Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1888, Side 75

Skírnir - 01.01.1888, Side 75
AMERÍKA. 77 stórt félag, International Arbitration and Peace Association. f>að vill afnema allan ófrið og leggja allar misklíðir milli þjóða í gjörð. f>að sendi nefnd til Clevelands með bænar- skjal, sem var undirskrifað af 223 enskum þingmönnum. I því var farið fram á, að jafna skyldi allar þrætur milli Englands og Bandarikjanna með gjörð. Hinn 1. dag nóvemberm. var Cleveland fengið í hendur skjalið af vísindamanninum Lyon Playfair með þeim orðum, að sá dagur gæti ekki komið, að bræðurnir báðumegin við Atlantshaf bærust á banaspjótum. Cleveland sagðist vera á öllum skoðunum félagsins og vona að þær yrðu sigrandi, þegar tímar liðu fram. Kalakava, konungur á Sandwicheyjum, var neyddur til að gera stjórn sína þingbundna 6. júlí 1887. Her hans er ekki nema 400 manns og hann þorði ekki að beita hörðu við þegna sína og neita kröfum þeirra. Nærri öll verzlun eyjarskeggja er við Bandarikin og eyjarnar eru háðar þeim að öllu leyti og ekki konungsríki nema að nafninu til. Frá samningum um fiskiveiðar milli Canada og Banda- ríkjanna, er sagt í Englandsþætti. Chamberlain, fulltrúi Eng- lands i þeim samningum, varaði Canadamenn við, að afnema tolla milli þeirrajog Bandaríkjanna um leið og þeir legðu toll á enskan varning og sagði, að það væri hið fyrsta stig til við- skilnaðar við England og sambands við Bandarikin. Ameríku- menn kvarta yfir, að Englendingar og Canadamenn fiski of nálægt landi við Alaska strendur, en um Canadamálið er búið að semja svo opt, að þeim er farið að leiðast þófið og Canada væri illa stödd, ef hún hefði ekki bakjarl i Englandi. Hinn 17. dag septemberm. voru 100 ár síðan Bandarikin fengu þá stjórnarskipun, sem þau nú hafa. þá dagana voru stórkostleg hátíðahöld i Philadelphia; Gladstone var sá eini Evrópumaður, sem var boðinn á þessa hátíð, en hann svaraði, að hann væri ofgamall til þeirrar ferðar; hann sagði um leið, að engin þjóð ætti eins góða stjórnarskipun og að þeir skyldu breyta henni sem minnst. Skáldið Whittier, sem var áttræður það ár (fæddur 1807), var kosinn til að yrkja kvæði i minningu

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.