðugan garð að gresja í bók-
mentum Danmerkur 1887.
í Höfn voru 1. janúar 1887 289,000 íbúar og 329,000, ef
þorp þau eru talin með, sem eru vaxin saman við hana. Á
Grænlandi voru 31. desember 1885 9,914 íbúa, á Færeyjum voru
1. febrúar 1880 11,220 íbúar. Danir flytja mest út til Eng-
lands (svín, smér og egg), þarnæst til þýzkalands, þá til Sví-
þjóðar, þá til Noregs, þá til Bandafylkjanna, þá til íslands.
Her Dana er nú, að minnsta kosti á pappírnum, 59,000 manns
og floti þeirra 39 gufuskip. I Höfn var mikill undirbúningur
undir Norðurlanda sýning, sem verður haldin sumarið 1888, og
kvað Rússar og Frakkar ætla að senda margt á hana.
Noregur (Norge).
pingsaga. Jacob Sverdrúp. Ýmislegt.
Norðmenn gengu á þing 1. febrdar eins og venja er til.
Nú voru á þingi ekki lengur tveir flokkar, hægrimenn og
vinstrimenn, heldur þrir flokkar, því vinstrimenn skiptust í tvo
flokka, fylgismenn Oftedals prests eða Oftdæli og fylgismenn
Steens rektors, eða þá, sem vilja frelsi i trúarefnum, jafnt sem
öðru, og vilja taka upp það, sem gott er þó það sé ekki
norskt. Oftdælir bregða þeim um, að þeim sé annara um
Evrópu en Noreg og kalla þá Evrópumenn (Europæere) en
þeir kallast sjálfir «det rene Venstre» (hinir hreinu, algjörðu
vinstrimenn). Jeg skal þvi ltalla flokkinn Evrópuflokk, til að-
greiningar frá Oftdælum. Flokkarnir gátu unnið saman meðan
engin mál komu fyrir sem tviskiptu þeim. Kviðdómar voru
lögleiddir í Noregi móti vilja hægrimanna, sem sögðu þeir
mundu kosta Noreg allt að miljón króna á ári, að menn væru
orðnir þreyttir á þeim löndum, sem þeir væru i o. s. frv.
Nú kom mál sem sundraði hinum tveim vinstriflokkum.
það var uppástunga um að veita skáldsöguhöfundinum Alex-